Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 37
_________LISTIR_______
Hinn gullni
hliómur lúðranna
TONLIST
S a I u r i n n
LÚÐRAÞYTUR
Málmblásarahópurinn Serpent,
undir stjórn Kjartans Óskarssonar
flutti verk eftir Jan Koetsier,
Giovanni Gabrieli, J.S. Bach og
Eugene Zádor.
HINN gullni lúðrahljómur er
heillandi og spannar allt frá hinu
undurmjúka til þrumandi styrk-
leika, er nýtur sín sérlega vel í líð-
andi tónlínum en einnig í hröðum
endurteknum nótum, þótt tækni
lúðrablásara sé ekki einskorðuð við
slíkt tónferli. Serpent-hópurinn,
sem hélt tónleika í Salnum sl.
sunnudag, undir stjórn Kjartans
Óskarssonar, er skipaður fjórtán
hljóðfæraleikurum, fimm á tromp-
et, fjórum á horn, fjórum á básúnu
og einum á túbu. Allt eru þetta frá-
bærir blásarar og vel helmingur
þeirra starfar í Sinfóníuhljómsveit
Islands. Fyrsta verkið var lúðra-
Fagotterí kvai’tettinn, Annette
Arvidson, Joanne Arnason, Jud-
ith Þorbergsson og Kristín Mjöll
Jakobsdóttir.
Fagott-
kvartett í
Norræna
húsinu
SÍÐUSTU háskólatónleikar ársins
verða í Norræna húsinu á morgun,
miðvikudag, kl. 12.30 og taka um
það bil hálfa klukkustund.
Kvartettinn Fagotterí leikur
m.a. verk eftir Johann Sebastian
Bach, Joseph Bodin de Boismorter
og Michel Corette.
Dagskráin tekur nokkurt mið af
jólunum því að flutt verður m.a.
Yuletide Fantasy í útsetningu
David Caroll. Kvartettinn Fagott-
erí er nýstofnaður fagottkvartett
fjögurra ungra kvenna. Þær eiga
það sameiginlegt að leika á fagott
og búa á Islandi, en eru langt að
komnar. Þær hittust fyrst allar í
haust þegar kvartettinn var form-
lega stofnaður en það hafði verið í
bígerð frá upphafi menningarárs-
ins 2000.
Kvartettinn skipa Anette Ar-
vidsson, Joanne Arnason, Judith
Þorbergsson og Kristín Mjöll Jak-
obsdóttir.
Aðgangseyrir er 500 krónur en
ókeypis fyrir handhafa stúdenta-
skírteina.
sinfónía, eftir J. Koetsier (1911),
hollenskan tónsmið og hljómsveit-
arstjóra. Sinfónían er sérlega
tematískt unnin, jafnvel um of og á
köflum er hljómskipanin rómantísk
á milli þess að vera mjög hefð-
bundin. Miðþátturinn er „blues“,
heldur svona slappur en lokakafl-
inn hressilegur og töluvert erfiður.
Undir lokin heyrist aftur rismikið
upphafsstef sinfóníunnar, sem
minnir nokkuð á tónferli Hindem-
iths. Sinfónían var ágætlega leikin
enda vel skrifuð fyrir lúðra.
Tvær kansónur eftir G. Gabrieli
voru ekki nægilega mjúklega
leiknar, þannig að „söngurinn" var
helst til of órólegur. Þetta er í
raun trúarleg tónlist, eins konar
hymnar fyrir lúðra en G. Gabrieli
varð fyrstur til að semja hljóm-
sveitartónlist og tvískipting kóra
og hljóðfærahópa, varð til þess að
táknin p (píanó) og / (forte) voru
tekin upp, til að tákna misstóra
hópa flytjenda, sem voru staðsettir
á tveimur hljómleikapöllum Mark-
úsar kirkjunnar í Feneyjum og
einnig, að minni hópur flytjenda
var staðsettur inni í kórkróknum.
Upp úr þessu komst svo nefndur
Morgunblaðið/Kristinn
„ecco“ stíll í tísku, þar sem lögð er
áhersla á að endurtekna tónhend-
ingin skuli vera veikari en sú fyrri.
Nokkrir sálmforleikir, eftir J.S.
Bach, eru sérstæðir að því leyti til,
að orgel eða hljómsveitarhlutinn er
í raun sjálfstætt tónverk, þar sem
fella má sálminn inn í, og hver tón-
hending hans er sungin út af fyrir
sig. Vakna Sions verðir kalla og
Slá þú hjartans, hörpustrengi eru
meðal frægustu kóralforspila
meistarans og voru þau leikin,
ásamt kóralforspilinu við Ich ruf
zu dir, í umritun fyrir lúðra, nótu
fyrir nótu eins og hjá J.S. Bach, af
Enrique Cespo. Forleikirnir voru
ágætlega leiknir, sérstaklega Slá
þú hjartans hörpustrengi en þar
sem hljómur lúðranna er sérstak-
lega samstæður í hljómblæ, var
ekki um að ræða þá andstæðu í
hljómblæ, á milli hljóðfæra og kór-
söngs, sem er sérlega áhrifamikil í
gerð meistarans.
Tónleikunum lauk svo með svítu
eftir Eugene (Jenö) Zádor 1894-
1977), er fluttist til Ameríku 1939
og starfaði við útsetningar á kvik-
myndatónlist, eftir ýmis tónskáld
en samdi einnig óperur, balletta,
hljómsveitarverk, kammerverk og
sönglög, Ekki er þetta frumleg
tónlist og tematíkin, sem er ráð-
andi vinnuaðferð í þessu verki og
einum of einhliða í endurtekning-
um stefjanna.
Serpent-hópurinn er vel leikandi
og var flutningurinn í heild mjög
góður, undir stjórn Kjartans
Oskarssonar, þó þess gætti, sem
kennt er við rútínu atvinnu-
mennskunnar og að viðfangsefnin
væru leikin beint af augum, í föst-
um hryn og hvergi staldrað við á
hendingaskilum eða þar sem
styrkleikabreytingar voru, sem er
nauðsynlegt, til að skapa einhverj-
ar andstæður í sérlega samstæðan
hljóm lúðranna. Hvað um það, þá
var hinn gullni hljómur lúðranna
oft ráðandi og fallega mótaður.
Jón Ásgeirsson
Þar sem gæði og gott verð fara saman..
° 'vTs'10-18
markaðstorgið
í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
'OHýja
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Innheimtustofnun sveitarfélaga
• Lágmúla 9 • sími 568 6099
• fax 568 6299 • pósthólf 5172
• 125 Reykjavík • kt. 530372 0229
• Landsbanki íslands 139-26-4700
i
Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 11-17
Opið til kl. 22 fró 16. desember tii jóla
Opið alla daga
Niðursöguð verð!
Fallea föt oq skart fyrir unqar konur
kr. 750 Fallag tjol for. 1750
kr. 290 S.BIowrid tw. 1100
kr. 250 HóUmIiv kr. 050
Úrvol af spenmim kr. 50 HóUdútar hr. 890
Scnkvyrmlrlrjnlf lcr. 4900 WurullHi kr. 350
Awpblýanlar kr. 160 KwH— kr. 400
kr. 1000
kr. 500
kr. 1000
kr. 1400
frá kr. 900
kr. 1800
Tónlist
2000 titlar af tónlist á verði frá kr. 300
kc 300 Hegge Crátm. kx. 300 Noióa 3210 fronhir kr. 500
kr. 600 ShrfiH Quo kc 600 Nokki 5110 fronhir kr. 400
|óladbkur kr. 900 Celtk Crátima kt. 300 Nekki 3310 fretriur kr. 600
Ihe Rodcy Hotrer «h kr. 600 PanfL Cráhn. kr 300 Nolda 8210 froiriiir kr. 400
Willie Nelson Cráhn kr. 300 Dr. Hook kt 600 NeMa fefckaberO lor. 100
Crátm. Worfd muric kn 300 Œff Rkh. "60 kt 600 OSM auknhlgfk frá kr. 100
;i •>•> »
Barna- —
/básinn
Nýjar vörur frá London á frábæru verði
lunmivi
■ lor. 1500
kr. 2990
kr. 2990
kr. 900 Ungbamaföl kr. 1000
kr. 1000 Bamakiólar kr. 1990
kr. 990 BamcriMoair kr. 1990
Netv?ru“!r 1K dese°^be:
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Færum Reykjavíkurflugvöll án
þess að hann þurfl að fara!
Kynningarfundur verður í stofu 101 í Odda
Háskóla íslands þriðjudaginn 5. des. kl. 17:15
Á dagskrá verður afstaða samtakanna til atkvœðagreiðslu um framtíð
Reykjavíkurflugvallar. Rœtt verður um endurskoðun aðalskipulags og stöðu I
svaeðisskipulagl Reykjavíkur og skipulagsmál á höfuðborgarsvœðlnu í heild.
■y-'í
Æ Aiiir
velkomnir!
2000-2100
Samtök um betn bygsó.