Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AP
Jean Glavany, landbúnaðarráðherra Frakklands og forseti ráðherraráðs landbúnaðarráð-
herra, umkringdur blaðamönnum við upphaf fundarins um kúafárið, í byggingu ráðherra-
ráðsins í Brussel síðdegis í gær.
Bændur mótmæltu í borginni Nantes í Frakklandi í gær og skoruðu á evrópska ráðamenn
að grípa til aðgerða vegna kúafársins. A sama tíma funduðu landbúnaðarráðherrar
Evrópusambandsins um málið í Brussel.
Landbúnaðarráð-
herrar leyfa áfram
fískímjöl í dýrafóðri
Danir og þjóðir utan Evrópusambandsins
börðust hart gegn þeirii tillögu dýralækna-
nefndar ESB að banna allt dýramjöl
í skepnufóður og höfðu í gær erindi sem
erfíði er tókst að fá Frakka til að leggja
til að fískimjöl yrði undanþegið, skrifar
Urður Gunnarsdóttir frá Brussel.
LANDBÚNAÐARRÁDHERRAR
Evrópusambandsins samþykktu á
fundi sínum í gær að undanskilja
fiskimjöl frá allsherjarbanni við dýra-
mjöli í skepnufóðri. Meirihluti ráð-
herranna samþykkti að leyfa fiski-
mjöl í svína-, alifugla- og fiskifóður en
allt dýramjöl er bannað í nautgripa-,
kinda- og geitafóður. Röksemd ESB
fyrir því að undanskilja fiskimjöl er sú
að það sé ekki hættulegt og að einfalt
sé að greina það, ólíkt öðiu dýramjöli.
Ritt Bjerregaard, matvælaráðheira
Dana, þakkaði ákvörðunina í gær
ekki síst stefnubreytingu Frakka en
danskir embættismenn segja hana
hafa beitt sér mjög í málinu. Islenskir
embættismenn í Brussel hafa einnig
gert það þótt erfitt sé að segja til um
hvað hafi orðið til þess að snúa Frökk-
um, sem fyrstir þjóða samþykktu
bann við fiskimjöli í skepnufóðri.
Fundur landbúnaðarráðherranna
hófst kl. 14 í gær og rúmum þremur
tímum síðar höfðu ráðherramir sam-
þykkt undantekninguna. Áfram var
rætt um önnur og umdeild atriði til-
lögu dýralæknanefndaiinnar frá síð-
asta fimmtudegi, er Morgunblaðið fór
í prentun, m.a. um þá kröfu að allt
kjöt af nautgripum eldii en 30 mán-
aða verði prófað fyrir sölu.
Ekki tekist hart á um tillöguna
Að sögn Bjerregaard var ekki tek-
ist hart á um tillöguna, sem allar að-
ildarþjóðimar nema Þýskaland,
Finnland og Svíþjóð studdu. „Ég
þakka samstarfsmönnum mínum og
þá einkum stuðningi Frakka það að
fiskimjölið skyldi tekið út en þeir sem
forsætisþjóð ESB lögðu fram breyt-
ingartillöguna þar sem fiskimjöl er
undanþegið. Ég hef rætt við fjöl-
marga vegna þessa máls en þetta er
ekki aðeins danskur sigur, við höfum
notið stuðnings þjóða á borð við ír-
lands, Portúgals, Grikklands og
Frakka í þessu máli. Um tíma leit út
fyrir að alifuglamjöl yrði einnig und-
anþegið en ekki tókst að halda því
inni,“ sagði Bjerregaard.
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendi-
herra íslands í Brussel, var að vonum
létt í gærkvöldi er ljóst var að fiski-
mjöl væri undanskilið. Hann hefur
lagt mikla áherslu á að kynna sjónar-
mið íslendinga og segir ljóst í nokkr-
um tilvikum að það hafi opnað augu
einstakra ríkja, þótt útilokað sé að
segja hvort það hafi haft áhrif þegar
til kastanna kom.
„Það var greinilegt að Portúgalir
og Spánveijar höfðu ekki íhugað
þetta til fullnustu og þeir voru afar já-
kvæðir. Hins vegar var það áberandi
að sumar þjóðir greiddu atkvæði með
upprunalegu tillögunni þótt þær
hefðu alvarlegar athugasemdir við
einstök atriði hennar. Það er greini-
legt að svigrúm fulltrúanna var ekk-
ert,“ segir Gunnar Snorri.
Samkvæmt EES-samningnum á
ísland áheymarfulltrúa á fundi emb-
ættismannanefnda á borð við dýra-
læknanefndina og hafa þeir rétt til að
hefja máls á einstökum atriðum, eins
og Gunnar Snorri gerði sl. fimmtudag
á fundi nefndarinnar. Þá ræddi hann
við allmarga sendiherra hjá ESB, auk
þess sem utanríkis- og sjávarútvegs-
ráðherra höfðu samband við sam-
starfsráðherra sína. „Við notuðum
þau tæki sem við höfðum.
ísland var ekki eina landið utan
ESB sem beitti sér í málinu, Norð-
menn eiga einnig hagsmuna að gæta
og ýttu á embættis- og stjómmála-
menn, svo og Perú- og Chile-búar,
sem höfðu miklar áhyggjur af bann-
inu.
Niðurstaðan var sú að allar ESB-
þjóðimar vissu hver afstaða okkar
var, hún komst skýrt til skila,“ segir
Gunnar Snorri og viðurkennir að ekki
komi oft til þess að ýta þurfi á eftir
málum á þennan hátt þótt það gerist
vissulega. „Þetta mál er óvenjulegt
vegna þess hve skyndfiega það kom
upp og sú skelfing sem greip um sig.
Það var afsökunartónn hjá mörgum
þjóðum vegna þessa.“
Fleiri undantekningar
Auk fiskimjöls er gerð undantekn-
ing með gelatín og kalsíum fosfór, en
SAMKVÆMT reglugerð um með-
ferð og nýtingu á sláturúrgangi og
dýraúrgangi, sem gefin var út í ágúst
á þessu ári, er heimilt að nota kjöt-
mjöl í svína- og hænsnafóður. Þor-
varður Hjaltason, stjórnarformaður
Kjötmjöls ehf., segir að bann
Evrópusambandsins á notkun dýra-
mjöls í skepnufóður muni hafa áhrif
á rekstur fyrirtækisins. Mestur hluti
kjötmjölsins sé fluttur út og að und-
anfómu hafi það verið selt til Evrópu
og Bandaríkjanna.
Kjötmjöl ehf. tók til starfa í haust
og hefur verið stefnt að því að vinna
um 1.500 tonn af kjötmjöli í verk-
smiðjunni á ári. Hráefnið kemur frá
sláturhúsum á Suðurlandi.
Þorvarður sagði að það kjötmjöl
sem flutt hefði verið út færi aðallega
í gæludýra- og loðdýrafóður, en
gæludýrafóður er undanskilið banni
E vr ópusambandsins.V erksmiðj an
hefði aðallega framleitt svokallað
lambamjöl, sem væri verðmeira en
hefðbundið kjötmjöl.
Frakkar eiga mikilla hagsmuna að
gæta með bæði síðamefndu atriðin og
kann þar að vera kominn hluti skýr-
ingarinnar á því hvers vegna þeir féU-
ust á undantekningar. Eins og áður
sagði hlutu alifugla- og svínamjöl hins
vegar ekki náð fyrir augum ráðherr-
anna, þrátt fyrir að ekki hafi sannast
nein hætta af mjölinu. Beate Gmind-
er, talskona framkvæmdastjómar-
innar í málaflokknum, sagði ástæð-
una þá að erfitt væri að greina á mUU
t.d. kúa- og alifuglamjöls og því yrði
að banna það síðamefnda vegna
hættunnar sem stafaði af því fyrr-
nefnda.
Þá er allt dýramjöl bannað í fóður
jórturdýra vegna kúariðu og riðu, að
sögn Gminder
Bannið á að taka gUdi 1. janúar
2001 og er tU 6 mánaða en á þeim tíma
verður kannað hvort reglunum er
Þorvarður sagði að búast mætti
við að bann Evrópusambandsins
ætti eftir að hafa áhrif á heimsmark-
aðsverð á kjötmjöli. Þegar markað-
urinn í Evrópu lokaðist myndi fram-
boðið á kjötmjöU á aðra markaði
aukast mikið og það hefði að sjálf-
sögðu áhrif á verðið.
Reglugerð um sláturúrgang
gefín út í haust
Notkun á kjötmjöli í skepnufóður
hefur verið óheimil hér á landi frá
1978 þegar þáverandi yfirdýralækn-
framfylgt í aðUdarlöndunum. Tillagan
gerir ráð fyrir að aðgerðir einstakra
þjóða tU að banna dýramjöl eða kjöt
verði afnumdar, t.d. munu Frakkar
verða að aflétta banni við bresku
nautakjöti og dýramjöli og þær þjóðir
sem bannað hafa franskt nautakjöt
verða að láta það niður falla.
Einn umdeildasti hluti tUlögunnar
er krafa um að aUt kjöt af nautgripum
eldri en 30 mánaða verði að prófa en
það hefur gríðarlegan kostnað í för
með sér. Til að koma til móts við
bændur sem ekki geta nýtt kjöt af
gripum sínum vegna þess að það sé
ekki prófað, leggur framkvæmda-
stjómin til að ESB og viðkomandi að-
ildarríki greiði þeim bætur. Bæði er
deilt um hvort prófa eigi allt kjöt og
hlutfall bótanna, nú er rætt um að
ESB greiði 70% og aðUdarríkin 30%.
Pólitík, ekki vísindarök
DeUan um fiskimjöl snerist eins og
svo oft áður ekki um vísindaleg rök
heldur pólitík og örvænting þjóða á
borð við Frakka að endurvinna traust
neytenda hefur orðið til þess að þær
hafa skipt um skoðun hvað eftir annað
síðustu daga og vikur. Svo virtist sem
æ fleiri þjóðir hölluðust að því að
fóma yrði hagsmunum hinna fáu og
banna meira en minna þar sem það
væri eina leiðin til þess.
Meginástæða þess að fisldmjöl
kom upp á borð Evrópusambandsins
er ótti manna við svindl með dýrafóð-
ur. Bændur og framleiðendur kunni
ir tók ákvörðun um að banna notkun
á kjötmjöli í fóður jórturdýra. í
ágúst gaf landbúnaðarráðherra út
reglugerð sem heimilar notkun á
kjötmjöli í fóður fyrir „einmaga
dýi*“, þ.e.a.s. í fóður svína og
hænsna. Áfram er hins vegar bannað
að nota mjölið í fóður jórturdýra, þ.e.
nautgripa og kinda. I reglugerðinni
er slátur- og dýraúrgangur skil-
greindur í þrjá flokka, sérlega
hættulegan úrgang, hættulegan úr-
gang og hættulítinn úrgang. Tekið
er fram að afurðir kjötmjölsverk-
að blanda fóður, t.d. fiski- og kjöt- og
beinamjöl og til að loka öllum mögu-
leikum á svindU sé réttast að banna
allt dýramjöl, einnig það sem ekki
hefur sannast að sé hættulegt neyt-
endum, svo sem alifuglamjöl.
Ýmsar kenningar eru uppi um
hvemig fiskimjöl komst á dagskrá
dýralæknanefndarinnar. Líklega spU-
ar margt inn í og er femt nefnt; i
fyrsta lagi hættan á því að mjölið sé
blandað. Ástæðan er m.a. sú að fiski-
mjöl er dýrara en annað mjöl og því
hafa menn orðið uppvísir að því að
blanda öðru dýramjöU í það tU að fá
fyrir það hæma verð. Allt það dýra-
mjöl sem banna á samkvæmt tillög-
unni er í sama tollaflokki og bent hef-
ur verið á að einfaldasta lausnin hafi
verið að taka inn í heild sinni.
Þá hefur verið nefnt að Frakkar,
sem eru einir helstu talsmenn tUUög-
unnar, era undir gríðarlegum þiýst-
ingi frá landbúnaði í heild sinni og
hefði sumt mjöl verið bannað en ekki
annað, hefði það skaðað hagsmuni
sumra mjölframleiðenda, sem hafi
krafist allsherjarbanns. Að síðustu
hefur verið nefnt að Græningjar í
Þýskalandi hafi nýtt sér tækifærið tU
að koma fiskimjöh inn þegar málið
kom upp þar í landi. Frakkar höfðu þá
þegar bannað fiskimjöl, fyrstir þjóða,
og fylgdu Þjóðveijar í kjölfarið.
Græningjar era sagðir hafa viljað
koma því inn í ljósi frekari umræðu
um fiskimjöl og aðrar sjávarafurðir,
sem hefst innan skamms innan ESB,
en það er umræðan um díoxín í sjáv-
arafurðum. Svo kann að fara að hún
hefjist í næstu viku, í síðasta lagi inn-
an tveggja mánaða, og viðurkennir
Gunnar Snorri að Islendingar séu i
startholunum vegna þess.
Dýralæknanefndin mun þar ræða
hvort herða eigi reglur um leyfilegt
díoxínmagn í sjávarafurðum en sér-
fræðingar, t.d. í Danmörku, hafa vai -
að við því að það sé of hátt í lýsi og
fiskimjöU. Hefur verið lagt tU að
herða reglur t.d. um evrópskar físk-
afurðir og er óljóst hvort íslenskur
fiskur lendir þai- með eður ei.
smiðju þar sem sé unnið bæði ur
hættulegum og hættulitlum úrgangi
megi aldrei nota í fóður fyrir dýr sem
ætluð era til manneldis. Hins vegar
er heimilað að nota afurðir kjöt-
mjölsverksmiðjunnar í svína- og
hænsnafóður þegar eingöngu er
unnið úr hættuUtlum úrgangi.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir sagði að bannið frá árinu 1978
hefði falið í sér bann við notkun a
kjötmjöli í fóður handa kúm og kind-
um. Leyfilegt hefði verið að nota
kjötmjöl frá kjötmjölsverksmiðjunm
í Borgarnesi, sem nú er hætt start-
semi, í fóður handa svínum og hæn-
um. Reglugerðin fæli því ekki í sei
umtalsverða breytingu á fram-
kvæmd bannsins. Ekki hefði hins
vegar verið til nein reglugerð um
meðferð sláturafurða fram að þessu.
í dag verður haldinn fundur hja
yfirdýralækni um þessi mál þar sem
fyrirhugað væri að fara almennt yiu
stöðu mála í framhaldi af ákvörðun-
um Evrópusambandsins.
Bann ESB á notkun kjötmjöls 1 dýrafóður hefur áhrif á Kjötmjöl ehf.
Heimilt að nota
kjötmjöl í svína-
og hænsnafóður