Morgunblaðið - 29.11.2000, Page 53

Morgunblaðið - 29.11.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 + Erna Aradóttir fæddist á Pat- reksfirði 12. mars 1934. Hún lést á líkn- ardeild Landspíta- lans í Kópavogi 23. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Ari Jónsson, f. 9.11. 1883, d. 24.8. 1964, og Helga Jóns- dóttir, f. 10.3. 1893, d. 9.5. 1962. Þau eignuðust sjö börn og var Ema yngst þeirra. Systkini Ernu eru Ingölfur, f. 6.12.1921; Þórhallur, f. 28.7.1923; Steingrímur Einar, f. 28.3. 1925; Una Guðbjörg, f. 14.5. 1927; Jón Þorsteinn, f. 9.10. 1930; Júlíana Sigríður, f. 24.6. 1932. Þau eru öll búsett í Reykjavík. Erna giftist 27.6. 1956 Hafsteini Davíðssyni, rafvirkja og orkubús- stjóra á Patreksfirði, f. 13. desem- ber 1922, d. 18. október 1985. Hann var sonur Davíðs Stefáns- Það er mér bæði ljúft og skylt að minnast tengdamóður minnar, Ernu Aradóttur frá Patreksfirði. Hún lést 23. nóvember síðastliðinn af völdum krabbameins, 66 ára að aldri. Kynni okkar Ernu hófust fyrir 15 árum þegar hún var ný- flutt frá Patreksfirði til Reykjavík- ur, þá nýorðin ekkja. Þegar ég reyni nú að rifja upp hvernig gekk til með fyrstu kynni tilvonandi tengdasonar og tengdamóður átta ég mig ekkert á hvernig þau voru. Mér finnst bara að við höfum alltaf þekkst. Ég held þó að við höfum strax tekið upp umræður um þjóð- málin sem dugðu okkur í 15 ár, að ég tali nú ekki um hitamál líðandi stundar. Umræðurnar voru strax kryddaðar með sögum úr pólitík- inni á Vestfjörðum en þar var Erna virkur þátttakandi. Mig minnir að fljótlega hafi tengdasonurinn þurft að standa klár á mergjuðum vestfirskum háðsglósum og at- hugasemdum. Þá var eins gott að nýta sér uppeldi sitt út í ystu æsar eins og séra Árni Þórarinsson lýsti því hjá snæfellskum börnum í bók- inni Hjá vondu fólki: „Þannig óxu þau upp í sjálfræði og þráa, óðu með aldrinum yfir höfuð foreldrun- sonar, f. 1.10. 1877, d. 8.11.1959, og Vilborg- ar Jónsdóttur, f. 12.1. 1887, d. 1.7. 1985. Börn Ernu og Haf- steins eru: 1) Hafdís, f. 27. júní 1954, maki Hjörtur Sigurðsson, f. 22. október 1952, og eiga þau þijú börn. 2) Helga, f. 6. desember 1956, maki Eli Harari, f. 14. júlí 1956, og eiga þau eitt barn. 3) Vil- borg, f. 25. desember 1957, maki Þráinn Hauksson, f. 30. ágúst 1957, og eiga þau þrjú börn. 4) Davíð, f. 1. febrúar 1960, maki Hanna Dóra Hermannsdóttir, f. 30. júní 1965, og eiga þau þijú börn. Davíð átti fyrir eitt barn með Margréti Anný Guðmundsdóttur, f. 26. mars 1964. 5) Ester, f. 22. september 1961, maki Sigurgeir B. Kristgeirsson, f. 3. desember 1960, og eiga þau tvö börn. 6) Haukur, f. 13. mars 1964, maki um og svöruðu þeim fullum hálsi.“ Og svo var hlegið að öllu saman. í seinni tíð voru einnig rædd al- varlegri málefni sem sneru að glímu margvíslegra hagsmuna í byggðarlögum úti á landi. Þar var Erna á heimavelli, reynd úr sveit- arstjórnarmálum frá Patreksfirði. En það voru ekki einungis þjóð- þrifamálin sem voru rædd við eld- húsborðið. Fljótlega eftir að sam- búð hjónakornanna hófst þurfti að skera úr ýmsum álitamálum sem upp komu. Þetta gátu verið hvers- dagslegir viðburðir á borð við val á lit á gluggatjöldum en einnig mikil- vægar ákvarðanir sem tengdust búferlaflutningum eða einhverjum vandamálum sem upp komu í dags- ins önn. Þá var soðningu stungið í pott eða á pönnu, hringt í Ernu og hún sett í dómarasæti undir yfir- skini kvöldverðarboðs. Síðan voru málin rædd og reifuð þar til niður- staða fékkst, oftar en ekki með góðum ráðum Ernu. A frumbýlingsárum okkar hjóna var aukatekna aflað með sjóróðr- um á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Erna þáði hvert tækifæri til að koma með vestur á Stapa og naut fegurðar fjallanna, kyrrðar og úti- Þórdís Thorlacius, f. 8. september 1964, og eiga þau tvö börn. Erna og Hafsteinn hófu sinn bú- skap á Patreksfirði árið 1956 og bjuggu þar til ársins 1985 er Haf- steinn lést, en Erna fluttist til Reykjavíkur ári seinna. Erna stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni og útskrifaðist þaðan vorið 1951. Síðar stundaði hún nám við lýðháskóla í Danmörku. Auk húsmóðurstarfa á stóru heim- ili vann hún mikið að félagsmálum. Var hún formaður slysavarna- deildarinnar Unnar um árabil. Formaður sjálfstæðisfélagsins Skjaldar á Patreksfirði árin 1984 tií 1986. Erna sat í hreppsnefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn í fjögur ár 1982-1986 og var hún fyrsta konan sem kjörin var til þeirra trúnaðarstarfa þar. Erna rak um tíma verslun á Patreksfirði. Hún var skipuð af ráðherra í stjóm Breiðaíjarðarfeijunnar Baldurs og einnig í ferðamálaráð. Eftir að hún fluttist til Reykjavíkur vann hún sem læknaritari, fyrst á Borg- arspítalanum og síðar á Land- spítalanum, auk þess sat hún í sljórn Psoriasisfélagsins. Útför Ernu fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. vistar þar til hins ýtrasta. Hún endurnærðist í hvert skipti sem farið var vestur. Naut þess að ganga meðfram brimsorfinni ströndinni, fylgjast með sjófuglun- um setjast upp á vorin, sjá rituna reyta sinu úr sefi tjarnarinnar til hreiðurgerðar og síðar að skynja haustið koma þegar fuglarnir und- irbjuggu ferð sína á úthafið eða til suðrænna slóða. Á síðustu árum vesturferðanna var hápunkturinn að fara í Fjöruhúsið á Hellnum. Síðastliðið sumar þegar Ijóst var hvert stefndi safnaðist fjölskylda Ernu saman á Stapa. Heilsu henn- ar hafði þá hrakað, kraftarnir farn- ir að þverra og ekki lengur orka til langra gönguferða. Sú ferð varð líka að hafa sinn hápunkt með ein- um bjór hjá Siggu í Fjöruhúsinu því ekki skemmdi hann fyrir um- ræðum sem á eftir fylgdu. Erna Aradóttir var mér meira en venjuleg tengdamóðir. Börnin mín og kona voru ekki bara að missa ástkæra ömmu sína og móður og ég tengdamóður, sem eitt og sér er fullt af sorg og trega, heldur var ég að missa einn minna bestu vina og ráðgjafa. Hvíli hún í Guðs friði. Sigurgeir B. Kristgeirsson. ERNA ARADÓTTIR ODDNYEDDA SIG URJÓNSDÓTTIR + Oddný Edda Sig- uijónsdóttir fæddist í Snæ- hvammi í Breiðadal 28. maí 1939. Hún lést á líknardeild Landspítalans 5. nóvember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Heydalakirkju 11. nóvember. Afeilífðarljósibjamia ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Baráttunni er lokið, þjáningin á enda. í hugann kemur hin eilífa spurning Hvers vegna hún? Hvers vegna svona allt of fljótt? Hún Edda sem var svo hlý, glöð og gefandi og átti svo mörgu ólokið. Átti eftir að gefa svo mörg bros og svo mikla hlýju til allra sem hún mætti í lífinu. Við spyrjum en fáum ekki svar, en vitum að það er þörf fyrir fleiri henn- ar líka á þessari jörð. Hógværar elskulegar manneskjur sem senda frá sér birtu og yl til samferðamanna sinna. Hún Edda var þeirrar gerðar að öllum hlaut að þykja vænt um hana sem kynntust henni. Edda var ljóðelsk og unni öllu fögru í skáld- skap og listum svo sem hún átti kyn til. Hún hafði aflað sér þekking- ar og fi-óðleiks langt umfram hið algenga með lestri góðra bóka. Fylgdist af áhuga með öllu sem var að gerast og hafði sína skoðun á hlutunum á sinn kurteisa en ákveðna hátt. Hafði skemmtilegan „húmor“ og frábæra frásagnargáfu. Ég sem þetta skrifa hef þekkt Eddu frá átta ára aldri, en þá var ég í barnaskóla í Snæhvammi, heimili hennar. Þar var þá farskóli sveitar- innar og faðir hennar, Sigurjón bóndi og skáld, okkar kennari og lærifaðir. Það er mín trú að á þessu heimili höfum við skólabömin fengið ómetanlegt veganesti út í lífið. Það er með fræðslu eins og annað, ekki er sama hvernig hún er fram sett. Hér var ekki verið að troða í okkur skráþurrum fróðleik, nei kennslan var lifandi og skemmtileg og náði langt út fyrir kennslubækurnar. í þessu andrúmslofti ólst Edda upp. Skáldskapur í bundnu og óbundnu máli var jafn sjálfsagður og hið dag- lega brauð. Edda var með þeim yngstu af okk- ur skólabörnunum í Snæhvammi en fylgdi okkur í öllu og lét ekki hlut sinn fyrir hinum eldri, hvorki í leik né námi. Dugleg og hress og alltaf til í glens og gaman. Þó leiðir okkar hafi ekki legið sam- an í lífinu nema stuttar stundir fannst mér ævinlega hún vera þessi sama gamla leiksystir, félagi og vin- ur. Þó árin líði breytast sumir aldrei, vinátta þeirra er ætíð hin sama. Þannig var hún þessi ljúfa kona sem nú hefur kvatt þetta jarðneska líf. Vinur vina sinna á hverju sem gekk. Er vinimir búast til ferða svo fljótt, við fáum ei skilið þá örlagadóma. Sorgin er þung eins og svartasta nótt - Þá sendir oss minningin yl sinn og Ijóma. (ÞóreyJónsdóttir.) Með þessum orðum vil ég að end- ingu senda mínar hlýjustu kveðjur til eiginmanns, barna og annarra vandamanna. Þúrey Jónsdóttir. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta VIGDÍS ÓLAFSDÓTTIR ' + Vigdís Ólafsdótt- ir fæddist í Haga á Barðaströnd 15. september 1908. Hún lést á Dvalarheimil- inu Barmahlíð 13. nóvember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Gufudalskirkju 18. nóvember. Þá er hún Vigga far- in, skóhljóðin hennar þögnuð og klingjandi hlátur. Mínar einu minningar um gamla tímann tengjast Viggu og gamla Brekku-bænum, þegar ég sem krakki fór að Brekku til að leika við sonarson Viggu sem er jafngamall mér. Þetta voru ævintýraferðir fyr- ir litla stelpu. Fyrst var það grái hesturinn sem var í girðingu vestan við bæinn á Brekku, ef hann leit upp frá beitinni og leit á mig varð ég hrædd og klifraði upp í hlíð fyrir ofan veg til að komast framhjá, þeg- ar ég kom að bænum fansnt mér betra ef bærinn var lokaður, því þá geltu hundarnir þegar ég bankaði og þá kom Vigga til dyra, opnaði bæinn og út þustu margir svartir hundar. Ef bærinn stóð opinn, þurfti maður að paufast inn löng dimm göng og banka á innri hurð- ina. Alltaf var tekið vel á móti mér, þótt ég væri bara krakki, sett inn í eldhús og borið kakó og kökur. Elsku Vigga, alltaf hefur þú verið hlý og notaleg. Þrjátíu árum síðar sátum við oft yfir kaffibolla og þú sagðir mér frá lífinu í Hergilsey og víðar á þinni erfiðu leið til fullorðinsára, oft gréstu yfir sárum minningum, en líka var stutt í glaðlegann hlát- ur. Þú minntist horf- inna vina bæði, manna og málleysingja, og talaðir oft um hundana þína. Spurðir frétta af mínu fólki, inntir eftir krumma og hvort álft- in væri komin á vatnið,' hafðir séð hana fljúga hjá, allt líf var þér jafnmikils virði. Fyrir nokkrum árum þegar heilsunni fór að hraka var ég ráðin í heimilisþjónustu, var úr vöndu að ráða því þú vildir ekki aðstoð og taldir að ég hefði nóg að gera heima hjá mér. Bar ég virðingu fyrir þér og vildi ekki ráðskast með þig eða þitt heimili en allt gekk upp með þolinmæði og mörgum skondnum uppákomum. Þú talaðir aldrei illa um nokkurn mann, en varst innilega hreinskilin. Þú útlistaðir fyrir mér að börn væru oft svo gullfalleg, en yrðu svo forljót sem fullorðið fólk, en bætir svo við „þú varst nú fallegt barn, Svandís mín“ oft er vitnað í þessi orð á mínu heimili. Elsku Vigga, ég og börnin mín og maki sendum þér okkar hinstu kveðju og minnumst þín með hlýhug og virð- ingu og þakklæti fyrir samveruna, þar er stórt skarð þar sem stórbrot- in persóna og vinur fer. Aðstandendum votta ég mína samúð. Guð veri með ykkur. Svandís Reynisdóttir, Fremri-Gufudal. + Elskulegur bróðir okkar og frændi, ÓSKAR SÆMUNDSSON, lést á Grundarfirði mánudaginn 27. nóvember. Minningarathöfn verður í Grundarfjarðarkirkju mánudaginn 4. desember kl. 14.00. Jarðsungið verður í Fossvogskapellu föstu- daginn 8. desember kl. 13.30. Þórdís Sæmundsdóttir, Elín Sæmundsdóttir og systkinabörn. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát ástkærrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, Grundarlandi 11, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deilar 12G Landspítala við Hringbraut og Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Óskar Jónsson, Guðrún S. Óskarsdóttir, Sigurgeir Jónsson, Sólveig Óskarsdóttir, Hilmar Baldursson, Gunnar Óskarsson, Dagný Brynjólfsdóttir, Fanney Óskarsdóttir, Guðjón E. Friðriksson og barnabörn. + Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR DIÐRIKSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Höfða fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Finnbogason, Roswitha, Kreye Finnbogason, Svava Finnbogadóttir, Hróðmar Hjartarson og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.