Morgunblaðið - 29.11.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
_________ MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 41
LISTIR
Fjögur briiðkaup og
ein stöðuhækkun
LEIKLIST
Leikfélag Kópavogs
LÍKU LÍKT
Höfundur: William Shakespeare.
Þýðandi: Helgi Hálfdanarson.
Leikstjóri: Þorgeir Tryggvason.
Leikarar: Anna Dröfn Sigur-
jónsdóttir, Birgitta Birgisdóttir,
Einar Þór Samúelsson, Helgi Ró-
bert Þórisson, Hrund Ólafsdóttir,
Hulda B. Hákonardóttir, Hulda
Dögg Proppé, Hörður Sigurðarson,
Júlíus Freyr Theodórsson og Skúli
Rúnar Hilmarsson. Leikmynd og
búningar: Þorgeir Tryggvason og
hópurinn. Lýsing og hljóð: AJex-
ander Ólafsson og Runólfur Einars-
son. Félagsheimili Kópavogs, 26.
nóvember.
LEIKFÉLAG Kópavogs ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur og sýnir um þessar mundir
Líku líkt (Measure for measure) eft-
ir William Shakespeare í Félags-
heimili Kópavogs. Þetta verk er eitt
af svokölluðum kómedíum Shake-
speares, gleðileikur með sterkum
siðrænum undirtóni. Eins og oft er
um að ræða í uppsetningum á leik-
ritum Shakespeares er verkið nokk-
uð stytt og persónum hefur verið
fækkað en styttingin hér er mjög vel
úr garði gerð; hvergi hriktir í stoð-
um leikfléttunnar og boðskapur
verksins er ljós. Ekki er getið um
það í leikskrá hver ber ábyrgð á
styttingunni en reikna má með að
leikstjórinn, Þorgeir Tryggvason,
hafi komið þar við sögu. íslensk þýð-
ing verksins er eftir Helga Hálfdan-
arson.
Það er einnig leikstjórinn og leik-
hópurinn sem hefur sniðið sýning-
unni umgjörð. Hér ræður einfald-
leikinn ríkjum, sviðið er autt utan
tveggja lítilla bekkja og leikmunir
örfáir. Hins vegar er leikrýmið not-
að á útsjónarsaman hátt og eru inn-
komur á sviðið frá þremur stöðum
og tröppur og svalir brjóta leikrým-
ið upp á skemmtilegan hátt. Búning-
ar eru að sama skapi einfaldir og
kannski er verið að ljá verkinu
ákveðið tímaleysi með einfaldleika
þeirra (t.d. eru karlmenn í gráleitum
jakkafótum). Þó er brugðið aðeins á
leik með búninga skækjunnar og
melludólgsins, þar er litagleði og
glingur haft með.
Það er ekki á allra færi að læra ut-
an að og segja fram texta Shake-
speares þannig að sómi sé að. Það
má því segja þeim leikhópi áhuga-
manna sem hér er á ferðinni til
hróss að textameðferð var í flestu
tilliti vönduð. Framsögn var skýr og
textinn skilaði sér mjög vel til áhorf-
enda. Það er hins vegar kannski að-
eins á færi lærðra leikara að sam-
hæfa erfiðan texta og túlkunarríkan
leik, enda skorti nokkuð á túlkun
ýmissa leikara hér, sérstaklega á
dramatískari augnablikum verksins.
En margir gerðu mjög vel og má
þar til dæmis nefna Hörð Sigurðar-
son í hlutverki hertogans og (dul-
búna) munksins, þar fór vel saman
túlkun og texti. Helgi Róbert Þóris-
son átti mjög fína spretti í hlutverki
skúrksins og melludólgsins Lúsíó
Pompa, hann lék af krafti og góðri
tilfinningu fyrir hinu kómíska. Einar
Þór Samúelsson átti sömuleiðis
ágæta taka í hlutverki Olnboga lög-
regluvarðstjóra. Skúli Rúnar Hilm-
arsson léði Angeló ráðherra þungt
yfirbragð eins og hæfði. Birgitta
Birgisdóttir fór vel með texta ung-
nunnunnar ísabellu en nokkuð
skorti á tilfinningu í leik hennar
enda hér um stórt dramatískt hlut-
verk að ræða. Hrund Ólafsdóttir (í
hlutverki fógetans), Hulda B. Há-
konardóttir (í hlutverki hórumömm-
unnar Tilgerðar og hinnar sviknu
unnustu Angelós), Júlíus Freyr
Theodórsson (í hlutverki Kládíós),
Hulda Dögg Proppé (í hlutverki
unnustu Kládíós) og Anna Dröfn
Sigurjónsdóttir (í hlutverki skækju)
skiluðu sínu ágætlega.
Eins og ætíð í skopleikjum Shake-
speares leysist flétta verksins far-
sællega í lokin og hinn alvaldi og
hjartagóði hertogi leysti úr öllum
flækjum fagmannlega og fyrirsjáan-
leg voru að leikslokum fjögur brúð-
kaup og ein stöðuhækkun.
Þótt verk Shakespeares séu alltaf
öðru hverju á sviði íslenskra leik-
húsa eru þau svo mörg að fæstum
gefst tækifæri til að sjá nema brot af
höfundarverkinu öllu. Það er því al-
veg ástæða til þess að hvetja unn-
endur þessa meistara leiklistarinnar
til að bregða sér í Kópavoginn á
þessa sýningu Leikfélags Kópavogs.
Það er gaman að hlusta á snjallan
textann og fylgjast með vel fléttaðri
atburðarás leiksins. Og leikhópurinn
kemst vel frá þessu verkefni undir
styrkri stjórn Þorgeirs Tryggvason-
ar.
Soffía Auður Birgisdóttir
Handbók fyrir
BÆKUR
Fræðsliirit
GEGN EINELTI
Ritstjórar: Sonia Sharp og Peter K.
Smith. Þýðandi: Ingibjörg Markús-
dóttir sálfræðingur. Utgefandi:
Æskan. Prentun: Oddi hf.
IJtgáfuár: 2000.102 bls.
GEGN einelti heitir nett og skýr
handbók sem Æskan hefur nýverið
gefið út. Einelti hefur verið mjög of-
arlega á baugi hér um alllangt skeið,
og er skilgreint sem langvarandi of-
beldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem
einn eða fleiri níðast á einum, sem
ekki kemur vörnum við. Nánar segir
um einelti að það feli í sér misbeit-
ingu á valdi þar sem gerandinn beitir
hótunum og vill ráða yfir þolandan-
um.
Markmið bókarinnar er að gefa yf-
irlit yfir hagnýtar leiðir fyrir skóla í
baráttunni gegn einelti. Ritstjórar
eru brezkir og byggja á rannsóknum
og vinnu þarfendra sérfræðinga og
verðm- ekki annað séð en að aðferðir
þeirra og hugmyndir falli fullkom-
lega að því sem hefur verið að gerast í
íslenzkum skólum. Höfundar eru
fjölmargir og eru ritstjóramir þar á
meðal. Ekki er að finna skýringu á
starfsferli eða menntun þessa fólks
en vel er verki staðið að mínu mati.
Bóldn er í 6 köflum. í efnisyfirliti
er hveijum kafla skipt í fjölmarga
undirkafla þannig að efnið er afar að-
gengOegt. Fyrsti kafli skilgreinir ein-
elti og hvar það eigi sér helzt stað,
hveijir verði fyrir því og hvaða áhrif
það hafi. í öðrum kafla er farið yfir
það hvernig mæla megi einelti í skól-
um, þar á meðal hvemig hanna megi
eigin könnun/spurningalista. Þriðji
kafli ber heitið Mótun heildstæðrar
stefnu skóla gegn einelti og kemur
inn á hlutverk starfsfólks í skólum en
einnig nemenda og foreldra. Þar er
lögð áherzla á að árangur náist vart
nema byggt sé á heildstæðri skóla-
stefnu. Fjórði kafli snýr að því hvem-
ig gera megi nemendur meðvitaðri
um eigin hegðun og annai'ra svo að
þeim lánist að láta málið til sín taka.
Fimmti kafli er um aðferðir sem
grípa má til þar sem einelti hefur
komið fram, bæði til þess að hjálpa
gerendum að breyta hegðun sinni og
til að kenna fórnarlömbunum árang-
ursríkar leiðir til að takast á við vand-
ann. Sjötti kafli segir frá einelti á
skólalóð og hvernig hönnun skólalóð-
ar og umbætur, svo og eftirlit, geti
breytt ástandinu til hins betra.
Heildstæð stefna skólans er talin
mikilvæg til þess að koma í veg fyrir
að eineltisaðstæður skapist. Það er
jjajjm
Eitt af verkum Guðnýjar Magnúsdóttur.
Djasstónleikar í
Pakkhúsinu á Selfossi
DÚETTINN Kuran Kompaní, með
þeim Hafdísi Bjamadóttur rafgítar-
leikara og Szymoni Kuran fiðluleik-
ara innanborðs, heldur tónleika í
Pakkhúsinu á Selfossi, annað kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 21.
Kuran Kompaní var stofnað síð-
astliðið vor og hefur dúettinn verið
iðinn við kolann í tónleikahaldi síðan.
Kompaníið flæktist til útlanda í
ágúst og september þai; sem það
m.a. vann að upptökum. Aður höfðu
þau gefið út diskinn Live from
Reykjavík sem er tekinn upp á tón-
leikum í sumar og verður hann til
sölu á tónleikunum. Að þessu sinni
munu þau leika blandaða dagskrá af
djassstandördum og suður-amer-
ískri sveiflu ásamt eigin tónsmíðum
og frjálsum spuna. í frjálsum spuna
dúettsins blandast saman ýmsir stíl-
ai- eins og t.d. djass, klassík, rokk,
þjóðlög, pönk og ýmislegt annað.
Möguleiki er á að Kuran Kompaníið
hafi með sér gest, en það mun koma í
ljós á tónleikunum.
Miðaverð er 1.000 krónur.
skóla
svo sem ekkert áhlaupaverk en hlýt-
ur að vera afar mikilvægt, ekki síður
en að geta gripið í taumana þegar illa
fer. Hér á landi hafa margir skólar
þurft að súpa seyðið af einelti og hef-
ur það auðvitað orðið til þess að víða
hafa skólastjórnendur, foreldrar og
nemendaverndarráð orðið að taka til
sinna ráða. Með því móti hefur oft
tekizt að laða fram betri hliðar skóla-
starfs, en annars staðai' hefur það
mistekizt eins og gengur. Skapgerð
og menntun kennara skiptir auðvitað
gríðarlega miklu máli, svo og hvaða
nemendur veljast saman í bekki.
Einn vandræðagepill getur eyðilagt
starfsgleði og sköpunarmátt heils
bekkjar eins og allir vita, en líkast til
skiptir mestu að nemendur eigi sem
nánasta samleið í þroska og náms-
getu. I því blandaða bekkjarkerfi
sem hér hefur viðgengizt í áratugi má
gera ráð fyrir að ftjór jarðvegur
skapist fyrir afprýðisemi og yfirgang
og jaðrar við kraftaverk að kennarar
geti yfii'leitt ráðið nokkru við slíkar
aðstæður. Ánægðir og vel menntaðir
kennarar, minni bekkir, samfelldur
skóladagur, skólamáltíðir og vel út-
hvíldir nemendur er það sem ég sé
fyrir mér sem forsendu þess að skóla-
kerfið geti rækt skyldu sína.
Þessi litla handbók er skýr og skil-
merkileg og á erindi til okkar allra.
Katrín Fjeldsted
Borgartuni 28 Ti 562 2901 og 562 2900
Loksins!
Hárrúllurnar frá Severin
komnar aftur!
Leir-
skúlptúrar
í Linsunni
I LOK menningarárs er Guðný
Magnúsdóttir listamaður mánað-
arins í Linsunni. í verslunum
Linsunnar í Aðalstræti og við
Laugaveg eru til sýnis leirskúlpt-
úrar eftir Guðnýju Magnúsdóttur.
Verkin eru unnin í steinleir vetur-
inn 1990/2000. Útstillingarhönn-
uður er Brigitte Lútersson.
Sýningin stendur til jóla.
--------------
Nýjar bækur
• ÚT er komin bókin Félagsstarf
og frístundir íslenskra unglinga
eftir Þórólf Þórlindsson, Kjartan
Ólafsson, Viðar Halldórsson og
Ingu Dóru Sigfúsdóttur.
I fréttatilkynningu segir: „í bók-
inni er greint frá viðamikilli könn-
un sem fór fram árið 1997 að frum-
kvæði íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur. Rannsóknin var unn-
in af Rannsóknum og greiningu
ehf. og styrkt af menntamálaráðu-
neyti, íþróttasjóði og Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga. Auk þess að
veita nýjustu upplýsingar um hagi
barna og unglinga gefa niðurstöður
rannsóknarinnar mikilvægan sam-
anburð við fyrri kannanir. Félags-
starf og frístundir íslenskra ungl-
inga veitir grundvallarupplýsingar
sem nauðsynlegar eru við stefnu-
mótun og áætlanagerð auk fræðslu
og upplýsingamiðlunar. Þeir sem
koma til með að hafa mikið gagn af
verkinu eru m.a. skóla- og félags-
málayfirvöld, sveitar- og bæjar-
stjórnir, íþróttahreyfingin auk v
æskulýðsfélaga og ýmissa fag- '
hópa.“
Útgefandi er Æskan ehf. Bókin
er 152 bls., prentuð í prentsmiðj-
unni Odda hf. Verð: 2.990 krónur.
Ánægja - Þægindi - Vellíðan
3 stærðir af rúllum, 20 rúllur, 20 klemmur. 260 wött
Sjálfvirk hitasfýring. Verð kr. 2.950
Einar
Farestveit&Co.tif.