Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLADIÐ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjölmenni var að venju við athöfn þegar kveikt var á jólaljdsunum.
tti.¥ t.
y.it 'v.
'■fesy %
Aðstaðan batnar og
biðlistar styttast
Morgunblaðið/Kristján
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra heilsaði upp á nokkur holda-
naut í skoðunarferð sinni í Hrísey.
100 dýr á ári og sá biti væri ekki til
FRAMKVÆMDUM við stækkun
einangrunarstöðvar fyrir gæludýr í
Hrísey er nú lokið og var viðbótin
formlega tekin í notkun í gær, Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra og
fulltrúar úr ráðuneytinu voru á ferð
í eynni af þessu tilefni og skoðuðu
hina nýju viðbót.
Um er að ræða tvöföldun á rými
stöðvarinnar og er þar nú aðstaða
fyrir 14 hunda og 4 ketti samtímis.
Einnig hafa verið gerðar endurbæt-
ur á eldra húsnæði stöðvarinnar og
aðstaða til þjónustu og umönnunar
dýranna bætt. Þess er vænst að í
kjölfar þessara framkvæmda muni
biðlistar brátt verða úr sögunni.
Lágmarksfyrirvari vegna innflutn-
ings hunda og katta frá löndum þar
sem hundaæðis hefur orðið vart er
þó 60 dagar.
Betri aðstaða
„Aðstaðan hefur mikið verið bætt,
bæði fyrir dýr og starfsfólk og við
vonum að biðlistar muni styttast til
mikilla muna, en þeir hafa verið
nokkuð langir fram til þessa, eða allt
að einu ári,“ sagði Aðalbjörg Jóns-
dóttir sóttvarnadýralæknir. Hún
sagði að stærra húsnæði myndi þó
ekki eyða biðlistum.
„Þetta er mikil breyting til bóta,
bæði íyrir menn og dýr og við von-
um að þær óánægjuraddir sem
kvartað hafa yfir löngum biðlistum
muni brátt heyra sögunni til og
stöðin muni anna sínu mikilvæga
hlutverki," sagði Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra. Hann sagði
ásókn í pláss á einangrunarstöð
gæludýra sífellt aukast, vaxandi
áhugi væri fyrir því að halda gælu-
dýr og fólk vildi taka dýr sín með
heim við búferlaflutninga frá útlönd-
um.
„Það er mikilvægt að íslendingar
átti sig á því að það er ekki af fanta-
skap sem setja þarf dýrin í einangr-
un við komuna til landsins, þarna er
um að ræða mikilvægt dýravemd-
unarmál og við höfum verið afskap-
lega heppin að ekki hafa komið upp
hér hjá okkur alvarlegir sjúkdóm-
ar,“ sagði Guðni.
Heppileg staðsetning
Hann sagði að starfsemi stöðvar-
innar í Hrísey hefði verið farsæl og
ekki ástæða til að raska henni, en
nokkrar umræður hafa á síðustu
misserum verið um að flytja stöðina
nær Keflavíkurflugvelli svo ekki
þurfi að flytja dýrin um langan veg
norður í land.
Guðni sagði að flutt væni inn um
skiptanna fyrir tvær einangrunar-
stöðvar. Staðsetning stöðvarinnar á
eyju væri einnig heppileg. „Þessi
stækkun mun mæta aukinni eftir-
spum og þjóna hagsmunum þess
fólks vill flytja gæludýr sín utan úr
heimi,“ sagði Guðni.
Alls var stöðin stækkuð um tæpa
100 fermetra og var kostnaðurinn
um 19 milljónir króna, þar af fóru
3,5 milljónir í endurbætur á eldri
hluta stöðvarinnar. Um er að ræða
sérhæfða byggingu, þar sem strang-
ar öryggiskröfur kölluðu á sérlausn-
ir bæði hvað varðar byggingarefni
og frágang.
Þijár einangrunarstöðvar eru nú
starfræktar í eynni, fyrir naut, svín
og gæludýr.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
FSA greiði konu um
5 milljónir í bætur
FJÓRÐUNGSSJUKRAHUSIÐ á
Akureyri hefur í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra verið dæmt til að
greiða rúmlega sextugri konu tæpar
5 milljónir króna í skaðabætur ásamt
vöxtum.
Konan gekkst undir skurðaðgerð
á fæti á sjúkrahúsinu árið 1993 og
lýsti því svo að aðgerðin hefði leitt til
heilsubrests, en áður hefði hún verið
heilsuhraust. Skurðaðgerðin hefði
haft alvarlegar afleiðingar fyrir and-
lega og líkamlega heilsu hennar og
ætti hún erfitt um gang. Taldi konan
að þau vinnubrögð sem viðhöfð voru
hjá þeim læknum sem að aðgerðinni
stóðu hefðu verið óforsvaranleg og
að mistök hefðu verið gerð. Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri gerði
þær dómkröfur að það yrði sýknað í
málinu og til vara að sök yrði skipt.
Byggðist sýknukrafan á því að FSA
bæri ekki skaðabótaábyrgð á um-
ræddu líkamstjóni. Aðgerðin sem
konan gekkst undir hefði verið valin
þar sem hún hefði verið talin henni
fyrir bestu, auk þess að vera talin ör-
ugg og líklegust til árangurs svo
konan næði heilsu á nýjan leik.
Dómurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að með tilliti til aldurs konunn-
ar, þunga hennar, vaxtarlags og þess
hversu slit á liðbijóski í vinstra hné
hennar var mikið hafi ákvörðun
læknisins sem aðgerðina fram-
kvæmdi verið vafasöm. Einnig er
það álit dómsins að með vafasamri
ákvörðun um aðgerðina og óná-
kvæmni í framkvæmd hennar og eft-
irmeðferð, hafi starfsmenn á FSA
gert slík mistök að fella beri bóta-
ábyrgð alfarið á sjúkrahúsið.
Fundur um
framhaldsskóla
FUNDUR um málefni framhalds-
skóla á Akureyri verður haldinn á
Fiðlaranum, 4. hæð, þriðjudaginn 5.
desember kl. 20.00. Fulltrúar stjórn-
málaflokkanna, Akureyrarbæjar, at-
vinnulífsins, foreldra, nemenda og
kennara flytja stutt framsöguerindi
um hlutverk og þýðingu framhalds-
skólanna fyrir Akureyri og ná-
grannasveitarfélög. Einnig verður
rætt um áhrif verkfalls á starfsemi
skólanna. Að því loknu verða pall-
borðsumræður þar sem framsögu-
menn sitja fyrir svörum.
Fundurinn er öllum opinn og
áhugafólk um skólamál er hvatt til að
mæta. Kennarafélögin i MA og VMA
standa að fundinum.
Bilvelta
á Mývatnsheiði
Mývatnssveit - Stór dráttarbíll
með frystigám fór á hliðina á
Mývatnsheiði í gærmorgun,
mánudag, nærri Stangar-
afleggjara. Bíllinn skemmdist
lítið og með aðstoð kranabíls
frá Akureyri tókst að losa hann
við gáminn og ná öllu upp á veg-
inn aftur. Vegurinn um Mý-
vatnsheiði er malarvegur gam-
all og afar lélegur og safnar á
sig miklum klaka í veðráttu
eins og nú er. Mikil þörf er á að
vegurinn verði endurbyggður
hið fyrsta með bundnu slitlagi
þar sem umferðarþungi hefur
vaxið mjög mikið eftir að vegur-
inn milli Jökulsánna, á Dal og á
Fjöllum hefur verið endurbætt-
ur svo mikið sem raun ber vitni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jólasveinar heilsuðu upp á börnin.
www.raymond-weil.com
GENEVE
Ljósin
kveikt á
Randers-
trénu
JÓLALJÓSIN voru tendruð á jóla-
trénu frá Randers, vinabæ Akur-
eyrar í Danmörku, siðastliðinn
laugardag í blíðskaparveðri og íjöl-
menntu bæjarbúar á athöfnina.
Dagskráin hófst með því að
Lúðrasveit Akureyrar lék nokkur
lög og Kór Akureyrarkirkju söng
jólalög. Kristján Þór Júliusson bæj-
arstjóri Akureyrar og Keld Huttel
forseti borgarstjómar Randers
fluttu ávörp, en að því loknu vora
ljósin kveikt við mikinn fögnuð
yngstu kynslóðarinnar og ekki
þótti henni leitt að hitta jólasveina
sem af þessu tilefni gerðu sér ferð í
bæinn og heilsuðu upp á gesti og
gangandi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Keld Huttel, forseti borgar-
sljórnar í Randers, og Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, við jólatréð.