Morgunblaðið - 29.11.2000, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Frá samsýningu tuttugu og eins listamanns í galleri(a)hlemmi.is.
Tuttugu og einn
MYJVDLIST
Tónleikar á aldar-
afmæli tveggja
tónskálda
í MINNINGU tónskáldanna
Karls 0. Runólfssonar og Þórar-
ins Jónssonar, sem báðir hefðu
orðið 100 ára á þessu ári, efnir
Söngskólinn í Reykjavík til tón-
leika þeim til heiðurs og eru tón-
leikarnir einnig hluti framlags
Söngskólans til Reykjavíkur -
menningarborgar 2000.
Tónleikarnir verða í Tónleika-
sal Söngskólans, Smára, Veg-
húsastíg 7, annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.
Nemendur ljóða- og aríudeildar
Söngskólans syngja Ijóð við lög
þeirra Karls og Þórarins, sum vel
þekkt en önnur, sem aðeins eru til
í handritum höfunda, sjaldheyrð.
Söngvararnir sem koma fram á
tónleikunum eru Alda Arnardótt-
ir, Auður Guðjohnsen, Ámý Ingv-
arsdóttir, Asgeir Páll Agústsson,
Bryndís Jónsdóttir, Bylgja Dís
Gunnarsdóttir, Dagný Þ. Jóns-
dóttir, Elísabet Ólafsdóttir, Guð-
mundur H. Jónsson, Hafsteinn
Þórólfsson, Helga Magnúsdóttir,
Hjördís Elín Lárusdóttir, Hólm-
fríður Jóhannesdóttir, Hulda
Þórarinn
Jónsson
Björg Víðisdóttir, ívar Helgason,
Kristveig Sigurðardóttir, Linda
P. Sigurðardóttir Magnea Gunn-
arsdóttir Margrét Arnadóttir,
María Mjöll Jónsdóttir, Ólöf Ing-
er Kjartansdóttir, Ragnheiður
Hafstein, Sigurlaug Jóna Hannes-
dóttir, Sólveig Unnar Ragnars-
dóttir, Sólveig Samúelsdóttir,
Svana Berglind Karlsdóttir, Þór-
unn Marinósdóttir, Þórunn Elfa
Stefánsdóttir. Píanóleikari er Ól-
afur Vignir Albertsson, sem hef-
ur, ásamt Ólöfu Kolbrúnu Harð-
ardóttur, umsjón með tónleikun-
um.
Aðgangur er ókeypis.
Hrönn Waltersdóttir við verk sín.
Leirlist í Listaselinu
gall«ri@hl(!mmur.is,
Þverholti 5
BLÖNDUÐ TÆKNI -
21 ÍSLENSKUR LISTA-
MAÐUR
Til 3. desember. Opið fimmtudaga
til sunnudaga frá kl. 15-18.
TUTTUGU og einn listamaður
sýnir um þessar mundir á samsýn-
ingu í galleri@hlemmi.is, en að-
standendur salarins hafa nú ákveðið
að halda áfram rekstri þessa fram-
sækna staðar. Eins og öll góð gall-
erí hefur hlemmur.is treyst íslenskt
listalíf með því að halda opnum dyr-
um fyrir unga listamenn sem eitt-
hvað hafa til málanna að leggja. Um
leið taka aðstandendur salarins þá
heillavænlegu afstöðu að marka sér
stefnu, nokkuð sem skiptir sköpum
fyrir heilbrigt listalíf.
Og stefna hlemms.is virðist vera
mjög skýr ef marka má þann
tuttugu og einn listamann sem þátt
tekur í samsýningu staðarins. Allt
eru þetta kraftmiklir fulltrúar
þeirra hræringa sem finna má jafnt
innanlands sem á alþjóðlegum vett-
vangi, en það sem gefur gallerí
hlemmi sérstakt gildi er marg-
breytileikinn sem þar þrífst innan-
dyra. Málarar, myndhöggvarar, vef-
arar, Ijósmyndarar, myndbands-,
hljóð- og gjörningamenn eru í hópi
þeirra sem sýnt hafa í þessu litla en
lifandi listhúsi.
Þá er merkilegt að sjá hvernig
vefsíður gallerísins stækka frá ein-
um mánuði til annars. Nú má finna
á þeim prýðilegt yfirlit yfir sýning-
ar áðurnefndra listamanna og vef-
slóðin er einkar aðgengileg. Eins og
á samsýningunni koma þar í ljós
gamlir kunningjar, glefsur frá fyrri
sýningum sem gaman er að rifja
TOIVLIST
L a n « h o 11 s k i r k j a
KÓRTÓNLEIKAR
30 ára afmælistónleikar Skagfirzku
söngsveitarinnar í Reylgavík. Ein-
söngvarar: Guðmundur Sigurðsson,
Kristín R. Sigurðardóttir og Óskar
Pétursson. Píanóundirleikur: Sig-
urður Marteinsson. Helga Þóra
Björgvinsdóttir, fiðla. Stjómandi:
Björgvin Þ. Valdimarsson. Laugar-
daginn 25. nóvember kl. 17.
SKAGFIRZKA söngsveitin stend-
ur á þrítugu og hélt af því tilefni
þrennna tónleika nýverið, á Sauðár-
króki, í Varmahlíð og nú síðast á laug-
ardaginn var í Langholtskirkju í
Reykjavík. Aðsókn var allgóð, og af
munnlegum kynningum söngstjórans
kom fram, að af téðu þrítugstilefni
væi-u öll innlend viðfangsefni einungis
eftir skagfirzka höfunda.
Ár og dagur er síðan undirritaður
heyrði síðast í söngsveitinni, og
mannaskipti því ekki ósennileg í milli-
tíðinni. Eitt hefur þó lítið breyzt:
hljómurinn er fallegur og hreinn sem
fyrrum, jafnvægi milli karl- og kven-
\
upp. Þótt enn skorti nokkuð á að
meðfylgjandi textar gefi nægilega
fyllta mynd af sýnendum þá verður
að segjast að vefsíður gallerísins
eru þegar býsna tæmandi og þar
með frábærar sem yfirlit yfir
ákveðna kynslóð íslenskra lista-
manna.
En hvað má ráða af þeim verkum
sem á vegi gestsins verða, hvort
sem hann heimsækir listhúsið í
reynd, eða lætur sér nægja ásýnd
þess á vefnum? Það verður að segj-
ast að aldrei hafa íslenskir lista-
menn verið margbreytilegii. Ef til
vill má þakka það breiddinni í
áfangastöðum þar sem þeir hafa
stundað framhaldsnám. Þótt ótrú-
legt megi virðast eru löndin litlu
færri en sýnendurnir. Hinu má þó
ekki gleyma að með auknu fjölræði
í listinni spretta fleiri tegundir
blóma og einhvem veginn sýnist
manni sem ungir íslenskir lista-
menn séu sjálfstæðari og víðsýnni
en áður. Hið gleðilegasta í starfs-
háttum galleri@hlemms.is er þó
alltént sú staðreynd að því hefur
tekist að virkja þessa fjölbreytni án
þess að slá af listrænum metnaði og
kröfum.
Halldór Björn Runólfsson
HRÖNN Waltersdóttir leirlistakona
sýnir verk sín um þessar mundir í
Listaselinu, Skólavörðustíg 17.
Listaselið er rekið af fimm lista-
mönnum, hverjum á sínu sviði,
Ólöfu Sæmundsdóttur glerlista-
konu, Trausta B. Óskarssyni tré-
rennismið, Hörpu Maríu Gunn-
laugsdóttur skartgripasmið, Þóru
Einarsdóttur silkimálara, og ekki
fyrir löngu síðan bættist í hóp
þeirra Hrönn Waltersdóttir. Hrönn
vinnur verk sín aðallega í steinleir
og postulín, hún rekur Gallerí
smiðju í Hveragerði sem er leir-
vinnustofa og heldur námskeið í
leirmótun fyrir leiráhugafólk.
Hrönn hefur lært ýmiskonar
myndlist og leirmótun bæði hér-
lendis og erlendis.
Svanhildur
sýnir í
Englandi
SVANHILDUR Sigurðardóttir held-
ur einkasýningu á höggmyndum í
Chequers Mead Art Centre í East
Grinstead í West Sussex frá 27. nóv-
ember til 9. desember.
Svanhildur fékk styrk úr Egilssjóði
Skallgrímssonar fyrir þessa sýningu,
sem hún nefnir „Náttúruöílin" (Forc-
es of Nature). Hún sýnir um þijátíu
verk sem öll eru unnin í brons.
Svanhildur hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum á árinu, þar á
meðal Mayfield Festival of Music and
Art, Brighton Festival, árssýningu
Konunglega breska myndhöggvara-
félagsins og árssýningu Wealden Art-
ists í Uckfield.
Svanhildur er fædd og uppalin í
Vestmannaeyjum. Hún útskrifaðist
úr textfldeild Myndlista- og handíða-
skólans árið 1980. Hún vann um tíma
við hönnun hjá Hildu og Hlín en 1987
hóf hún aftur tveggja vetra nám í
mótun hjá Kolbrúnu Kjarval í Mynd-
listarskóla Reykjavflcur. Árið 1991
hélt hún til Englands með fjölskyldu
sinni þar sem hún hóf nám við mynd-
höggvaradeild Emerson-listaháskól-
anum ogútskrifaðist árið 1995.
Svanhildur hefur síðan starfað í
Englandi þar sem hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga og sýnt í gall-
eríum. Þá hefur hún haft vinnustofu
sína opna árlega fyrir gesti og nem-
endur.
Til East Grinstead er um fimmtíu
mínútna ferð með lest ft-á Viktoríu-
stöðinni í London.
------------------
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Furðuheimar
dýranna. Atli Magnússon þýddi.
„Barna- og unglingabækur frá
Newton eru flokkur nýstárlegra
fræðibóka sem henta í raun ungu
fólki á öllum aldri. Bókaflokkurinn
er kenndur við einn mesta eðlisfræð-
ing sögunnar, Englendinginn Isaac
Newton, og hefur hann vakið mikla
athygli enda kynnir hann fjölmörg
þekkingarsvið nútímans á einstak-
lega glæsilegan hátt í máli og mynd-
um. Fjallað er um arfleifð fortíð-
arinnar, þekkingu okkar tíma og
einnig er skyggnst inn í framtíðina.
Þessi bók er hin fyrsta í flokknum
og veitir innsýn í marga spennandi
þætti dýraríkisins. Sagt er ítarlega
frá upphafi lífsins og þróun, gerð er
grein fyrir fjölmörgum vistkerfum,
sérkennilegum dýrum, útdauðum
dýrum, friðuðum dýrum, dýrum í út-
rýmingarhættu og að lokum er horft
til framtíðar," segir í kynningu.
Útgefandi er Skjaldborg ehf. Bók-
in er 52 bls. Verð: 1.980 krónur.
ir með hnígandi hexakorðum sínum,
þótt varla þori maður að nefna ákveð-
in nöfn eins og Barry Manilow) og
Vegferð, þar sem ung dóttir kórstjór-
ans lék fallega og örðulaust með á
fiðlu í snoturri fimmundahringsmót-
aðri ballöðu.
Auk þess að hafa örugga stjóm á
raddprúðum kór sínum var Björgvin
Þ. Valtýsson fyrirferðarmikill í radd-
og útsetningum og átti hvorki fleiri né
færri en tíu slíkar á sextán laga
prógrammi. Yfirleitt vandaðar og
skilvirkar sem slíkar, þó að einstaka
staðir, eins og „off-bít“-hott kven-
radda í Laufskálaréttinni, verkuðu of-
urlítið brosviprulegir á undirritaðan.
Einsöngvarar stóðu sig allir með
miklum ágætum og gott betur en
gengur og gerist innan raða söngfé-
laga í blönduðum kórum. Undirtektir
áheyrenda voru hinar hlýjustu, og var
sem aukalag tekinn Ástardúett, vals
eftir Björgvin í sópandi þýzkum óper-
ettustíl, þai- sem þau Óskar og Kristín
settu myndarlegan hátíðnipunkt yfir
i-ið. Undirleikur píanista kórsins, Sig-
urðar Marteinssonar, var í heild
fremur tilþiifalítill, en traustur í hví-
vetna.
Ríkarður Ö. Pálsson
Með kveðjum heimanað
radda óvenjugott (þrátt fyrir að víð-
ast hvar hafi frekar sigið á ógæfuhlið-
ina í þeim efnum á undanfömum
árum), og dýnamískur sveigjanleiki
sveitarinnar og tjáningarmýkt em án
efa með því bezta sem heyra má í átt-
hagakórum hér. Raunar er manni til
efs hvort nokkur önnur sams konar
stofnun á höfuðborgarsvæðinu geti
státað af jafngóðu „hljóðfæri“, sem
hvað heildarhljóm og raddgæði varð-
ar nálgast jafnvel beztu blönduðu
kóra landsins.
Einmitt þess vegna er kannski
svolítil ástæða til að harma, að kórinn
skuli sníða sér jafnþröngan stakk í
verkefnavali og raun ber vitni. Vissu-
lega skyldi ekki lasta átthagatryggð
sem slíka, en þótt ofangreint tilefni sé
gott og gilt út af íyrir sig, þá hefði
a.m.k. utanhéraðsmönnum óneitan-
lega verið akkur í bitastæðari tón-
verkum en hér vom á boðstólum.
Vonandi stendur það til bóta næst
þegar söngveitin upphefur raust sína.
Þessi kór er einfaldlega of góður fyrir
Skagfirðinga eina!
Dagskráin samanstóð að mestu af
lítt kunnri en í sjálfri sér ekki slæmri
tónlist. Þó segir kannski sína sögu, að
fyrsta lagið, Þótt þú langfomll legðir
eftir Kaldalóns, stóð áberandi upp úr
restinni. Þar á eftir komu þijú lög eft-
ir Pétur Sigurðsson, kunnast þeirra
Erla við einsöng Guðmundar Sigurðs-
sonar, en síðan Vor (eins. Kristín R.
Sigurðardóttir) og Blindi drengurinn
(frumflutt; eins. Óskar Pétursson);
prýðilegt lag og vel útsett af kór-
stjóra. Eina erlenda lagið var Nótt
eftir Clutsam, betur þekkt sem Ma
Curly Headed Babby, er Paul Robe-
son gerði þekkt á sínum tíma. Þá vom
þrjú lög eftir Jón Bjömsson, hið týr-
ólsku-óperettulega Vorljóð (tvísöngur
Guðmundur Sigurðsson og Óskar
Pétursson), Vorvísa og Hirðingja-
sveinn, er minnti svolítið í anda á
Home On The Range (tvísöngur Guð-
mundur Sigurðsson og Óskar Péturs-
son).
Fyrstu tvö lögin eftir hlé komu
einna næst Kaldalóns að gæðum, en
þau vora bæði eftir Eyþór Stefáns-
son: hið hægt líðandi Mánaskin og
dramatíska perlan Bikarinn, þar sem
Óskar Pétursson sá um tilþrifamikinn
einsöng. Það fór ugglaust eftir upp-
lagi og kannski líka aldri hlustandans
hvort Laufskálarétt eftir Kristján
Stefánsson frá Gilhaga í útsetningu
kórstjórans lentu réttum megin við
mörk hins hjákátlega, en það var all-
tjent hressilega sungið.
Nú tók verkefnavalið að færast
kynslóð nær okkar tíma. Tifar tímans
hjól, fyrra lagið af tveim eftir „meist-
ara skagfirzku sveiflunnar“, Geir-
mund Valtýsson, flattist heldur af
klissjukenndri hljómaframvindu, en
hið seinna, Ég syng þennan söng, var
snöggtum skárra, þótt minnt gæti ei-
lítið á poppaðan grískan þjóðlagastfl
þann er Nana Mouskouri söng á ámm
áður við hæfi breiðasta samnefnara
Þýzkalandsmarkaðs. Loks vora á
dagskrá þijú prýðileg lög eftir kór-
stjórann: Töfrar söngsins (tvísöngur
Guðmundur Sigurðsson og Óskar
Pétursson), að vísu frekar fyrirsjáan-
legt að hljómrænni framvindu, Bæn
(með glæsilegum einsöng Kristínar
R. Sigurðardóttur sem sömuleiðis
kom einhvem veginn kunnuglega íyr-