Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 3
Meistara-
verk
James Joyce
Æskumynd
listamannsins
Bókin sem sumir hafa
nefnt mögnuðustu
æskulýsingu
heimsbókmenntanna,
greinir frá uppvexti
drengs i hinu
rammkaþólska írlandi,
þjáningum hans í forstokkuðu skólakerfi,
unglingsárum með tilheyrandi sektarkennd
og ástarfýsn, baráttu hans við að bijótast
undan hömlum umhverfisins, finna sjálfan
sig - og komast burt. Áleitið og ógleymanlegt
snilldarverk. Sigurður A. Magnússon þýddi.
Aleksis Kivi
Sjö bræður
Mögnuð þjóðlífs-
lýsing, í senn raunsæ,
glaðvær og Ljóðræn,
gjörólík öllu því sem
skrifað var í Finnlandi
á 19. öld, þegar fáguð
rómantík rikti með
fegruðum myndum af j_____
landi og þjóð. Hér
rífast menn, fljúgast á, drekka frá sér
vitið á jólunum, beijast við hungur og
kulda, eru hysknir og latir en Líka
kappsamir og dugmiklir. Með Sjö bræðrum
fæddust finnskar nútímabókmenntir.
Aðalsteinn Davíðsson þýddi.
SjÖ bt'iVÖi
Fjodor Dostojevski
Djöflarnir
Hinn mikli rússneski
meistari gerir upp
sakirnar við þær
hugmyndir sem
umkringdu hann og
hann áleit hina
raunverulegu djöfla—
hugmyndir um
sósíalisma, stjórnleysi
og guðleysi. En þrátt
fyrir lýsingar á iílvirkjum, fláttskap og
fólsku er þetta ein fyndnasta saga
skáldsins. Með þessu verki hefur Ingibjörg
Haraldsdóttir þýtt öll helstu stórverk
Dostojevskís á íslensku.
„Heimur Dostojevskís er heillandi, framandi
og trylltur... Persónurnar eru fyndnar og
fjölskrúðugar, uppákomurnar fáránlegar og
sagan öll minnir einna helst á magnaða
flugeldasýningu. "
Steinunn Inga Óttarsdóttir, DV
Mál og menning
Síðumúla 7-9 • Laugavegi 18
Sígild
myndlist
"og framsækin
Hrafnhildur Schram
Reykjavík málaranna
Á nýliðinni öld þróaðist Reykjavík úr smábæ í
borg, ásýnd hennar og mannlíf allt tók
stakkaskiptum og íslensk nútímamyndlist óx og
dafnaði að sama skapi. í þessari glæsilegu bók
birtast 40 myndverk eftir 34 listamenn sem túlka
margvíslegar ásjónur borgarinnar um einnar aldar
skeið. Hrafnhildur Schram valdi verkin og fyLgir
hveiju þeirra úr hlaði með umsögn á íslensku,
ensku og þýsku. Gefið út í samvinnu við Reylg'avík,
menningarborg Evrópu árið 2000.
„Bráðsnjöll hugmynd sem skilar sér r fallegrí og
skemmtilegrí bók sem sýnir ekki aðeins hvemig
borgin hefur breyst og stækkað eftir þvi sem
áratugimir líða, heldur einnig hve gjörólíkum augum
einstakir listamenn hafa litið hana Reykjavík."
Elras Snæland Jónsson, Degi
| s 1H |
Sigurður Guðmundsson
Situations
Nafn Sigurðar Guðmundssonar er heimsþekkt
meðal þeirra sem láta sig listir varða. Fyrir
20-30 árum gerði Sigurður einstök verk í
anda flúxus- og hugmyndalistar, áhrifamikLar
og ögrandi Ljósmyndir sem vöktu mikla athygli
um alLan heim. Þar birtist óvenjulegur húmor
Sigurðar og hið frumLega sjónarhorn hans til
Lifsins. Þessi listaverkabók kemur út samtímis
víða um heim, m.a. í íslenskri útgáfu.
Guðbergur Bergsson og Michaela Unterdörfer
rita formáLsorð.
r
Róska
TiLefni útgáfunnar er sýning í Nýlistasafninu sem
lýsir lífi og list Rósku. Hér eru merkar greinar eftir
Guðberg Bergsson, Ólaf Gíslason, Birnu Þórðar-
dóttur og Halldór Björn Runólfsson, einnig
umræður um pólitiska List og möguleika hennar,
svo og viðtöl við Hrein Friðfinnsson og Einar Má
Guðmundsson. SannköLluð lífslistarbók. Hjálmar
Sveinsson ritstýrði verkinu.
„Stórfalleg og fróðleg/
Aðalsteinn Ingðlfsson, DV
„Með þessarí forvitnilegu bók hefur tekistfurðu vel
að magna fram úr þoku hins liðna raunsæja mynd
af þessarí listrænu byltingarkonu."
Elías Snæland Jónsson, Degi