Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN V élindabakflæði og astmi Höfuðeinkenni sjúk- legs vélindabakflæðis eru brjóstsviði og nábít- ur (þegar súrt magainni- hald leitar alía leið upp í háls eða kok). Á síðustu árum hafa æ betur kom- ið í ljós tengsl vélinda- bakflæðis og sjúkdóms- einkenna utan vélinda eins og hósta, hæsis og brjóstverkja. Bakflæði lrá maga til vélinda get- ur einnig haft mikil áhrif við kæfisvefn. Ef fólki hættir til að svelgjast á og fá lungnabólgu á sýrubakflæði líka stund- um hlut að máli. Astmi er algengur sjúkdómur (um 5-7% hjá fullorðnum) og einkennist af breytilegri mæði, hósta og flautu- hljóðum fyrir bijósti sem koma og fara. Fjöldi utanaðkomandi áhrifa- valda eins og til dæmis ryk, kufdi og reykur geta ert öndunarveg og fram- kallað astmaeinkenni. Talið er að vél- indabakflæði geti orsakað slík ein- kenni með óbeinum eða beinum hætti þegar súrt magainnihald leitar upp í vélinda og eða kok. Súrt magainni- hald getur ert slímhúð neðst í vélinda og taugaboð þaðan valda því óbeint að berkjur í lungum þrengjast. Einnig getur súrt magainnihald gúlpast upp í kok og öndunarveg og ert barka eða lungnaberkjur beint, sérstaklega þegar legið er út af. Bakflæði hjá astmasjúklingum Vélindabakflæði finnst hjá um tveimur af hverjum þremur astma- sjúklingum. Þar með er ekki sagt að það valdi astmanum. Astmi getur sjálfur framkallað bakflæði og jafnvel sum astmalyf í inntöku (töfluformi) eins og teófyllamín-lyf. Aðrir áhrifa- valdar astma eru mun algengari en bakflæði og aðeins þriðjungur þeirra astmasjúklinga sem hafa bakflæði finna fyrir einkennum af því. Vélindabakflæði og astmi? Astmasjúkfingar sem hugsanlega hafa vélindabakflæði eru helst þeir sem fá einkenni fyrst á fullorðins- aldri, þeir sem vakna upp með astma- einkenni, þeir sem svara illa astma- meðferð og þeir sem hafa slæman bijóstsviða eða nábít. Oft er ertings- hósti sem virðist liggja hátt í öndun- arvegioghæsi. Ef sterkur grunur leikur á að bak- flæði sé orsök astma má gera maga- speglun sem getur leitt í ljós sýrubólg- ur neðst í vélinda og þindarslit. Eirrnig má gera sýrustigsmælingu í vélinda til að meta samfellt í 24 tíma hvort um bakflæði sé að ræða. Eins kemur til greina að prófa tímabundna meðferð með kröftugum sýruhemjandi lyfjum og sjá hvort astmaeinkenni minnka í kjölfarið. Læknir verður að meta í hveiju tilfelfi hvemig á að standa að sjúkdómsgreiningu. Ekki er þörf á að rannsaka eða meðhöndla alla astma- sjúklinga með tilliti tif bakflæðis þar sem aðrir áhrifaþættir astma en bak- flæði eru mun algengari. Hver er meðferðin? Ef talið er að astmi tengist vélinda- bakflæði verður oftast að nota kröft- ug sýruhemjandi lyf til að draga úr einkennum. Oft er um langtímameð- ferð að ræða og jafnvel skurðaðgerð í vissum tilvikum. Allt að 70% astmasjúklinga með bakflæði skánar af astmanum með viðeigandi bakflæðismeðferð og sum- ir losna við astmalyfin. Dæmi eru um að astmasjúklingar, sem ekki hefur tekist að hemja astmaeinkenni hjá Heilsa Oftast verður að nota kröftug sýruhemjandi lyf, segja Sigurbjörn Birgisson og Þorsteinn Blöndal, til að draga úr einkennum. nema með steralyfjum í inntöku, losni alveg við slík lyf eftir bakflæðismeð- ferð. Þess ber þó að geta að þessi góði árangur næst aðeins hjá sérvöldum hópi astmasjúklinga þar sem vitað er með vissu að astminn orsakast af bak- flæði. Þjóðráð við nábít Fyrr á öldum þurfti íslensk alþýða að notast við ýmis húsráð til að ráða bót á kvilfum. Við nábít þótti óbrigðult að bíta í ná eða lík látins manns og er orðið þaðan dregið (séra Jónas Jónas- son frá Hrafnagili. íslenzkir þjóð- hættir. Önnur útgáfa, 1945). Sigurbjöm er sérfræðingur í lyf- lækningum og meltingnrsjúkdómuni og Þorstcinn er sérfræðingur í lungnasjúkdómum. i^Nýtt - riýtt K^iar « O Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-16 Lau$avá$i 63, VltU6tíg»nteg4n> Strni 2040 IM4 ttlltat í blðma l(t»tn» ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 57 Matrix Tölvuþrjóturinn y Neo kemst yffr upp- mt' lýsingar sem kollvarpa W tilveru hans. Heimurinn ' er ekki sá sem við höldum! Óskarsverð- launamynd með ótrúlegum tæknibrellum. Notting Hill Bóksali og bandarísk kvikmynda- stjarna hittast fyrir tilviljun og hlutirnir taka óvænta stefnu. Frábær skemmtun fyrir elskendur á öllum aldri. W Líflð er dásamlegt nr La Vita é bella (Life is Beautiful) V Óskarsverðlaunamynd um gyðing F sem fluttur er f fangabúðir nasista ásamt eiginkonu sinni og syni. Hann reynir að hlífa syni sfnum við hinum ‘ blákalda raunveruleika en það er L hægara sagt en gert Austin Powersl NjÓsnarinn sem negldi mig ' The Spy Who Shagged Me Dr. Evil hyggst stela „kynorku' ofurnjósnarans Austin Powers. f aðalhlutverkum eru hinn óviðjafnanlegi Mike Myers og þokkagyðjan Heather Graham. Meðtimir Bardal- fjölskytdunnar eru hver öðrum skrautlegri. Aðal hlutverk leika Bjöm jörundur Friðbjömsson, Eggert Þorleifsson o.fl. Góða skemmtun! Áskriftarsími: 515 6100 www.ys.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.