Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MORGUNBLADIÐ FRETTIR Íslandsbanki-FBA fyrirhugar kaup á bankanum Rietumu í Lettlandi Ætlar að kaupa 56,2% ISLANDSBANKI-FBA fyiirhugar kaup á meirihluta í bankanum Riet- umu í Lettlandi. Aformin ganga út á að Íslandsbanki-FBA kaupi 56,2% í lettneska bankanum og hefur banka- ráðið fjallað um kaupin og samþykkt með þeim fyrii’vara að Seðlabanki Lettlands heimili þau og að áreiðan- leikakönnun verði jákvæð. Sam- kvæmt tilkynningu frá Islands- banka-FBA er stefnt að undirritun kaupsamnings á fyrstu vikum næsta árs. Samkvæmt fyrrgreindri til- kynningu keypti Rietumu nýlega annan banka í Lettlandi, með sömu fyrirvörum og í kaupunum nú um áreiðanleikakönnun og samþykki Jóla- myndir á mbl.is SETT hefur verið upp mynda- sýning á mbl.is á Netinu með myndum frá jólaundirbúningi víða um land. Verður bætt við myndum allt fram að jólum. Þar er einnig hægt að sjá lifandi myndskeið af jólastemmning- unni í Reykjavík og því er kveikt var á Hamborgarjóla- trénu sl. laugardag. Er þetta gert í samvinnu við margmiðl- unai-íyrirtækið Verði ljós og er áformað að slíkar myndir verði er frá h'ður hluti af fréttaþjón- ustu mbl.is. Myndskeiðið er á QuickTime- sniði í mismiklum gæðum eftir því hvemig símatengingu not- endur eru með. Hlaða þarf inn QuickTime-hugbúnaði sé hann ekki fyrir hendi í tölvunni en hugbúnaðurinn er ókeypis. Hægt er að sjá myndasýning- una með því að smella á hnapp á forsíðu mbl.is, undir yfírskrift- inni: Myndasyrpa: Aðventa. Mikil viðskipti með bréf TM VIÐSKIPTI voru með bréf Trygg- ingamiðstöðvarinnar hf. fyrir 1.383 milljónir króna á Verðbréfaþingi Is- lands í gær í aðeins þrennum við- skiptum og var lokagengi bréfa fé- lagsins 52. Viðskipti voru íyrir 2.362 milljónir á Verðbréfaþingi í gær. Viðskipti voru með húsbréf fyrir 475,8 milljón- ir og hlutabréf fyrir 1.782,6 milljónir kr. Auk mikilla viðskipta með bréf Tryggingamiðstöðvarinnar voru við- skipti með bréf Íslandsbanka-FBA upp á 67,3 milljónir kr. og bréf Hlutabréfasjóðs Búnaðarbankans fyrir 126,2 milljónir. Mest hækkuðu hlutabréf Skýrr, um 4,3%. Bréf Landsbankans lækk- uðu um 4,3%. Úrvalsvísitalan lækk- aði um 0,65% og er 1.268 stig. Seðlabanka Lettlands. Vegna ákvæða um trúnaðarskyldu mun ekki verða greint nánar frá þessum kaupum fyrr en henni verður létt af. Islandsbanki-FBA mun sam- kvæmt tilkynningu bankans greiða jafngildi 2,35 milljarða íslenskra króna fyrir 56,2% hlut sinn í Riet- umu. Þessi greiðsla skiptist í kaup á hlutafé af núverandi hluthöfum og nýtt hlutafé, en núverandi eigendur Rietumu munu áfram taka vii’kan þátt í rekstri bankans. Þá segir í til- kynningunni að Íslandsbanki-FBA geri ráð fyrir að afkoma bankans muni leiða til arðsemi vel yfir arð- semiskröfu Islandsbanka-FBA. Þar segir einnig að gert sé ráð fyr- ir að Rietumu verði fjórði stærsti banki Lettlands eftir kaupin og að eignir hans muni samsvara um 40 milljörðum íslenskra króna. Þá sé búist við að hagnaður yfirstandandi árs verði nálægt 900 milljónum ís- lenskra króna. Víðari tekjugrunnur og dreifing áhættu Rietumu var stofnaður árið 1992 og sérhæfir sig í þjónustu við efnaða einstaklinga í Lettlandi og alþjóð- legri greiðslumiðlun og greiðslustýr- ingu fyrir banka og fyrirtæki í Rúss- landi og öðrum löndum Mið- og Austur-Evrópu. Bjarni Armanns- son, forstjóri Íslandsbanka-FBA, segir að ætlunin sé að byggja áfram á núverandi stjórnendum hins lett- neska banka enda hafi þeir fjölþætta reynslu af bankarekstri. Islands- banki-FBA muni leggja til þekkingu á ýmsum sviðum sem hafi verið að þróast hér á landi þannig að þróunin hjá lettneska bankanum geti á þeim sviðum orðið hraðari en ella hefði orðið. Bjarni segir að með þessum kaup- um sé verið að nýta betur sérfræði- þekkingu innan Islandsbanka-FBA, víkka tekjugrunn hans og dreifa áhættunni frá íslensku efnahagslífi. Bananar kaupa Agæti FYRIRTÆKIÐ Bananar ehf. hefur keypt sölufyrirtækið Agæti og var samningur þess efnis undirritaður í gær. Kjart- an Már Friðsteinsson fram- kvæmdastjóri Banana ehf. segir að brátt verði starfsemi fyrir- tækisins flutt á einn stað, dreif- ing verði gerð skilvirkari og að magninnkaup verði hagstæðari, sem leiði vonandi til lægra vöru- verðs fyrir neytendur. Kjartan segir að sú breyting sem orðið hefur á smásölumarkaði hafi kallað á þessa sameiningu og að hún sé í raun viðbrögð við þeirri samþjöppun sem þar hafi orðið. Morgunblaðið/Ásdís íslandsflug hefur leigt fimmtu B737-þotuna til þriggja ára og fer hún í dag áleiðis til Bahamaeyja í fímm mánaða verkefni. Islandsflug bætir við fímmtu þotunni Hlutafé aukið um 250 millj- ónir króna ISLANDSFLUG hefur tekið í notk- un fimmtu Boeing 737-þotuna og er hún leigð til þriggja ára. Verið er að auka hlutafé íslandsflugs um 250 milljónir króna og segir Omar Bene- diktsson, framkvæmdastjóri ís- landsflugs, það vera til að mæta fyr- irsjáanlegum vexti í starfseminni. Nýja þotan, B737-300, verður næstu fimm mánuði í verkefnum fyr- ir Bahamasair á Bahamaeyjum og svo í verkefnum frá Englandi fyrir breskar ferðaskrifstofur. Ómar segir að veltan vegna verkefna þotunnar þessi þijú ár verði að lágmarki um 1,8 milljarðar. íslandsflug hefur tvær aðrar 737-300-þotur í rekstri, önnur er farþegavél í verkefnum frá Mallorka fyrir evrópskar ferðaskrif- stofur og hin er frakt- og farþegavél, sem í vetur sinnir fraktfluginu fyrir DHL og fleiri aðila. Þá er félagið með tvær 737-200-þotur, aðra í frakt- flugi í Evrópu og hin er farþegavél í verkefnum í Karíbahafinu. Alls starfa nú 42 íslenskir flugmenn hjá Islandsflugi auk nokkurra erlendra. Ómar segir hlutafé íslandsflugs hafa verið aukið á liðnu sumri eftir áföll, sem félagið varð fyrir, m.a. vegna bilana 737-300-vélarinnar, sem sinnti frakt- og farþegaflugi frá Islandi. Nú er í ráði að auka hlutaféð um 250 milljónir og er fyrirhugað að félagið auki við þotureksturinn. Meðal nýrra hluthafa er Gunnar Björgvinsson í Liechtenstein, sem sérhæfir sig í kaupum og sölu flug- véla og á hann nú fulltrúa í stjóm þess. Hlutafé íslandsflugs verður 375 milljónir að nafnverði eftir aukn- inguna. íslendingar fengsælir á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum Þrenn verðlaun s til Islendinga EVRÓPSKU kvikmyndaverðlaunin voru afhent í Théatre National de Chaillot í París á laugardagskvöld. Björk Guðmundsdóttir hlaut verð- Iaun sem besta leikkona ársins fyrir leik sinn í kvikmynd Lars von Trier, Dancer in the Dark, auk þess að vera kosin besta leikkonan af áhorfendum, en sú kosning fór fram á Netinu. Ingvar E. Sigurðs- son hlaut einnig áhorfendaverðlaun fyrir hlutverk Páls í Englum al- heimsins eftir Friðrik Þór Friðriks- son. Ingvar var að vonum ham- ingjusamur með heiðurinn, þótt hann væri óviss um þýðingu verð- launanna fyrir sig sem leikara í hin- um stóra heimi kvikmyndanna. „Mér finnst fyrst og fremst heiður að fá að leika svona sterkt hlutverk, og af frábærum viðbrögðum heima finnst mér ég þegar vera búinn að vinna áhorfendaverðlaun." Dancer in the Dark var valin besta mynd ársins, en Lars von Trier hlaut einnig áhorfenda- verðlaun, eins og Ingvar og Björk, sem besti leikstjórinn. Sagði Þor- finnur Ómarsson hjá Kvikmynda- sjóði íslands að þetta væri stór stund fyrir íslenska kvikmynda- gerð - ef ekki sú allra mesta viður- kenning sem Islendingar hefðu hlotið innan geirans. Hvorki Lars von Trier né Björk voru viðstödd afhendinguna, og hafa dönsk dagblöð haft eftir fram- ieiðanda Dancer in the Dark, Peter Aalbæk Jensen, að það sé ófyrirgef- anlegt af hálfu Bjarkar að hún hafi ekki verið við athöfnina, að hún hafi ekki afboðað komu sína, og hafði hann eftir Lars von Trier að hún ætti skilið rassskell fyrir vikið. Einar Örn Benediktsson, vinur Bjarkar og vefstjóri, segir að Björk hafi vissulega afboðað komu sína, og að saman hafi þau tekið upp á myndband þakkarræðu Bjarkar Morgunblaðið/Páll Ketilsson Ingvar E. Sigurðsson hélt á verðlaunagripnum frá París er hann sté út úr flugvélinni inn í Leifsstöð við heimkomuna í gær. sem hins vegar barst hátíðinni ekki í tæka tíð, eins og annar kynnirinn, Antoine de Caunes, skýrði frá. „Mér finnst þetta auglýsingaæði framleiðendanna taka út yfir allan þjófabálk,“ segir Einar Örn. „Þeir segja hana vera að éta peysur og að hún eigi að fá rassskellingu. Ef ein- hveijir eiga að éta vindlana sína og fá rassskellingu, þá eru það fram- leiðendur þessarar myndar.“ Einar Örn segir Björk vera að klára upptökur á nýjustu plötunni sinni, Domestika, sem eigi huga hennar allan. „Björk hefur verið að vinna plötuna frá því að hún gekk frá sínum málum varðandi kynn- ingu á myndinni og fleira, þannig að hún sá sér ekki fært að fara á há- tíðina og er að vinna í New York.“ I Mesta viðurkenning/ 79 •3 TíVff] # L - • • - aííúaSlíLLLí %. J BÆKUR Enginn veit sína ævina... mm mm i&muhm llS Hfit slH HHs xmm ;y.f._U_3 ÉgBap Ewp-ns cisSfíg SígÉsja =-iiÆ-jg ifiS Blaðinu í dag fylgir átta síðna blaðauki um bækur. miAin Heimili ••••••••••••••••••••••*•••••••••• íþróttablaðið er inni í Fasteignablaðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.