Morgunblaðið - 29.11.2000, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 29.11.2000, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 3.. LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Steingleymd- ar syndir „Þeirsögðu að enginngæti hafa klifrað jafn öruggum skrefum á tindinn og hrist afsérhverja uppákomuna á fœturann- arri, grœnar baunir og fleira skringi- legt, nema hann hefði til að bera dœma- lausa slœgð og ósvífni. “ TIL eru margar aðferð- ir við að ná sér niðri á pólitískum andstæð- ingum þegar menn rifja upp æviminn- ingar sínar. Hægt er að gera gys að þeim, skamma þá fyrir fáfræði og heimsku, ruddahátt og spill- ingu. Eitt af athyglisverðustu brögðunum og það sem einna erf- iðast er að kljást við er aðferð sem minnir dálítið á aðferðir kyrkislöngunnar. Menn geta hrósað gömlum fjendum með orð- um, kæft þá í hrósi, grafíð þannig undan trúnni á þá. Steingrímur Hennannsson var nýlega í sjónvarpsþætti spurður álits á Davíð Oddssyni og játti því að hann færi um hann gagnrýnis- orðum í ævi- VIÐHORF Eftir Kristján Jónsson sögu smm en bætti við að Davíð væri „að lagast". Hvað á hann við? Skelfingarhroll- urinn sem fór um marga sjálf- stæðismenn þegar þeir heyrðu 'þessi orð hlýtur að hafa mælst á Richterkvarðanum. Fyrstu við- brögðin hljóta að vera vandleg sjálfskönnun. Er eitthvað hæft í þessu og sé svo verður þá ekki að grípa til róttækra ráðstafana? Einn af þessu tagi, en tveir í röð Hvað á að gera við þá stjórn- málamenn sem þykjast vera stöð- ugt úti að aka og græða á því at- kvæði? Nú er í tísku að hampa alls kyns minnipokafólki, þ.e. þeim sem botna ekki neitt í neinu og langar mest að fá að fara aftur inn í hólinn sinn til hinna álfanna. Þetta er sagt vera alþýðlegt. Flest finnum við öðru hverju til " þess að við séum svona, finnum angistina yfir því að vera óttalega lengi að fatta og því sé auðvelt að leika á okkur. En sumir eru alltaf í þessum sporum og tortryggja því flesta stjórnmálamenn og aðra afskiptaseggi sem eru ekk- ert að leyna því að þeir viti betur. Steingrímur Hermannsson var og er enn snillingur í að sýnast alls ekki vera sá sem allt veit; hann er maður minnipokans. Enginn sem kominn var til vits og ára þegar hann réð ríkjum getur gleymt hughrifunum. Fólk heyrði valdamesta mann á land- inu tala um óvinsælar eða um- deildar aðgerðir ríkisstjórnarinn- 1 ar eins og þar væru að verki menn sem hann þekkti ekki nema af afspum. Hvað meintu þeir eig- inlega með þessu? Hann skildi þetta ekki og var nýbúinn að hitta mann á götu sem skildi þetta ekki heldur, sagði hann. Og það sem meira var, Steingrímur var greinilega alveg logandi hræddur um að „þeir“, samráðherrar og allt gengið á Alþingi, væru harð- brjósta. Þeir hugsuðu bara um peninga og tækju ekki nóg tillit til manneskjunnar. Hann harmaði , þetta ástand, alveg eins og við. y Og okkur létti. Við gátum nú verið viss um að þrautlærðir fag- menn, fullir af andúð á þjóðlegum brjóstvitskenningum, voru ekki að leggja undir sig land og þjóð. Urslitavaldið var enn á hendi þeirra sem varðveitt höfðu sak- laust barnið í hjarta sínu og heila. En auðvitað voru einhverjir nógu andstyggilegir til að gruna leitðtogann um græsku. Þeir sögðu að enginn gæti hafa klifrað jafn öruggum skrefum á tindinn og hrist af sér hverja uppá- komuna á fætur annarri, grænar baunir og fleira skringilegt, nema hann hefði til að bera dæmalausa slægð og ósvífni. Slægð sem hann væri snjall í að fela undir sauðar- gæru. Hann komst upp með allt. „Blaðrið í Steingrími er mesti efnahagsvandi þjóðarinnar," sagði núverandi húsbóndi á Bessastöðum fyrir áratug eða svo. Hann var þá yfirmaður fjár- mála á Islandi og orðinn gersam- lega úttaugaður. Ekki vegna ástands ríkissjóðs heldur óvæntra athugasemda for- sætisráðherrans í fjölmiðlum um efnahagsmál. En Steingrímur vissi hvað hann var að gera, var á undan sinni samtíð í pólitísku markaðs- fræðunum. Myndin sem eftir sat í huga kjósenda var annars vegar af kuldalegum skattmanni sem neitaði að hækka laun ríkisstarfs- manna. Hins vegar var allra vænsti maður, alvarlegur og svo- lítið ráðvilltur á svipinn, sem reyndi eftir mætti að þybbast við, reyndi að verja hag alþýðunnar gegn grimmdarlegum áhlaupum peningavaldsins í fjármálaráðu- neytinu. En var oft „plataður" eins og hann orðaði það sjálfur. Frægir stjórnmálaskörungar í sögunni hafa oft gert sér grein fyrir hvað leikrænir tilburðir geta verið afdrifaríkir. Winston Churchill æfði sig fyrir framan spegilinn í að setja í brýnnar þeg- ar hann bjó sig undir að flytja ræðu í þinginu. Hann vildi að þingmenn og aðrir viðstaddir gætu sannfærst af svipbrigðun- um ekki síður en orðunum. Varla er minni ástæða til að æfa sig fyr- ir viðtal í sjónvarpinu og hver veit nema Steingrímur hafi verið frumherji á þessu sviði hérlendis. Voru sum af frumhlaupunum hans þaulæfð, þessi sem ollu hneykslunarhlátri en gerðu hann líka svo mannlegan í augum fólks? Hann minnist ekki á það í ævisögunni sinni en menn segja nú ekki frá öllu. Stjómmálamenn eru líka ófúsir að viðurkenna að starf þeirra eigi meira skylt við afþreyingariðnaðinn en rökræður og átök við samviskuspurningar. En hvað eigum við að halda um menn eins og Halldór Ásgríms- son? Hann furðar sig á því að Steingrímur reyni nú að víkja sér undan ábyrgð á umdeildum mál- um eins og kvótanum, undirbún- ingi EES-samningsins og fleira. Það er með ólíkindum að núver- andi formaður Framsóknar- flokksins skuli opinberlega lýsa undrun sinni á því að forverinn skuli í ævisögunni vera sjálfum sér samkvæmur. Að hann skuli gera það sem hann gerði alltaf og undanbragðalaust, ef þannig má að orði komast, þegar hann var virkur stjórnmálaleiðtogi: Hann skýtur sér undan ábyrgð, segist ekki hafa ætlast til að hlutirnir æxluðust eins og þeir gerðu, gef- ur í skyn að menn hafi farið á bak við sig. Hvað er eiginlega nýtt í þessu? Hratt eða hægt? TðNLIST Salurinn PÍANÓTÓNLEIKAR Beethoven: Les Adieux Op. 81a; Schumann: DavidsbUndlertánze; Chopin: Sónata nr. 3 í h Op. 58. Ann Schein, píanó. Sunnudaginn 26. nóvember kl. 20. RÓMANTÍSKIR píanóunnendur hlutu ótýndan skell fyrir skillinga á tónleikum Ann Schein í Salnum á sunnudag - svo maður velti inntaki yfir á plús-hlið - og sjaldan þessu vant var sætanýtingin í samræmi við listræn gæði, enda nærri hús- fyllir. Viðfangsefnin voru hápíanísk þrenning úrvalsverka frá öndverðri 19. öld og hófust leikar með 27. píanósónötu Beethovens í Es-dúr Op. 81a. Verkið er frá sama ári og Haydn lézt, 1809, þegar herir Nap- óleons sátu um Vín og keisarafjöl- skyldan flúði úr borginni, þ. á m. til- einkunarhafinn, Hróðólfur erki- hertogi. Þríþætt sónatan ber prógrammatísk þáttaheiti frá hendi tónskáldsins á þýzku og frönsku, „Das Lebewohl. Les Adieux", „Die Ábwesenheit. L’Absence" og „Das Wiedersehen. Le Retour“, og átti tónlistin að lýsa tilfínningum Beet- hovens við brottför, fjarvist og end- urkomu þessa hávelborna nemanda hans og vinar. Erkihertoganum var líka tUeink- aður 5. píanókonsert Beethovens frá sama tíma (Keisarakonsertinn), sömuleiðis í Es-dúr, og á konsertinn eitt smáatriði sameiginlegt með sónötunni sem margir hljóta að hafa tekið eftir, nefnilega flúr-rak- ettan í lokarondóinu (t. 226-227), sem er nánast eins og í 59.-60. takti sónötufínalsins (einnig í rondótakti). En sá óvenjulegi sjálfsstuldur, sé hann meðvitaður, gæti svo sem eins verið fingrasetningalegur einkabrandari milli kennara og nemanda og hvað annað. Ann Schein lék þessa einlægu meistarasmíð yfirvegað en þó andstæðuríkt og af krafti þegar það átti við. Hún lagði greini- lega meiri áherzlu á tU- finningavídd og heildar- hugsun tónskáldsins en þá skurðlæknislegu ná- kvæmni sem einkennt hefur ýmsa píanista síð- ustu áratuga. Utkoman var afar heUlandi, enda mótunin svo innlifuð og sannfær- andi, hér sem síðar, að oft virtist jafnvel sem slaghörpuleikarinn hefði haft hönd í bagga með frum- smíð verksins. Davidsbundlertanze, safn 18 stuttra píanóverka eftir Robert Schumann frá 1837, var næst á blaði. Bálkurinn er saminn til höf- uðs „FUisteum", listrænum smekk- leysingum, sem hinn bókmennta- hneigði tónkeri úthúðaði á rit- stjórastóli tímarits síns Neue Zeitschrift fiir Musik. Hér kveðast á tvö „alter egó“ Schumanns, hinn hvatvísi Florestan og hinn sveim- huga Eusebius, og skiþtast á skin og skúrir, ólga og einfaldleiki í heill- andi blöndu ólíkra geðbrigða, vel fallinni til að sýna tæknilega og túlkunarlega fjölhæfni hljómborðs- leikarans. Það er ekki ofsagt að Schein hafi farið þar á kostum, því hæfileikar hennar til að draga fram sérkenni hvers stykkis úr marglita pjötluteppi mannlegra tilfinninga og fjölbreyttra rithátta voru ótvíræðir og varla daufan punkt að finna. Þó var mesti slagurinn eftir - í þriðju og síðustu píanósónötu Chop- ins, Op. 58 í h-moll, sem jafnframt var lengsta einleikverkið hans. Chopin var enn síður en Schubert dæmigerður höfundur stórra forma, en þykir þó hafa framið hér ósvikið meistaraverk, enda á hátindi sköpun- arferils síns árið 1844 þegar verkið var samið (hann andaðist 1849, ekki 1886 eins og mis- ritaðist í tónleikaskrá). Ann Schein túlkaði All- egro maestoso þáttinn af dramatískum krafti, og Scherzóið af mikilli perlandi fimi. Largo-þátturinn (III.), hæg dreymandi noktúrna sem á köflum minnir á rómantíser- aða Bach-prelúdíu, var afburðafal- leg í syngjandi markvissum meðför- um píanistans. í lokaþætti (Presto, non tanto) beinlínis fuðraði slag- harpan upp í magnaðri flugelda- dýrð. Önnur eins gneistandi innlif- un og óhömluð tækni, temprað af næmu skynbragði á innviðum verksins, gefst ekki á hverjum degi og hlaut að leggja jafnt leika sem lærða að velli. Undirtektir voru eins og nærri má geta af kröftugri sortinni. Eftir að tónleikagestir höfðu risið á fætur og klappað dijúga stund bar Ann Schein upp sakleysislega spurn- ingu: „Hratt eða hægt“? og dúndr- aði síðan fyrra aukalagi á hlustend- ur af miklum jötunmóð við gífurleg fagnaðariæti. Regndropaprelúdía Chopins varð að þeim brávallaátök- um loknum sjálfsögð leið til að búa menn undir brottför með kyrrlátri angurværð eftir ógleymanlega tón- leika. Ríkarður Ö. Pálssori Ann Schein Steinn Steinarr Upplestur í Gerðarsafni UPPLESTUR á vegum Ritlistarhóps Kópavogs og JPV-forlags verður í Gerðarsafni á morgun, fimmtudag, kl. 17. Gylfi Gröndal kynnir bók sína um Stein Steinarr. Sýnd verða listaverk af Steini, lesið upp úr ljóðum hans, leikin lög við texta hans og rödd skáldsins heyrist af hljómplötu. Aðgangur er ókeypis. Brúðuleikritið Jólaleikur UM þessar mundir hef- ur Leikhúsið 10 fingur sínar árlegu sýningar á brúðuleikritinu Jóla- leikur eftir Helgu Arn- alds. Fyrsta sýningin verður á Bamaspítala Hringsins, Landspítal- anum, á morgun, fímmtudag, kl. 10.30. Sýningin er útfærsla á jólaguðspjallinu í brúðuleikhúsi þar sem börnin fá að taka virkan þátt í leiknum. Sýningin hefur verið fastur liður Helga Arnalds í jólaundir- dagar eftir óbókaðir. búningi hjá mörgum grunnskólum og leik- skólum á höfuðborgar- svæðinu undanfarin ár og er innlegg á jólaböll- in hjá ýmsum fyrirtækj- um. Jólaleikur er ferða- sýning sem er sett upp á staðnum með lítilli fyrirhöfn. Dagarnii- eru orðnir þétt skipaðir í desember, að sögn Helgu Arnalds, stjórn- anda Leikhússins 10 fingur, en þó eru örfáir Hausttónleikar Lúðra- sveitar Reykjavíkur Heiðni og kristni í Húsinu FJÓRÐI og síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni „Byggð og menn- ing“ verður fluttur af Steinunni Kristjánsdóttur í Byggðasafni Ár- nesinga, Húsinu á Eyrarbakka, ann- að kvöld, ftmmtudagskvöld, kl. 20.30. Steinunn er fornleifafræðingur og vinnur að doktorsritgerð í Gauta- borg og Osló sem er hluti af stóru evrópsku samstarfsverkefni í fom- leifafræði. Steinunn hefur sinnt rannsóknum lengi og var forstöðu- maður Minjasafns Austurlands. Fornleifafræðileg könnun á heiðnum og kristnum minjum Steinunn hefur verið verkefnis- stjóri fornleifarannsóknarinnar Mörk heiðni og kristni frá 1997. Helstu verkefni innan hennar em: Uppgröftur á kirkjurúst í landi Litla-Bakka í Hróarstungu 1997. Uppgröftur á kirkju- og grafreit í landi Þórarinsstaða í Seyðisfirði 1998-1999. Rannsóknarverkefnið fel- ur í sér fomleifafræðilega könnun á heiðnum og kristnum minjum frá fyrstu öldum byggðar á íslandi. Markmiðið er að móta heilsteypta mynd af trúarbragðaskiptum íslend- inga með hliðsjón af fomleifafræði- legum upplýsingum. Nóvemberfyrirlestraröðin „Byggð og menning" samanstendur af fjómm fyrirlestradögum og er samstarfsverkefni Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka, Byggðasafns Árnes- inga og ReykjavíkurAkademíunar. ------------------ Sýningu lýkur SÝNINGU Vignis Jóhannssonar í Gallerí Sævars Karls lýkur laugar- daginn 2. desember. LÚÐRASVEIT Reykjavíkur heldur árlega hausttónleika sína í Fríkirkj- unni í Reykjavík í kvöld kl. 20. Á efnisskránni er tónlist úr West Side Story eftir Leonard Bernstein, þrír dansar úr „Gayne Ballet" eftir Aran Khachaturian, Pomp and Circumstance mars nr. 4 eftir Edward Elgar og verk eftir lagahöf- undana og útsetjarana Michael Sweeney, John Wasson og John Moss. Lúðrasveitin mun einnig leika lagasyrpu með þekktustu verkum Duke Ellington og marsinn Semper Fidelis eftir konung marsanna John Philip Sousa. Stjórnandi Lúðrasveit- ar Reykjavíkur er Lárus Halldór Grímsson. Aðgangur er ókeypis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.