Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 53
DÓRA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Dóra Jóhannes-
dóttir fæddist á
Stað á Eyrarbakka
2. september 1925.
Hún varð bráðkvödd
á heimili sínu, Safa-
mýri 81, Reykjavík,
laugardaginn 25. nó-
vember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Guðm-
unda Olafsdóttir, f.
28.9. 1902, d. 14.11.
1972, og Jóhannes
Sigurjónsson, skipa-
smiður og útvegs-
bóndi á Eyrarbakka,
f. 18.1. 1891, d. 4.4.1968. Bræður
hennar voru Ólafur Jóhannes-
son, f. 19.3. 1930, d. 8.2. 1993; Jó-
hannes Jóhannesson, f. 6.8. 1936,
d. 24.10. 1936.
Dóra giftist árið 1948 Kristni
Hannessyni, verslunarmanni frá
Reykjavík, f. 1927, d. 2000, þau
slitu hjúskap. Þau eignuðust
fjögur börn: 1) Guðmunda, f.
16.10. 1948, gift Sigurði Ella
Guðnasyni. Sonur hennar: Karl
Trausti Barkarson, f. 1968. 2)
Sigríður Hanna, f. 19.3. 1952,
gift Finnboga Finnbogasyni.
Börn þeirra: Mörð-
ur, f. 1973 og
Freyja Dögg, f.
1979. 3) Hannes, f.
7.10. 1956, kvæntur
Rósu Sigríði Gunn-
arsdóttur. Dóttir
þeirra: Beta Dagný,
f. 1997. 4) Þóra, f.
21.9. 1960. Dóttir
hennar: Dóra Min-
ata, f. 1996.
Dóra giftist 13.2.
1976 eftirlifandi
eiginmanni sínum,
Inga Þorbjörnssyni,
bifreiðastjóra frá
Kirkjubæ, Vestmannaeyjum.
Foreldar hans voru Þorbjörn
Guðjónsson og Guðleif Helga
Þorsteinsdóttir.
Dóra fluttist tvítug frá Eyrar-
bakka til Reykjavíkur og bjó þar
alla tíð síðan. Hún lauk prófi frá
skólanum að Núpi í Dýrafirði og
Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Hún vann lengst af við ýmis
verslunarstörf en hin síðari ár
vann hún við umönnun aldraðra.
Útför Dóru fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Við systkinin viljum með nokkrum
orðum minnast móður okkar. Orðum
sem manni flnnst vera svo fátækleg
og ná ósköp stutt þegar kveðjustun-
dina ber svona brátt að. Það er erfitt
að lýsa tilfinningum sínum og sökn-
uði, allt virðist einhvern veginn svo
óraunverulegt. Óraunverulegt að
mamma, sem var svo sterk og mið-
punkturinn í lífi okkar, skuli allt í
einu eins og hendi væri veifað vera
farin til annars heims. Það er stað-
reynd sem mun taka tíma að sætta
sig við bæði fyrir fjölskyldu og vini.
Því mamma var ekki bara okkar stoð
og stytta heldur einnig margra ann-
arra. Svo ungleg, glæsileg og manna
hressust, sífellt drífandi vinkonur
sínar með sér út um hvippinn og
hvappinn.
Orð sem koma upp í huga okkar
þegar við hugsum um mömmu er
fordómaleysi, trygglyndi og hjálp-
semi. Hún var alltaf boðin og búin að
rétta öðrum hjálparhönd. Má til að
mynda nefna allt gamla fólkið og
sjúklingana sem hún annaðist og tók
að sér að hugsa um af mikilli hlýju
og fórnfýsi og sparaði aldrei til þess
sporin. Eins og einn vinur hennar
komst að orði „Nú eru svo margir
sem missa svo mikið“. Alla tíð var
hún mjög vinsæl og vinamörg og á
heimili hennar var alltaf mikill
gestagangur fólks á öllum aldri,
höfðum við stundum á orði að þar
væri eins og að koma inn á umferð-
armiðstöð og þannig vildi hún líka
hafa það.
Annað sem kemur upp í huga okk-
ar er listfengi og bar m.a. heimili
hennar og Inga, eftirlifandi eigin-
manns hennar, sterklega vott um
það, öll handavinnan, bæði útsaumur
og aragrúi af peysum sem til eru eft-
ir hana, en margar hverjar eru
hreinustu listaverk.
Eina huggun okkar, mamma, í
sorginni er að vita til þess að það eru
margir glaðir að hitta þig á þeim
stað sem þú ert á núna. Elsku
mamma okkar við vorum svo stolt af
þér. Vertu bless og Guð geymi þig.
Guðmunda, Sigríður,
Hannes og Þóra.
Mig langar að minnast góðrar og
hjartahlýrrar konu, Dóru Jóhannes-
dóttur, sem lést á heimili sínu hinn
25, nóvember sl. Eg var svo heppin
að fá að kynnast Dóru þegar ég
fæddist enda hún og Birna mamma
mín bestu vinkonur. Dóra var kraft-
mikil og dugleg kona enda sást það á
öllu því sem hún tók sér fyrir hendur
hvort sem það var í hannyrðum eða
garðinum sínum en hann var algjör
paradís fyrir okkur systurnar þegar
við vorum litlar. Minningarnar
streyma fram í hugann og þá ber
hæst ferðir til Eyrarbakka með
þeim hjónum, Dóra og Inga, þegar
ég var barn, og þær fallegu peysur
sem hún prjónaði handa drengjun-
um mínum þegar þeir fæddust. Allt-
af mundi Dóra eftir sínum og var
fyrst til að samfagna þegar barn
fæddist eða íbúð var keypt. Já, hún
var stór hluti af fjölskyldunni enda
daglegur samgangur milli hennar og
mömmu. Eg vil þakka fyrir að hafa
fengið að kynnast þessari yndislegu
konu og minning hennar mun lifa í
huga mínum um ókomna tíð. Missir
mömmu minnar er mikill en enn
meiri hjá Inga, Mundu, Siggu,
Hannesi, Þóru og barnabörnum,
megi guð gefa ykkur styrk í þessari
miklu sorg. Guð blessi minningu
Dóru.
Áróra H. Skúladóttir.
Mín kæra vinkona, Dóra Jóhann-
esdóttir, varð bráðkvödd á heimili
sínu laugardaginn 25. nóvember.
Þeim degi hafði hún varið til að
heimsækja og hlúa að góðri vinkonu
á Selfossi og enginn vissi annað en
að hún sjálf væri vel frísk. Ég vil
trúa því að kallið hafi komið henni
jafn mikið á óvart og okkur vinum
hennar. Dóra, þessi kjarnakona sem
hún var, hafði að minnsta kosti ekki
sýnt nein merki um annað en að hún
ætlaði að taka fullan þátt í lífinu
áfram. Var farin að undirbúa komu
jólanna og skipuleggja ferð til sólar-
landa að þeim loknum.
Kynni okkar Dóru hófust fyrir um
það bil 40 árum þegar við vorum
nágrannar í Hvassaleitinu. Með okk-
ur tókst traust og góð vinátta sem
aldrei bar skugga á. Á þessum árum
bjó hún með fyrri manni sínum,
Kristni Hannessyni, og börnum
þeirra, Guðmundu, Sigríði, Hannesi
og Þóru, í Hvassaleiti 129. Dóra og
Kristinn skildu.
Dóra var ákaflega traust og sann-
ur vinur vina sinna. Minningar
streyma fram þvi það er svo margs
að minnast. Síðustu árin leið ekki sá
dagur að við töluðum ekki saman eða
hittumst. Hún sá um að vinabönd
héldust, bæði við gamlar vinkonui-
og fjölskylduna. Hún var raungóð og
hjálpsöm þegar erfiðleikar steðjuðu
að, var jákvæð og hvatti fólk til að
líta á björtu hliðarnar. í mörg ár
starfaði hún við heimilishjálp og
hlúði að öldruðum og sjúkum. I
mörg ár starfaði Dóra í Alaska við
Miklatorg. Hún var mikil blómakona
og bar garðurinn hennar þess glöggt
merki. Þá liggur eftir hana margt
fallegt handbragðið því hún var mik-
il og góð hannyrðakona. Seinni árin
stunduðum við saumaskap saman í
góðum hópi góðra kvenna.
Seinni maður Dóru er Ingi Þor-
björnsson frá Kirkjubæ í Vest-
mannaeyjum og bjuggu þau í Safa-
mýri 81 hér í Reykjavík. Þar átti ég
margar góðar stundir með þeim
hjónum, enda Dóra höfðingi heim að
sækja. Þeir sem kynntust Dóru eiga
nú góðar minningar og eru ríkari en
áðui’ eftir að hafa kynnst henni.
Barnabörnin eru fimm. Tvö þeirra
eru langyngst og þakkaði Dóra oft
þann tíma sem hún fékk að vera með
þeim litlu, nöfnu sinni Dóru og litlu
Betu.
Oft rifjuðum við upp ferðir okkar
saman til annan’a landa og bar þar
hæst ferðirnar til systra minna í
Bandaríkjunum. Það voru ánægju-
legar stundir.
Með brotthvarfi Dóru mun skap-
ast stórt tómarúm í lífi mínu sem
vart verður fyllt. En minningin um
góða og trygga vinkonu lifir og eng-
inn getur tekið þá minningu frá mér.
Ég er þakklát fyi’ir allai’ samveru-
stundirnar okkar og ég trúi því að
leiðir okkar muni liggja saman á ný.
Blessuð sé minning Dóru.
Ég sendi Inga, Mundu, Siggu,
Hannesi og Þóru og fjölskyldum
þeirra mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Hlýjar kveðjur til ykkar frá
systrum mínum í Bandaríkjunum.
Birna Bjömsdóttir.
Kæra vinkona. Mig langar að
senda kveðjuorð og þakka þér allar
góðai’ stundir. Það eru orðin yfir 60
ár sem við höfum brallað ýmislegt
saman. Þú varst ekki alltaf með
elskuorð á vörum en þess heitara og
hlýrra var þitt hjartalag, að hjálpa
og líkna öðrum.
Vísurnai’ hans Úlfs Ragnarssonar
eiga vel við sem kveðjuorð til þín.
Ég veit ekki hvort þú hefur
huga þinn við það fest
að fegursta gjöf sem þú gefur
er gjöfin, sem varla sést.
Ástúð í andartaki
auga sem góðlega hlær
hlýja í handartaki
hjarta sem örar slær.
Allt sem þú hugsar í hljóði
heiminum breytir til
gefþúúrsálarsjóði
sakleysi,fegurðogyl.
Guð blessi Inga og afkomendur
Dói-u.
Þín vinkona,
Úlfhildur.
Dáinn, horfmn. - Harmafregn!
Hvílíkt orð mig dynur yfir!
En égveit, að látinn lifir.
Það er huggun harmi gegn.
Hvað væri annars guðleg gjöf,
geimur heims og lífið þjóða?
Hvað væri sigur sonarins góða?
Illur draumur, opin gröf.
Síst vil ég tala um svefn við þig.
Þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda -
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér vinur í fegra heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa pðs um geim.
(Jónas Hallgr.)
Bless elsku Dóra.
Laufey Rós.
RAKEL
GUÐLA UGSDÓTTIR
+ RakeI Guðlaugs-
dóttir fæddist á
Húsavík 12. júní
1939. Hún lést á Ak-
ureyri 21. nóvember
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Reykjahlíðar-
kirkju 29. nóvember.
Elsku amma.
Ég þakka þér fyrir
allt sem þú hefur gefið
mér og gert fyrir mig
alla mína ævi. Ég vona
að þér líði vel og hittir
alla ættingja sem áður
eru dánir. Amma mín
þú vai’st alltaf svo
spaugsöm og rosa
skemmtileg. Það var
svo gaman að vera hjá
þér og afa og oft mikið
fjör. Þú varst best í
heimi hér. Vona að þú
eigir gleðileg jól. Ekki
hafa áhyggjur af afa.
Sveinn Garðarsson.
+
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi
ÓMAR RAGNARSSON,
lést í Noregi miðvikudaginn 22. nóvember.
Friðrik Ragnarsson, Erla Víglundsdóttir,
Anna Birna Ragnarsdóttir,
Hafsteinn Ragnarsson, Steinunn Hjálmarsdóttir
og systkinabörn.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
EMMA SIGFRÍÐ EINARSDÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði,
til heimilis á Hrafnistu Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
2. desember sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erna Kristjánsdóttir,
Hrefna Kristjánsdóttir, Kjartan Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður minnar og
systur okkar,
HULDU SIGURLAUGAR
STEFÁNSDÓTTUR
frá Minniborg,
Grímsnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Stefán Ragnar Jónsson
og systkini hinnar látnu.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
systir,
KRISTÍN SOFFÍA JÓNSDÓTTIR
frá Gilsfjarðarbrekku,
Vesturbergi 138,
Reykjavík,
lést föstudaginn 3. desember.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og systkini.
mmiuiimm;
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
a
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
iiimniiiiTTi
M
M
£
+
Elskuleg eiginkona mín,
HALLDÓRA KRISTJANA SIGURÐARDÓTTIR,
Bakkaseli 6,
áður Austurbrún 25,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Árskóg-
um 2, föstudaginn 1. desember.
Baldur Sigurjónsson.