Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 41
LISTIR
BÆKUR
Ramabók
BARNAPÍUBÓFINN,
BýKOLLA OG
BOKARRANIÐ
eftir Yrsu Sigurðardóttur. Mynd-
skreytingar: Arngunnur Yr Gylfa-
dóttir. Utgefandi Mál og menning,
Reykjavík, 2000. Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf. 209 bls.
FYRIR allmörgum árum var
raunsæi ríkjandi í barna- og ungl-
ingabókmenntum á íslandi. Þá fjöll-
uðu sögur um erfið kjör fjölskyldna,
um einstæðar mæður og börn þeirra
og þessum sögum var ætlað að
varpa Ijósi á lífskjör og tilveru hluta
þjóðarinnar. Þessar bækur voru
Ærslafull barnasaga
ekki allar skemmtilegar og í raun
vantaði gleðina og kátínuna í þær
bækur til að þær hefðu tilætluð
áhrif. Að auka áhuga barna og ungl-
inga á að lesa bækur og njóta þeirra.
Núna er annar stfll vinsæll. Það
eru eins konar farsasögur, sem hafa
það að markmiði að lesandinn
skemmti sér og söguþráðurinn er
afskaplega ótrúverðugur.
Barnapíubófinn, Búkolla og bók-
arránið er nýútkomin barnabók eftir
unga konu, Yrsu Sigurðardóttur.
Hún fjallar um einstæða móður, sem
fellur ekki alveg að því mynstri sem
samfélagið álítur vera hluta af til-
veru einstæðra mæðra. Hún er
tannlæknir, á
fimm börn og
þarf þar af leið-
andi á aðstoð að
halda. Hún
auglýsir eftir
manneskju til að
annast börn sín
og árangurinn er
heldur lítill. Samt
sem áður vekur
tilboð Fangelsis-
málastofnunar athygli hennar. Þar
standa henni til boða sakamenn,
sem eiga að vinna í hennar þágu án
þess að hún þurfi að greiða laun.
Hún velur einn úr hópnum og af
Yrsa
Sigurðarddttir
þessu spinnst vægast sagt ótrúlegur
söguþráður. Höfundur hefur mikinn
áhuga á að segja sögu. Hún gefur
hugmyndafluginu lausan tauminn
og semur sögu sem margir hafa án
efa gaman af.
Óhætt er að segja að ævintýrin
sem sögð eru í þessari sögu séu
hvorttveggja í senn ótrúleg og fár-
ánleg. En þau eru skemmtileg og
draga fram bros oftar en ekki. Fjöl-
skyldan tengist ráni á stórum hluta
dýranna í Húsdýragarðinum í
Reykjavík. Móðirin stendur í deilum
við fyrrverandi eiginmann og föður
bamanna sem hún er mjög ósátt við.
Það er oft þannig að rithöfundar
leita að ákveðinni línu, ákveðnum
takmörkum sem þeir reyna að fara
ekki yfir. Einhvem veginn finnst
mér höfundur ekki skynja þessa línu
og fyrir bragðið nær hún ekki þeim
tökum á lesandanum sem hæfileikar
hennar og frásagnargleði gefa tilefni
til. Það gætir einhvers konar laus-
ungar í textanum, það er eins og
„límið“ vanti í samsetningu sögunn-
ar. En það má alls ekki draga úr
þeirri staðreynd að sagan er
skemmtileg, lífleg og að höfundur
hefur meira hugmyndaflug en flestir
rithöfundar. En hún þarf að temja
það dálítið til að auka trúverðug-
leika þeirrar sögu sem hún vill án
efa og getur skapað. Myndir Am-
gunnar Ýrar Gylfadóttur setja
skemmtilegan svip á bókina.
Sigurður Helgason
KyÍkoL<k
M R J t M /l J11111 5 L S R
Kringluna skaltu hafa augun opin fyrir Jolabíl
B&L Þu gætir unnið hann til afnota i heilt ar ef þu fyllir ut
happamiða og setur í pottinn. Jólabfllinn er glæsilegur Renault
Scénic, fjölnotabíll sem er hlaðinn aukabúnaði. Laugardaginn
16. desember höldum við svo skemmtilega jólahátíð í B&L þar
BENSIN
Þu getur emmg haft heppmna með þer ef þu kemur
og reynsluekur öðrum bílum sem við bjóðum i B&L,
Grjóthálsi l.
sem dregið verður um hver
I hvern viku fær emn heppinn reynsluokumaður 250
lítra af bensíni að gjöf. En ekki nóg með það því einu sinni
í mánuði fær einn þeirra sem staðfesta kaup á nýjum bíl
hjá B&L 250 þúsund króna innborgun upp i bilinn.
við í Kringlunni og hafðu heppnina með þér!
J L
J