Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 33
LISTIR
Vann keppni
um listskreyt-
ingu Barna-
spítalans
SIGURÐUR Guðmundsson mynd-
listarmaður sigi’aði í samkeppni
um listskreytingu Barnaspítala
Hringsins. Upphaflega var haldin
opin samkeppni en forvalsnefnd
valdi síðan 6 listamenn til að gera
tillögu að listskreytingu nýja
barnaspítalans. Dómnefnd valdi úr
tillögum og var Hjálmar Árnason,
alþingismaður og formaður bygg-
ingarnefndar Barnaspítala Hrings-
ins, formaður dómnefndarinnar, en
auk hans áttu þar sæti tveir full-
trúar Sambands íslenskra mynd-
listarmanna, einn fulltrúi Barna-
spítala Hringsins og einn fulltrúi
Kvenfélagsins Hringsins.
---------------
Lesið úr
ævisögum á
Súfístanum
LESIÐ verður úr nýjum ævisögum
á Súfístanum, bókakaffi í verslun
Máls og menningar, Laugavegi, í
kvöld, þriðjudag, kl. 20.
Þar les Sigurður A. Magnússon úr
bók sinni Undir dagstjörnu og Dag-
ur B. Eggertsson les úr bók sinni
Steingrímur Hermannsson: forsæt-
isráðherraárin. Ennfremur les
Baldvin Halldórsson leikari úr bók
Jóns Múla Árnasonar Þjóðsögur III
og Hjalti Rögnvaldsson leikari les úr
bók Agnars Þórðarsonar I leiftri
daganna.
Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Markús Orn Antonsson afhendir tónskáldinu Hauki
Tómassyni verðlaunin.
Tónverkið Saga
verðlaunað
I TILEFNI af 70 ára afmæli RUV
var efnt til samkeppni um tónverk
sem hefði sömu hljóðfæraskipan
og Utvarpshljómsveitin 1943 en
þá var sú hljómsveit hvað öflug-
ust. Tvö verk bárust í keppnina
og hlaut Haukur Tómasson verð-
launin fyrir verk sitt „Saga“.
Verkið var frumflutt við opnun
sýningar í Ráðhúsinu 2. desember
síðastliðinn af Caput-hópnum.
Stjórnandi var Guðmundur Óli
Gunnarsson. Verkið verður sent
út beint 20. desember á afmælis-
degi Utvarpsins, en þá verða sér-
stakir tónleikar í Utvarpshúsinu
til að minnast þessara tímamóta.
Menningarborg Evrópu 2000
styrkti verkefnið sem og annað
verk sem samið var af sama til-
efni „Veturgnauð" eftir Guðmund
Hafsteinsson.
Það verk er fyrir fiðlu og píanó
en það voru fyrstu hljóðfærin sem
heyrðust í útsendingu útvarps
1930.
Teikning
eignuð Þórarni
B. Þorlákssyni
tekin af
sýningu
TEIKNING sem sett hafði verið upp
á yfirlitssýningu á verkum Þórarins
B. Þorlákssonar sem nýlokið er í
Listasafni íslands var tekin niður
rétt fyrir opnun þar sem ábending
barst um að hugsanlegt væri að
myndin væri ekki eftir listamanninn.
„Þessi ábending kom frá það trú-
verðugum aðila að við tókum verkið
út,“ segir Ólafur Kvaran safnstjóri.
„Ástæðan fyrir því að myndin hafði
komið inn til okkar var sú að eig-
endasagan sem fylgdi frá eigandan-
um var mjög trúverðug," segir hann
en bætir við að sú eigendasaga hafi
ekki fengist staðfest skriflega frá
eigandanum, Búnaðarbanka íslands.
„Og það vai- líka ástæða fyrir því að
við tókum myndina út af sýning-
unni,“ segir Ólafur. Þá var hins veg-
ar búið að búið að prenta sýningar-
skrá, þar sem myndin er birt.
Ólafur segir að umrædd teikning
hafí verið mjög frábrugðin öðrum
teikningum Þórarins í stíl en tækni-
lega séð hafi ekkert bent til annars
en að myndin væri eftir Þórarin.
Teikningunni var skilað aftur til
Búnaðarbankans.
Nýjar plötur
Ingibjörg Þor-
steinsdóttir
píanóieikari og
Theodóra Þor-
steinsdóttir
söngkona.
• ÚT er komin
geislaplata með
Theodóru Þor-
steinsdóttur
sópransöngkonu
og Ingibjörgu
Þorsteinsdóttur
píanóleikara.
Diskurinn nefnist
I fjarlægð og hef-
ur að geyma
sönglög eftir ís-
lensk tónskáld.
Platan var
hljóðrituð í
Stykkishólmskirkju í apríl sl. Stúdíó
Stemma sá um hljóðupptöku, upp-
tökustjóri var Sigurður Rúnar Jóns-
son. Theodóra er skólastjóri og
söngkennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar og Ingibjörg er skóla-
stjóri, píanókennari og meðleikari
við Tónlistarskóla Stykkishólms.
Theodóra stundaði söngnám við
Söngskólann í Reykjavík og einnig í
Vínarborg. Ingibjörg stundaði tón-
listarnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og í London. Þær stöllur
hafa starfað saman frá árinu 1982 og
komið fram víða saman bæði hér-
lendis og erlendis, ýmist með kórum
eða tvær saman, haldið nokkra tón-
leika saman og komið saman fram í
útvarpi og sjónvarpi.
Útgefandi er Fjölritunar- og út-
gáfuþjónustan Borgamesi.
Kýja pöruscnSingin
cr I*omin
Ömmu Antique,
Hverfisgötu 37,
sími 552 0190
Tölvunám er fjárfesting
^Forritun og kerfisfræði
Fornám - 144 kennslustundir
Markmiðið með þessu námskeiði er að undirbúa nemendur fyrir forritunar- og
kerfisfræðinámið.
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa náð tvitugsaidri og hafa lokið að minnsta kosti
þremur árum i framhaldsskóla. Þeir þurfa einnig að hafa haldgóða þekkingu á Windows
umhverfinu og á notkun Intemetsins. Góð enskukunnátta er einnig nauðsynleg þar sem flestar
kennslubækur í aðalnáminu eru á ensku.
Til að komast áfram í forritun og kerfisfræði þurfa nemendur að ná lágmarkseinkunn f þeim
prófum sem lögð eru fyrir. Um er að ræða kvöld- eða morgunnámskeið.
Aðalnám - tvær annir - 594 kennsiustundir
Markmiðið með þessu námskeiði er að svara vaxandi þörf atvinnullfsins fyrir starfsfólk til að
vinna við forritun og kerfisfræði. Val kennslugreina miðast við að mæta þörfinni þar sem hún er
mest þ.e. varðandi hópvinnulausnir og hiutbundna greiningu, hönnun og forritun (Object Oriented
Development). Þetta nám hefur þegar skilað góðum árangri og er reynslan sú að þeir nemendur
sem Ijúka náminu og ná tilskildum prófum eru eftirsóttir á vinnumarkaðnum.
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa haldgóða undirstöðumenntun, stúdentspróf eða
hliðstæða menntun og/eða starfsreynslu eða hafa lokið fomámi. Þeir þurfa einnig að hafa
haldgóða þekkingu á Windows umhverfinu og notkun Intemetsins.
Framhaldsnám -144 kennsiustundir
Nám þetta er ætlað þeim sem hafa lokið aðalnámi f fonitun og kerfisfræði og vilja
auka við kunnáttu sfna tfl að takast á við krefjandi verkefni úti á vinnumarkaðinum.
Námið byggirá forritun i Delphi og C++.
Til að komast áfram í framhaldsnámið þurfa nemendur að hafa
náð tilskilinni lágmarkseinkunn úr forritunar- og
kerfisfræðnáminu.
Tölvunám
er lykillinn
að íramtíðinni!
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði
Simi: 555 4980 - Fax: 555 4981
til framtíðar!
Innritun er hafin fyrir vorönn!
^Kerfis- & netumsjón (meauNux)
U
Tvær annir - 540 kennslustundir
Markmiðið með þessu námskeiði er að mæta vaxandi þörf atvinnulífsins fyrir starfsfólk
með sérþekkingu á rekstri og umsjón netkerfa. Kennt verður á RedHat Linux og verður
fjöldi þátttakenda á námskeiðinu takmarkaður við 12.
Farið er ítarlega yfir Linux umhverfið og allar helstu grunnskipanir þess. Nemendur fá
góða þjálfun I almennri notenda- og skráaumsjón, þar sem sérstaklega verða tekin fyrir
réttinda- og öryggismál. Nemendur læra að þekkja helstu stýriskrár kerfisins og hvemig
þær eru notaðar. Farið er yfir skeljar i Linux, skeljarskriftur, táknsegðir, ferilsstjómun og
pipur.
Einnig er farið er yfir helstu hugtök og heiti i netkerfum. Kynntar eru helstu tegundir
netkerfa, s.s. staðamet (LAN), víðnet (WAN) og Intemet. Einnig er kynntur helsti
vélbúnaður netkerfa. Teknir eru fyrirhelstu samskiptastaðlar, þar á meöal TCP/IP.
Nemendur fá kennslu og æfingu í uppsetningu og umsjón helstu netþjóna (stuðst við
Linux umhverfið). Farið er yfir allar helstu aðgerðir s.s. skráaflutning (FTP), fjarvinnslu
(Telnet), nafnaþjónustu (Bind) og vefþjónustu (Apache).
Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa haldgóða undirstöðumenntun, stúdentspróf
eða hliðstæða menntun og/eða starfsreynslu. Þeir þurfa einnig að hafa haldgóöa
þekkingu á Windows umhverfinu og notkun Intemetsins. Góð enskukunnátta er
nauðsynleg þar sem kennsluþækur eru á ensku.
Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum og þarf að gera ráð fyrir nokkru
heimanámi utan skólatlma.
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hlíðasmára 9 - 200 Kópavogi
S(mi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Netfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is
Austurvegi 38 - 800 Selfossi
Sími: 482 3937 og 482 1006