Morgunblaðið - 05.12.2000, Síða 68
88 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Dreifíbréf um húð-
* flúr og húðgötun
NYLEGA voru þeim aðilum sem
stunda húðflúr, húðgötun og sam-
bærilega starfsemi send dreifibréf.
Þar er bent á nýlegar leiðbeining-
ar varðandi sótthreinsun, þær
reglur sem gilda varðandi þessa
starfsemi o.fl. Leiðbeiningarnar
voru unnar af Landlæknisembætt-
inu, Heilbrigðiseftirliti Reykjavík-
ur og Sýkingavarnardeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss.
Almenningi er einnig bent á
leiðbeiningarnar. Það er mikilvægt
að sá sem ætlar t.d. að fá sér húð-
Aloe Vera-
búðin fiytur
ALOE VERA búðin sem áður
var að Ármúla 32 Reykjavík,
hefur nú flutt sig um set.
Opnuð hefur verið ný og
stærri verslun að Reykjavík-
urvegi 64, Hafnarfírði. Vöru-
úrvalið hefur verið stórlega
aukið og húsrými stækkað.
Verslunin sérhæfir sig í
I gjafavöru af ýmsu tagi, s.s.
kristöllum ýmiskonar, spákúl-
um úr ekta bergkristal, eða-
lsteinum og hráeðalsteinum
frá öllum heimshornum. Þá
eru á boðstóium jólakort í
miklu úrvali og á fjórða
hundrað tegunda spá- og leið-
beiningaspila.
Verslunin Aloe Vera er opin
alla virka daga frá kl 11 - 18
og laugardaga frá kl 11-15.
Sérstök jólatilboð eru í gangi í
, desembermánuði.
flúr viti hvaða reglur eru í gildi og
skal sérstaklega bent á að bannað
er að húðflúra einstakling undir 18
ára aldri nema með skriflegu leyfi
foreldra. Einnig skal bent á að
starfsemi af þessu tagi er starfs-
leyfisskyld og gerðar eru strangar
kröfur, m.a. til hreinlætis, sótt-
hreinsunar og dauðhreinsunar,
segir í fréttatilkynningu. Leiðbein-
ingarnar er að finna á heimasíðu
Landlæknisembættisins:
www.landlaeknir.is (leiðbeiningar/
eftirlit).
Fundur um
spátölvur
AÐGERÐARANNSÓKNAFÉLAG
Islands heldur fund miðvikudaginn
6. desember um hugbúnað sem auð-
veldar að spá fram í tímann og notk-
un slíks hugbúnaðar á íslandi.
Fyrst gefur Snjólfur Ólafsson,
prófessor í Háskóla íslands, stutt yf-
irlit yfir spálíkön. Síðan mun Pálmi
Pétursson hjá Bestun og Ráðgjöf
sýna sérsniðið spáforrit sem notað er
til að spá um tekju- og kostnaðarliði
opinberrar stofnunar. Forritið auð-
veldar stjórnendum að gera sér
grein fyrir raunverulegri fjárhags-
stöðu á hverjum tíma.
Að lokum segir Sigurður Óli
Gestsson hjá Mímisbrunni frá spá-
hugbúnaðinum ForecastPro sem
hefur verið notaður með góðum ára-
ngri hjá nokkrum íslenskum fyrir-
tækjum.
Kaffi og með því verður á borðum
frá kl. 16.15 en dagskráin sjálf hefst
kl. 16.30. Fundurinn verður í
Nýjherjahúsinu, Borgartúni 37.
Sturtuhorn ur öryggisgleri m. segullæsingu.
Allar gerðir fáanlegar í hvítu eða með stáláferð
Kantað horn
65 til 80 cm
75 til 90 cm
Verð frá kr.
15.900,- stgr
Vio Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunii^M^
... OPIÐiaKg^^^
rH kl. 10-14
Rúnnað horn úr sveigðu
öryggisgleri. 4 eða 6 mm
Stærðir 80x80 eða 90x90 cm
Verð frá kr. 27.750,- stgr.
mww.mnrianniiilii7.CDni
Jólasala geðdeildar
Landspítalans
GEÐDEILD Landspftalans, iðju-
þjálfun, geðdeildarhúsinu við
Hringbraut, heldur hina árlegu
jólasölu sína miðvikudaginn 6. des-
ember frá kl. 12-15.30.
Þar verða seldir margir fallegir
handgerðir munir, tilvaldir til jöla-
gjafa, á góðu verði Einnig verður
til sölu kaffi og meðlæti, segir í
fréttatilkynningu.
I minningu
Bjargar C.
Þorláksson
AD frumkvæði áhugafólks um að
halda í heiðri minningu Bjargar Car-
ítasar Þorláksson (1874-1934) er
söfnun hafin til að kosta málmaf-
steypu af brjóstmynd úr gifsi eftir
Ásmund Sveinsson af Björgu. Stytt-
unni verður ætlaður staður innan
skipulagssvæðis Háskóla íslands.
Björg var hámenntuð og fyrst ís-
lenskra kvenna til að ljúka doktors-
prófi. Ritgerð hennar við doktors-
vörnina 17. júní 1926 var á sviði
lífeðlisfræði.
í fréttatilkynningu frá starfshópi
er vinnur að þessu verkefni segir:
„Nú á dögum er fátt í íslensku sam-
félagi sem minnir á þetta afrek henn-
ar en úrbóta er að vænta. Dr. Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir,
prófessor í mannfræði, vinnur að rit-
un ævisögu Bjargar og að fram-
kvæmd við gerð styttunnar vinnur
starfshópur á vegum Félags há-
skólakvenna, Kvenréttindafélags ís-
Ásmundur Sveinsson við brjóst-
mynd sína af Björgu Caritas
Þorláksson.
lands og Vísindafélags íslands, svo
og ættmenna Bjargar C. Þorláksson.
Málefninu til styrktar er efnt til
„hádegisverðar með hátíðarsniði"
sunnudaginn 10. desember nk. Flutt
verður tónlist og stuttlega kynnt ævi
og starf Bjargar og stuðlað að sam-
veru áhugasamra kvenna í anda
hennar. Á borðum er ljúffeng máltíð
á aðventu að hætti Þingholts. Salur-
inn þar rúmar um 60 manns til borðs
og má tilkynna þátttöku eigi síðar en
þriðjudaginn 5. desember."
Islensk menning - sam-
keppnitæki framtíðarinnar
REYKJAVÍK menningarborg 2000
og Verslunarráð Islands standa fyr-
ir morgunverðarfundi í Sunnusal
Radisson SAS, Hótel Sögu, miðviku-
daginn 6. desember kl. 8-9.30. Yfir-
skrift fundarins er: íslensk menning
- samkeppnistæki atvinnujífsins?
Framsöguerindi halda Ástþór Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Auglýsingastofunnar Gott fólk
McCann-Erickson: Reykjavík -
menningarborg 2000, reynsla og
lærdómur, Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar: Hlutverk
fyrirtækja í menningarlífinu og Ás-
geir Bolli Kristinsson kaupmaður:
Menningarmiðstöð í miðbæ Reykja-
víkur.
Fundargjald er 2.000 kr. og er
morgunverður innifalinn.
Hjúkrunar-
fræðingar
ræða einka-
rekstur
FÉLAG íslenskra hjúkrunarfræð-
inga heldur félagsfund miðvikudag-
inn 6. desember á Grand Hóteli kl. 20
um einkarekstur í heilbrigðisþjón-
ustunni.
Framsöguerindi flytja hjúkrunar-
fræðingarnir Ragnheiður Hara-
ldsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigð-
isráðuneytinu, Ásta Möller og
Þuríður Backman alþingismenn og
Sign'ður Snæbjörnsdóttir, fyrrver-
andi hjúkrunarforstjóri Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Rætt verður m.a. um stefnu
stjórnvalda varðandi einkarekstur,
hvaða leiðir eru færar og möguleika
hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í
einkarekstri í heilbrigðiskerfinu.
Einnig verður fjallað um mismun-
andi hugmyndir í einkarekstri og
hvaða hlutverki hjúkrunarfræðingar
eiga að gegna í einkarekstri. Að
loknum framsöguerindum verða
pallborðsumræður með þátttöku
frummælenda. Þá verður kynnt
námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga
um einkarekstur í heilbrigðisþjón-
ustu sem haldið verður á vormisseri í
Háskóla Reykjavíkur.
---------------
Námskeið
í skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudag-
inn 7. desember kl. 19. Kennsludag-
ar verða 7., 11. og 12. desember frá
kl. 19-23. Þátttaka er heimil öllum
15 ára og eldri og telst vera 16
kennslustundir. Hægt er að fá nám-
skeiðið metið í flestum framhalds-
skólum en það er haldið í Fákafeni
11, 2. hæð.
Meðal þess sem verður kennt á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bnina, beinbrotum, blæðingum
úr sárum. Einnig verður fjallað um
helstu heimaslys, þ.m.t. slys á börn-
um og forvarnir almennt.
------*->-♦----
Fundur alþýðu-
flokkskvenna
í Hafnarfírði
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði heldur jólafund miðviku-
daginn 6. desember kl. 20 í Alþýðu-
húsinu, Strandgötu 32.
Gestir fundarins verða hr. Ólafur
Skúlason biskup, sem les úr bók
sinni, og Stefán Már Gunnlaugsson
guðfræðingur, sem flytur hugvekju.
Veitingar í boði kvenfélagsins, happ-
drætti o.fl.
Krabbameinrfélagsin^
Upplýsingðf um
vinni^nömM i
simum5«0 191f
(simsvari),
540 1900 og á
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnastarf
‘íleittU' stu<fni/^a - uertu/me<£f
24. desembet*
MIÐI NR
1 Volkswagen Bjalla
Verðmæti 1.800.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla upp I íbúo |
Verðmæti 1.000.000 kr.
Ktabbameins-
íélagsins
http://www.
krabb.is/happ/
158 Úttekt hjá ferðaskrifstofu
eða verslun
Verðmæti 100.000 kr.
ÉkkCI
verðmíeti 18,6
milljónir krónn
Fjöldi útoef'nna