Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 35 LISTIR Einlægur og alltaf músíkalskur flutningur TOWLIST Geislaplötur ÉG HLAKKA TIL Inga J. Backman syngur íslensk sönglög: Arnmundur S. Backman: Ég hlakka til, Sofa urtubörn. Páll Isólfsson: Kossavísur, Söknuður, Litla kvæðið um litlu hjónin. Sigfús Einarsson: Gígjan, Draumalandið, Sofnar lóa, Augun blá. Gylfí Þ. Gíslason: Amma kvað, Heiðlóar- kvæði, Þjóðvísa, Ég leitaði blárra blóma. Karl Ottó Runólfsson: Viltu fá minn vin að sjá, Japanskt ljóð, Ferðalok. Jórunn Viðar: Mamma ætlar að sofna, Við Kínafljót. Jón Þórarinsson: Islenskt vögguljóð á Hörpu, Morgunvísur, Nú legg ég augun aftur. Jón Ásgeirsson: Jóla- ljóð, Á jólanótt. Sigvaldi Kaldalóns: Ave María. Einsöngur: Inga J. Backman (sópran). Píanóleikur: Ól- afur Vignir Albertsson. Útgefanda ekki getið. Útgáfunúmer: IB001. Verð: kr. 2.199. Dreifing: Skífan. Á NÝJUM diski þeirra Ingu J. Backman sópransöngkonu og Olafs Vignis Albertssonar píanóleikara flytja þau nokkur uppáhaldslaga sinna. Hljóðritunin var gerð af Halldóri Víkingssyni síðastliðið sumar og hefur hún tekist vel enda virðist Víðistaðakirkja vera ákjós- anlegur upptökustaður fyrir söng. Inga J. Backman og Ólafur Vignir Albertsson hafa átt með sér gott samstarf um árabil. Þessar nýju hljóðritanir á íslenskum söng- Inga Ólafur Vignir Backnian Aibertsson lögum vitna um prýðilegan sam- hljóm milli þeirra tveggja. Ólafur Vignir er vandaður og nærgætinn píanóleikari, hann hefur mikla reynslu sem meðleikari söngvara og í þessum hljóðritunum koma kostir hans vel í ljós. Söngur Ingu J. Backman ber vott um vandaðan undirbúning og þar af leiðandi góðan skilning á viðfangsefninu - texti og lag eru eitt, ekki tveir að- skildir þættir eins og stundum vill verða. Styrkui' þessarar nýju plötu felst í góðum samhljómi tónlistar- mannanna tveggja sem tekst vel að tjá innri merkingu tónlistarinnar og ljóðanna. Hins vegar finnst mér víbrató söngkonunnar stundum vera óþarflega mikið og kemur það í einstaka tilvikum niður á tón- mynduninni. Efnisval þeirra Ingu og Ólafs Vignis er nokkuð fjölbreytt. Þau hafa sett saman efnisskrá sem samanstendur af þekktum lögum og óþekktum. Sérstaka athygli vekja lögin eftir bróður Ingu, Árn- mund Backman sem lést fyrir nokkrum árum. Titillag plötunnar, Ég hlakka til, er sérkennilega fal- legt og barnagælan Sofa urtubörn barnslega innilegt. Þrjú veþ valin og vel flutt lög eru eftir Pál ísólfs- son, Kossavísur, Söknuður og Litla kvæðið um litlu hjónin. Og ekki má gleyma Þjóðvísu Gylfa Þ. Gíslason- ar. Þessi góðu sönglög standa allt- af fyrir sínu. Sama má segja um lög Jórunnar Viðar, Við Kínafljót og Mamma ætlar að sofna, en það síðara er mjög fallega sungið. Þetta eru vel gerð sönglög sem mættu vel heyrast miklu oftar. Is- lenskt vögguljóð á Hörpu eftir Jón Þórarinsson er ómótstæðileg og af- ar slitsterk perla i flokki íslenskra einsöngslaga. Það verður hins veg- ar ekki sagt um útjöskuð lög Sig- fúsar Einarssonar: Gígjuna, Draumalandið, Augun blá og Sofn- ar lóa sem íslenskir söngvarar verða að fara að hvíla sig á - af til- litssemi við alla hlutaðeigandi. Hver veit nema einhverrar þreytu sé farið að gæta hjá fleirum en mér, því mér finnst þeim Ingu og Ólafi Vigni takast hvað síst upp í þessum lögum. Jón Ásgeirsson á tvö jólalög á diskinum, Jólanótt og Jólaljóð. Þetta eru hugljúf og ein- læg lög sem láta ekki mikið yfir sér. En hvers vegna snerta þau mig ekki sem jólalög? Hvað gerir lag eiginlega ,jólalegt“? Varla nægir það eitt að textinn fjalli um fæðingu Krists. En hvað um það, þetta eru falleg lög og alls góðs makleg. Hér er margt vel gert. Flutning- ur Ingu J. Backman og Ólafs Vign- is Albertssonar á þessum nýja diski er jafnan einlægur og alltaf músíkalskur. Valdemar Pálsson Sigur fyrir ljóðlistina NORSKA ljóðskáldið Jan Erik Vold hefur verið gerður að heið- ursdoktor við háskól- ann í Ósló. Af þessu til- efni lét hann hafa eftir sér að hann liti á þetta sem sigur fyrir ljóð- listina. „Þeir sem stungu upp á mér eru hreyknir og ég er líka hreykinn, “ segir Vold. Vold, sem er eitt kunnasta ljóðskáld Norðmanna býi- í Stokkhólmi, kvæntur sænskri konu. Hann er mjög afkastamikill og flyt- ur oft ljóð sín við undirleik djass- leikara. Hann hefur oftar en einu sinni kvartað yfir litlum áhuga á ljóðlist við há- skólann. Þegar hann hélt þar eitt sinn erindi var það að hans eigin frumkvæði. Nú hefur hann stigið á svið skól- ans sem heiðursdoktor og (jallaði þá um upp- áhaldsefni sitt, norska ljóðlist. Jan Erik Vold er fjórði Norðmaðurinn síðan 1961 sem hlýtur heiðursdoktorsnafnbót við sögu- og heimspekideild háskól- ans. Hinir eru Thor Heyerdahl, Helge Ingstad og Leif Ostby. Jan Erik Vold Sjónræn sagnaveisla JÓLAFUNDUR Sagnfræðingafé- lagsins verður haldinn annað kvöld, miðvikudag, kl. 20. Hann hefst í húsakynnum Ljós- myndasafns Reykjavíkur í Grófar- húsi í Tryggvagötu 15 þar sem skoð- uð verður sýningin „Móðirin í íslenskum Ijósmyndum" undir leið- sögn Guðbrands Benediktssonar sagnfræðings. Fundinum verður fram haldið í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús- inu þar sem Eggert Þór Bemharðs- son sagnfræðingur leiðir fundar- menn um sýningu á ljósmyndum úr braggahverfum borgarinnar. Þær varpa nýju ljósi á mikilvægan en van- ræktan þátt í sögu Reykjavíkur. Sýn- ingin tengist nýútkominni bók hans sem nefnist Undir bárujámsboga. Braggalíf í Reykjavík 1940-1970. I kaffistofu Listasafnsins mun Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræð- ingur svo fjalla um bókina ísland í sjónmáli en í henni em gamlar ljós- myndir frá íslandi sem Æsa Sigur- jónsdóttir fann í skjalasöfnum í Frakklandi. Að því búnu verða al- mennar umræður um gildi sjón- rænna heimilda fyrir sagnfræðinga og aðra söguritara. í kaffistofunni gefst fundarmönnum kostur á léttum veitingum. 1M-2000 5. desember HEIÐMÖRK KL. 13.30 Jólatré í Heiðmörk Hin árlega jólaferö leikskóla borgar- innar í Heiómörk. Þetta markar iokin á fjölbreyttri heilsársdagskrá í tilefni af 50 ára afmæli Heiömerkur. InnX BÍLDSHÖFÐI16 SÍMI 577 1170 Italskar heimaskrifstofur á góðu verði frá kr. 11.900.- 19.900 team 10 • Hægt aö stilla bak setu-hæð og halla • Stillanlegir armar • Góöur vinnustóll i team 20 * Hægt aö stilla bak og setu-haaö og halla * Stillanlegur mjóhryggsstuöningur * Stillanlegir armar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.