Morgunblaðið - 29.11.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 5L*
I-
Dimmur nóvembermorgunn.
Lognsléttur Húnaflóinn. Sólarupp-
rás. Geislar morgunsólar gylla fjalla-
hringinn. Spákonufellsborgin og
Vindhælisíjöllin glitra. Þannig
kvaddi heimabyggðin þig hinstu
kveðju á þann fegursta hátt sem
hugsast getur um miðjan dag 22. nóv-
I
ember sl.
Það var með feimnum huga sem
ég, ungur vestfirðingur, steig mín
fyrstu spor inn á heimili þitt að Vind-
hæli fyrir aldarfjórðungi við hlið elstu
dóttur þinnar. Slíkt var ástæðulaust
því tekið var á móti mér sem hefði ég
verið einn af fjölskyldunni alla tíð. Þú
varst einn af alþýðuhetjum þessa
lands. Einn af þeim sem kunnir að
rækta garðinn sinn og hlúa að þeim
sem minna máttu sín í þjóðfélaginu.
Pjölskyldan, börnin og seinna bama-
bömin vom þinn aðalgróður og að
þeim gróðri hlúðir þú með kærleika,
alúð og hlýju. Má það einnig segja um
þá sem dvöldu á heimili þínu um
lengri eða skemmri tíma því það vom
ófá böm og ungmenni sem nutu
þessa að koma og dvelja á þínu heim-
ili. Ræktarsemi þín mun um langan
aldur skila sér í afkomendum þínum.
Barnahópur þinn og eiginkonu
þinnar Maríu var stór og var að verða
uppkominn þegar ég kem til ykkar.
Barnabörnin fóm að koma í heiminn
og Vindhæli varð þeirra annað heim-
ili. Það var stór hópur. Allt stelpur,
tíu að tölu sem þú fékkst að hafa og
vildir hafa hjá þér. Það skipti ekki
máli hvenær það var, þær vom alltaf
velkomnar. Þú hafðir gaman af og
það em ófá skiptin sem þú hefur stig-
ið í stokkinn við þær í eldúshorninu.
Þar sast þú líka oft og naust þeirrar
þjónustu og ánægju að láta þær raka
þig hvenær sem þeim þóknaðist. Þú
kenndir þeim öllum að fara á hest-
bak. Þú varst ekki manna latastur að
veita þeim þá ánægju að sitja með
þér á Bleik. Það skipti ekki máli
hversu margar þær vom, allar fengu
að fara á bak. Oftar en ekki vom þær
fleiri en ein sem vildu vera með í
hvert skipti og fengu það. Ræktar-
semi þín við barnabörnin var ómetan-
leg.
Þú varst manna fróðastur um
byggð og landshagi í Húnaþingi og þó
að víðar væri leitað. Það var ekki til
nokkurs að koma að Vindhæli án þess
að hafa fylgst með fréttum og því sem
var að gerast í okkar heimi og ég tala
nú ekki um í minni heimabyggð.
Prétta- og fróðleiksfíkn þín var eng-
um takmörkum háð. Það var sama
hvar komið var að þér þú vildir fá
féttir og vissir hvað var að gerast allt
í kringum þig. Þú hafðir fastmótaðar
skoðanir á mönnum og málefnum og
varst óspar að láta þær í ljósi hvar og
hvenær sem var.
Minningabrotin hrannast upp en
þeim verður ekki öllum gerð skil hér.
Ég kveð þig mikinn alþýðumann
hinstu kveðju og þakka þér fyrir allt
sem þú hefur fyrir mig og mína fjöl-
skyldu gert. Ég er meii-i maður af því
að hafa kynnst þér og fengið að
ganga með þér um þennan heim síð-
astliðinn aldarfjórðung. Minning um
þig mun alltaf verða ljós í lífi mínu.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þáauðnuaðhafaþighér.
Og það er svo margt að minnast
svo margt sem um hugann fer.
Þó þú sért horfrnn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð
þín minning er ljós sem lifir
oglýsirumókomnatíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku María, bömin þín og fjöl-
skyldur þeirra. Megi góður guð
styrkja ykkur öll í sorg ykkar.
Bjami Jóhannsson.
Þegar ég vissi að Mannni væri að
fá hvíld eftir langa sjúkralegu þá leit-
aði hugur minn til baka í sveitina eins
og svo oft, þar á ég ótæmandi brunn
af góðum og ljúfum minningum. Þeg-
ar ég kom fyrst í sveitina til að dvelja
yfir sumartímann átta ára gömul
mætti mér opinn faðmur Manna,
Maríu og fjölskyldu, svo var ég drifin
inn í eldhús og spurð frétta frá
höfðstaðnum Reykjavík, ég var alltaf
hrædd um að ég hefði ekki nóg frá að
segja því Manni hafði gaman að
heyra fréttir af sínu fólki og fylgdist
alltaf vel með. Eins og þegar Dóra
heitin, mágkona Manna, kom norður,
þau gátu spjallað saman og höfðu
gaman af, það er víst að fagnaðar-
fundir hafa orðið þegar þau hittust á
ný. Alltaf var ég svo hjartanlega vel-
komin á Vindhæli. Þegar ég varð
eldri þá fannst mér enginn staður
eins góður til að eyða sumarfríum
mínum, sem ég gerði í nokkur ár, það
eru engin orð til sem lýsa því sem býr
í hjarta mínu. Ég samdi litla vísu til
minningar um Guðmann.
Ég minnist svo góðra stunda
í sveitinni hjá þér,
ég kynntist frelsi og æskublóma.
í sumaryl,
égáheysátuvar,
í fjarska bar við Strandimar,
ég sá þær svo óralangt frá mér.
í Spákonufellið og Skógaröxlina
égsávelfrámér.
í Stapanum álfafólkið var,
égsáekkiálfaþar!
(EstherSig.)
Kæri Manni, hjartans þakkir fyrir
allt.
Guðmann og María eiga fönguleg-
an hóp afkomenda og bræður hans
Guðmundur og Páll, mér er svo hlýtt
til ykkar allra og svo þakklát fyrir að
eiga ykkur að, Guð styrki ykkur og
styðji. Mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Hinlangaþrauterliðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
ogallterorðiðrótt,
núsællersigurunnin
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt
(V. Briem.)
Farþúífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem.)
Esther.
Elsku afi, þú ert í mínum huga
löngu farinn frá okkur því sjúkdóm-
urinn sem þú fékkst, gerði það að
verkum að smám saman fjarlægðist
þú okkur, hættir að geta haft við okk-
ur tjáskipti og lifðir þess í stað í heimi
hugsana þinna. Oftar en ekki virtist
mér sem nóg væri að gera hjá þér
þegar okkur bai’ að garði. Ég ímynd-
aði mér stundum að þú værir ein-
hvers staðar upp í fjalli að smala.
Þess vegna held ég enn í þá von að
þér hafi ekki liðið illa þótt svona væri
komið.
Nú ertu búinn að vera á sjúkrahús-
inu á Blönduósi í rúmlega átta ár. Á
4
----------------------------------—-------|
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Útfararstofa fslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
þessum átta árum hefur margt gerst
í lífi okkar hinna. Afabörnunum hefur
fjölgað, þú átt orðið nafna sem býr á
Vindhæli. Hver veit nema hann eigi
eftir að stýra þar búi í framtíðinni?
Langafabörnin eru farin að bætast í
hópinn þinn sem stækkar óðfluga um
þessar mundir.
Sveitin var mitt líf og yndi. Strax
að loknum skóla á vorin fór ég norður
að Vindhæli til ykkar ömmu og var
þar öll sumur tU sextán ára aldurs.
Ég man ekki til þess að hafa nokkurn
tíma á mínum yngri árum farið öðru-
vísi en með tárin í augunum frá Vind-
hæli á haustin, svo yndisleg var dvöl-
in hjá ykkur. Minningarnar að
norðan eru margar og sveipast ævin-
týraljóma þegar hugsað er til baka.
Þeir krakkar sem aldrei hafa fengið
tækifæri til að vera í sveit fara á mis
við mikið.
Elsku afi, biðin þín er loksins á
enda og nú ert þú vonandi aftur kom-
inn út í sólina. Éflaust hefur hópurinn
verið stór sem tók á móti þér og varla
hafa Bleikur og Táta verið langt und-
an við komu þína í himnaríki.
Takk fyrir samfylgdina.
Sigrún María.
Elsku afi okkar.
Nú er komið að leiðarlokum hjá
þér eftir mörg erfið ár og þú hlýtur
loks hinstu hvílu, sem þú átt svo
sannarlega skilið eftir löng og erfið
veikindi. Minningin um góðan og
duglegan afa mun ávallt lifa með okk-
ur og þú munt eiga sérstakan stað í
hjarta okkar. Þær voru ófáar Vind-
hælisferðirnar sem lagt var upp í á
sunnudögum til að heimsækja afa og
ömmu í sveitina og alltaf tókst þú á
móti okkur, í lopapeysunni, opnum
örmum í dyragættinni.
Við söknum þín afi og við trúum
því að þú sért loksins orðinn frjáls.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu Wðinn,
og alit er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
enþaðerguðsaðvilja,
og gott er allt, sem guði er frá.
(V. Briem.)
Guð geymi þig.
Lilja, Margrét
og Harpa Lind.
,{Minningaröldur
Sjómannadagsins"
fást á Hrafnistuheimilunum
Sími 585 9500/585 3000
OSWALDS
sími 551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
ADALSTRÆTI 4B • 101 kEYKJAVÍK
Davið Inger Óltifur
Útfararstj. Útfararstj. Útftrarstj.
LÍKKISTUVINNUSTOFA
EYVINDAR ÁRNASONAR
t
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELÍN MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR,
húsfreyja
í Laxárdal, Þistilfirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 28. nóvember.
Bragi Eggertsson, Kelga Jóhannsdóttir,
Petra Sigríður Sverrisen, Einar Friðbjörnsson,
Ólafur Eggertsson, Anna Antoníusdóttir,
Stefán Eggertsson, Hólmfríður Jóhannesdóttir,
Marinó Pétur Eggertsson, Ósk Ásgeirsdóttir,
Guðrún Guðmunda Eggertsdóttir,
Þórarinn Eggertsson, Særún Haukdal Jónsdóttir,
Garðar Eggertsson, Iðunn Antonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ELÍNAR ÞORVARÐARDÓTTUR,
Þangbakka 8,
verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
30. nóvember kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Krabbameinsfélagið.
Hrafnhildur Hauksdóttir,
Ragnar Hauksson,
Anna Skúladóttir,
Björn Hauksson,
Þórhildur Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLGRÍMUR EÐVARÐSSON
frá Helgavatni
í Vatnsdal,
verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju laugar-
daginn 2. desember kl. 14:00.
Þorbjörg Jónasdóttir Bergmann
Kristín Hallgrímsdóttir, Gert Grassl,
Eðvarð Hallgrímsson, Helga Guðmundsdóttir,
Guðmundur Hallgrímsson, Oddný Sólveig Jónsdóttir,
Sigurlaug Helga Maronsdóttir,
afabörn og langafabörn.
+
Bróðir okkar og fósturbróðir,
HALLDÓR ÁGÚSTSSON
bóndi,
Eyri, Seyðisfirði,
Súðavíkurhreppi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 21. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Eyrarkirkju laugar-
daginn 2. desember kl. 14.00.
Einar Ágústsson,
Sigurborg Ágústsdóttir,
Halldóra Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Bróðir okkar, mágur og frændi,
BRANDUR ÖGMUNDSSON,
Bjargarstig 2,
Reykjavfk,
lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn
8. nóvember.
Útför fór fram í kyrrþey föstudaginn 17. nóv-
ember frá Fossvogskapellu í Reykjavík. _______________
Jarðsett var í Ólafsvík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhannes Ögmundsson.
Lokað
Skrifstofa SPOEX verður lokuð í dag, miðvikudaginn 29. nóvem-
ber, frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar ERNU ARADOTTUR.
Samtök psoriasis- og exemsjúklinga.