Morgunblaðið - 29.11.2000, Side 20

Morgunblaðið - 29.11.2000, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Menningin blómstrar undir Jökli Sönffvaskáldið > ö •• Olína á Okrum Söngur og kveðskapur hefur alltaf verið stór þáttur í lífí íbúa undir Jökli. Guðrún G. Bergmanri, fréttaritari, sótti heim söngva- skáldið Olínu Gunnlaugsdóttur, bónda á Okrum á Hellnum, sem var að gefa út geisladisk með eigin lögum og texta. „FRA því ég var krakki hef ég spilað á gítar. Ég minnist ekki annars en að allir í nágrenni við mig hafi spilað á eitthvað hljóðfæri og allir sungu. Föð- urfólkið mitt kemur frá Dagverðará og þar hefur alltaf verið mikill kveð- skapui- og skáldskapur og mamma, sem er frá Bárðarbúð á Hellnum, kenndi mér fyrstu gripin og svo þróaðist þetta smátt og smátt,“ segir Óh'na af alkunnri hógværð. „Ég hef alltaf verið að semja texta og lög með hléum og þau nítján lög og textar sem eru á geisladisknum, sem heitir ein- faldlega ÓLÍNA, eru samin á síðustu tuttugu árum.“ Þeir sem hlýtt hafa á söng Óh'nu tala um að textar hennar séu tilfínn- ingaríkir og sumir jafnvel tregafullir. Hún segist semja textana af innri þörf og að þar sem hún tjái sig yfirleitt ekki mikið um tilfmningar komi þær kannski í ljós í textunum. .Ástæðu þess að lögin eru nú að koma út á geisladisk má sjálfsagt rekja til þess að nágranni minn úr sveitinni, Þorkell Símonarson frá Görðum í Staðarsveit, keypti sér síðastliðið ár upptökustú- díó sem auðvelt er að flytja milli staða. Hann sótti mig heim, bauð mér góð samningskjör á upptöku og góðan upptökustjóra og ég ákvað að slá tíl.“ Upptökur í aftakaveðri „Upptökur hófust strax eftir þorra- blót síðastliðinn vetur eins og Ólína orðar það en aðalskemmtiatriðið á þorrablótinu á Lýsuhóli var einmitt samið af Ólínu. Hún tók lög og þema Kardimommubæjarins og samdi nýja texta við öll lögin sem gerðu góðlát- legt ffc'm að lífinu í Snæfellsbæ og leiksýningin var kölluð Snæfells- mannabærinn. Þar lék hún sjálf eitt aðalhlutverkið og þótti fara á kostum. „Stúdíóið hans Þorkels var sett upp í sumarhúsi Karls Roth á Hellnum, en það er gegnt heimili mínu. Þetta var gert til að gera okkur hjónum auð- veldar um vik að sinna upptökum en við erum með þrjár litlar telpur og svo búið sem þarf að sinna. Reyndar höfð- um við komið því svo fyrir að Sigríður mágkona mín, sem rekur Fjöruhúsið hér á Hellnum á sumrin, var komin vestur til að vera ráðskona hjá okkur meðan á upptökum stóð. Varla var upptökustjórinn, hinn kunni tónlist- armaður Björgvin Gíslason, fyrr kominn á staðinn en á skall aftakaveð- ur og í framhaldi af því varð ég mjög veik af lungnabólgu og kvefi og end- aði með að missa röddina. Maðurinn minn hringdi á lækni og ég frétti síðar að hann hefði sagt honum að hann yrði að koma tafarlaust þar sem hann væri að missa konuna frá þremur litl- um börnum. Fyrir einhverja slembilukku hittist svo á að moksturstæki var að ryðja vegina því veðri hafði aðeins slotað og læknirinn gat nánast ekið í hjólfórum þess og komst til mín. Ég fékk lyf og meðhöndlun og læknirinn komst með herkjum til baka til Ólafsvíkur áður en allt varð ófært á ný. Ég byrjaði svo að syngja um leið og röddin kom aftur en verð því miður að segja að það heyrist að röddin er veikburða," segir Ólína en hún á að baki nokkuð langan feril í hljómsveitum innan sveitarinn- ar og hefur sungið í kirkjukómum á Hellnum frá því um fermingu og gerir enn. Spilað un«Iir á glas og skeiðar „Við vorum heppin að þurfa ekki að fá hljóðfæraleikara langt að í þessari ófærð. Meirihluti þeirra kemur úr nærliggjandi sveitum og svo auðvitað úr fjölskyldunni því maðurinn minn, Kristinn Einarsson, spifar undir hjá mér á bassa og munnhörpu. Þorkell Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Sigurliðin á Grunnskóiamóti Norðurlands vestra í knattspyrnu Stelpurnar á Sauðár- króki og strákarnir á Blönduósi sigruðu Blönduósi - Grunnskólarnir á Norðurlandi vestra héldu á föstu- daginn sitt árlega mót í knatt- spyrnu í íþróttahúsinu á Blöndu- ósi. Keppt var í stráka- og stelpuflokki og sigruðu nemendur í Grunnskólanum á Blönduósi í' strákaflokknum en Árskóli á Sauðárkróki sigraði í stelpu- flokknum. Að sögn skipuieg- gjenda mótsins er þetta fjölmenn- asta mót til þessa og sendu grunnskólarnir í Húnaþingi vestra, Skagaströnd, Húnavöllum, Varmahlíð og Hofsósi, auk þeirra sem unnu mótið, lið í keppnina. Ólína á hlaðinu á Ökrum en þaðan er frábært útsýni á Snæfellsjökul. stúdíóeigandi spilar á kjálkahörpu, bróðir hans Þormóður á mandólín og skólastjóri tónlistarskólans á Hellis- sandi, Kay Wiggs, spilar á harmon- ikku. Einu utanaðkomandi undirleik- ararnir eru þeir Björgvin upp- tökustjóri sem spilar á gítar og hljómborð og Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson fyrrum liðsmaður Spoon og Kolrössu sem er gítarleikari en spilar undir hjá mér á bassa. Sjálf spila ég á nokkur ásláttar- hijóðfæri eins og tamborínur, bongó- trommur, bassatrommu úr gömlu trommusetti sem fannst í kjallaran- um hjá mér, á glas með tússpenna, á smjörklappa sem eitt sinn voru notað- ir við búið á Okrum og síðast en ekki síst á skeiðar, en það lærði ég af móð- ur minni Kristínu Kristjánsdóttur. Söngvæskáld alþýðunnar Segja má að hin eiginlega alþýðu- menning landsins endurspeglist í tónlistarflutningnum á diski Ólínu því þar koma fleiri samsveitungar við sögu. „Það var frá upphafi gert ráð fyrir því að bakraddir yrðu sungnar af Víði Herbertssyni útvegsbónda í Gröf í Breiðuvík, Guðjóni Jóhannes- syni kúabónda í Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík svo og manninum mínum en hann er eins og ég í kirkjukómum, auk þess sem hann er meðhjálpari í kirkjunni og stundar sjó með Víði. Hér í fámenninu verða allir að vera svo fjölhæfir og ég naut góðs af því. Við héldum Jónsmessugleði í fjör- unni á Hellnum í sumar og þá sungum við nokkur lög af disknum. Segja má að það hafi verið fyrstu kynningartón- leikarnir en nú er ég að halda norður í land og syng meðal annars í Deigl- unni á Akureyri ásamt hljómsveitun- um Hundslappadrífu með Þorkel á Görðum í fararbroddi og Helga og hljóðfæraleikurunum." Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Ólína á kynningartónleikum á Hótel Höfða í Ólafsvík Dulmögnuð myndskreyting „Á ég ekki að segja þér dálítið frá tilurð umslagsins?" spyr Ólína undir lokin á samtalinu. „Það er nefnilega smásaga á bak við það sem tengist dulmagninu hér undir Jökli.“ Hún skiptir um stellingu í sófanum fær sér kaffisopa og segir svo. „í fyrravetur hringdi í mig myndlistarkona úr Mos- fellsbæ sem heitir Gréta Berg. Hún er dóttir Margrétar heitinnar miðils frá Öxnafelli sem dvaldi lengi hér undir Jökli og bjó með Þórði frænda mínum frá Dagverðará. Gréta hefur eitthvað af dulargáfum sjálf þótt hún fari hljótt með það og sagðist hafa verið að skoða bók með viðtali við Helgu ömmu mína frá Dag- verðará. í framhaldi af því teiknaði hún mynd af Helgu og fannst svo myndin biðja sig að hringja í mig. Eitthvað var hún treg til þess en hringdi loks og var þá hálfvandræða- leg. Þetta samtal varð svo til þess að þegar kom að því að vinna umslag og textahefti fyrir geisladiskinn þá leit- aði ég til Grétu og bað hana að teikna myndir við textana og bjó hún til myndir við langflesta þeirra. Sjálf er ég nú skrifuð fyrir hönnun á umslag- inu en Guðrún Björk hjá íslenskri upplýsingatækni í Borgamesi sér um umbrot og faglega ráðgjöf,“ segir Ól- ína en auk þess að vera bóndi er hún lærður tækniteiknari, á að baki verk- nám í húsgagnasmíði og er mikil hag- leikskona. Hún segir það ótrúlegt vera hversu margir komi að fram- leiðslu á einum geisladiski og er þakk- lát öllum sem hafa stutt hana á einn eða annan hátt við framkvæmd þess. Lestrarátak í grunnskólanum á Egilsstöðum Morgunblaðið/SigurveigHalldórsdóttir Lestrarhestar Egilsstaðaskóla við bókavörðuna góðu. Bókaorm- urinn lifír Egilsstöðum - Lestrarátak var nýverið haldið í Egilsstaðaskóla hjá nemendum í 3.-4. bekk. Voru þeir hvattir til að lesa eins margar bækur og þeir mögulega gætu, sér til ánægju og skemmtunar. Kenn- arar skólans benda á mikilvægi þess að vekja athygli nemenda á bókum, nú á dögum tölvutækninn- ar, og segja þeir bókina besta vina. Nemendunum var skipt upp í fjóra hópa sem hittust þrisvar sinnum yfir tímabilið. í fyrsta skiptið byrjuðu allir á að fara á bókasafn og velja sér bók og síðan var farið í ýmsa skemmtilega lestrarleiki. í annað skiptið mál- uðu nemendur mynd af sinni upp- áhaldssögupersónu og skrifuðu um hana. Þriðja skiptið notuðu nemendur til að æfa sig í að leik- lesa stutt leikrit og flytja fyrir hver annan. Allar bækurnar sem nemendur lásu á tímabilinu, heima og í skóla, voru settar í bókavörðu og prjón- aður var einn garði fyrir hverja bók svo að úr varð mikill bókaorm- ur og myndarleg bókavarða. Þetta voru alls 311 bækur sem nemend- ur lásu en þeir eru 63 í þessum bekkjum. Á lokadegi átaksins mættu svo nemendur uppábúnir með höfuðföt og gleraugu og áttu notalega stund saman yfir bókum og spilum sem nokkur fyrirtæki bæjarins færðu þeim að gjöf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.