Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 62
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ofnæmi eða óþoli gagnvart hreinsiefrium
í heimilishaldi og iðnaði.
Tlðum þvotti með sótthreinsandi efnum.
Óhreinindum, málningu, ollu, kltti, sementi
o.þ.h.
Húðþurrki vegna vinnuumhverfis.
LYFJA
K. Pétursson ehf
www.kpetur8son.net
J
FERSKT • FRAMAfJDI • FRUMLEGT
La Espanola
Olívuolía
Suðurlandsbraut 6 • s. 568 3333
Hágæða vogir á góðu verði
Með prentara og án prentara
Fyrir rafhlöðu og 220 V AC
RÖKRÁS EHF.
Kirkjulundi 19, sími 565 9393
UMRÆÐAN
Meðal(a)hófið er vandratað
UMFJÖLLUN um
lyfjamál er oftar en
ekki á neikvæðum nót-
um hérlendis. Af ein-
hverjum ástæðum virð-
ast fréttir um aukinn
lyfjakostnað, ofneyslu
og jafnvel skaðsemi
lyfja eiga greiða leið í
fjölmiðla. Minna fer
hins vegar fyrir um-
ræðum um jákvæðar
afleiðingar lyfjanotk-
unar og þau stórvirki
sem unnist hafa í heil-
brigðismálum vegna
örrar framþróunar í Stefán S.
lyflækningum á undan- Guðjónsson
förnum árum.
Ýmsir stjómmálamenn og emb-
ættismenn virðast jafnvel vera mót-
fallnir aukinni notkun lyfja í heil-
brigðiskerfinu og hafa ímugust á
lyfjafyrirtækjum sem framleiða eða
flytja inn lyf. Par heggur sá er hlífa
skyldi því fáum ætti að vera betur
ljós stórkostlegur árangur lyfja í
baráttunni við illvíga sjúkdóma og
aðrar þrautir sem mannskepnan á í
eilífri baráttu við.
Lyf auka Iífsgæði
Miklar framfarir hafa orðið í lyfja-
þróun og lyflækningum á undanförn-
um árum. Lyf verða sífellt sérhæfð-
ari og á hverjum degi koma nýjar
efnablöndur fram á sjónarsviðið sem
ætlað er að lækna eða halda niðri
sjúkdómum og öðrum meinum sem
ekki var unnt að meðhöndla áður.
Margra ára þróunarstarf liggur oft
að baki nýjum lyfjum og í þeirri
vinnu er keppst við að hámarka
virkni lyfsins gagnvart því meini sem
tekist er á við, en valda sem minnst-
um óæskilegum aukaverkunum ann-
ars staðar í líkamanum. Hefur víða
náðst ótrúlegur árangur að þessu
leyti eins og dæmin sanna.
Augljóst er að ný lyfjaúrræði
bjarga mannslífum og færa því
sjúklingum og aðstandendum þeirra
gæfu sem aldrei verður
metin til fjár. Þessi lyf
bæta auk þess lífsgæði
sjúklinga og aðstand-
enda þar sem þau
draga úr beinum þján-
ingum af völdum sjúk-
dóma og margvíslegum
óþægindum og auka-
verkunum sem notkun
eldri lyfja hefur gjarn-
an í för með sér.
Lyf spara al-
mannafé
Ný lyf hafa ekki að-
eins aukin lífsgæði í för
með sér; þjóðhagslegur
spamaður vegna
þeirra er einnig ótvíræður. Hver ein-
staklingur er þjóðfélaginu dýrmæt-
ur og það er hagur allra að hver mað-
ur sé sem minnst frá vinnu vegna
veikinda. Að þessu leyti spara ný lyf
þjóðfélaginu ómælt fé því þau stytta
legutíma og fækka veikindadögum
starfsmanna fyrirtækja og draga úr
fjarvistum foreldra frá vinnu vegna
veikinda bama svo eitthvað sé nefnt.
Þegar rætt er um útgjaldaaukn-
ingu í heilbrigðiskerfinu virðist ráða-
mönnum stundum vaxa í augum
kostnaður við lyfjakaup. í þessu
sambandi er rétt að benda á að háar
fjárhæðir hafa sparast í heilbrigðis-
kerfinu á undanfömum ámm með
nýjum og árangursríkum lyfjaúr-
ræðum þar sem þau leysa af hólmi
enn dýrari innlagnir og meðferðir í
sjúkrahúsum. Kostnaður við aukin
lyfjakaup er að sjálfsögðu afar sýni-
legur en sparnaður heilbrigðiskerfis-
ins og þjóðfélagsins vegna þeirra
virðist hins vegar oft vera mörgum
hulinn. Auðvelt er að sjá hvernig út-
gjöld til lyfjamála hafa aukist á und-
anförnum ámm en það væri athygl-
isvert ef reynt yrði með
vísindalegum hætti að reikna á móti
sparnað einstaklinga, fyrirtækja og
hins opinbera vegna aukinnar lyfja-
notkunar. Athyglisvert væri ef óháð-
Möguleikar íslenskra fyrirtækja á
erlendu fiármagni
Útflutningsráð íslands gengst fyrir opnum hádegisverðarfundi föstudaginn 8. desember,
kl. 12:00-13:30 í Ársal, Hótel Sögu. Gestur fundarins er Thomas Palmblad, yfirmaður viðskiptaþróunar
hjá EASDAQ kauphöllinni, með áherslu á skandinavfsk hátæknifyrirtæki. Fundurinn er sérstaklega
áhugaveröur fyrir fulltrúa þeirra fyrirtækja sem sækjast eftir erlendu fjármagni og/eða
hyggja á skráningu á erlendum mörkuðum.
Hádegisverðarfundurinn er haldinn f tengslum við verkefnið Venture lceland,
sem nú er haldið í fjórða sinn á vegum Útflutningsráðs og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Boðið verður upp á jólamálsverð á kr. 1.700,-
Vinsamlega tilkynniö þátttöku í síma 5114000 eða í tölvupústi: mottaka@icetrade.is
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS
Hallveigarstígur 1 • 101 Reykjavík • Slmi 511 4000* Fax 511 4040 • icetrada@icetrade.is • www.icetrade.is
Lyfjamál
Almenningur á kröfu á
því að umræðum um
lyfjamál, segir Stefán S.
Guðjónsson, verði lyft á
hærra plan þar sem litið
er yfír sviðið í heild.
ir aðilar réðust í slíkt verkefni en
ekki þyrfti að koma á óvart þótt
lyfjaútgjöldin yrðu léttvæg fundin
miðað við sparnaðinn.
Það kostar að vera
í fremstu röð
Samhliða miklum framförum í lyf-
lækningum hafa orðið miklar breyt-
ingar á alþjóðlegum lyfjamarkaði.
Þar sem heilbrigð samkeppni ríkir
hefur verð á einstökum lyfjum lækk-
að töluvert og á það einnig við hér-
lendis. Þó er ljóst að aldrei hefur
meira fé verið varið til lyfjakaupa í
hinum vestræna heimi vegna mikilla
framfara í greininni. Þetta á einnig
við á íslandi þar sem ný, betri en
jafnframt dýrari lyf leysa hin gömlu
af hólmi. Hérlendis hefur þó gætt
nokkurrar tregðu hjá ríkinu með að
kaupa ný lyf og fremur verið hvatt til
notkunar eldri og „ódýrari lyfja“.
Það er vandratað meðalhófið í þess-
um efnum og sífellt verður að minna
stjómvöld á að of mikill spamaður á
þessu sviði kemur á endanum niður á
gæðum í heilbrigðiskerfínu. Það
kostar vissulega fjármuni að vera í
fremstu röð á þessu sviði sem öðmm.
Gífurlegar breytingar hafa orðið á
íslenskum lyfjamarkaði á undan-
fömum ámm. Yfirlýst stefna stjórn-
valda er að koma böndum á kostnað
með því að koma á samkeppni í
greininni. í því skyni hafa sérleyfi
verið afnumin og lögum og reglu-
gerðum breytt. I sjálfu sér er ekki
deilt um að þetta er rétt stefna enda
er hún í samræmi við þróun á al-
þjóðavettvangi. íslensk stjórnvöld
verða hins vegar að átta sig á því að
markmiðið um frelsi og samkeppni
næst ekki nema heilbrigðir við-
skiptahættir ríki í greininni. Frelsið
verður því að ríkja jafnt á öllum svið-
um greinarinnar eða frá framleiðslu
til afhendingar lyfjanna. Gildir það
jafnt um kynningarmál sem aðra
þætti. Mikið skortir hins vegar á að
fjallað sé um lyfjamál með upplýst-
um og faglegum hætti þar sem
óheimilt er að auglýsa eða jafnvel að
veita upplýsingar um lyfseðilsskyld
lyf í fjölmiðlum.
Miklar breytingar framundan
Á næstu áratugum munu miklar
breytingar eiga sér stað á uppbygg-
ingu og þjónustu heilbrigðiskerfisins
í landinu, ekki síst vegna aukinnar
sérhæfingar, nýrrar tækni og hækk-
andi meðalaldurs þjóðarinnar. Lík-
legt er að lyflækningar gegni lykil-
hlutverki við lausn þessara
viðfangsefna en sum þeirra eru nú
þegar orðin aðkallandi. Mikilvægt er
að opin og fordómalaus umræða geti
átt sér stað um þessi mál á vettvangi
ríkisins og heilbrigðisþjónustunnar
og þá ekki síður meðal almennings.
Því miður virðist heilbrigðisráðherra
og embættismenn hans oft skorta
heildaryfirsýn í lyfjamálum og hafa
þeir fallið í þá gryfju að vega að lyfja-
fyrirtækjum með ósanngjörnum
hætti. Álmenningur á hins vegar
kröfu á því að umræðum um lyfjamál
verði lyft á hærra plan þar sem litið
er yfir sviðið í heild og öllum sjónar-
miðum leyft að njóta sín.
Höfundur er frnm k væm dustjóri
Samtoka verslunarinnar-FIS.
Af þjóðmenn-
ingu
Islendinga
SIÐUSTU dagana
hefur verið að koma í
ljós að nokkrar fram-
kvæmdir hins opin-
bera hafa verið að
fara allhressilega
fram úr þeim fjárveit-
ingum sem Alþingi
hafði heimilað á fjár-
lögum. Þetta eru
byggingar sem eiga
t.d. að hýsa þjóðmenn-
ingu okkar og löggjaf-
arvaldið sjálft. Al-
menningur virðist
órór yfir þessu athæfi
enda hann sem borgar
brúsann þegar upp er
staðið. Hin virðulega
stofnun, Framkvæmdasýsla ríkis-
ins, hefur einnig af þessu stórar
áhyggjur enda skilst manni að það
Fatlaðir
í ár hefur framkvæmd-
um ítrekað veríð frestað
við sambýli fatlaðra,
segir Friðrik Sigurðs-
son, vegna þess að
Friðrik
Sigurðsson
stjórnvöldum hafa þótt
hús þess allt of dýr.
sé hennar hlutverk að sjá til þess
að svona hlutir gerist ekki.
Til að róa skattborgara þessa
lands um að nauðsyn kunni að vera
á að hið opinbera
teygi sig lengra ofan í
vasa þeirra til að
borga það sem fram-
kvæmt hefur verið án
heimildar skal hér
upplýst að þess gerist
ékki þörf.
Stjórnmálmenn
hafa nefnilega fundið
tekjustofn sem nægir
til að greiða þennan
mismun. Þessi tekju-
stofn er skerðing á
lögvörðum tekjum í
framkvæmdasjóð fat-
laðra. í ríkissjóð á að
renna árið 2001 kr.
372 milljónir sem lög-
um skv. ættu að renna til að leysa
húsnæðismál fatlaðra á íslandi.
Og til að róa fólk um að Fram-
kvæmdasýsla ríkisins standi sig
ekki og ekkert eftirlit sé haft með
byggingum hins opinbera skal það
upplýst, að í ár hefur framkvæmd-
um ítrekað verið frestað við sam-
býli fatlaðra vegna þess að stjórn-
völdum hafa þótt hús þess allt of
dýr svo að það væri ekki „forsvar-
anleg notkun á almannafé".
Einhvern tímann var því haldið
fram að þjóðmenning væri best
mæld í viljanum til að rétta hlut
þeirra sem höllum fæti standa í
samfélaginu.
Maður spyr sig, hvar er íslensk
þjóðmenning til húsa um þessar
mundir?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Land8samtakanna Þroskahjálpar.