Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 20

Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Aðventu- tónleikar í Húsavíkur- kirkju Húsavík - Fyrsta sunnudag í að- ventu hélt Kirkjukór Húsavíkur að- ventutónleika sína í Húsavíkur- kirkju, tónleikarnir voru vel heppnaðir og kirkjubekkir þéttsetn- ir. Stjómandi kórsins er Judit György, undirleikari á tónleikunum var Aladár Rácz, sem lék á orgel og píanó. Auk þeirra komu fram með kórn- um Adrienne D. Davis, sem spilaði á flautu, og Baldur Baldvinsson, sem söng einsöng í Ó helga nótt, þau sungu auk þess bæði með kómum. Séra Sighvatur Karlsson sóknar- prestur flutti ávarp og ritningarlest- ur og söng einnig með kórnum. Tónleikunum lauk með því að við- staddir fóra saman með Faðirvorið, síðan sungu kirkjugestir Heims um ból með kirkjukórnum. Slökkt var á ljósum og kórfélagar héldu á kertum meðan sungið var. Við þetta mynd- aðist mjög hátíðleg stemmning og gengu kirkjugestir að því loknu út í kvöldblíðuna í hátíðarskapi, ánægðir með kvöldið og þakklátir þeim sem að þessum tónleikum stóðu. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Baldur Baldvinsson söng einsöng með kórnum í Ó, helga nótt. Nýr sorpbíll fyrir Snæ- fellsbæ Ólafsvík - Tómas Sigurðsson ehf. í Ólafsvík hefur keypt nýlegan sorptökubíl frá Þýskalandi. Bíllinn er af gerðinni MAN og er sérhann- aður í þetta hlutverk. Tekur allt sorp í einni ferð Bíllinn er með 24 rúm- metra tunnu og getur því tek- ið í einni ferð allt sorp sem til fellur vikulega í Snæfellsbæ. Allur búnaður bílsins er af nýjustu gerð svo sem sjón- varp sem sýnir ökumanni allt sem gerist aftan við bílinn. Tómas Sigurðsson hefur annast sorptöku í Ólafsvík og síðar Snæfellsbæ allt frá ár- inu 1979. Fyrirtækið annast þar að auki ýmsa verktöku og hefur verið farsælt og notið vinsælda. Starfsmenn fyrirtækisins era nú fjórir fastráðnir auk lausráðinna. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Selma og Eva við jólagluggann sem þær skreyttu. Morgunblaðið/Daníel Hansen Barnakór söng undir stjórn Steinunnar Pálsdóttur. Föndurdagur í Lýsuhólsskóla Hellnum - Sú hefð hefur skapast í Lýsuhólsskóla að nemendur og foreldrar þeirra hittast 1. desem- ber til að föndra úr pappír og filti, baka piparkökur og skreyta skólann. Skólastjórinn, Guðmundur Sig- urmonsson, segir það mun skemmtilegra að skreyta skólann snemma á aðventunni þvf þá geti börnin notið skreytinganna Ieng- ur. Eins og venjulega er skóla- blað gefið út fyrir jólin en þetta ár kemur allt efni, myndir og teikningar frá nemendum sjálfum en Ragnhildur Blöndal kennari sá um umbrot. Auglýsingum hefur verið safnað í blaðið og leitað var til Odda í Reykjavík, sem styrkti útgáfuna með því að gefa pappír í blaðið sem slðan er prentað í litaprentara og gormabundið af nemendum. Útgáfan er liður í fjáröflun 9. og 10. bekkjarnem- enda, en þeir stefna á skólaferð til Danmerkur í vor. Nemendur gefa einnig út skemmtileg jólakort sem einnig er liður í fjáröfiun þeirra. Mynd- irnar á kortunum er unnar af öll- um nemendum skólans. Mynd- listarkennarinn, Sigríður Gísladóttir á Bjarnafossi, vann síðan klippimyndir úr teikningum þeirra og skeytti saman í þau tíu kort sem valin voru til út- gáfunnar. Eftir útprentun á kort- unum sjá nemendur um að skera Morgunblaðið/Guðrún G. Bergman Nemendur 9. og 10. bekkjar ásamt myndlistarkennara sín- um, Sigríði Gísladóttur. þau og pakka. Sigríður hefur einnig kennt nemendum að nota gömul Morg- unblöð til að búa til gjafamiða á pakka. Blöðin eru bleytt upp og pappamassinn síðan pressaður saman í sléttan flöt með upp- hleyptri mynd í annan endann. Endurvinnsla er því í fullum gangi hjá nemendum Lýsuhóls- skóla. Aðventusamkoma í Lindartungu Eyja- og Miklaholtshreppi - í byrj- un aðventu var samkoma í Lindar- tungu á Snæfellsnesi. Þar var saman komið fólk úr nærliggjandi hreppum til að njóta dagskrár í tali og tónum. Sóknarpresturinn, sr. Guðjón Skarphéðinsson á Staðarstað, bauð fólk velkomið og kynnti dagskrána. Barnakór úr Laugagerðisskóla söng undir stjórn Steinunnar Pálsdóttur, kirkjukór söng undir stjóm Zusanne Budai, lesin vora jólaljóð og nem- endur úr Laugagerðisskóla spiluðu á hljóðfæri. í lokin buðu húsfreyjur sveitarinnar öllum gestum veglega veislu. Ekki er jólalegt í byrjun aðventu á Snæfellsnesi, algjörlega sryolaust og ekkert frost í jörðu. Menn hafa verið að setja niður haustlauka síðustu daga og ekki era enn allir farnir að hýsa sauðféð. Muna menn hér um slóðir varla aðra eins veðurblíðu á þessum tíma. Allir að föndra Það skein einbeiting úr augum barnanna í föndurvinnunni. Morgunblaðið/GPV Grindavík - Hefðbundið jólaföndur foreldra- og kenn- arafélagsins var haldið laugardaginn 2. desember. Það er óhætt að segja að þessi dagur sé orðinn eins og aðrir há- tíðisdagar, það missir enginn af honum. Marta Sveinsdóttir, nýkjörin formaður foreldra- og kennarafélagsins, var mjög ánægð með daginn og sagði: „Þetta er framar björtustu vonum og væntingum. Veislu- borðið er stórglæsilegt, nánast eins og fermingarhlað- borð, sem foreldrarnir hafa lagt til. Flestir ef ekki allir mættir, mun fleiri en í fyrra, sem þó var met þá.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.