Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þroskahjálp og Sjálfsbjörg héldu alþjóðadag fatlaðra hátiðlegan
Þrír „múrbrjótar“
fá viðurkenningu
Á ALÞJÓÐADEGI fatlaðra á sunnu-
daginn veittu Landssamtökin
Þroskahjálp þremur aðilum Múr-
brjótinn sem er viðurkenning sam-
takanna til þeirra sem þykja hafa
skarað fram úr við að ryðja fötluðum
nýjar brautir í jafnréttisátt.
Sjálfsbjörg, landsamband fatlaðra,
hélt daginn einnig hátíðlegan og veitti
sjö aðilum viðui’kenningu fyrir að-
gengilegt húsnæði fyrir hreyfihaml-
aða.
Múrbrjótinn hlutu Akureyrarbær
fyrir samþættingu í þjónustu við fatl-
aða, Nemendafélag Borgarholtsskóla
vegna samskipunar fatlaðra og ófatl-
aðra í félagsstarfi skólans og Morg-
unblaðið fyrir vandaða umfjöllun um
málefni fatlaðra og auðlesna síðu. Ól-
afur Ragnar Grímsson, forseti Is-
lands veitti viðurkenningamar við há-
tíðlega athöfn.
Halldór Gunnarsson, formaður
Þroskahjálpar sagði það hafa verið
stefnu samtakanna frá árinu 1992 að
fólk með fótlun sækti félagsþjónustu
sína með sama hætti og samborgarar
þess. .Akureyri reið á vaðið og hefur
verið tilraunasveitarfélag í þessum
efnum undanfarin ár. Vinnan þar hef-
ur einkennst af áhuga á þessum mála;
ílokki og metnaði," sagði Friðrik. I
brautryðjendastarfi væru eðlilega
gerð einhver mistök, sagði hann, en
Akureyringar hefðu sannað metnað
sinn og verið fljótir að viðurkenna ef
út af hefði brugðið og tekið vel öllum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ólafur Ragnar Grimsson, forseti Islands, afhendir Sigursteini Sigurðs-
syni, formanni Nemendafélags Borgarholtsskóla, Margréti Sigurðar-
dóttur, markaðssljóra Morgunblaðsins, og Kristjáni Þór Júlíussyni, bæj-
arstjóra á Akureyri, Múrbijótinn.
ábendingum um það sem betur mætti
fara.
Þá sagði Halldór Morgunblaðið
hafa gert málefnum fatlaðra góð skil
með vandaðri umfjöllun. „I haust
undirstrikaði það síðan áhuga sinn og
skilning á sérstöðu fólks með þroska-
hömlun með því að gera fyrst ís-
lenskra blaða auðlesna síðu að föstum
lið í útgáfu blaðsins," sagði Halldór og
bætti við að slagorð Morgunblaðsins
Ólöf Rfkarðsdóttir, sem er fremst á myndinni, afhenti fulltrúum fjög-
urra fyrirtækja og stofnana í Reykjavík viðurkenningu fyrir gott að-
gengi. I aftari röð f.v. Gunnar Hauksson, forstöðumaður Sundlaugar-
innar í Breiðholti, Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju,
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, og Salóme
Þorkelsdóttir, formaður hússtjórnar Þjóðmenningarhússins.
um að það væri „blað allra lands-
manna“ ætti nú vel við.
Halldór sagði Nemendafélag Borg-
arholtsskóla hafa unnið afar gott
starf við að skipa saman fötluðum og
ófótluðum nemendum skólans í fé-
lagsstarfi hans. Til þess að vel tækist
til við framhaldsskólagöngu fatlaðra
skipti gott viðhorf nemenda og starfs-
fólks höfuðmáli. „Ófatlaðir nemendur
Borgarholtsskóla hafa tekið fotluðum
jafnöldrum sínum afar vel og skynjað
vel þau tækifæri sem slík blöndun fel-
ur í sér,“ sagði Halldór.
Þetta var í annað sinn sem Múr-
brjóturinn var veittur. Verðlauna-
gripurinn er unninn af fötluðum
starfsmönnum á handverkstæðinu
Ásgarði í Kópavogi.
Aðgengilegt húsnæði
Sjálfsbjörg veitti að þessu sinni sjö
aðilum viðurkenningu. Fyrir nýtt
húsnæði, fullkomlega aðgengilegt
hreyfihömluðum, hlutu Ráðhús Ölf-
uss, Grensáskirkja, Sundlaugin í
Breiðholti og Listasafn Reykjavíkur
viðurkenningu. Fyrir eldra húsnæði,
eftir verulegar lagfæringar með tilliti
til aðgengis hreyfihamlaðra, hlutu
Þjóðmenningarhúsið, Heilbrigðis-
stofnunin á Blönduósi, Grunnskólinn
á Blönduósi og íþróttahús Grunnskól-
ans á Blönduósi viðurkenningu.
Fulltrúi Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Ólöf Ríkharðsdóttir, af-
henti viðurkenningamar sem fóru til
fyrirtækja og stofnana á höfuðborg-
arsvæðinu. Hún rakti í stuttu máli
sögu viðkomandi bygginga og hverjir
væru arkitektar þeirra. Þá lýsti hún
sérstakri ánægju með að Þjóðmenn-
ingarhúsið við Hverfisgötu hefði nú
verið gert aðgengOegt hreyfihömluð-
um.
Sjálfsbjörg stóð fyrir útiskemmtun
við Sjálfsbjargarhúsið að viðstöddu
fjölmenni að sögn Sigurðar Einars-
sonar framkvæmdastjóra. Félagið
hefur haldið alþjóðadag fatlaðra há-
tíðlegan frá árinu 1995 m.a. með því
að veita viðurkenningar fyrir að-
gengilegt húsnæði.
Hækkun fasteignamats
skerðir vaxtabætur
HÆKKUN fasteignamats um 14% á
höfuðborgarsvæðinu leiðir, að mati
Jóhönnu Sigurðardóttur alþingis-
manns, m.a. til skerðingar vaxtabóta
um allt að 70 milljónir kr. Hækkunin
getur einnig haft þau áhrif til hækk-
unar á eignarskatti og að fleiri þurfi
að greiða eignarskatt. Jafnframt
mun neysluverðsvísitala og láns-
kjaravísitala hækka um 0,15-0,20%,
að mati fjármálaráðuneytisins, sem
hefur áhrif til hækkunar á verðlagi
oggreiðslubyrði lána.
Jóhanna Sigurðardóttir segir að
áhrif af fasteignamatshækkun taki
mið af breytingu á nettóskuldastöðu
heimilanna á milli ára. Hún segir að
hækkun fasteignamats um 18% í
fyrra hafi haft áhrif á bamabætur en
sú verði þó ekki raunin á næsta ári
þar sem verið sé að taka út eigna-
viðmið í greiðslu bamarbóta. Jó-
hanna segir að áhrif hækkunar fast-
eignamats á vaxtabætur og
eignaskattsstofn ráðist af því hveij-
ar eignir manna em að frádregnum
skuldum.
„Skuldaaukning frá árslokum
1999 til ársloka þessa árs er áætluð
87 milljarðar króna. í fyrra reiknaði
Þjóðhagsstofnun út að miðað við að
eignir að frádregnum skuldum
hækki um 10% á milli ára, skerðist
vaxtabætur um 70 milljónir króna. í
forsendum fjárlaga er gert ráð fyrir
að eignir að frádregnum skuldum
hafi hækkað um 10% og ég held að
geri megi ráð fyrir að vaxtabætur
skerðist um 70 milljónir króna eða
jafnvel meira að teknu tilliti til
breytinga á tekjum," segir Jóhanna.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
Alþýðusambands íslands, segir að
hækkun fasteignagjalda hafi ekkert
með forsendur kjarasamninga að
gera. „En þetta er ein byrðin til við-
bótar á herðar almennings. Fast-
eignamat tekur mið af því hvernig
fasteignaverð hefur hækkað í land-
inu. Menn eru samt ekkert betur
stæðir til þess að greiða hærri fast-
eignagjöld þótt fasteignamatið
hækki því fæstir eru í því að selja of-
an af sér húsnæðið. Þetta er enn ein
afleiðingin af þeirri miklu þenslu
sem við búum við. Einn helsti or-
sakavaldur mikillar verðbólgu er
hækkun á fasteignaverði," segir Ari.
Hann segir að kaupmáttur hafi ekki
hækkað miðað við það sem vonir
stóðu til í kjarasamningunum.
Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur
hjá Þjóðhagsstofnun, segir að hækk-
un fasteignagjalds í kjölfar 14%
hækkunar á fasteignamati á höfuð-
borgarsvæðinu leiði til aukinna
tekna sjóða sveitarfélaganna. Hann
segir að hækkunin ætti í sjálfu sér að
draga úr þenslu.
-----------------
40% aukn-
ing í sölu
barnabóka
BÓKSALAR eru ánægðir með söl-
una það sem af er jólabókavertíð.
Hjá Pennanum-Eymundsson var
40% meiri sala á barnabókum í nóv-
ember en í sama mánuði í fyrra og
20% söluukning á öðrum bókum.
„Við erum mjög ánægðir með bók-
söluna í nóvember," segir Ingimar
Jónsson, framkvæmdastjóri Penn-
ans, sem meðal annars rekur Ey-
mundsson. Segir hann að sjaldan eða
aldrei hafi verið jafngott úrval af
bókum og það segi til sín í sölunni.
Þá hafi verið góð verðtilboð á nýjum
bókum og þau byijað í nóvember.
Anna Einarsdóttir, verslunar-
stjóri í Máli og menningu, telur að
bóksalan fari fyrr af stað í ár en oft
áður. Það hafi komið fram í aukinni
sölu í versluninni í nóvember.
Dalalff eftir Guðrúnu
,frá Lundi
■«w v $
Mif
Eitt af meistaraverkum
íslenskra frásagnar-
bókmennta loksins
fáanlegt i kilju.
Fimm bindi í öskju:
5.990 kr.
Mái og menning
malogmenning.is
n
Laugavegi 18 • Slmi 515 2500 • Siðumúla 7 • Slml 510 2500
Andlát
ESRA S.
PÉTURSSON
ESRA S. Pétursson
læknir lést á heimili
sínu í Flórída föstu-
daginn 1. desember,
82 ára að aldri.
Esra fæddist í
Reykjavík 11. septem-
ber árið 1918. Hann
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1937,
prófi í fiðluleik frá
Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1940
og prófi í læknisfræði
frá Háskóla íslands
árið 1946.
Esra lauk sérnámi í tauga- og
geðsjúkdómum frá University of
North Carolina árið 1957 og sér-
námi í sálgreiningu frá American
Institute for Psychoanalysis í New
York árið 1970.
Esra starfaði víða
við fag sitt, hérlendis
og í Bandaríkjunum.
Hann starfaði meðal
annars við Klepps-
spítalann og var starf-
andi sálgreiningar-
læknir bæði í
Reykjavík og New
York. Auk þess
kenndi hann víða,
meðal annars við
Cornell háskóla, Col-
umbia háskóla, Nýja
hjúkrunarskólann og
Hjúkrunarskóla Is-
lands._
Kona Esra var Ásta Einarsdótt-
ir. Hún lést árið 1991. Eignuðust
þau sjö syni og auk þess lætur
Esra eftir sig dóttur og son. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Edda Val-
borg Scheving.
JACK
HEMINGWAY
JACK Hemingway rit-
höfundur lést á
sjúkrahúsi í New York
síðastliðinn föstudag,
77 ára að aldri. Hann
var þekktur veiðimað-
ur og náttúrverndar-
maður, kom oft til lax-
veiða á íslandi og átti
sæti í stjórn Lax-
verndarsjóðsins
NASF.
Jack Hemingway
var sonur rithöfundar-
ins Ernest Heming-
way og faðir leik-
aranna Margaux, sem
er látin, og Mariel Hemingway.
Hann lætur einnig eftir sig eldri
dóttur, Muffet, og eiginkonu, Ang-
elu Hemingway. Jack
Hemingway tók þátt í
seinni heimsstyrjöld-
inni og var um tíma
fangi Þjóðverja.
Hann vann meðal
annars sem verð-
bréfasali í Bandaríkj-
unum og skrifaði ævi-
minningar sínar árið
1986 og bækur um
fluguveiði.
Jack Hemingway
kom oft til laxveiða á
íslandi og undanfarin
ár hefur hann dvalið
hér sumarlangt við
veiðar og við stefnumótun fyrir
Laxvemdarsjóðinn NASF sem
hefur höfuðstöðvar á íslandi.