Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 4
t ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Megináhersla lögð á
launaleiðréttingu
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölmargir nemendur komu á fund með skðlastjómendum í Mcnntaskólanum í Kópavogi í gær.
FUNDUR samninganefnda fram-
haldsskólakennara og ríkisins hjá
sáttasemjara sl. sunnudag var ár-
angurslaus. Nýr fundur hefur verið
boðaður kl. 14 í dag. Hjördís Þor-
geirsdóttir, sem á sæti í samninga-
nefnd framhaldsskólakennara, segir
að reynt hafi verið að finna nýja
samningafleti á fundinum, t.d. með
því að ræða um mögulega
markmiðssetningu með samningun-
um. Lítið hafi hins vegar þokast á
fundinum.
Hjördís segir að megináhersla sé
lögð á það núna að ná fram launa-
leiðréttingu miðað við meðaltals-
hækkanir hjá Bandalagi háskóla-
manna. Einnig sé lögð áhersla á
leiðréttingu vegna endurskoðunar á
aðalnámskrá. „Við höfum rætt um
að sameina þessar tvær kröfur í
eina leiðréttingu," segir Hjördís.
Hún segir að formlegt tilboð hafi
ekki komið frá samninganefnd ríkis-
ins en látið hafi verið skína í 5,22%
launahækkun vegna leiðréttingar í
tengslum við aðalnámskrá. Viðsemj-
endur hafi lýst vilja sínum að flytja
yfirvinnustundir, sem framhalds-
skólakennarar fengu í fyrra vegna
endurskoðunar aðalnámskrár, inn í
grunnlaunin. Hjördís segir að þetta
vegi ekki nógu þungt til að fleyta
viðræðum áfram. Kennarar hafi
hins vegar aldrei sett fram kröfu
um rúmlega 70% launahækkun
heldur sé þar um túlkun annarra að
ræða. Þó sé hægt að reikna sig upp í
70% sé miðað við hækkun byrjunar-
launa framhaldsskólakennara með
BA/BS próf og kennsluréttindi upp í
190.000 á mánuði á tveggja ára
samningstíma. „Við höfum aldrei lit-
ið á þetta sem hreina taxtahækkun
heldur leggjum við til að gerðar
verði breytingar á þann veg að hluti
af hækkuninni verði yfirfærsla úr
yfirvinnu í dagvinnu," segir Hjördís.
Fundur var haldinn með nemend-
um og skólastjórnendum í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð, Menntaskól-
anum í Kópavogi og Borgarholts-
skóla í gær. Á milli 600 og 700
manns mættu til fundarins í MH.
Lárus H. Bjarnason, rektor skólans,
segir að tilgangurinn hafi fyrst og
fremst verið sá að stappa stálinu í
nemendur. Hann sagði að þess yrði
freistað að ljúka önninni með ein-
hverjum hætti þegar verkfall kenn-
ara leystist. Lárus kveðst telja að
önnin sé orðin einhverjum ónýt en
ekki öllum. „Ég sé fyrir mér að önn-
in standi eitthvað fram á næsta ár
og þess vegna orðið þröngt um vor-
önnina," segir Lárus.
Hann kveðst ekki telja óhugsandi
að skóli standi lengur fram á sumar
vegna þem-ar röskunar sem orðið
hafi á skólastarfinu. Ljóst sé þó að
það sem gert verður verði að rúm-
ast innan þess ramma sem samið
verði um. Éinnig kunni að fara svo
að yfirvöld menntamála komi með
innlegg sem þurfi að hafa hliðsjón
af. Eðlilegt sé jafnframt að kennar-
ar hafi eitthvað um þetta að segja.
Af þessum sökum sé erfitt að leggja
fram fullbúna áætlun fyrirfram.
Lárus segir hætt við því að minna
pláss verði fyrir nýja nemendur á
vorönn ef mál æxlast þannig að
færri ljúki námi í vetur heldur en til
stóð. Hann telur Ijóst að einhverjir
taki þá afstöðu að hætta námi en
líklegt sé að þeir leiti inn í skólann á
ný. Lárus sagði á fundinum í gær að
illskárra verði þegar skólahald hefst
á ný að ljúka haustönninni með ein-
hverri kennslu og prófum fremur en
að kasta á glæ þeirri vinnu og námi
sem fram fór þær ellefu kennsluvik-
ur sem búnar voru er verkfallið
hófst.
Hann kvaðst telja fremur ólíklegt
að almennt verði samið um kennslu
á laugardögum. Hins vegar sé það
borin von að eftir langt verkfall
verði kennt í rúmlega þijár vikur
eins og eftir var miðað við almanak
annarinnar. Þeim mun mikilvægara
sé að nemendur geri það sem hægt
er til að búa í haginn fyrir stutta og
snarpa kennslulotu.
Rafmagnsleysi í
Reykjavik á laugardag
Skamm-
hlaup eftir
bilun í há-
spennuskáp
RAFMAGN fór af stórum hluta
Reykjavíkur og Kópavogs á laugar-
dag. Ástæða rafmagnsleysins var
bilun í 11.000 volta háspennustreng
sem liggur milli aðveitustöðvar við
Elliðaár og spennustöðvar í Blesu-
gróf. Bilunin olli því að aðveitustöðin
við Elliðaár varð straumlaus. Bilunin
leiddi til þess að útsendingar Stöðv-
ar 2 féllu niður um tíma og útsend-
ingar Ríkissjónvarpsins út um land
féllu einnig niður.
Rafmagnsleysið var mjög víðtækt.
Rafmagnsleysi varð í Breiðholts-
hverfum, Árbæjarhverfi, Bústaða-
hverfi og Háaleitishverfi ásamt hluta
Kópavogs. Bilunin varð kl. 18:45 og
var straumur kominn á hjá um 90%
notenda kl. 19:07 utan nokkurra
spennistöðva í Árbæ sem fengu
straum um kl. 20:00. Síðasta spennu-
stöðin í Blesugróf fékk straum kl.
20:30.
Útsendingar Ríkisútvarpsins út á
land féllu niður við rafmagnsleysið.
Guðbjörg Gunnarsdóttir, kynningar-
fulltrúi Landssímans, sagði að þegar
rafmagnið fór af hefði Múlastöð sím-
ans orðið rafmagnslaus. í stöðinni
væru tvær varaaflsstöðvar. Önnur
hefði átt að fara sjálfvirkt af stað, en
hún hefði hins vegar bilað. Hin, sem
er nýlega búið að setja upp, hefði
ekki verið búin sjálívirkum búnaði.
Útsendingar RÚV út á land lágu
niðri í eina og hálfa klukkustund. Út-
sending Stöðvar 2 lá niðri meðan raf-
magnsleysið í Árbæjarhverfi varði.
Mikið álag varð á Neyðarlínunni
þegar rafmagnið fór. Bergsveinn Al-
fonsson varðstjóri sagði að mjög
margir hefðu hringt til að afla upp-
lýsinga um ástæðu bilunarinnar.
Þeir hefðu hins vegar ekki getað gef-
ið miklar upplýsingar því að Orku-
veitan hefði ekki verið komin með
upplýsingar um orsakir bilunarinn-
ar.
Þurrasti nóvember
frá upphafi mælinga
Morgunblaðið/Golli
Minnismerki um leiðtoga-
fund stórveldanna afhjúpað
ÓVENJU þurrt var í Reykjavík í
nóvember á þessu ári og var úrkoma
sú minnsta sem mælst hefur frá upp-
hafi mælinga árið 1920. Samkvæmt
upplýsingum Veðurstofunnar mæld-
ist úrkoman í höfuðborginni 10,1
mm, en í nóvember í fyrra mældist
hún 72,1 mm og var meðalúrkoman í
nóvember 1996-1999 73,9 mm.
Á Akureyri reyndist úrkoman í
nóvember vera tvöföld meðalúrkoma
og mældist 114,2 mm. í fyrra var úr-
koman 59,6 mm og meðalúrkoman í
nóvember 1996-1999 var 57,5 mm.
Sólskinsstundir voru talsvert fleiri
en í meðallagi, alls 75,5 í Reykjavík
og eru það 36,5 stundir umfram með-
allag. I fyi-ra voru aðeins 35,4 sól-
skinsstundir í nóvember og voru
sólskinsstundir 46,5 að meðaltali ár-
in 1996-1999.
Sólskinsstundir á Akureyri voru
10,1 í nóvember, sem er 4,9 stundum
færra en venja er. Meðalfjöldi
stunda í nóvember 1996-1999 var
13,8.
Þurrt og bjart
haust sunnanlands
Nóvembermánuður var hagstæð-
ur víðast hvar á landinu, og hefur tíð-
arfar verið gott í Reykjavík í haust,
það er að segja í október og nóvem-
ber. Úrkoma þessara mánaða mæld-
ist 113,6 mm, sem er rúmlega fjórð-
ungi minna en venja er, og
sólskinsstundir voru 152,7, sem er 30
stundum umfram meðallag. Meðal-
hitinn var 2,8 gráður, sem er í meðal-
lagi, en haustin 1999 og 1997 voru þó
mun hlýrri.
Meðalhiti á Akureyri þessa tvo
mánuði var 2,0 gráður, en það er 0,7
gráðum yfir meðallagi. Hins vegar
mældist úrkoman í 174,9 mm, og er
það rúmlega hálf önnur meðalúr-
koma á þessu tímabili. Ekki hefur
verið svo mikil úrkoma á Akureyri
síðan haustið 1991. Sólskinsstundir
voru 63,6, og er það 9,4 stundum
minna en venja er á Akureyri á
haustin.
MINNISMERKI um Reykjavíkur-
fund leiðtoga stórveldanna í
Höfða árið 1986 var afhjúpað af
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra fyrir utan Höfða í
gærdag. Minnismerkið saman-
stendur af þremur steinplötum
sem eru úr berggrunni þeirra
landa sem tengdust undirbúningi
fundarins, íslands, Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna fyrrverandi, ís-
lenskum grásteini, hvítu banda-
rísku graníti og rauðu rússnesku
graníti. Á hverja plötu er letrað-
ur texti á móðurmáli viðkomandi
þjóðar þar sem leiðtogafundarins
er minnst.
Á íslenska grásteininn er ritað:
„Dagana 11.-12. október 1986 fór
fram í þessu sögufræga húsi
Reykjavíkurfundur leiðtoga stór-
veldanna, Ronalds Reagans for-
seta Bandaríkjanna og Mikhafls
Sergejevítsj Gorbatsjovs, aðal-
ritara miðstjórnar kommúnista-
flokks Sovétríkjanna. Leiðtoga-
fundurinn er talinn hafa markað
upphaf endaloka Kalda stríðsins."
Ingibjörg Sólrún sagði að þar
sem Höfði væri látlaust hús hefði
verið leitast við að hafa minnis-
merkið látlaust, en það stendur
við vegginn sem markar lóð húss-
ins gagnvart aðkomu og bfla-
stæði. Steinplötunum er stillt upp
með þeim hætti að svo virðist að
þeim hafi verið lyft upp úr stein-
hleðslunni aftan við.
Það voru þau Hildur Kjartans-
dóttir, móttökufulltrúi Reykjavík-
urborgar og Pétur H. Ármanns-
son, arkitekt og starfsmaður
Listasafns Reykjavíkur, sem sáu
um undirbúning og uppsetningu
minnismerkisins, en Pétur hann-
aði merkið.
Þjónusta númer eitt!
MMC Pajero stuttur, 3.0 bensín,
f. skrd 19.05.1998, ekinn 26 þ km,
grænn, ssk., 3 dyra, 32“ breyting,
spoiler, varadekkshlíf, verð 2.360.
Nánari uppl. hjá Bflaþingi
Hekiu, sími 569 5500
Opnunartimar: Mánud. - föstud. kl. 10-18
laugardagar kl. 10-14
BÍLAÞING HEKLU
_ _
Nifrncr c-ítt f notvJvivi bfhnif
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sfmi 569 5500
'j'jyjyj,bíMhín'jj-j j WimbíláiJiJjjsjJsiJ