Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 2£ ERLENT Noimilrl• MA<ZA Geimferðamálastöðinni í Houston, Canaveral-höfða. AP, AFP. EMBÆTTISMENN hjá bandarísku geimferðamálamiðstöðinni, NASA, velta nú fyrir sér til hvaða bragðs á að taka en annar vængur á sólar- orkubúnaði, sem tengdur var um helgina við geimstöðina Alpha, virðist ekki vera fyllilega í lagi. Strengir sem festa eiga vænginn eru slakir en hann framleiðir samt rafmagn. Vængirnir er samanlagt um 74 metrar að lengd og 11,4 metrar að breidd, flatarmál alls búnaðarins er um 2.000 fermetrar og þyngdin um 17 tonn. Verður geimstöðin með þessari viðbót nú einn af björtustu hlutum sem sjást á næturhimninum. Sólarorkubúnaðurinn kostaði um 600 milljónir bandaríkjadollara eða um 52 milljarða króna. Er gert ráð fyrir að hann geti þegar mest er framleitt 65 kflóvött af raf- magni, sem er fjórurn sinnum meira en mun minni sólarrafhlöður af rússneskri gerð, sem nú eru á Alpha. Skortur er á rafmagni í stöðinni núna og er til dæmis af þeim sökum ekki hægt að nota eitt af herbergjum stöðvarinnar. Um borð í Alpha eru nú einn Banda- ríkjamaður og tveir Rússar og hafa þeir verið þar í rúman mánuð. Tengdu þeir rannsóknastöðina Unity við Alpha en í janúar er ætl- unin að senda upp mjög öfluga við- bótarstöð, Destiny, og mun orku- þörfin þá enn aukast. Sólarorkuvængirnir voru sendir á vettvang með geimferjunni Endeavour og eru fimm menn um borð í henni. Vængirnir voru geymdir samanbrotnir eins og Orkuframleiðsla hafin Geimferjan Endeavour flutti sam- stæðu af sólarvængjum sem festar væru við geimstöðina Alpha. Hvor vængur er hátt í 40 metrar að engd og rúmir 11 metrar að breidd. Vængirnir voru fluttir samanbrotnir eins og harmonikka til að draga úr fyrirferðinni en siðan látnir þenjast út þegar búnaðurinn var settur upp ■ - SKM harmonikka í kössum á leiðinni til að fyrirferðin yrði minni. Gert er ráð fyrir að þeir geti enst í allt að 15 ár. Geimfararnir Carlos Noriega og Joe Tanner voru um sjö og hálfa klukkustund að setja vængina upp og er það óvenju löng geimganga. Voru vængirnir um 14 minútur að þenjast út en erfiðleikar komu upp í sambandi við hægri vænginn, sjálfvirkur tölvubúnaður, sem yfir- maður feijunnar, Brent Jett, setti Verður einn af björtustu hlutum næturhiminsins Sólarraforkuvinnsla hafín í geimstöðinni Alpha AP Geimfarinn Joe Tanner beitir hér rafverkfæri við uppsetningu sólarvængja á alþjóðlegu geim- stöðinni í fyrrakvöld. af stað, virkaði ekki í fyrstu. Sumir strengirnir á vængnum voru áfram slakir en báðir vængirnir voru farnir að framleiða orku. Ferjan var tengd við Alpha á sunnudag er hún var stödd yfir Mið-Asíu en meira en tvo daga tók að stýra ferjunni að geimstöðinni. Er það mikið vandaverk vegna þess að jafnt feijan sem geimstöðin eru á tugþúsunda kflómetra hraða. Samskipti áhafnarinnar við þá sem fyrir eru í geimstöðinni eru ein- göngu með fjarskiptum. Loftþrýst- ingur er ekki hinn sami í Alpha og Endeavour og því mikið mál að opna lúgur á milli þannig að menn- irnir geti heilsast. Mun samt ætlun- in að þeir geri það síðar í vikunni. AP Áhafnarmeðlimur geimferjunnar Endeavour vinnur að uppsetningu sólarvængjanna á nýju geimstöðinni. Geim- fararnir voru með sjónvarpsmyndavélar í hjálmum sínum, sem gerði NASA kleift að sjónvarpa frá geimgöngunni. HeuU'rs Tölvugerð mynd af alþjóðlegu geimstöðinni eins og hún leit út fyrir uppsetningu sólarvængjanna. Yfir 17 milljónir afgreiðsiustaða um allan heim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.