Morgunblaðið - 19.11.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 25
tíma hægt að yfirfæra þessa þekk-
ingu á mannfólkið og færa lömuðu
fólki máttinn á ný? Margir visinda-
menn telja það nær víst, eina
spurningin sé hvenær það gerist.
Geta skipt um hlutverk
En hvernig þekkja vísindamenn
stofnfrumur frá öðrum?
„Það getur verið erfitt og einhver
sagði þetta minna á klámið; við get-
um ekki skilgreint það en þekkjum
það þegar við sjáum það,“ sagði
sænski læknirinn og prófessorinn
Urban Lendahl sem er sérfræðing-
ur hjá Karolínska sjúkrahúsinu í
Svíþjóð. Margt óvænt hefur komið í
ljós varðandi stofnfrumur. Eitt er
að þær virðast geta skipt um hlut-
verk, stofnfrumur sem virtust vera
búnar að finna sitt svið geta stund-
um, þegar þörf krefur, farið að
mynda aðra gerð af vefjum. Len-
dahl og fleiri vísindamenn á ráð-
stefnunni sögðu að enn væri það að
miklu leyti hulinn dómur hvað réði
gerð og störfum stofnfruma.
Ókosturinn við að nota stofn-
frumur úr fullvöxnum til lækninga
á meinsemd í manninum sem þær
eru teknar úr er m.a. að þær verður
að rækta í tilraunaglasi sem getur
tekið sinn tíma. Þær eru mjög fáar,
eru oft búnar að verða fyrir ein-
hverjum skemmdum af völdum
mengunar eða lífernis þess sem
hlaut þær í vöggugjöf, eru ef svo
má segja orðnar hálf-dasaðar og
hrumar og því ekki jafnvel nothæf-
ar og frumurnar úr fósturvísi. Sum-
ir vísindamenn álíta samt að hægt
sé að láta þær duga til að vinna
kraftaverkin sem vísindamenn
segja að verði senn innan seilingar.
Kosturinn er sá að þá þyrfti ekki að
taka umdeildar ákvarðanir eins og
þær hvort verjandi sé að nota
frumur úr fóstrum. Fulltrúar á
þingi Evrópusambandsríkjanna
mæltu nýlega með því að af siðferð-
islegum ástæðum yrðu einvörðungu
leyfðar tilraunir með stofnfrumur
úr fullorðnum.
Hvar eru mörkin? Hvenær er
fóstur orðið mannvera? Við getnað
eða eftir nokkrar vikur, eða nokkra
mánuði? Um þessi efni reyndust
skoðanir skiptar en þess ber að
geta að við glasafrjóvgun verður til
fjöldi frjóvgaðra eggja sem ekki
eru nýtt, fólk biður ekki beinlínis
um fimmbura. Eru eggin oft ftyst
til nota síðar en mörg þeirra eru
gefin til rannsókna og síðan eyða
vísindamenn þeim.
Enn ríkir óvissa um viðbrögðin
við sumum kröfum vísindamanna
sem benda á að hægt verði að
lækna fólk og lina þjáningar með
stofnfrumum og vilja fá sem mest
frelsi til rannsókna og tilrauna. Lög
eru í mótun, siðanefndir og ráð-
gjafahópar reyna að setja reglur og
undirbúa lög en hlutirnir gerast svo
hratt að löggjafinn hefur ekki und-
an, að sögn danska læknisins og
siðfræðingsins Soren Holms sem
kennir við Manchester-háskóla.
Margir þátttakendur á ráðstefn-
unni viðurkenndu að þeir væru svo-
lítið ruglaðir og um leið smeykir við
væntanlega byltingu, vissu ekki
hvort réttara væri að leyfa en
banna tilraunir með frumur í fóst-
urvísum. „Ég myndi segja já en er
innst inni full af mótþróa og ótta,“
sagði danski lagaprófessorinn
Linda Nielsen. „Við höldum stöð-
ugt áfram að bæta ofan á bunkann
en vitum ekki hvenær við förum yf-
ir mörkin." Hún sagði málið í reynd
ekki vera stofnfrumur sem siíkar
heldur grundvallaratriði í tilveru
okkar og gildum. Nielsen lagði
áherslu á að reynt yrði að láta
markmið með rannsóknunum ráða
afstöðunni fremur en aðferðina sem
vísindamenn notuðu.
Spren Holm varaði við því að
menn reyndu að ræða gagnsemi
þess „hryllilega kosts“ að eyða einu
lífi til að bjarga hugsanlega öðru
með árangri rannsókna, alrangt
væri að vega slíka kosti hvern á
móti öðrum. Það væri út í hött,
sagði Holm, að sjálfsögðu væru
fósturvísar mannlegs eðlis. „Af-
gangsfósturvísar og fósturvísar til
SJÁNÆSTUSÍÐU
Hvað viltu fá að vita um tónlistina á Topp 20?
Sendu póst til Sóleyjar á mbl.is!
© XY.s mbl.is
SKfBAFERBIR FERÐSKRIFSTOFU GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR TIL SVISS 06 C0L0RAD0 2001
SWSK
Boðið verður upp á 5 brottfarir til hins fjölbreytta
og skemmtilega skíðasvæðis í Crans Montana.
2 stjörnu hótel m/morgunv. 4 stjömu hótel m/morgunv. og kvöldv.
8 daga ferðir
4.og 11. febrúar 74.100 kr. 98.600 kr.
14 daga
4.-18. febróar
93.400 kr.
142.360 kr.
Páskaferð 7.-16. apríl,99.900 kr.
Innifalið í verði: Flug um Kaupmannahöfn til og frá ZUrich,
flugvallaskattar, akstur milii flugvailar og Crans-Montana, gisting
í tveggja manna herbergi og íslensk fararstjórn.
Páskaferð 11.-16. apríl, 56.585 kr.
Innifalið í verði: Flug til og frá Frankfurt, flugvallaskattar,
akstur milli flugvaliar og Crans-Montana, gisting
í tveggja manna herbergi og íslensk fararstjórn.
Vail í Coloraúo:
Eitt stórkostlegasta skíðasvæði Klettafjallanna er Vail í
Tveggja vikna ferð þann 16. febrúar.
Ferðaskritstota
GUDMUNDAR JÓNASSONAR EHF
BORGARTÓNI 34, SÍMI 5ITI5IS, www.gilraval.ls
Hornsófi úr ítölsku gæðaleðri
Nógu stór fyrir alla fjölskylduna
FLODA leðurhornsófi (6 sæta)
frá hinum þekkta leðurframleiðanda
Natuzzi á Ítalíu.
Verð 169.000 kr.
Fæst í grænu, bláu og svörtu.
. MBSH
• ‘Wm
WmSSfi