Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 15 FRÉTTIR Forstöðulæknir geðlækningasviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss um aukningu innlagna á BUGL * Ovarlegt að draga of víð- tækar ályktanir HANNES Pétursson, forstöðulækn- ir geðlækningasviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss, segir að óvar- legt sé að draga of víðtækar álykt- anir af aukningu innlagna unglinga á barna- og unglingageðdeild í haust miðað við sama tímabil í íyrra, en í Morgunblaðinu á miðvikudag kom fram að innlagnir hefðu aukist um 75% og þörf væri fyrir aukin úrræði. Hannes sagði að auðvitað væri alltaf þörf fyrir aukin úrræði í þess- um efnum, en varhugavert væri að álykta um þörf á aukinni þjónustu út frá tiltölulega mjög fáum ein- staklingum á þessu stutta tímabili, en miðað væri við tímabilið frá sept- ember til 21. nóvember. Hann sagði að ef miðað væri við innlagða einstaklinga eftir deildum á BUGL, þ.e. bæði sólarhrings- og dagvistanir á ungmennum, væri um 19 einstaklinga að ræða á árinu 1999, en 25 á sambærilegum tíma á árinu 2000, þ.e. frá 1/9 til 21/11. Aukningin væri nokkur, en erfitt væri að draga ályktanir af henni þar sem um mjög stutt tímabil væri að ræða. Þörf fyrir þjónustu af þessu tagi gæti verið mjög sveiflukennd t.d. eftir árstíðum og munurinn gæti jafnvel skipt tugum prósenta. Ef lit- ið væri til fyrstu tíu mánaða þessa árs og sama tímabils í fyrra þá væri um sama fjölda einstaklinga að ræða sem lagðir hefðu verið inn á BUGL í ár og í fyrra, þegar sólar- hrings- og dagvistun væri skoðuð saman. í báðum tilvikum væri um 48 einstaklinga að ræða, en heldur stærri hluti þeirra hefði verið í sól- arhringsvistun í ár, en á móti aðeins færri í dagvistun. Þess utan hefðu níu ungmenni í ár leitað til bráða- móttöku geðdeildarinnar við Hring- braut. Þá væri vert að geta þess að verulegur hluti þjónustunnar væri veittur á göngudeild BUGL og með samráðskvaðningum á Stuðlum og unglingadeildinni á Vogi þannig að tölur um innlagnir segðu ekki alla söguna. 40 milljóna króna aukin fram- lög vegna þjónustusamnings Hannes benti á að sá þjónustu- samningur, sem gerður hefði verið milli Landspítalans og BUGL ann- ars vegar og Barnaverndarstofu og unglingadeilarinnar á Vogi hins veg- ar, væri mikið framfaraspor og hefði aukið framlög til þessarar starfsemi um 40 milljónir kr. á ári. Samkvæmt samningnum veita starfsmenn BUGL þeim ungmennum aðstoð sem þurfa á hjálp að halda í sam- bandi við geðraskanir. Aðstaða til bráðamóttöku á BUGL hefði verið bætt verulega og fleira starfsfólk hefði verið ráðið til að sinna þjónust- unni. „Það sem brennur helst á okkur hins vegar er að við vildum gjarnan hafa möguleika á hæfingarheimili fyrir unglinga. Við höfum hæfingar- heimili á Kleifarvegi fyrir böm, sem hefur reynst mjög vel, og það vantar kannski helst þetta úrræði, þar sem við getum veitt eftirmeðferð ung- mennum sem hafa verið í meðferð á móttökudeildunum á BUGL,“ sagði Hannes. Hann sagði að allir vildu standa að því að bæta þjónustuna við börn og ungmenni í þessum efnum og það hefði verið gert á áföngum á undan- förnum misserum. Núna væri til dæmis verið að vinna að því að koma upp bættri aðstöðu fyrir starfsfólk á BUGL. Fylgst yrði náið með þróun- inni í þessum efnum, en óvarlegt væri að draga mjög víðtækar álykt- anir af aukningu í eftirspurn eftir þjónustu í þessum efnum þegar ekki væri um lengra tímabil að ræða en það sem hér um ræddi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Þátttakendur á námskeiðinu voru 27 talsins af 18 þjóðernum. Námskeið fyrir erlent starfsfólk í öldrunarþjónustu Þátttakendur voru frá átján löndum LOKIÐ er námskeiði fyrir erlent starfsfólk í öldrunarþjónustu en 27 manns af 18 þjóðernum sóttu námskeiðið sem staðið hefur síð- ustu vikur. Að námskeiðinu standa starfsmenntaráð félags- málaráðuneytisins, menntamála- ráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og Landspítali - háskólasjúkra- hús, Landakoti, en Námsflokkar Reykjavíkur sjá um námskeiðið og fengu til þess fjögurra millj- óna króna styrk starfsmenn- taráðs og menntamálaráðuneytis- ins. Páll Pétursson félagsmála- ráðherra og Guðrún Halldórs- dóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, afhentu nemendum viðurkenningarskjöl við slit nám- skeiðsins í gær. Davíð Stefánsson, formaður Starfsmenntaráðs, seg- ir að nú séu starfandi kringum 200 ófaglærðir erlendir starfs- menn hjá sjúkrahúsunum. Hann segir að í fyrra hafi um 500 er- lendir menn verið í Eflingu- stéttarfélagi en í ár sé talan kom- in í 1.600 og brýnt sé að bjóða námskeið sem þessi. Hann segir Starfsmenntaráð hafa hvatt til þess að útbúið væri námsefni fyr- ir ófaglært erlent vinnuafl. I frétt frá þeim sem að nám- skeiðinu standa kemur fram að með sífelldum vexti í öldrunar- þjónustu sé þörf æ fleira starfs- fólks bæði faglærðs og ófaglærðs. Af þeim sökum hafi ráðning er- lendra starfsmanna færst mjög í vöxt. Því fylgi ákveðinn vandi þar sem fæstir kunni íslensku. Á vegum Námsflokka Reykja- vfkur hafa verið skipulögð 60 tíma námskeið og námsefni út- búið. Fjallað er um þrjá mcgin- þætti, islenskukennslu sem teng- ist störfum og verklagi, hug- myndafræði vinnustaðarins og réttindi og skyldur á vinnumark- aði. í fréttinni kemur fram að námskeiðin hafi reynst gagnleg, málskilningur og orðaforði þátt- takenda hafi aukist og þannig tekist að bæta samskipti þeirra við sjúklinga og samstarfsfólk. Einnig hafi þeir öðlast betri inn- sýn í hugmyndafræði öldrunar- þjónustu. Þá kemur fram að unnt verði að nýta námsefnið á öðrum sviðum heilbrigðisþjónustunnar með lagfæringum og aðlögun að hverjum vinnustað. Yfírmaður hjá Flóttamannastofnun SÞ á Norðurlöndunum á námstefnu um réttindi flóttamanna Hvergi tekið betur á móti flóttamönnum en á Norðurlöndum ROBERTO Mignone, yfirmaður hjá svæðisskrifstofu Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna í Stokk- hólmi, hélt nýlega erindi á sameigin- legri námstefnu Rauða kross Islands og dómsmálaráðuneytisins um réttindi flóttamanna og þeirra sem leita pólitísks hælis. Svæðis- skrifstofan fer með málefni átta landa. Auk Norðurlandanna - ís- lands, Noregs, Svíþjóðar, Danmerk- ur og Finnlands - fylgist skrifstofan með Eystrasaltsríkjunum þremur, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Verkefni Mignone, sem er lög- fræðingur að mennt, er að halda ut- an um málefni flóttamanna í fimm þessara landa, þ.e. Eystrasaltsríkj- unum, Noregi og á íslandi, og sjá til þess að ekki sé brotið á rétti þeirra samkvæmt mannréttindasamning- um og öðrum samningum Samein- uðu þjóðanna. Skrifstofa Mignone fylgist einnig með því að flótta- mönnum sé ekki snúið til baka ef líf þeirra eða öryggi er í hættu í heima- landinu, heldur reynt að leysa mál þeirra með öðrum hætti, einkum þeirra er leita pólitísks hælis. Á námstefnunni kynnti Mignone stöðu þessara mála í heiminum í dag, sagði frá nýjum rannsóknum, hvernig tekið væri á málefnum flóttamanna sem óska eftir pólitísku hæli og hvernig reynsla annarra þjóða gæti nýst íslenskum stjórn- völdum og annarra hér landi sem fara með málefni flóttamanna. Á námstefnunni sátu m.a. sýslumenn og fulltrúar lögreglunnar, Útlend- ingaeftirlitsins, dómsmálaráðuneyt- isins, Rauða krossins og Mannrétt- indaskrifstofu íslands. í samtali við Morgunblaðið sagði Roberto Mignone að almennt væri staða flóttamannamála góð á Norð- urlöndunum, og á íslandi þar á með- al. Líklega væri hvergi annars stað- ar í heiminum tekið jafn vel á móti flóttamönnum og í þessum löndum. Mignone sagði að vissulega væru engin stjómvöld fullkomin og alltaf mætti betur gera til að tryggja rétt- indi og öryggi flóttamanna. Hann sagði að eitt meginverkefni svæðisskrifstofunnar í Stokkhólmi væri að leysa vandamál þess fólks er flýr frá heimalandi sínu til annars lands, sem ekki er talið öruggt að dvelji þar sökum hættu á að vera ógnað eða líflátið. Er þá leitað til þriðja landsins til að koma fólkinu fyrir og er ísland eitt fárra landa í heiminum, að sögn Mignone, sem hefur aðstöðu til og hefur samþykkt að taka við slíkum flóttamönnum. „Við erum mjög þakklát fyrir þennan stuðning, bæði íslands og annarra Norðurlandaþjóða, sem eru alls ekki skuldbundin til að taka á móti svona flóttamönnum, en hafa gert það í nokkrum tilvikum," sagði Mignone. Á síðasta ári tóku Norðurlöndin við 30 þúsund pólitískum flótta- mönnum. Flestir komu til Svíþjóðar, eða 11 þúsund talsins, og Norðmenn tóku við 10 þúsund flóttamönnum. Danir og Finna tóku við um 5 þúsund manns, hvor þjóð, og til íslands komu 17 flóttamenn. Til samanburðar gat Mign- one þess að hálf milljón flóttamanna hefði kom- ið til annarra Evrópu- þjóða á síðasta ári og í heild hefði Flótta- mannastofnun Samein- uðu þjóðanna aðstoðað rúma 21 milljón flótta- manna um allan heim árið 1999. Fyrirspurnir í landi flótta- manns geta verið varasamar Aðspurður sagði Mignone það erfitt að spá í þróun flóttamanna- mála á næstu árum. Þannig væri ómögulegt að segja til um hvort flóttamönnum, sem leita til Norður- landa, myndi fjölga á næstu árum. Þetta væri háð svo mörgum þáttum. Staða í stríðshijáðum ríkjum væri jafnvel að breytast daglega. Mál flóttamanns sem segir sig vera frá Tsjetsjníu hafa verið til um- ræðu hér á landi að undanförnu, eft- ir að Útlendingaeftirlitið hafði neit- að honum um pólitískt hæli og síðar dvalarleyfi, þar sem hann hefur ekki getað með formlegum hætti sannað hver hann væri. Spurður um þetta mál sagðist Mignone vinna eftir þeirri reglu að ræða ekki málefni ein- stakra flóttamanna. Almennt um þá flóttamenn sem gætu ekki fært sönnur á hverjir þeir væru sagði Mignone að slík tilfelli væru algeng, oftast þegar um væri að ræða fólk frá þró- unarríkjum eða stríðs- hrjáðum ríkjum sem væri sá nauðugur kost- ur einn að flýja land. Flóttamenn gætu einnig hafa misst vegabréf í hendur yfirvalda í heimalandinu eða hrein- lega týnt öllum skilríkjum á flóttan- um. „Einnig má benda á að þeim flóttamanni sem óskar eftir pólitísku hæli ber skylda til að vera sam- vinnuþýður í samskiptum við við- komandi stjómvöld. Ef svo er þá eru málin yfirleitt leyst í sátt. Stjórnvöldum er oft vandi á höndum því ef um alvöru flóttamann er að ræða, sem flúið hefur neyðarástand, er ekki hægt að spyrjast fyrir um hann í viðkomandi landi. Það getur stefnt lífi hans í hættu eða fjöl- skyldu og vina sem eru kannski enn heima fyrir. Af þessum sökum getur oft komið upp viðkvæm og erfið staða," sagði Mignone. Roberto Mignone
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.