Morgunblaðið - 10.09.2000, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 10.09.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 51 I DAG Arnað heilla QA ÁRA afmæli. Á i/ \/ morgun, mánudag- inn 11. september, verður níræður Jön Helgason skó- smíðameistari, Elli- og hjúkrunarlieimilinu Grund. Eiginkona hans var Petrón- ella Pétursdóttir sem lést 1987. A A ÁRA afmæli. Nk. OU miðvikudag 13. sept- ember, verður sextug Þór- unn Jónsdóttir, Hrísrima 9, Reykjavik. Hún tekur á móti gestum kl. 18 á afmæl- isdaginn í Veisluþjónust- unni, Glæsibæ. r A ÁRA afmæli. í dag, ti\J sunnudaginn 10. september, verður fimmtug- ur Bolli Thor Valdimarsson vélstjóri, Holtsgötu 30, Sandgerði. Hann er erlend- is ásamt eiginkonu sinni, Helgu Herborgu Guðjóns- dóttur. BRIDS Umsjiín liuðniiiiiihir Sv. Ilerinannsson ÍSLENSKA bridslandsliðið sýndi hvað í því býr með því að komast í úrslitakeppni Olymp- íumótsins í brids og leggja síð- an Hollendinga í 16 liða úrslit- um. í þessu spili sem kom fyrir í Hollandsleiknum gafst vei að opna á grandi sem upp- fyllti ekki alveg ströngustu kröfur: Suður gefur, allir á hættu Noyður * AKD64 v A4 ♦ 10953 + G6 Vestur Austur ♦982 4.10753 vK7 VDG6532 ♦ D2 *8 +ÁKD1092 4.53 Suður 4.G V1098 ♦ÁKG764 +874 Við annað borðið opnaði Wubbo de Boer í vestur á 1 laufi og eftir það var leiðin greið fyrir Aðalstein Jörgen- sen og Sverrir Armannsson inn á sagnir. Þeir gerðu síðan vel að komast í 5 tígla sem voru auðunnir, 600 til Islands. Eins og sést hefðu 4 spaðar unnist einnig. Við hitt borðið sátu Magnús Magnússon og Þröstur Ingi- marsson AV. Þar byrjaði Þröstur í vestur á 1 grandi sem lofaði 14-16 punktum og jafnri hönd. Þessi opnun gerði NS erfitt fyrir. Bart Nab í norður valdi að passa, og Magnús í austur sagði 2 hjörtu sem sýndi hjarta og veik spil; þeir Þröstur spila svonefndan tvöfaldan Stayman þar sem 2 tíglar er geimkrafa. Hefðu AV notað yfirfærsl- ur, eins og algengast er, og Magnús sagt 2 tígla hefði Huub Bertens í suður getað dobiað til að sýna tígullit. En nú valdi hann að passa, sama gerði Þröstur og Nab í norður sagði 2 spaða. Bertens í suður sagði þá 3 tígla og þar við sat, 150 til Hollands en 10 stig til íslands. Hlutavelta Þessir duglegu krakkar héldu hlutaveltu til styrktar Húsavíkurdeild Rauða kross íslands. Þau eru í efri röð f.v.: íris Grímsdóttir, Huld Grímsdóttir, íris Svein- björnsdóttir. Neðri röð f.v.: Börkur Guðmundsson, Selmdís Þráinsdóttir og Kristinn Lúðvíksson. Þessar duglegu stúlkur, sem búa á Hellu, héldu tombólu fyrir stuttu. Þær söfnuðu alls 13.290 kr. sem þær gáfu í kapellusjóð Dvalarheimilisins Lundar á Hellu. Þær heita Kristín Erla Kjartansdóttir og Fríða Björg Þor- björnsdóttir. UOÐABROT BASLHAGMENNIÐ Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur, smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur. VELLÍÐANIN Á daginn kafinn óðaönn í að fá að lifa. Stel af nóttu stuttri spönn stundum til að skrifa. Stephan G. Stephansson. ORÐABOKIN EKKI alis fyrir löngu minntist kunningi minn á það við mig, að hann hefði heyrt í opinberri ræðu talað um að geta sér góðan orð- stír. Taldi hann, að hér hefði ræðumaður mismælt sig herfilega, því að hann hefði átt að tala um orðstí í þessu sambandi. Fáeinum dögum síðar sá ég bæði á skjá Rík- issjónvarpsins og í blaði rit- að svo. Þetta gefur mér til- efni til þessa pistils. Nafnorðið orðstír er sam- sett, og merkir seinni liður Orðstír þess, tír, heiður, sæmd. Þessi liður mun einungis lifa í no. orðstír í nútíðarmáli. Annars má sjá í OM (1983) ýmsar samsetningar, svo sem tírhönd, hönd sem veitir virðingu, orðstír. Lo. tírlaus = ærulaus og tír- samur = virðingarmikill, frægur, en þessi orð munu ekki Iengur mælt mál. í no. tír er r-ið stofnlægt og helzt í allri fallbeygingu þess. Orðmyndin tír er því óbreytt í öllum follum, nema -s bætist við ef. Þess vegna er rétt að tala um góð- an orðstír, alls ekki orðstí. Hér er hins vegar á ferðinni ruglingur við annað nafnorð, þ. e. týr = hetja, goð. Hér er r-ið ekki stofnlægt og hverfur í beygingunni. Allir kannast við goðana- fnið Týr og svo mannanöfn eins og Hjálmtýr og Valtýr og fleiri með týr sem seinni lið. Hér er það týr í nf., en svo ekkert r í hinum follunum. Því er talað um Hjálmtý, vera hjá Hjálmtý og fara til Hjálm- týs. - J.A. J. STJÖRJYUSPA eftir Frances llrake MEYJA afmælisban} dagsins: Þú átt auðvelt með að afla þér vina en ert of kærulaus og missir þájafnfljótt frá þér aftur. Hrútur (21.mars-19. apríl) ''M Þú getur skerpt á markmið- um þínum með því að ræða þau við einhvem nákominn. Settu þér skynsamleg mörk, því annars er hætt við að allt misheppnist. Naut (20. apríl - 20. maO Það ríður á miklu, að þú dreif- ir ekki kröftum þínum um of. Veldu þau verkefni, sem þér henta bezt, og láttu aðra um að ganga frá hinum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þú kemst ekld hjá því að hug- leiða vandlega hvaða afstöðu þú átt að taka til þeirra hluta, sem máli skipta. Vertu svo trúr þinni sannfæringu. Krabbi (21.júní-22. júlí) Láttu ekki vinnufélaga þína draga þinn í deilur, sem koma þér ekkert við. Þegar mold- viðrinu slotar, stendur þú uppi með hreinan skjöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Láttu sjálfselskuna ekki ná svo sterkum tökum á þér að þú verðir óalandi og ófeij- andi. Leggðu þig þvert á móti fram um að vingast við aðra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (SSL Þótt ýsmum skrýtnum hlut- um sé stungið að þér, skaltu gæta þess að láta ekki hafa þig að leiksoppi. Vertu á verði og gættu sjálfsvirðingar þinnar. Vog (23.sept.-22.okt.) Dagarnir eru hver öðrum lfk- ir og þú þarft að brjóta þá upp og skapa tilbreytingu í líf þitt. Það er undravert hvað lítil breyting getur gert. Sporðdreki (23. okt.-21. nóv.) Þú ert í aðstöðu til þess að láta til þín taka og þarft því að að vera vel undirbúinn, þegar þú flytur mál þitt. Billegir brandarar skemma fyrir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) fUiO Þú þarft að leggja höfuðið í bleytið og fmna fleiri fjáröfl- unarleiðir. En tækifærin eru mörg svo þú átt ekki að vera í neinum vandræðum. Steingeit (22. des. -19. janúar) mSÍ Það eyðileggur bara meira fyrir þér að vera þverskallast við að viðurkenna mistök þín. Sýndu stórlyndi og réttu fram sáttahönd. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) CSS Þú átt greiðan aðgang að vinnufélögum þínum, ef þú bara vilt. Það þýðir hins veg- ar ekki að slá um sig með blekkingum, þær springa bara í fangið á þér. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hafðu blýant og blað við hendina til að skrá drauma þína. Það getur gefið þér ýmsar vísbendingar sem þú lærir með tímanum að skilja. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Trölladeigsnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Úrval hugmynda. 9 ára reynsla. Aldís, sími 698 5704 Meðvirkni Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið 15. september og laugardag 16. september 2000 í kórkjallara Hallgrímskirkju. Nánari upplýsingar og skráning í síma 553 8800. Stefin Jóhannsson, MA, JjölskyldurdSgjofi Taktu mér eins og ág er, svo ég geti lært hvaö ég get orðið ki LÆRÐU SJALFSDALEIÐSLU A ■ Næstu nátnskeift hcfiast 13. o» 14, sept. Einkatímar • sími 694 5494 •Námskeið Frábær árangur Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafhvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Hringdu núna Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. Ghesilegt úrvol afsamkvœmiskjólum Ný sending Allir fylgihlutir m \ :L. \\ 9 Fataleiga Garðabæjar, sími 565 6680. Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga kl. 10 til 14. BRIDSSKOLINN Námskeið á haustönn (V) (§. Byrjendur: Hefst 26. september og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöid, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Það geta allir iært að spila brids, en það tekur svolítinn tíma að ná tökum á grundvallarreglum Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann. Kennslubók fylgir námskeiðinu. Framhald: Hefst 28. seplember og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld, þrjár klukkustundir í senn, frá kl. 20-23. Standard-sagnkerfið verður skoðað í smáatriðum, en auk þess verður mikil áhersla lögð á varnarsamstarfið og spilamennsku sagnhafa. Ný bók, Nútíma brids, eftir Guðmund Pál Arnarson, verður lögð til grundvallar. Kjörið fyrir þá sem vilja tileinka sér nútímalegar aðferðir og taka stórstígum framförum. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga. Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga. Bæði námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands íslands, Þöngiabakka 1 í Mjódd, þriðju hæð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.