Morgunblaðið - 10.09.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 10.09.2000, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Grettir ( PAt) ER MÉR EýFITT A£> 7IBUR-) S KENNA EN EG SAKNA JÓNS J ÉG SAKNA HþÁTURSINS... | ^-^JŒM^IGAFUNNAR^^y^ ÉG ÆTTI KANNSKI Af) HLEYPA ) «-? HONUM ÚT ÚR SKAPNUM -S z BANK ! r BANK ! gT/jL xB^nk! M6 Í Ljóska ESHELD AÖVH> ÆTTUM Aö REYNA AÐ BÆTA SAM- K0MULA6IÖ -TÖKUM VOPNAHLÉ HVAÐ ATTU VIÖ STJÓRI. OKKUR KEMUR ASÆTLE6A SAMAN NEI.PAOENDAR /^PADSKIPTTR ALLTAFMEDPVÍAÖ J ENSUMALI, E6 HÆKKA RÓMINN / HAF6U EKKI rSV'M N0KKRAR AHYSSJUR HVA6A URTÖLUR ERU PETTA ?l 06 HÆTTU At) ANDMÆLA MÉR - 06 STATTU UPP- RÉTTUR PE6AR É6 TALA VR) PI6I Ferdinand Smáfólk Herra, ég sé ekki lengur handa minna skil. Hvar er leiðsögu- maðurinn okkar? Hvaða neistaflug er þetta? TMI5 15 50METHII46 U)E LEARNEP IN LAW 5CH00L..IF YOU CHEU) UJINTER6REEN CANPTIN THEPARK,|TMAKE5SPARK5í Þetta er nokkuð sem við lærðum í lagadeildinni. Ef maður tyggur nammi úr vetrarliijuolíu í myrkri, þá myndast neistar. Hvað gerum við ef við klárum vetrarlilju- nammið? Hljóð Magga, tyggðu bara. Fáráðlings- háttur eða trúnaðarbrot? Frá Ásmundi Brekkan: ÉG LEIK golf mér til skemmtunar. Það hefi ég gert um allmörg ár, með mikilli ánægju, en takmörkuðum árangri. Við hjónin erum félagar í einum golfklúbbi svæðisins og sem slíkir fengum við hvort í sínu lagi fyrir nokkrum vikum síðan send bréf frá Islandsbanka, sem innihéldu tvö kreditkort ásamt talsverðum gljá- pappírstexta er varðaði þessi kort. Þar kom fram að stjórn Golfsam- bands íslands og íslandsbanki hefðu komið sér saman um að það væri hið besta mál, og mátti skilja, bráðnauð- synlegt að fá okkur í hendur ný kreditkort, sem skyldu styrkja okk- ur í félagsstarfinu og auk þess veita okkur aðild að fjármagni íslands- banka, með milligöngu kortafélags hans, Eurocard. Kort þessi áttu jafnframt að tryggja 20% afslátt af flatargjöldum (aðgangseyri að golf- völlum utan eigin klúbbs), talsverð- an afslátt hjá ýmsum fyrirtækjum, sem seldu golfvörur og annað, og loks minnir mig, að hafi verið ein- hverjar þokukenndar ábendingar um hve gott væri að hafa þessi kort erlendis. Þá var það tekið fram, af hálfu bankans, að hann myndi stofna sérstakan kortreikning fyrir hvern handhafa (sem vildi nota kortið). Svona kort munu hafa verið send 6.000-7.000 félögum í hinum ýmsu golfklúbbum. Mig langar nú að gera þetta „framtak" að nánara umræðuefni: A þeim vikum sem liðnar eru frá heimsendingu hefi ég rætt við fjölda kunningja og klúbbfélaga úr hinum ýmsu golfklúbbum og ekki hitt einn einasta sem ekki hefur verið stein- hissa á þessu „framtaki". Undrun manna beinist einkum að því hvemig í ósköpum starfsmönnum í banka detti í hug að taka traustataki kenni- tölur borgara, komast inn í mynda- safn reiknistofu bankanna og útbúa með þessum gögnum „fullgild" kreditkort án nokkurs sambands, fyrirspurna til eða leyfisveitinga frá hlutaðeigandi einstaklingi. Til að bæta gráu ofan á svart telur bankinn sig síðan hafa leyfi til að stofna reikning í nafni einstaklinga án frekara samráðs við þá eða um- boðs frá þeim. Hvað varðar hlut stjórnarmanna eða ábyrgðarmanna Golfsambands Islands er það að segja að mér hefur borist fjöldi ummæla um að ýmsir klúbbar séu síður en svo hrifnir af loforðinu um 20% afslátt vallar- gjalda, enda rekstur og viðhald golf- valla dýrar framkvæmdir og flestir klúbbar í fjárhagsvandræðum. Ekki mun verið haft samráð um þennan afslátt. Að öðru leyti sýnist mér hlut- ur þeirra í þessu máli mega flokkast undir þekkingarleysi og mjög skerta siðferðiskennd. Hlutur bankans og ráðamanna hans er í mínum augum mun alvarlegri og sýnist mér hér vera um grafalvarlegt brot að ræða á trúnaði og venjulegum samskipta- reglum. Ég hefi sent tölvunefnd formlega kvörtun vegna þessa grátbroslega en jafnframt mjög alvarlega máls og skora á fleiri að gera hið sama. Hvað Islandsbanka snertir eru mér, sem margra ára viðskiptamanni, þetta mikil vonbrigði, enda hefur, a.m.k. fram að sameiningunni, verið per- sónulegur trúnaður og þægilegur samskiptaandi. Vona ég að gamlir og rótgrónir stjórnendur bankans sjái til að fjármálagemsar og -gimbrar leiki ekki alltof lausum hala. ÁSMUNDUR BREKKAN, Þorragötu 7, Reykjavík. Full búð af nýjum bútasaumseftium ' M.a. jólaefni, handlituð efni, ThimbLeberries- efni og efiifrá Debbie Mumm. ViRHA Mánud.-föstud. kl. 10-18, Mörkin 3, sími 568 7477. lau8ard' frá L sePr-'31' maí. frá kl. 10-14. Afsláttur í september af barnamyndatökum BARNA éFJÖLSKYLDU LJ0SMYNDIR Núpalind 1 Sími 564 6440 www.ljosmyndir.net Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.