Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 31
Hume
hættir
á þingi
NORÐUR-írski stjórnmála-
skörungurinn og handhafl frið-
arverðlauna Nóbels, John
Hume, hætti
í gær þing-
mennsku á
þingi N-ír-
lands. Hume
sagði ástæð-
una vera
mikið
vinnuálag
sem á hon-
um hvílir og
Hume, sem er 63 ára gamall,
tilkynnti fyrir nokkrum mánuð-
um að hann hygðist hætta þing-
mennsku.
Hume, sem hefur um langa
hríð verið i forsvari hófsamra
kaþólikka á N-írlandi (SDPL),
lék lykilhlutverk í gerð friðar-
samkomulagsins sem sam-
þykkt var árið 1998. Hume
hafnaði leiðtogastöðu í heim-
astjórninni á sínum tíma enda
hafði hann nóg á sinni könnu
sem þingmaður Evrópuþings-
ins og breska þingsins.
60.000 á
bænaskrá
OTPOR, andspyrnuhreyfing
júgóslavneskra háskólanema,
hefur safnað 60.000 undir-
skriftum á bænaskrá sem mið-
ar að því að bola burt yfirmanni
leyniþjónustunnar, Rade
Markovic. Hann var skipaður í
embætti af Slobodan Milosevic
og sakar Otpor Markovic um
hamlandi áhrif á störf núver-
andi ríkisstjórnar Júgóslavíu.
Undirsskriftasöfnunin mun
vara þangað til á morgun, en þá
verður bænaskráin afhent yfir-
völdum. Otpor gegndi stóru
hlutverki er Milosevic var
steypt af stóli í október.
Mannréttindasamtök og and-
stæðingar Markovic hafa sakað
hann um að standa að baki
nokkrum morðum á pólitískum
andstæðingum Milosevic,
þ.á m. á blaðamanninum Slavko
Curuvija.
Gusinsky
eftirlýstur
RÚSSNESK stjórnvöld hafa
gefið út alþjóðlega handtöku-
beiðni fjölmiðlakóngsins Vlad-
imirs Gusinskys sem sakaður
er um fjársvik. Gusinsky, sem
er eigandi stærstu óháðu fjöl-
miðlasamsteypunnar í Rúss-
landi, Media-most, hefur haldið
sig fjarri Rússlandi í marga
mánuði. Hann mætti ekki til yf-
irheyrslu hjá saksóknara 20.
nóvember og var
handtökubeiðnin þá gefin út en
áður var hann eftirlýstur í
Rússlandi. Kærurnar á hendur
Gusinsky hafa ýtt undir ótta
um að frjálsir fjölmiðlun riði til
falls í Rússlandi.
300 flugferð-
um aflýst
BANDARÍSKA flugfélagið
Delta Air-Lines staðfesti í gær
að það hefði neyðst til að aflýsa
nær 300 flugferðum um helgina
vegna aðgerða flugstjóra fé-
lagsins. Stéttarfélag flugstjór-
anna hefur átt í kjaraviðræðum
við flugfélagið síðan í septem-
ber á síðasta ári.
Vísindamenn segja bann við ósoneyðandi efnum skila árangri
Talið að gatið á
ósonlaginu lokist
ALÞJÓÐLEGUR hópur vísinda-
manna spáir því að gatið á óson-
laginu yfir Suðurheimskautinu
muni minnka og loks lokast innan
fimmtíu ára. Vísindamennirnir
telja að áhrifa banns við notkun
ósóneyðandi efna sé farið að gæta
og að ósónlagið muni færast í
fyrra horf, svo framarlega sem
ríki heims hlíti banninu áfram.
Víðtækari
aðgerða þörf
Um 300 sérfræðingar á þessu
sviði komu saman á ráðstefnu í
Buenos Aires í Argentínu til að
ræða ný gögn um ósoneyðingu. Er
spá vísindamannanna byggð á vís-
bendingum um að magn ósoneyð-
andi efna sé að minnka í neðri
lögum andrúmsloftsins, en þeir
vara jafnframt við því að grípa
verði til víðtækari aðgerða til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda, ef árangur eigi að nást.
Alan O’Neill, formaður vísinda-
nefndar ráðstefnunnar, sagði í
samtali við fréttavef BBC að
þekking á ósonlaginu væri sífellt
að aukast og að vísindamenn
gætu nú til dæmis skýrt hvers
vegna stærra gat sé á ósonlaginu
yfir Suðurskautinu en Norðurs-
kautinu og hvers vegna gatið er
misjafnlega stórt eftir árum. „Vís-
bendingar eru að koma fram um
að bann eða hömlur við losun
ósoneyðandi efna séu farin að
skila árangri," sagði O’Neill við
BBC. „Magn þessara efna fer al-
mennt minnkandi í lægri lögum
andrúmsloftsins og við spáum því
að ósonlagið muni jafna sig á
næstu fimmtíu árum eða þar um
bil.“ Að sögn O’Neills er þó ólík-
legt að miklar breytingar verði
strax á næstu árum, og sökum
náttúrulegra sveiflna í veðurfari
mun þróunin heldur ekki verða
stöðug. O’Neill sagði jafnframt að
lækkun hitastigs vegna gróður-
húsaáhrifa gæti tafið þessa þróun,
ef til vill um heilan áratug.
Bann var lagt við losun óson-
eyðandi efna með Montreal-
bókuninni árið 1987.
plýr
stoður
notaðo bíla
fyrir ^
www.bilaland.is
Hyundai Accent GLSi
Nýskr. 7.1996, 1500ccvéi,
4 dyra, sjálfskiptur,
ekinn 57 þ. ^
Nýskr. 10.1996, 1600ccvél,
5 dyra, 5 gíra, grænn, ekinn 70 þ.
Hyundai Pony
Nýskr. 7.1994, 1500cc vél,
4 dyra, 5 gíra, vínrauður,
ekinn 62 þ.
Hyundai Sonata GLSi
Nýskr. 2.1998, 2000ccvél,
4 dyra, sjálfskiptur, grár, ekinn 38 þ.
Honda Civic
Nýskr. 8.1998, 1400cc vél,
3 dyra, sjálfskiptur, S
ekinn 1.290.þ
Renault Megane RT
Nýskr. 7.1997, 1600cc vél,
\ 5 dyra, sjálfskiptur,
\£. ekinn 38 þ.
Kia Sportage Grand Classic
Nýskr. 12.1999, 2000cc vél,
5 dyra, 5 gíra, Ijósblár,
ekinn 7 þ.
Subaru E12
Nyskri 12.1998, 1200cc vél,
4 dyra, 5 gíra, hvítur,
ekinn 20 þ. 4X4
Grjóthálsi 1
sími 5751230
«»'«»11»