Morgunblaðið - 10.09.2000, Page 64

Morgunblaðið - 10.09.2000, Page 64
Kiou l'UlíUumi heim að dyrum lilti' l.’C'tiijlUI.ll www.postur.is PÓSTURINN MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2000 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK. Ugla í kassa UGLA gistir nú í kassa á svölum húss í Grafarvogi en hún fannst f Borgarfirði í sfðustu viku, særð á væng. Bárður Magnússon og Sigur- lín Þorsteinsdóttir óku fram á ugl- una á Skorradalsvegi en þau voru á leið í Borgarnes. Uglan var mjög vönkuð og bærði varla á sér þegar Bárður gekk að henni og tók hana upp. Hann telur mögulegt að hún hafi orðið fyrir bíl en skömmu síðar sáu þau reyndar hvar minkur var að sniglast um á svipuðum slóðum. Bárður segir að uglan hafi braggast vel frá því á þriðjudaginn. Hún hefur m.a. étið hrátt kindakjöt en einnig gætt sér á hrárri bleikju sem henni finnst mikið iostæti. Bárður hefur verið í sambandi við Náttúrufræðistofnun og dýra- lækni varðandi umönnun fugisins. A heimiiinu eru tvö börn sem taka Morgunblaðið/Ami Sæberg Elínborg Bárðardóttir lét vel að uglunni enda ekki oft sem færi gefst á að klappa siíkum fuglum. heimsókn uglunnar afar vel. Dýra- læknir sem skoðaði ugluna sagði Bárði að líklega þyrfti uglan viku til viðbótar til að jafna sig. Þá hyggst Bárður sleppa þessum nýja íjölskyldumeðlim út í náttúruna. Sprengjuleit í sendiráði Dana SPRENGJULEIT var gerð í danska sendiráðinu við Hverfisgötu í Reykjavík á föstudaginn eftir að lög- reglu barst tUkynning um að sprengja myndi springa þar innan þriggja klukkustunda. Grunur vakn- aði um að sá sem hringdi til lög- reglunnar væri undir áhrifum áfeng- is. Þrátt fyrir það var sérþjálfuð sveit lögreglumanna og leitarhunda send til að gera sprengjuleit í sendiráðinu. Ekkert fannst við leitina. Lög- reglunni barst símtalið um fjögur- leytið á föstudaginn. Símtalið var rakið og reyndist það vera úr far- síma. Haft var uppi á eigandanum sem bar við í yfirheyrslu lögreglu að hann hefði lánað símann. Að sögn lögreglu ber eiganda símans og þeim sem hann segist hafa lánað hann ekki alveg saman, en engu að síður er rannsókn málsins vel á veg komin. Samkvæmt upplýsingum lögreglu Yfírlýsing Páfagarðs Lúterskir haldi ró sinni SIGURÐUR Sigurðarson vígslu- biskup segir ekki ástæðu til þess að lúterskir menn láti yfirlýsingu Páfa- garðs, um að enska biskupakirkjan og mótmælendakirkjur séu ekki kirkjur í réttum skilningi, raska ró sinni. Yfirlýsingin hljóti að vera mörgum kaþólskum guðfræðingum mikið áfall. Sigurður segir að nýlega hafi ver- ið greint frá því að páfinn hefði lýst yfir því að Píus níundi væri meðal hinna blessuðu en það kunni svo að leiða til þess að hann verði lýstur helgur maður. Píus hafi verið páfi á erfiðleikatímum í sögu rómversku kirkjunnar og hann hafi haldið kirkjuþing sem samþykkti árið 1870 þá kennisetningu að þegar páfi tal- aði frá kennistóli sínum væri hann óskeikull. Á þeim tíma hafi verið gripið til harðlínustefnu til að þjappa rómversku kirkjunni saman og það hafi borið verulegan árang- Rómverska kirkjan í erfiðleikum Hann segir að rómverska kirkjan eigi nú í verulegum erfiðleikum víða um lönd og ekki sé að undra að yfir- stjórn hennar sé þreytt. „Við skul- um hins vegar biðja þess og vona að ekki verði nú reynt að leysa vand- ann með einhverri harðlínustefnu og ofstæki í garð annarra kirkna eins og á nítjándu öld,“ segir Sigurður. Haustið sýn- ir klærnar Fjallshlíðar voru víða gráar í gær- morgun enda stíf norðanátt og úr- koma í fyrrinótt og því kalt á land- inu. Hoffellið í Fáskrúðsfirði var snævi prýtt þegar þessi ljósmynd var tekin norðangarranum í gær- morgun. Víða norðanlands snjóaði nærri því niður í miðjar hlíðar fjalla. Mælar Veðurstofunnar sýna að á fjöllum fór hiti vfða undir frostmark en í byggð var líka kalt. Á Hellu, Siglufirði og í Þykkvabæ var t.a.m. tveggja stiga hiti í fyrri- nótt. Árrisulir íbúar höfuðborgar- innar sáu gráma í Skarðsheiðinni og Hlíðarfjall við Akureyri var grátt niður undir skíðahótelið. Geisladiskataska / Skipulagsmappa / Penni Námsmannalínudebetkort í Bílprófsstyrkir Námsmannalínureikningurl Netklúbbur Framfærslulán I Lægri yfirdráttarvextir Námsstyrkir / Námslokalán T Tölvukaupalán ISICafsláttarkort / Heimilisbankinn Morgunblaðið/Sigurjón Hjálmarsson getur sá, sem gerist sekur um að gabba lögreglu á þennan hátt og hóta fulltrúum erlendra ríkja, átt von á allt að þriggja ára fangelsisdómi. ------------------ Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfírði Fundað í deilunni á miðvikudag RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð- að stjórnendur Loðnuvinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði og starfsmenn verksmiðjunnar í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Fáskrúðsfjarðar til fundar næstkomandi miðvikudag. Vinnudeilan hefur nú staðið yfir í í'úma þrjá mánuði og stöðvaðist starfsemi verksmiðjunnar í vor. Samkvæmt upplýsingum frá ríkis- sáttasemjara hafa verið haldnir 5-6 fundir í deilunni án árangurs og einnig hafa farið fram samskipti við aðila og óformlegir símafundir verið haldnir. Fundurinn verður haldinn á Egils- stöðum á Hótel Héraði. Það er ekki stórt kjaralegt atriði sem skilur deiluaðila að en deilan þykir bera blæ persónulegra átaka. ♦ ♦ ♦ Jeppi valt í Svínadal JEPPABIFREIÐ valt út af yest- fjarðavegi í Svínadal skömmu eftir hádegi í gær og fór nokkrar veltur. Okumaðurinn virtist við fyrstu sýn hafa sloppið með minniháttar meiðsli en lögreglan í Búðardal telur líklegt að jeppinn sé ónýtur. Ekki er vitað um orsakir slyssins. Jakob K. Kristjánsson, forstjóri Prokaria, um nýtingu hveraauðlinda Islands Reiknum með að þurfa að greiða gjald Bestu ár lifs þíns... www.namsmannalinan.is ®BÚNAÐARBANK1NN nðmsmaimállnan FORSVARSMENN líftæknifyrir- tækisins Prokaria gera ráð fyrir að íyrirtækinu verði gert að greiða auð- lindagjald fyrir nýtingu hveraörvera í íslenskri náttúru. Þetta kemur fram í viðtali við Jakob K. Kristjáns- son, forstjóra Prokaria, sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær hefur hlutafé Prokaria ver- ið aukið um 1,1 milljarð kr. Fyrir- tækið hefur sérleyfi til 5 ára til að stunda hagnýtar rannsóknir á 28 af helstu hverasvæðum landsins. Þegar komin ákveðin fordæmi fyrir gjaldtöku Jakob segir í viðtalinu að enn sem komið er hafi ekki reynt á laga- ákvæði sem veita heimild til gjald- töku af nýtingu auðlinda náttúrunn- ar, „en við reiknum með því að þurfa að greiða gjald. Það eru þegar komin ákveðin fordæmi fyrir slíkri gjald- töku, þar sem byggt er á Ríó-sátt- málanum í nokkrum löndum og al- þjóðlegum fyrirtækjum hefur verið gert að borga leyfisgjöld. Eru þá yf- irleitt greidd 0,1-0,25% af arði sem fengist hefur af viðkomandi efni, sem fundist hefur. Mönnum kann að finn- ast þetta lítið en eðli málsins sam- kvæmt er um að ræða eitt af mörg um sýnum. Þegar litið er á þetta verðmætahlutfall, verður að hafa í huga hvers virði sýnið er í upphafi. Sambærileg fyrirtæki metin á 70-100 milljarða Öll „verðmætin" verða til eftir að sýnið hefur verið tekið og þau eru sköpuð með gífurlegum rannsóknar- og einkaleyfakostnaði. Þetta verður því að teljast raunhæft hlutfall og það hlýtur að verða tekið mið af því sem önnur fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni búa við. Það verða varla tekin hærri gjöld af okkur en aðrir eru að borga,“ segir hann. Fram kemur í viðtalinu að helstu sam- keppnisfyrirtæki Prokai'ia eru bandarísku líftæknifyrirtækin Max- ygen og Diversa. Markaðsverðmæti Maxygen er í dag metið á rúma 100 milljarða kr. og markaðsvirði Diversa 70 milljarðar. Jakob segir Prokaria tvímælalaust standa jafn- fætis þessum fyrirtækjum og hafa alla burði til að keppa við þau. Á hlutafjármarkað innan fárra ára Forsvarsmenn Prokaria stefna að því að fyrirtækið verði skráð á hluta- fjármarkaði innan fárra ára. Áætlan- ir fyrirtækisins gera ráð fyrir að sótt verði um 100 einkaleyfi á næstu fimm árum og reiknað er með að á þeim tíma hafi starfsfólki fyrirtækis- ins fjölgað úr 20 í 50 til 70 manns. ■ Með alla burði/10-11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.