Morgunblaðið - 05.12.2000, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 79
SVO byrja ljósmyndarar að
smella af í gríð og erg, og inni
bíða minni stjörnur eftir að
hitta þær stærri sem koma á loka-
mínútunni.
Brátt hefst sjónvarpsútsendingin
beint frá Théatre de Chaillot í París,
sem íslendingar gátu séð á Stöð 2 á
laugardagskvöld. Fyrstur allra fær
Ingvar E. Sigurðsson áhorfenda-
verðlaun sem besti leikarinn og ann-
ar vinningshafínn er einnig Islend-
ingur; Björk fær áhorfendaverðlaun
sem besta leikkonan og Lars von
Trier er kosinn besti leikstjórinn.
Afram rúllar athöfnin undir stjóm
kynnanna Rupert Everetts og Ant-
oine De Caunes og misskiljanlegra
gamanmála þeirra, á meðan áhorf-
endum verður sífellt heitara undir
sjónvarpsljósunum.
Allt endar þó á rétta vegu; Björk
og Lai-s hljóta verðlaun fyrir besta
kvenhlutverkið og bestu kvikmynd-
ina, en því miður komst Björk ekki á
athöfnina, þai' sem hún er að leggja
lokahönd á plötuna sína Domestika í
New York, og Lars er heima í Dan-
mörku fastur íyrir framan sjónvarpið
vegna sinnar þekktu ferðafælni.
Gamall og vitur Harris
Það er ys og þys í salnum eftir að
útsendingu er lokið. Allir vilja óska
æstum og brosmildum sigurvegur-
unum til hamingju. írski leikarinn
Richard Harris þrammar af sviðinu
og aftur til sætis síns, þar sem gull-
falleg kona og lítil telpa bíða hans.
Karl er ánægður með verðlaunagrip-
inn sinn en kvartar sáran undan því
að hafa aldrei fengið verðlaun áður.
„Ekki það að ég hafí aldrei unnið áð-
ur, ég hef aldrei verið tilnefndur!"
segir hann við blaðamann. Hann er
víst búinn að gleyma mörgum til-
nefningum sem besti leikarinn til
margra virtustu verðlaunanna í
bransanum, m.a. tvisvar til Óskars-
ins, og unnið bæði Golden Globe og í
Cannes þótt það hafi reyndar verið á
sjötta áratugnum.
Harris er enn í fullu fjöri og segist
hafa verið að klára mynd sem tekin
var upp í Liverpool og heitir My
Kingdom. „Svo er ég að fara að leika í
Harry Potter og fæ þar hlutverk pró-
fessors Dumbledore, sem er mjög
gamall og vitur maður,“ segii- hinn
gamli og vitri Richard Harris og er
þotinn, ef ekki á klósettið, en sam-
kvæmt þakkarræðunni var honum
mjögmál.
Á leiðinni úr salnum og inn í veislu-
salinn rekst blaðamaður á Vibeke
Windelpv kvikmyndaframleiðanda
hjá Zentropa sem tók við verðlaun-
unum fyrir bestu myndina. Vibeke
framleiddi Riget II, Breaking the
Waves, Idioteme auk Dansarans fyr-
ir Lars og hún sagðist ekki hissa á að
þessi mynd hafi átt ótrúlegum vin-
sældum að fagna. „Eg var alltaf viss
um að samstarf Bjarkar og Lars hlyti
að verða frábært, þótt það hafi verið
mjög erfitt. Það breytir því ekki að
myndin sem þau gerðu saman er
sannkallað meistaraverk."
íslendingar fengu þrjár styttur á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum
Mesta viðurkenning
sem við höfum fengið
Löngu áður en fyrstu kvikmyndastjörnurn-
ar mæta á afhendingu Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna eru aðdáendur búnir
að raða sér í kringum rauða dregilinn, til-
búnir að hitta goðin. Hildur Loftsdóttir
gekk inn og fylgdist með athöfninni.
Katalóníubúinn Sergi og Islendingurinn Ingvar eru bestu leikararnir.
Stellan veifar fernum verðlaunum Bjarkar og Lars.
- Fær Dansarinn fleiri verðlaun ?
„Það væru þá bandarísk verðlaun;
Goíden Globe eða Óskarinn. Það er
hins vegar erfitt þar sem myndin er á
ensku, og við getum ekki keppt sem
besta erlenda kvikmyndin. Við hefð-
um t.d. átt góða möguleika með
Breaking the Waves, en þurftum að
keppa á móti bandarískum myndum
og við vitum öll hversu mikla peninga
þær leggja í auglýsingar. En vonandi
eigum við möguleika á Golden
Globe,“ segir Vibeke brosandi.
Þrenn og hálf verðlaun
Blaðamaður gengur inn í stór-
glæsilegan veislusalinn, þéttsetinn af
kvikmyndagerðarfólki með kampa-
Evrópsku kvikmyndaverðiaunin
Verðlaun ■ Verðlaunahafar
árið 2000
Besta kvikmynd: Dancer in the Dark - eftir Lars von Trier ,.#S»
Besta leikkona: Björk - Dancer in the Dark
Besti leikari: Sergi López - Harry, un ami qui vous veut du bien
Bestu handritshöf.: Agnes Jaoui og Jean-Pierre Bacri - Le Gout Des Autres
Besti kvikmyndatökumaður: Vittorio Storaro - Goya En Burdeos
Áhorfendaverðlaun:
Besti leikstjórinn: Lars von Trier - Dancer in the Dark
Besta leikkonan: Björk - Dancer in the Dark
Besti leikarinn: Ingvar E. Sigurösson - Englar alheimsins
Önnur verðlaun:
Heiðursverðlaun fyrir ævistarf: Richard Harris
Verðlaun fyrir framtak í alþjóða kvikmyndagerð: Jean Reno
Fipresci verðlaun gagnrýnenda: Nuri Bilge Ceylan - Mayis Sikintisi
Fassbinder verðl., uppgötvun ársins: Laurent Cantet - Resources Humaines
UIP stuttmyndaverðlaun: Livia Gyarmathy - A mi gólyánk «
ARTE heimildamyndaverðl.: Agnes Varda - Les Glaneurs et la Glaneuse
Screen International verðlaun: Wong Kar-wai - In the Mood for Love
vínsglas í hönd, þar sem glæsilegt út-
sýnið blasir við; Eiffel-tuminni upp-
lýstur í allri sinni dýrð.
íslendingarnir í hópnum eru í góðu
skapi, stoltir af sínu fólki. Þai- má sjá
akademíumeðlimina Hrafn Gunn-
laugsson og Friðrik Þór Friðriksson,
sem kom með Önnu Maríu Karls-
dóttui-, Þorfinn Ómarsson hjá Kvik-
myndasjóði og einhvers staðar leyn-
ast svo auðvitað Ingvar og Edda
Amljótsdóttir eiginkona hans.
Bjarkar er hins vegar sárt saknað.
- Porfínnur, hvar er Ingvar?
„Hann er frammi í myndatöku, þú
verður að bíða aðeins.“
- Hvernig líst þér annars á
frammistöðu íslendinganna?
„Stórkostlega. Við eigum ekki
bara tvo fyrstu vinningshafana held-
ur fær Björk aftur verðlaun í lokin,
og líka myndin sem hún ber uppi. Við
vitum það að Dancer in the Dark
væri ekkert án hennar, þannig að við
eigum talsvert í þeim verðlaunum og
fengum því allavegana þrenn og hálf
verðlaun. Ég myndi segja að þetta
væri ein sú mesta, ef ekki allra
mesta, viðurkenning sem við höfúm
fengið á kvikmyndasíðunni."
- Er íslensk k\ikmyndagerð á
hraðri uppleið?
„Já, vonandi, en það er erfitt að
segja til um. Ef framhaldið verður
gott, emm við í góðri aðstöðu til þess
að þær myndir fái athygli, þetta
hjálpast allt að. Ég myndi segja að
við væmm loksins komin algjörlega
inn. Þrjár myndir frá okkur vom til-
nefndar, fjórar tilnefningar og það
var stórfrétt að fá bara tilnefningam-
ar, en svo tökum við þrjár styttur
heim. Það er ekki amalegt,“ segir
Þorfinnur stoltur.
Mikill þjóðrembingur
Á vappi í veislunni, þar til Ingvar
hefur lokið myndatökunni, leggur
blaðamaður við hlustir um miklar
Richard Harris með einu verð-
launin sem hann man eftir að
hafa hlotið.
vangaveltur um sigurvegarana, um
fyrirkomulag athafnarinnar og hvað
megi betur fara. Sama hvaðan veislu-
gestir em, allir hafa sitt álit á málun-
um, og það hefur Friðrik Þór Frið-
riksson einnig.
„Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
era uppskeruhátíð, þar sem flestar
góðar myndir fá einhverjar útnefn-
ingar,“ útskýrir Friðrik Þór. „Það
endar svo með að eitt þúsund með-
limir Evrópsku akademíunnar kjósa.
Af þeim era 250 Frakkar og þeir ná
því fram sem þeir vilja. Sem betur fer
er Björk mjög vinsæl í Frakklandi.
Dancerin the Dark vann líka í Cann-
es og það þýðir ekkert fyrir danska
eða franska akademíumeðlimi að
hnika því, það kæmi óorði á þennan
félagsskap. Þetta em stærstu
evrópsku verðlaunin, því Cannes og
Berlin era alþjóðlegar hátíðir. En
það er alltaf mikill þjóðrembingur í
þessu, og mér finnst það galli. Mér
fyndist betra ef dómnefnd réði úrslit-
unum. Öll akademían fær hundrað
spóla með myndunum sem komast í
undanúrslit og ég þekki það bara
sjálfur að ég nenni kannski að horfa á
meirihlutann því ég er með Kvik-
myndahátíð í Reykjavík, en ég efast
um að Bernardo Bertolucci nenni
því,“ segir Friðrik Þór og glottir.
Eðlilegra að fá ekki verðlaun
Sænski leikarinn Stellan Skars-
gárd var einn af sex sem tilnefndur
var sem besti leikarinn. Hann tók á
móti styttunum fyrir Lars og Björk
þegar þau fengu áhorfendaverðlaun-
in. „Þetta er mjög skemmtilegt. Mér
finnst þau bæði frábær og er mjög
glaður fyrir þeirra hönd,“ segir Stell-
an, sem lék lítið hlutverk læknis í
Dancer in the Dark, aðalhlutverkið á
móti Emily Watson í Breáking the
Waves, og segir að þeir Lars séu að
tala um að vinna fljótlega aftm- sam-
an.
- Ertu leiður yfír því að vinna
ekki?
„Nei, ég hef unnið mörg verðlaun
og er alltaf glaður þegar ég hlýt þau,
en ekki leiður þegar ég fæ þau ekki.
Það er eðlilegra að fá ekki verðlaun,
því það era svo fá verðlaun og svo
mikið af fólki,“ sagði Stellan spakur.
Þessi kvikmyndaheimur er stór
Og þá er Ingvar laus í smáviðtal,
og blaðamaður spyr hvort þetta sé
mikill heiður fyrir hann.
„ Já... það er það áreiðanlega. Ég er
allavegana mjög hamingjusamur.
Mér fmnst fyrst og fremst heiður
að vinna svona sterkt hlutverk. Og ég
er búinn að fá þessi áhorfendaverð-
laun heima, ég finn það á viðbrögðun-
um og finnst það alveg frábært.
- Fattaðir þú strax að þú værir
búinn að vinna?
„Nei, ég hélt að ég væri bara einn
af fleiri tilnefndum og var ekki viss
hvort ég ætti að fara upp á svið. Ég
var með hnút í maganum en síðan
þegar ég var staðinn upp, var ég orð-
inn nokkuð öruggur á gangi, ha, ha.“
- Hvað heldurðu að þetta þýði fyr-
ir þigsem leikara?
„Ég veit það ekki,“ segir Ingvar
íhugull. „Þessi heimur er svo stór og
það er fljótt að snjóa yfir svona við-
burð ef ekkert meira gerist í fram-
haldi af þessu. Ég er svo sannarlega
ekki að búast við einhverjum meiri-
háttar tilboðum. Það hefur sýnt sig
að menn geti orðið stjömur á einu
kvöldi og síðan ekki meir.“
- Langar þig til að fá hlutverk er-
lendis?
„Það fer eftir viðfangsefninu. Ef
ég get dregið einhvem lærdóm af því
sem ég er að gera, finnst mér það
gott. Það góða við að leika í erlendri
mynd er að fá að leika á öðra tungu-
máli, eins og ég reyndi núna í haust
við tökur á Monster eftir Hal Hartl-
ey. Þar lék ég lítið hlutverk, en vissi
ekki hvort ég gæti komið öðra tungu- •
máli til skila, en það gekk upp og mér
fannst það frábært."
- En núna vita fleiri en íslendingar
að þú ert góður leikari...
„Hér í kvöld hafa margir í akadem-
íunni tekið í höndina á mér og sagst
hafa kosið mig, hvort sem það er satt
eða ekki. En við þekkjum það að
heiman að allir vilja koma sínum
manni að og atkvæðaréttur Islend-
inga er svo lítill miðað við Frakka. En
þeirra maður, Sergi López, er frábær
leikari, og ég er alls ekki spældur yfir
því að hafa ekki fengið aðalverðlaun-
in,“ segir Ingvar og fer að spjalla við
evrópska kollega sína.
Meiriháttar lífsreynsla
Sergi López lék í myndinni Une
liaison pornographique, sem sýnd
var á Kvikmyndahátíð í ár, og í
myndinni Western, sem Regnboginn
sýndi í fyrra. Sergi var orðinn svolítið
þvældur í lok kvöldsins þar sem hann
raðar i sig Ijúfum veitingum og biður
þjóninn um meira kampavín. Hann
er enn með sigurbros á vör þrátt fyr-
ir allar myndatökumar og endalaus-
ar hamingjuóskir, sem hann er búinn
að taka við.
„Ég er hæstánægður," segir hann
brosandi og talar frönsku með undar-
legum hreim. „Harry er meira en
mjög sérstakt hlutverk fyrir mig, en
mér var fyrst boðið annað hlutverkið
í myndinni, sem mér fannst frábært,
en þegar við byrjuðum að æfa fékk
leikstjórinn þá hugmynd að láta mig
leika Han-y og það reyndist alveg
meiiiháttar lífsreynsla."
- Er Harry öðruvísi en önnur hlut-
verk sem þú hefurfengist við?
„Já, ég veit ekki af hverju en fólk
hefur alltaf fengið mig til að leika
traustvekjandi náunga, en hlutverk
Harry er allt annað en traustvekj-
andi, sem var fín tilbreyting. “
- Ertu með spænskan hreim ?
„Já, ég er frá Katalóníu og bý í litlu
þorpi ekki svo langt frá Barcelona.
Katalónía er í rauninni lítiðland sem
vill öðlast sjálfstæði, alveg eins og
ísland gerði,“ segir þessi geðþekki
leikari brosandi. Stuttu seinna röltir
hann út í regnvota Parísamóttina, og
þarf vart að veifa hendi til að fá limm-
ósínu í sína þjónustu frekar en aðrar
kvikmyndastjörnur á Evrópsku
kvikmyndahátíðinni.
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
V/SA
œmmm