Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 54

Morgunblaðið - 05.12.2000, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGMAR HJÁLMTÝR JÓNSSON + Sigmar Hjáhntýr Jónsson fæddíst á Saursstöðum í Haukadal í Dalasýslu 27. febrúar 1951. Hann lést í Bergen í Noregi 21. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Jón Hjálmtýsson, f. 5.4. 1918, og Margrét Sigurðardóttir, f. 20.2. 1923. Systkini Sigmars eru Valur Freyr, f. 1947; Helgi Haukdal, f. 1949; Sig- urður Breiðfjörð, f. 1952; Sesselja, f. 1954; Fróði Ingi, f. 1955; Jóel Bæring, f. 1962. Sigmar kvæntist 27. desember 1971 Huldu Sigurðardóttur, f. 5. júlí 1951, frá Jafnaskarði í Staf- holtstungum í Borgarfirði. Þau slitu samvistir 1997. Börn Sig- Jæja pabbi, nú ert þú dáinn og við sitjum héma þrír bræðumir með ótal spurningar í höfðinu en engin svör. Undarleg tilhugsun það að eiga aldrei eftir að sjá þig aftur eða að fá símhringingu frá Noregi með þig hin- um megin við línuna. Að hugsa sér að við eigum engan pabba lengur og er- um bara 28, 23 og 15 ára gamlir og mars og Huklu eru: 1) Sigurður Már, f. 6.9. 1972, kvæntur Margréti Rögnu Kristinsdóttur, f. 25.2. 1972, dætur þeirra eru Hulda Karen og Telma Rut. 2) Stefnir Örn, f. 16.6. 1977, unnusta hans er Valdís Eyj- ólfsdóttir, f. 29.10. 1976. 3) Sævar Þór, f. 24.10.1985. Sigmar bjó frá ár- inu 1970 á Akranesi og starfaði lengst af við járnsmíðar. Hann fluttist til Hafnarfjarðar 1997 og síðan til Noregs í júní 1999, þar sem hann lést. Útför Sigmars fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. eigum eftir að gera svo margt um æv- ina. Svo margt sem væri gott að hafa pabba sér til aðstoðar, t.d. sem svara- mann í brúðkaupum okkar tveggja yngri sona þinna, fæðingu bama- bama þinna og uppeldi þeirra. En sem betur fer varstu viðstaddur brúðkaup elsta sonar þíns og fæðingu barna hans, þeirra Huldu Karenar og Ástkærir foreldrar okkar og tengdaforeldrar, afi og amma, sonur og dóttir.bróðir og systir, JÓN RÚNAR ÁRNASON og VILBORG JÓNSDÓTTIR, Túngötu 17, Keflavík, sem létust af slysförum þann 30. nóvember verða jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju föstudaginn 8. desember kl. 14:00. Jón Ingi Jónsson, Berglind Sigþórsdóttir og Rúnar Ingi Jónsson. Árni Rúnar Jónsson, Guðrún Andrea Borgarsdóttir og Alexandra Líf Árnadóttir. Björn Vilberg Jónsson. Árni Vilhjálmsson Guðrún Magnúsdóttir. Jón Stígsson Ingibjörg Björnsdóttir. Kristín Árnadóttir, Vilhjálmur Árnason Ingibjörg Gerður Bjarnadóttir. Björn Línberg Jónsson Helga Jónsdóttir. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA HELGADÓTTIR, Víðihlíð, Grindavfk, áður til heimilis í Smáratúni 15, Kefiavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðviku- daginn 6. desember kl. 14.00. Þóra Helgadóttir, Njáll Skarphéðinsson, Björn Helgason, Þóra Margrét Guðleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og út- farar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANHILDAR SIGRÍÐAR VALDIMARSDÓTTUR, Hólshúsi, Sandgerði. Valdimar Sveinsson, Sigurlína Sveinsdóttir, Einar Sveinsson, Kolbrún Kristinsdóttir, ömmu- og langömmubörn. Telmu Rutar. Ó pabbi, þær héldu svo mikið upp á þig og þá sérstaklega Hulda Karen, hún dýrkaði þig. Pabbi, við þökkum fyrir allar þær stundir sem við fengum að eiga með þér og sérstaklega þær sem við áttum í bílskúmum sem voru óteljandi og öll þekkingin þaðan er ómetanleg. Því miður er enginn eins mikill þúsund- þjalasmiður og snillingur eins og þú varst, þú gast allt og vissir hvemig átti að gera allt. Elsku pabbi, við vonum að núna sért þú í góðum höndum og líði vel. Bless pabbi og takk fyrir allt. Þínir Sigurður Már Sigmarsson, Stefnir Öm Sigmarsson, Sævar Þór Sigmarsson. Okkur langar til að minnast þín með fáeinum orðum. I dag verður þú lagður til hinstu hvfldar. Eftir stönd- um við og fáum engin svör. Maður í blóma lífsins sem átti svo margt eftir. Eg varð þess aðnjótandi að fá að kynnast þér og fjölskyldu þinni þegar ég fór að vera með unnusta mínum. Þar sá ég fljótt að góð fjölskylda var þama á ferðinni, sem bauð alla vel- komna á heimili sitt og oft var margt um manninn. Þær vom ófáar stund- imar, sem við áttum öll saman í eld- húsinu á Laugarbrautinni, spjallandi um heima og geima. Þú varst ræðinn maður, sem hafðir ýmsan fróðleik að færa okkur um lífið og tilveruna. Við minnumst oft orða þinna: „krakkar mínir“, þau sögðu svo margt. Þú lést velferð annarra þig varða og hlýjan sem þú gafst frá þér var einlæg. Þú hafðir nóg af henni fyrir aðra, en skortir hana oft í eigin garð. Við minnumst stundarinnar er við komum til ykkar Huldu og Sævars þegar þið vorað nýflutt til Grindavík- ur. Við töluðum svo mikið saman að áður en varði var langt á nótt liðið og ekki kom annað til greina en að við gistum. Mikið var þá gott að vera hjá ykkur. Ferðin vestur í Dali á þorra- blót með þér og Huldu var sömuleiðis ógleymanleg. Síðustu árin hafa verið þér erfið. Sjúkdómurinn fór smám saman að ná tökum á þér. Fyrir fáeinum árum þegar þú varst veikur og lást á sjúkrahúsi í Reykjavík áttum við góð- an dag saman. Þú fékkst að fara með okkur heim og við elduðum góðan mat og fóram í langa gönguferð um Elliðaárdalinn. Við töluðum ótal margt um lífið og yndislegu drengina þína, sem þú varst svo stoltur af. Undanfarin ár hittumst við sjald- an. Leiðir ykkar Huldu skildu, þú fluttir suður og síðan til Noregs. Elsku Sigmar. Við treystum því að þér líði vel núna. Þjáningum þínum hefur linnt og við biðjum góðan guð um að vemda þig. Við vitum að þú munt í fjarlægð fylgjast með sonum þínum, konum þeirra og barnaböm- um vaxa úr grasi og dafna. Góður guð færi honum frið og um- lyki hann með Ijósi sínu. Um leið og við kveðjum góðan vin þökkum við fyrir allar samverastundmnar og góðu minningamar, sem verða geymdar eins og perlur í hjarta okk- ar. Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið.... en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfirlífmu.... (Höf.ók.) Við biðjum góðan guð að gefa Huldu, Sævari, Stefni og Sigga og öðram ástvinum styrk í þeirra miklu sorg. Hvfl í friði. Lára og Skarphéðinn. Sigmar kom til Noregs og þar með til Rör- og Stalmontering sumarið 1999. Hann var ný og viðkunnanleg til- breyting í okkar hversdagslíf. Hann var jákvæð manneskja með ótrúlega marga og góða eiginleika. Sigmar leit á Noreg sem draum sem orðinn var að veruleika og það var greinilegt að hann blómstraði. Eftir því sem tíminn leið, skildum við að það var eitthvað sem íþyngdi sálarlífi Sigmars. Við vitum í dag að þessi vandamál ristu mikið dýpra en þau vandamál sem hann sem nýbúi í Noregi myndi mæta. Hann var langt niðri haustið 1999 af því að hann lentií vandræðum með að fá norskt bflnúmer á bflinn sinn. En hann komst yfir þetta með góðri hjálp frá þeim félögum sem hann hafði eignast. Eins og við kynntumst Sigmari var hann maður með marga leyndar- dóma. Hann sagði mikið frá sjálfum sér og lífinu á Islandi, en hann lét það vera að segja alveg allt, nokkuð sem við vitum í dag. Það er auðvitað erfitt að segja til um hvort við hefðum getað gert eitt- hvað meira fyrir Sigmar, ef við hefð- um vitað það sem við vitum í dag. Það er líklega spurning sem við fáum aldrei svar við. Það er þung og erfið stund fyrir þá félaga og vini sem Sigmar hefur eign- ast hér í Noregi að þurfa nú að kveðja hann. Hans mun lengi vera minnst á meðal okkai- fyrir sinn faglega dugn- að og góða máta við að umgangast fólk. Það var því miður ekki lengi sem við fengum að vera saman, en okkur hafði öllum lærst að líka vel við Sig- mar. Hann mun verða í huga okkar um langa hríð. Friður ríki yfir minningu Sigmars. Kveðjur frá vinnufélögum og vinum í Bergen, Noregi. Hvað þú leiðst, viðvissumekM. Þó svo þú byrðamar bærir sem þú leyndir til hins hinsta. Takk fyrir allt sem þú varst okkur. Þú hefur loksins fengið frið. SofðuróttkæriSigmar. Kærar kveðjur frá Róbert Brun, Irene Lund, Thomas Lund Brun og Preben Lund Brun. Mig langar að minnast þín, Sigmar minn. Ég hef þekkt þig frá því ég man eftir mér. Þú varst giftur henni Huldu frænku minni. Það var alltaf svo gaman þegar þú komst í heimsókn. Þá settist þú oft við skemmtarann okkar og ef þú komst í nikkuna mína þá varst þú óstöðvandi. Að vísu kynntist ég þér ekki al- mennilega fyrr en eftir að þið Hulda skilduð. Þá komst þú alltaf við hjá okkur uppi á Kjalamesi á ferðum þín- um milli Akraness og Hafnarfjarðar. Þér fannst gott að geta sest niður yfir kaffibolla og spjallað um lífið og til- verana. Alltaf nefndir þú strákana þína og talaðir um afabörnin þín. Þú saknaðir þeiira og hefðir gaman vilj- að að það væri meira samband á milli ykkar. En því miður gastu ekki boðið þeim heim til þín eins oft og þú vildir því þú varst í einu litlu herbergi á sama stað og vinnan þín. í febrúar ’99 fluttir þú svo inn á heimili okkar og bjóst hjá okkur um nokkum tíma. Það varð mikil breyt- ing á þér. Þú varst svo niðurdreginn og einmana og stundum í eigin heimi þegar þú komst í heimsókn. En eftir að þú fluttir til okkar fór lífið að breytast hjá þér. Það fór að verða aftur eins og allir eiga að venjast, venjulegt heimilislíf. Og þú tókst þátt í því eins og hver annar. Þú sinntir börnunum okkar eins og þau væra þín eigin. Þú sagðir þeim sögur og ævintýri. Stundum teiknað- ir þú myndir með ævintýranum og fannst þeim það mjög gaman. Sakna þau þín sárlega eins og við öll. Þú áttir draum sem varð að vera- leika þegar þú ákvaðst að flytja út til Noregs. Þú sást bjartari framtíð þar en hér á Islandi. Þú hafðir samband við okkur síðastliðið vor og þá gekk aUt vel og framtíðin blasti við þér. Elsku Sigmar minn, við söknum þín sárt og sendum við foreldram þín- um, sonum og barnabömum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og hvfl þú í friði. Sigrún Kjæmested og fjölskylda. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinai’ til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfm Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. aS.HELGASONHF STEINSMIÐJA Skemmuveqi 48, 200 Kóp. Sími: 557-6677 Fax: 557-8410 Netfang: sh.stone@vortex.is er meitluð ístein. Varanleg minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.