Morgunblaðið - 19.11.2000, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FISKELDISKAFLINUMER
TVÖ í NAFNIFRAMSÓKNAR
HVAÐ er það sem fær framsóknar-
ráðherrana aftur og aftur til að gera
atlögu að íslenskri náttúru í stað
þess að standa vörð um hana? Spyr
sá sem ekki veit. Undanfarin ár hafa
landsmenn orðið vitni að því að spill-
ing og siðleysi í íslenskri pólitík er
nánast rekin fyrir opnum tjöldum og
hafa framsóknarmenn þar farið
fremstir í flokki. Halldór Ásgríms-
son vælir yfír því að mönnum þyki
óeðlilegt hvernig hann tengist
kvótakerfinu þegar ráðherrar í öðr-
um siðmenntuðum löndum væru
búnir að segja af sér eða þá að
landsmenn og fjölmiðlar væru búnir
að knýja þá til þess að fara frá út af
tengslum sínum við svona kerfí. Nei,
hann vælir yfir því að fjölmiðlar hafi
verið vondir við sig og hann eigi það
ekki skilið og ekki mamma hans
heldur.
Halldór þrjóskast við og vælir og
núna hefur Siv Friðleifsdóttir fundið
það út að umhverfismat sé eitthvað
sem gildi í öðrum löndum en ekki á
íslandi og titillinn hennar sé ein-
göngu til að réttlæta launin sem hún
HÚSASKILTI
Pantið tímanlega
til jólagjafa.
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
r
fær. Úr því að Eyja-
bakkamálið er í ein-
hverjum vandræða-
gangi þá er næsta mál á
dagskrá að útrýma ís-
lenska laxinum með
erfðamengun, lúsfar-
aldri og úrgangi. Og
hvemig gerir maður
það? Jú, nú eiga ein-
hverjir menn, þóknan-
legir Framsókn, að fá
upp í hendumar leyfi
fyrir risafiskeldi í
Mjóafirði fyrir austan
og víst víðar. Kæri les-
andi, veist þú hvað er
verið að tala um?
Komið hefur í Ijós að
bara úrgangurinn úr fyrirhuguðu
fiskeldi á Mjóafirði yrði eins og frá
40.000 manna byggðarlagi. Alls
liggja nú fyrir umsóknir um þrjár
slíkar stöðvar á viðkvæmum fjörð-
um, sem er meira umfang en saman-
lagt allar sambærilegar fiskeldis-
stöðvar á Atlantshafsströnd Kan-
ada. Aðeins ein lítil fiskeldisstöð
hefur ögrandi áhrif á vistkerfið og
breytir því. Fjarðarbotnar geta beð-
ið mikinn skaða af eða gjöreyðilagst
þrátt fyrir hafstrauma.
Sé tekið mið af reynslu Norð-
manna má ætla að hvert úthlutað
leyfi til fiskeldis sé mörg hundmð
milljóna virði og varla getur það tal-
ist eðlilegt að ríkið færi nokkmm
velunnurum sínum þessi leyfi á silf-
urfati og þó... reynslan sýnir okkur
að slíkt gerist því miður og þú felur
ekki tilgang ykkar Halldórs með
þessari ákvörðun þinni, Siv. Allir
vita að veiðimálastjóri er samþykk-
ur þessari óráðsíu ykkar framsókn-
armanna og þær raddir heyrast nú
æ oftar að hann sé óhæfur til að
tryggja framtíð íslenskra laxastofna.
Pað hefur engin opinber undir-
----------------------------------
búningsvinna verið
unnin, Siv. Og laga-
rammi er varla til.
Reglugerðir em af
skornum skammti og
aðlögun að þeim al-
þjóðasamþykktum
sem Island hefur gerst
aðili að hefur ekki far- •
ið fram. Um hvað talið
þið Halldór þegar þið
hittist að ræða þessi
mál? Getur verið að
þér sé bara sagt að
þegja, Siv, og gera það
sem hann segir þér að
gera eða er bara verið
að spjalla um mótor-
hjól og augnskugga?
Pú veist að allar Evrópuþjóðir
hafa á undanfömum áram hraðað í
gegn margvíslegum reglugerðum til
að vernda umhverfið fyrir fiskeldi. í
löndum eins og Skotlandi er í gildi
Evróputilskipun um umhverfismat
(85/337/EC, amended by Directive
97/11/EC) sem beinlínis gerir kröfu
til að fiskeldi sem er ætlað fyrir 100
tonn eða meira eða nær til ’/io hekt-
ara svæðis eða meira eða er áætlað
að vera á viðkvæmu svæði fari skil-
yrðislaust í umhverfismat. Á sama
tíma hunsar þú að láta sérfræðinga
fjalla um mál eldisstöðvar sem er
áttatíu sinnum stærri. Halló! Er
ekki allt í lagi hjá þér, vinan? Hvað
ert þú að gera í þessu embætti? Get-
ur verið að þú sért bara strengja-
brúða Halldórs og þú framkvæmir
svona hluti án þess að skammast
þín, hvað þá meira? Þú talar um að
Rússar séu að menga hafið. Þér
væri nær að taka til í þínum eigin
bakgarði og helst sem allra fyrst.
Við erum stór hópur fólks sem er til-
búinn að rétta þér hjálparhönd við
tiltektina.
Þegar aðrar þjóðir era nánast í
örvæntingu að reyna að bjarga nátt-
úru sinni og lífríki standið þið, berjið
Er ekki kominn tími til
að við, fólkið í landinu,
spyr Bubbi Morthens,
sýnum þessum háu
herrum að við elskum
landið okkar?
ykkur á brjóst og hrópið: Til fjand-
ans með náttúra Islands og lífríki.
Gefum skít í hvað landsmenn era að
hugsa. Byggjum álver, álver, álver
og hefjum laxeldi.
Náttúran er ekkert nema möl og
grjót í ykkar augum. Siv, þú átt börn
sem verða einn daginn fullorðin og
þau munu hugsa og greina sannleik-
ann á gagnrýninn hátt, eins og
flestra barna er siður þegar þau
stækka og sjá foreldra sína í réttu
ljósi. Er þetta arfleifðin sem þú býð-
ur þeim? Náttúran á undir högg að
sækja alls staðar í heiminum. Það
era til aðrar leiðir en þær sem þér er
skipað að fara. Og Halldór, þú stöðv-
ar ekki fólksflóttann suður með ál-
veri eða laxeldi. Nei, þú verður að
taka afleiðingum gjörða þinna.
Fingraför þín era á kvótakerfinu og
það er ein helsta ástæðan fyrir því
að fólkið flýr suður. Þú léttir hvorki
á samvisku þinni með álveri né lax-
eldi.
Og verið viss um það, bæði tvö og
þið hin sem standið að þessum mál-
um, að sagan mun dæma ykkur. Sá
dómur verður vitnisburður fyrir
komandi kynslóðir um það hvernig
þið og ykkar líkar fóruð með landið.
Og um leið verðum við hin ef til vill
dæmd af sögunni sem sauðir sem
höfðu tækifæri til að stöðva þessa
firra en gerðum ekki neitt nema
kjósa ykkur í þessar stöður og kalla
þar með yfir okkur ógæfu sem við
ættum þá líka skilið. En landsmenn.
Enn er tími til að stöðva þessa þró-
Bubbi
Morthens
un. Þetta er landið okkar en ekki
þeirra sem haga sér eins og þeir ein-
ir eigi það. Er ekki tími til kominn
að við, fólkið í landinu, sýnum þess-
um háu herram að við elskum landið
okkar og að það á skilið að við
verndum það og gætum þess fyrir
fólki eins^og Siv Friðleifsdóttur og
Halldóri Ásgrímssyni?
Það má líka benda á það, Siv, að
yfirvöld í Kanada hafa kynnt víð-
tækar verndar- og aðhaldsaðgerðir
varðandi laxeldi þar í landi. Það er
sjávarútvegsráðuneyti Kanada sem
mun greiða kostnaðinn við þær, 75
milljónir kanadadala, til viðbótar við
fyrri fjárveitingar, og fer féð gagn-
gert til viðnáms gegn áreiti laxeldis
og tíl að skilgreina og afmarka skil-
yrði þar að lútandi. Af ofangreindri
fjárhæð munu 12 milljóntr dala
renna til umhverfis- og vistfræði-
rannsókna og 22,5 milljónir til þess
að herða sjávareftirlit og kynna
betri stjórnun á búsvæðum hafsins.
Við vitum líka að þegar leikur á
borð við þetta er stundaður hér á
landi kaupa stjórnvöld sér stundum
sérfræðinga sem eiga að sýna fram
á að hann sé í lagi og þá er öllum
meðulum beitt til að bleklg'a al-
menning. Þetta hefur verið gert og
verður gert hér sem og í öðram
löndum þar sem ríkjandi valdhafar
þurfa að keyra einhver mál í gegn í
nafni lýðræðis. Þekkir þú það hug-
tak, Siv? Nei, ég bjóst ekki heldur
við því í Ijósi seinustu atburða á
þessu sviði sem þú komst að. Þú
gerðir það sem þér var sagt að gera.
Ekkert helvítis umhverfismat. Lax-
eldi í Mjóafirði skal verða í nafni
Halldórs. Amen.
Kæra Siv. Þú ert búin að standa
þig hræðilega í embætti þínu. Ef þú
getur ekki gert betur ættirðu að
vera svo væn og sýna þá skynsemi
að fara frá með þeirri sæmd sem eft-
ir stendur.
Hvað Halldóri viðvíkur þá er hon-
um ekki viðbjargandi, þannig að við
hin sem elskum landið verðum bara
að bíða og vona að flokkurinn þurrk-
ist út, sem hann er á góðri leið með
að gera.
P.s. Það verða íslenskir skatt-
greiðendur sem munu borga brás-
ann vegna þessa ævintýris. Og að
auki munu Austfirðingar sitja uppi
með lífvana firði ef af þessu verður.
Með hæfilegri vinsemd og virð-
ingu.
Höfundur er tónlistarmaður og
áhugamaður um veiði.
Bónus fyrír
korthafa
Nú getur þú greltt með EUROCARD og
MasterCard greiðslukortum í Bónus!
Til leigu
Nýtt skrifstofuhúsnæði í Bryggjuhverfinu
Stœrðir:
larðhœð: 560 m2
2. hœð: 585 m2
3. hœð: 540 m2
4. h. mitlil. 284 m2
Samtals 1.969m2
Glœsilegt 1.969m2 skrifstofu- og verslunarhúsnœði til leigu í nýja bryggju-
hverfinu, sem ó sífettt vaxandi vinsœldum að fagna. Húsið er hannað af
Birni Ólafs arkítekt og staðsett beint við hafnarbakkan með útsýni yfir
smðbátahöfnina. Um er að rœða vandaða byggingu á 3 hœðum auk
millllofts. Engar súlur eru í húsnœðinu. fjöldi bílastœða uppfyltir nýjustu
kröfur skv. byggingarreglugerð.
Frágangur og afhending: Verið er að leggja síðustu hönd á utanhússklœðningu og sameign og hœgt
að afhenda húsnœðið fultinnréttað samkvœmt óskum leigjanda 1. febrúar 2001 eða Jafnvel fyrr.
Þetta er húsnœði fyrir framsýna aðila. sem vilja skapa sér sterka ímynd í fallegu og friðsœlu umhverfi.
Hafið samband og fáið teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar (Guðlaugur sími 896
0747). Verðlð gœtl komlð ð óvartl
L
1
^IGUUSTINN
LEIGUMIÐLUN ATVINNUHÚSNÆÐI - SKIPHOLTI 50 B
SIMI 511 2900