Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Lyfja hf, og Lyfjabúðir hf. sameinast til sóknar á erlenda markaði
LYFJA hf. og Baugur hf. hafa fyrir
milligöngu FBA gengið frá sam-
komulagi um sameiningu Lyfju og
Lyfjabúða hf., dótturfélags Baugs,
sem reka lyfjaverslanir undir nafninu
Apótekið.
í tilkynningu frá félögunum segir
að með sameiningunni náist fram
aukið hagræði sem styrki stefnu um
smásölu lyfja á lágu verði. Sú mikla
reynsla sem fengist hafí af samkeppni
á lyfjamarkaði hérlendis verði nýtt til
sóknar á erlenda markaði.
Félagið verður sjálfstætt dótturfé-
lag innan Baugssamstæðunnar en
undir stjóm núverandi eigenda og
stofnenda Lyfju, þeÚTa Inga Guð-
jónssonar og Róberts Melax. Eftir
sameininguna mun Baugur eiga 56%
hlutafjár í sameinuðu félagi en núver-
andi eigendur Lyfju 45%. Áætluð
velta félagsins á þessu ári er liðlega
þrír milljarðar króna. Félagið mun
reka 16 lyfjabúðir um allt land en
lyfjabúðir hérlendis eru 56 talsins.
Lyfjaverslanir sjúkrahúsanna eru þá
ekki taldar með. Starfsmenn samein-
aða félagsins verða 210 en ekki mun
vera gert ráð íyrir breytingum á
mannahaldi.
í tilkynningu félganna segir að
sameining þeirra sé nauðsynleg til að
viðhalda lágu lyfjaverði. Þá muni fé-
lagið stefna að opnun smásöluversl-
ana með lyf eriendis á næstu misser-
um. Lyfjamarkaður á Norðurlöndum
taki miklum breytingum á næstu ár-
um í kjölfar fyrirhugaðra breytinga á
lögum um starfsemi lyfjaverslana,
sem lílqa megi við breytingamar hér-
lendis fyrir fjórum árum. Við þessar
breyttu aðstæður skapist markaðs-
tækifæri íyrir sameinað félag sem
hafi yfir að ráða einstakri þekkingu
og reynslu á samkeppnismarkaði með
iyf-
Sameiginlegt félag leiðandi
í lágu iyfjaverði
Róbert Melax, annar fram-
kvæmdastjóri hins sameiginlega fé-
lags, segir að sameiningin sé nauð-
synleg til að halda áfram þeirri
hagræðingu sem félögin hafi staðið
fyrir undanfarin ár. Þau hafi verið
leiðandi í lágu lyfjaverði og verði það
áfram. Lyfja hafi verið komin að
endapunkti í því sem félagið var að
gera og sameining félaganna tveggja
Styrkir sölu
á lágu verði
sé það sem þurfi til að hægt sé að ná
fram frekari hagræðingu.
„Island hefur ákveðna sérstöðu í
lyfjamálum," segir Róbert. „Frelsi
kom hér á landi fyrr en í öðrum lönd-
um. Breytingar eru hins vegar fram-
undan bæði í Noregi og Danmörku en
það þarf stórt fyrirtæki tii að takast á
við þau tækifæri sem eru í lyfjasölu
erlendis."
Róbert segir að hægt verði að
spara í yfirstjóm hins sameinaða fé-
lags og hagræða í rekstri þess á öðr-
um sviðum.
Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, segir að sameining Lyfju og
Lyfjabúða hf. sé fyrst og fremst til að
styrkja þau til framtíðar. Tækifæri
hafi verið til staðar til að gera betur á
lyfjamarkaði en gert hafi verið.
„Heildsölugeirinn á þessum markaði
er mjög sterkur og við teljum að með
sameinuðu félagi verði samningsstað-
an betri. Þá teljum við nauðsynlegt að
vera með öflugt félag hér á landi til að
geta byggt upp sterkt félag erlendis,
þar sem tækifæri eru að opnast.
Frumathugun á markaðssókn á er-
lendum mörkuðum er hafin en nauð-
synlegur þáttur í þeirri sókn var að
styrkja félagið innanlands, sem nú
hefur verið gert,“ segir Jón Ásgeir.
Neytendur hafa valkost
Karl Wemersson, framkvæmda-
stjóri Hagræðis hf„ sem á og rekur
Lyfja & heilsu verslanimar, segir að
gagnvart neytendum sé samkeppnin
að færast frá þremur aðilum yfir á tvo
með sameiningu Lyfju og Lyfjabúða.
Spuming sé hins vegar hvaða áhrif
þetta muni hafa á verðlag og neytend-
ur til lengri tíma litið. Erfitt sé þar um
að segja á þessu stigi og það eigi eftir
að koma í ijós. Lyija & heilsu apótek-
in hafi unnið ötullega að því að byggja
upp sínar verslanir og neytendur hafi
því sem betur fer valkost.
Karl segir að á því rúma eina og
hálfa ári sem Lyfja & heilsu apótekin
hafi starfað hafi markmiðið verið að
byggja upp starfsemina hér á landi.
Sú stefna hafi jafnframt verið mörkuð
að skoða erlenda markaði og sé sú
vinna nú hafin. Lyfja & heilsu apótek-
in em samtals 17 víða um land auk
þriggja lyfjaútibúa.
Sameiningin til skoðunar
hjá Samkeppnisstofnun
Guðmundur Sigurðsson, forstöðu-
maður samkeppnissviðs Samkeppnis-
stofnunar, segir að stofnunin hafi
skrifað viðeigandi aðilum bréf vegna
sameiningar Lyfju og Lyfjabúða og
óskað eftir gögnum varðandi samein-
ingu félaganna. Málið hafi því nú þeg-
ar verið tekið til skoðunar hjá stofn-
Lyfjaverslun íslands hf. kaupir A. Karlsson hf.
Veltan eykst um einn
milljarð króna á ári
GENGIÐ hefur verið frá samningum
um kaup Lyfjaverslunar íslands hf. á
öllu hlutafé í A. Karlssyni hf. Við
kaupin eykst velta Lyfjaverslunar ís-
lands um einn milljarð króna og
starfsmönnum fjölgar um 45. Saman-
lögð velta félaganna á þessu ári er
áætluð ríflega 3,1 milljarður króna.
í tilkynningu til Verðbréfaþings Is-
lands kemur fram að vegna kaupanna
sé fyrirhugað að auka nafnvirði hluta-
fjár Lyfjaverslunar um 160 milljónir
króna og kaupin séu háð samþykki
hluthafafundar félagsins. Aðalsteinn
Karlsson, stofnandi A. Karlssonar hf„
mun eiga 72 miHjónir króna af nafn-
virði hlutafjár í Lyfjaverslun íslands
hf. eða 15,6%, að teknu tilliti til fyrir-
hugaðrar hlutafj áraukningar, þegar
ákvæði kaupsamningsins eru upp-
fyllt, og verður þar með stærsti ein-
staki hluthafi félagsins.
Með þessum kaupum hyggst
Lyfjaverslun íslands hf. vfldca út
starfsvettvang sinn og þar með auka
sóknartækifæri og renna enn fleiri
styrkum stoðum undir rekstur félags-
ins. Er þetta í samræmi við stefnu
stjómar Lyfjaverslunar íslands hf.
um Qölbreyttari þátttöku þess sem ís-
lensks almenningshlutafélags í þjón-
ustu við heilbrigðiskerfið.
Ekki ráðgerðar breytingar
á rekstrarfyrirkomulagi
A. Karlsson hf. er umboðs- og
heildverslun sem stofnuð var árið
1974 af Aðalsteini Karlssyni og Stein-
unni M. Tómasdóttur. Fyrirtækið
hefur verið leiðandi í sölu á lækninga-
og hjúkrunarvörum ásamt tækjum og
búnaði fyrir stofnanir og veitingahús.
Innan fyrirtækisins er einnig starf-
andi öflug þjónustudeild og verk-
stæði. Áætluð ársvelta A. Karlssonar
hf. árið 2000 er einn milljarður króna.
A. Karlsson hf. mun halda starfsemi
sinni áfram í sömu mynd og ekki eru
ráðgerðar breytingar á rekstrarfyrir-
komulagi fyrirtækisins við þessa
breytingu á eignarhaldi. Aðalsteinn
Karlsson mun láta af störfum sem
framkvæmdastjóri A. Karlssonar hf.
og mun Haraldur Gunnarsson, sem
gegnt hefur starfi markaðsstjóra hjá
félaginu, taka við því starfi.
PepsiCo
kaupir
Quaker
STJÓRNIR fyru-tækjanna PepsiCo
og Quaker Öats, sem framleiðir
drykkinn Gatorade, hafa náð sam-
komulagi um yfirtöku hins fyrr-
nefnda á hinu síðarnefnda. Rúmur
mánuður er frá því stjórnendur
PepsiCo komu fyrst að máli við
Quaker og lýstu áhuga á yfirtöku, en
ekkert varð úr samningum í það
skipti. Eftir þessar viðræðum reyndi
Coca-Cola að taka Quaker yfu- og
bauð framkvæmdastjóri þess hærra
verð en PepsiCo hafði boðið. Mál
fóru hins vegar þannig að stjórn
Coca-Cola hafnaði þessum hug-
myndum framkvæmdastjórans og
ekkert varð af yfirtökunni.
Fyrir um viku tóku stjórnendur
PepsiCo og Quaker upp þráðinn að
nýju og urðu lyktirnar þær sem hér
að ofan segir.
PepsiCo greiðir sama verð fyrir
Quaker Oats og PepsiCo bauð í fyrri
samningaviðræðum. Nú er þó í sam-
komulaginu gert ráð fyrir að fari
verð PepsiCo niður fyrir ákveðið
lágmark geti Quaker hætt við kaupin
án eftirmála.
Áætlað markaðsvirði sameinaðs
fyrirtækis er yfir 80 milljarðar
bandaríkjadala, sem eru um 7.000
milljarðar íslenskra króna. Gangi
það eftir verður fyrirtækið í hópi
fimm stærstu framleiðenda á neyslu-
vöru í heiminum.
Ekki fyrirsjáanleg áhrif
á umboðsmenn hér á landi
Umboð fyrir Pepsi Cola hér á
landi er í höndum Ölgerðarinnar Eg-
ils Skallagrímssonar og segir fram-
kvæmdastjóri hennar að ekkert liggi
fyrir um hvort breytingar verði á
umboðum hér á landi.
Framkvæmdastjóri Sólar-Vík-
ings, sem hefur umboð fyrir vörur
Quaker, segist ekki reikna með nein-
um breytingum hér á landi vegna
þessa. Sól-Víking sé með samning til
nokkurra ára við fyrirtæki í Evrópu,
sem sé dótturfyrfriæki Quaker, og
dreifing í Evrópu sé aðskilin frá
dreifingu í Bandaríkjunum.
Tap Samvinmiferða-
Landsýnar 135 milljónir króna
Sérhæfð
katlaþjónusta
H ö n n u n 7S m í ð i 7 V i ð g e r ö i r / Þ j ó n u s t a
Frá hugmynd
að fullunnu verki
= HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garöabæ
Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
TAP Samvinnuferða-Landsýnar
fyrstu níu mánuði ársins nam 135,1
milljón króna eftir skatta en á sama
tímabili í fyrra var hagnaður af starf-
seminni upp á 44 milljónir króna.
Eigið fé í lok tímabilsins nam 131,8
milljón króna og veltufé frá rekstri
var neikvætt um 185,7 milljónir
króna á tímabilinu. Rekstramiður-
staðan fyrstu níu mánuði ársins er
ekki í samræmi við áætlanir og Ijóst
að tap félagsins yfir allt árið 2000
verður meira en níu mánaða uppgjör-
ið sýnir, að því er fram kemur í til-
kynningu félagsins til Verðbréfa-
þings íslands.
Þegar hefur verið ákveðið að grípa
til aðgerða til að bæta rekstur Sam-
vinnuferða Landsýnar hf. og til að
lækka skuldir félagsins. Innra skipu-
lag félagsins verður tekið til endur-
skoðunar, en það verður einfaldað og
gert skilvirkara. Nýr framkvæmda-
stjóri, Guðjón Auðunsson, tók til
starfa þann 1. desember síðastliðinn
og frá sama tíma hefur Helgi Jó-
hannsson látið af starfi framkvæmda-
stjóra.
„Unnið hefur verið í að laga starf-
semina á rekstrarárinu 2001 að sam-
drætti í sætaframboði sé miðað við
það rekstrarár sem er að líða. Búið er
að ganga frá gistisamningum erlend-
is og flugáætlunum næsta árs. Stjóm
Samvinnuferða-Landsýnar hf. hefur
samþykkt að leitað verði eftir sölu á
eignarhlutum félagsins í öðmm fyrir-
tækjum og fasteignum til að lækka
skuldir,“ segir í tilkynningu félagsins.
Ákveðið hefur verið að boða til
hluthafafundar í Samvinnuferðum-
Landsýn hf. þann 16. desember
næstkomandi, en á fundinum mun
stjóm félagsins leggja fram tillögu
um aukningu eiginfjár um allt að 300
milljónir króna. Er það mat stjóm-
enda Samvinnuferða-Landsýnar hf.
að þær aðgerðir sem ákveðið hefur
verið að grípa til muni gera félaginu
kleift að að snúa rekstrinum til betri
vegar.