Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 71
FRÉTTIR
Félagsdeild-
ir VG í öll
kjördæmi
FRÁ síðasta landsfundi Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboðs
hefur verið unnið að því að koma á
fót félagsdeildum í kjördæmum
landsins og auka þannig tækifæri
stuðningsmanna flokksins til félags-
1 legs starfs og áhrifa.
Félagsdeildirnar hafa það hlut-
verk að vera vettvangur pólitískrar
umræðu heima fyrir og taka á mál-
um sem brenna á heimamönnum á
hverjum stað. Mikill áhugi er á stofn-
un þessara deilda ekki síst nú þegar
sveitarstjómarkosningar nálgast,
segir í fréttatilkynningu.
Á síðustu vikum hafa bæst við fé-
lagsdeildir VG í Kópavogi, Hafnar-
firði, á Ólafsfirði, Dalvík og á Héraði.
Eftir áramót er fyrirhugað að stofna
félagsdeildir á austanverðu Suður-
landi og víðar. Þeim, sem áhuga hafa
á að taka þátt í starfi Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs á
heimaslóðum, er bent á að hafa sam-
band við viðkomandi kjördæmisfélag
og kynna sér fyrirhugaða stofnfundi
félagsdeilda í kjördæminu.
---------------
Ný umferðar-
ljós
KVEIKT verður á nýjum umferðar-
ljósum þriðjudaginn 5. desember kl.
14 á gatnamótum Gullinbrúar -
Strandvegar- Hallsvegar.
Þetta eru umferðarstýrð ljós
þannig að gangandi vegfarendur
geta þurft að ýta á hnapp til að fá
grænt ljós yfir Strandveg.
P^Ur dagbok logreglunnar
Mikið um stimp-
ingar og slagsmál
Helgina 1.-3. desember
MJÖG mikill erill var hjá lögreglu
um helgina vegna ölvaðs fólks.
Mikið var um stimpingar og
slagsmál sem kærð voru sem
líkamsárásir. Meiðsli voru yfir-
leitt minni háttar en margir voru
þó fluttir á slysadeild. í nokkrum
tilfellum var um að ræða átök
milli dyravarða og gesta á veit-
ingahúsum.
Þá var mikið um tilkynningar
um ónæði frá ölvuðu fólki og
skemmdir af þess völdum.
59 umferðaróhöpp
Á föstudag og laugardag gerði
lögreglan í Reykjavík sérstakt
átak í að kanna ástandið í umferð-
inni. Lögreglumenn voru á mörg-
um stöðum víða um borgina og
stöðvuðu um fimm hundruð bíla,
könnuðu ökuréttindi ökumanna,
ástand bifreiðanna og bentu öku-
mönnum á það sem betur mætti
fara. Mest þurfti að benda mönn-
um á ljósabúnað sem var áfátt en
eins var nokkuð um að menn
höfðu ekki áttað sig á að ökuskír-
teini þeirra voru útrunnin. Öku-
menn voru ekki sektaðir nema um
alvarlegri brot væri að ræða.
Um helgina voru 13 ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur og
32 um of hraðan akstur. Þá var
tilkynnt um 59 umferðaróhöpp
með eignatjóni.
Síðdegis á föstudag var bifreið
ekið austur Vesturlandsveg frá
Keldum á röngum vegarhelmingi
og á bifreið sem var ekið vestur
Vesturlandsveg. Ökumenn beggja
bifreiða voru fluttir á slysadeild
en ekki taldir alvarlega slasaðir
enda báðir í bílbeltum.
Snemma á laugardagsmorgun
varð bílvelta á Vesturlandsvegi á
Kjalarnesi. Ökumaður kvaðst
hafa sofnað og endaði bifreiðin á
hvolfi ofan í skurði. Ökumaður
meiddist lítið. Aðfaranótt sunnu-
dags var tilkynnt um að bifreið
hafi verið ekið á ljósastaur og
væri ökumaður fastur í bílnum.
Þarna hafði bifreið verið ekið
austur Vesturlandsveg og á ljós-
astaur sem er á milli akbrautanna
vestan við Höfðabakka. Bifreiðin
skemmdist mikið og þurfti tækja-
klippur til þess að ná ökumannin-
um út úr henni. Ökumaðurinn
meiddist lítils háttar og var hann
fluttur á slysadeild með sjúkra-
bifreið. Hann kvaðst hafa sofnað
undir stýri.
Snemma á sunnudagsmorgun
var bifreið ekið á ljósastaur á
Sæbraut. Ökumaður reyndist
ómeiddur en farþegi fékk skurð í
andlit og var fluttur á slysadeild
með sjúkrabíl. Ökumaður var
grunaður um ölvun við akstur.
Tilkynnt var um að jeppabifreið
hefði verið ekið á ljósastaur á
Fifuseli seint á sunnudagskvöld.
Ökumaður var grunaður um ölvun
við akstur.
Nokkrir fleiri harðir árekstrar
urðu um helgina og fólk úr bílun-
um flutt á slysadeild með minni
háttar meiðsli.
Snemma aðfaranótt mánudags
var tilkynnt um innbrotsboð frá
fyrirtæki í Skeifunni. Búið var að
brjóta rúðu og þar var einnig opin
hurð. Saknað var tölvubúnaðar og
peninga. Tilkynnt var um nokkur
önnur innbrot um helgina en þar
var litlu eða engu stolið.
Hyóp á brott
með þvottinn
Á sunnudagsmorgun tilkynnti
kona um að hún hafi komið að
manni inni í sameiginlegu þvotta-
húsi í húsinu. Maðurinn var þá við
þvottavél hennar að taka út þvott.
Maðurinn hljóp á brott en missti
eitthvað af þvottinum á flóttanum.
Kona rann til í feiti í eldhúsi á
föstudagskvöld og virtist hafa
snúið sig á ökla og brennst. Hún
var flutt á slysadeild með sjúkra-
bifreið. Þetta minnir á nauðsyn
þess að umgangast heita feiti með
mikilli varúð og aðgæslu.
Nokkrum sinnum aðstoðaði lög-
reglan fólk sem hafði dottið á
hálku. Víða var mun meiri hálka á
götum og gangstéttum en virtist í
fljótu bragði.
Beðið var um aðstoð lögreglu í
austurborgina aðfaranótt sunnu-
dags vegna manns sem var al-
blóðugur í andliti utandyra. Þarna
hafði maður tapað leigubíl til ann-
ars manns en sá þakkaði fyrir sig
með því að sparka í hinn sem fékk
áverka á auga og kinnbein.
Maður barinn
á veitingahúsi
Tikynnt var að maður hefði ver-
ið barinn innandyra á veitinga-
húsi í miðborginni. Hann var
fluttur á slysadeild og talinn hafa
fengið höfuðáverka. Arásarmaður
fannst ekki.
Maður tilkynnti að þrír menn
hefðu ráðist á hann á Gullengi að-
faranótt sunnudags, slegið hann í
höfuðið og stolið af honum veski
með peningum. Árásarmennirnir
fundust ekki. Snemma á sunnu-
dagsmorgun var tilkynnt um að
maður hafi orðið fyrir líkamsárás
á Suðurlandsbraut og hann væri
meývitundarlítill.
Árásarmaðurinn var handtek-
inn á vettvangi og fluttur i fanga-
móttöku. Árásarþoli var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild og
var illa farinn í andliti, sennilega
með brotin andlitsbein.
Þrír ölvaðir menn komu inn í
verslun í austurborginni snemma
á sunnudagsmorgun. Er starfs-
maður hugðist vísa þeim út lamdi
einn þeirra hann í höfuðið með
flösku. Starfsmaðurinn var hrufl-
aður á höfði og með glóðarauga.
Árásarmennirnir fundust ekki.
Óska aðstoðar vegna
manns með hníf
Aðfaranótt sunnudags óskaði
dyravörður á veitingahúsi aðstoð-
ar vegna manns sem var með
stóran hníf. Lagt var hald á verk-
færi sem var mitt á milli sveðju og
sverðs. Maðurinn sagðist nauð-
synlega þurfa svona verkfæri til
að geta verið inni á staðnum.
Starfsmenn kirkju-
garðanna til aðstoðar
EINS og undanfarin ár munu
starfsmenn Kirkjugarðanna að-
stoða fólk sem kemur til að huga
að leiðum ástvina sinna. Á Þor-
láksmessu og aðfangadag verða
starfsmenn í Fossvogskirkjug-
arði, Gufuneskirkjugarði og Suð-
urgötugarði og munu þeir í sam-
ráði við aðalskrifstofu í Fossvogi
og skrifstofu í Gufunesi leiðbeina
fólki eftir bestu getu.
Aðalskrifstofan í Fossvogi og
skrifstofan í Gufunesi eru opnar
báða dagana, á Þorláksmessu og
aðfangadag, kl. 9-15. Þeim sem
ætla að heimsækja kirkjugarð-
ana um jólin og eru ekki öruggir
um að rata er bent á að leita sér
upplýsinga í síma aðalskrifstofu
kirkjugarðanna í Fossvogi 551
8166 eða síma skrifstofu
kirkjugarðanna í Gufunesi 587
3325 með góðum fyrirvara. Einn-
ig getur fólk komið á skrifstof-
una alla virka daga frá kl. 8.30 til
16 og fengið upplýsingar og rat-
kort.
Lögð er áherlsa á að fólk nýti
sér þessa þjónustu með góðum
fyrirvara því það auðveldar mjög
alla afgreiðslu. Þá eru það ein-
dregin tilmæli til fólks að nota
bílastæðin og fara gangandi um
garðana.
Bent skal á að Hjálparstofnun
kirkjunnar verður með kertasölu
í kirkjugörðunum á Þorláks-
messu og aðfangadag.
Heimasíða: http://
www.kirkjugardar.is/
LEIÐRÉTT
Laufabrauðsuppskrift leiðrétt
í jólablaðauka Morgunblaðsins,
Jólin 2000, sem út kom á laugardag,
slæddist villa inn í uppskrift að laufa-
brauði á bls. 12. í stað 5-6 ml af mjólk
átti að standa 5-6 dl (desilítrar) af
mjólk. Beðist er velvirðingar á þess-
ari misritun.
Myndatexti í Lesbók
í myndatexta með greininni Vorið
er eins og hvítvoðungur í Lesbók sl.
laugardag rugluðust nöfn þeirra sem
á myndinni eru, en þau eru frá
vinstri talið: Suncana Slamning,
Ásta Schram, Herbjörn Þórðarson,
Keith Reed, Helga Magnúsdóttir,
Júlía Wramling og Þorbjöm
Rúnarsson.
Textar víxluðust
Vegna mistaka við vinnslu blaðs-
ins víxluðust skýringartextar á töflu
um ársskýrslu ríkislögreglustjóra
árið 1999. Hér er taflan birt rétt.
UR SKYRSLU RIKISLOGREGLUSl
4500 Fjöldi brota
4000
1998 1999 1998 1999 1998 1999 1998 1999 1998 1999
Kynferðis- Fíkniefna- Brotá Eignaspjöll Líkams-
brot mál* áfengislögum meiðingar
* Pað athugist að fiknietnamál sem komu upp hjá tollgæslunni á Keflavikurflugvelli og tollgæslunni i
Reykjavik em skráð hjá lögreglustjóranum í Reykjavik á yfirlitinu hér aðofan. Helgast það af þviað
rannsóknarjsáttur málanna er hjáþvi embætti.___________________________________________
R A Ð A U G LÝ S 1 i 1 \l G A R
TILKYNNINGAR
HEYRNARLAUSRA
Jólakortasala
Hin árlega jólakortasala Félags Heyrnarlausra
er hafin. Með þökk fyrir veittan stuðning.
TIL SÖLU
Tækifæri
Til sölu lítil og þekkt gjafavöruverslun
með frumlegum og fallegum smávörum, og
húsbúnaði.
Upplýsingar gefur Ragnar Tómasson,
sími 896 2222.
Prentvélar og tæki
Til sölu Heidelberg GTO 36x52, árgerð 1994.
Kraus skurðarhnífur, Citoborma 150 bor og
ýmislegt fleira. Upplýsingar í síma 696 5268.
FÉLAGSSTARF
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Garðabæ
Aðalfundur Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Garðabœ verður haldinn þriðjudaginn
12. desember nk. kl. 20.00 á Garðatorgi 7.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri, fjallar um
helstu verkefni framundan.
3. Önnur mál.
Stjóm Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna i Garðabæ.
SMÁAUGLÝSINGAR
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Myndasýning í F.í. salnum
miðvikud. 6. des. kl. 20.30.
Valgarður Egilsson sýnir
myndir úr Héðinsfirði og ná-
lægum eyðibyggðum og ein-
nig úr eyðibyggðum austan
mynnis Eyjafjarðar. Allir vel-
komnir, aðgangseyrir 500.
Gönguferðir alla sunnudaga
til jóla, fylgist með auglýsing-
um.
Áramótaferð í Þórsmörk
31. des.—2. jan. Fögnum nýju
ðri í faðmi jökla og fjalla.
Gönguferðir, leikir, varðeldur og
flugeldar. Allir velkomnir.
Bókið tímanlega.
www.fi.is. textavarp RUV bls. 619.
Sfmi á skrifstofu 568 2533.
FÉLAGSLÍF
AD KFUK, Holtavegi 28
Fundurinn f kvöld fellur niður
vegna boðs í AD KFUM fimmtu-
daginn 7. desember kl. 20.00.
www.kfum.is
I.O.O.F.Rb.4 = 1501258-81/2.0*
□ HLÍN 6000120519 VI
□EDDA 6000120519 III Frl 1