Morgunblaðið - 05.12.2000, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000 83
ATH. Man Utd og Snatch eru sýnd í Re
Strákarnir á Borginni komnir á geisladisk
Strákarnir sívinsælir
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Bergþór og Helgi í ham á Borginni.
I KVÖLD munu Strákarnir á
Borginni, þeir Bergþór Páls-
son og Helgi Björnsson, halda
útgáfutónleika í Borgar-
leikhúsinu í tilefni af nýút-
komnum geisladiski með völd-
um lögum úr
skemmtidagskránni sem hald-
in hefur verið fyrir fullu húsi
á Hótel Borg undanfarna
mánuði.
„Við fórum mjög víða í efn-
isvali,“ sagði Helgi aðspurður
„og blöndum saman ólíkustu
sönglögum, - þó grunnlögin séu
frá tfma Ragga Bjarna, Hauks
Morthens og Sinatra. Við krydd-
um það siðan með lögum héðan
og þaðan, bæði ftölskum [óperu-
[sönglögum og rokklögum."
Það hefur verið uppselt á
skemmtidagskrána allt frá því
hún hófst, 19. ágúst sfðastliðinn.
Strákarnir hafa komið fram föstu-
daga og laugardaga og haldið
uppi stemmningu eftir borðhald.
Að sögn Helga er nú svo komið að
uppselt er á sýninguna fram í
febrúar! Helgi segir efnis-
skrána hafa tekið litlum
breytingum frá upphafi, „þó
hefur eitt og eitt lag dottið
inn, þá mest fslensk dægurlög,
til dæmis Litla sæta Ijúfan
góð a“.
Það má með sanni segja að
þessi kokteill, þar sem bland-
að er saman óperusöngvaran-
um Bergþóri og rokkaranum
Helga, hafí lukkast með ólík-
indum vel. Að loknum út-
gáfutónleikunum, sem vafalít-
ið munu gera mikla lukku,
hyggjast strákarnir skreppa út
fyrir borgarmörkin: „Við ætlum
fyrst á Borg í Grímsnesi og ætlum
helgina þar á eftir að skemmta á
[Hótel] KEA ..þar sem við verðum
Ifklega Strákarnir frá Borginni."
Dudley Moore í opinskáu viðtali
Á ekki langt eftir
í HJARTNÆMU viðtali í
sjónvarpsþætti hjá BBC
sagðist Dudley Moore ekki
eiga langt eftir ólifað. Leik-
arinn, sem er mörgum minn-
isstæður sem hinn drykk-
felldi auðkýfingur Arthur, í
samneíndri kvikmynd, og
sem Horton, í kvikmyndinni
„Blame it on the Bellboy",
hefur um nokkurt skeið þjáðst af
sjaldgæfum taugahrömunarsjúk-
dómi. „Það er algjörlega á huldu
hvemig þessi sjúkdómur ræðst á fólk,
étur það upp, og spýtir því síðan út,“
sagði leikarinn. „Ég hugsa
oft með mér: „Af hverju
varð ég íyrir barðinu á hon-
um?“ og get ekki sætt mig
við sjúkdóminn því ég veit
að hann mun draga mig til
dauða.“
Dudley var í sjónvar-
psviðtali vegna nýrrar
heimildarmyndar sem fjall-
ar um leit hans að kammerverki sem
hann samdi á námsáram sínum.
„Tónlistin er mín eina huggun,“ sagðir
leikarinn sem gladdi hjarta svo
margra um heim allan á áram áður.
VINSÆLUSTU
MYNDBÖNDIN
A ISLANDI ií ! „
Nr. var vikur; Mynd Útgefandi Tegund
1. NÝ 1 i Gladiator Sam myndbönd Spenna
2. 1. 2 : American Psycho Sam myndbönd Spenna
3. 2. 3 | Three To Tango Sam myndbönd Gaman
4. NY 1 | Frequency Myndform Spenna
5. 3. 2 j The Next Best Thing Hóskólabíó Gaman
6. 8. 2 ; Hanging Up Skífan Gaman
7. 4. 3 ; Reindeer Games Skífan Spenna
8. 5. 5 i Erin Brockovich Sk'rfan Drama
9. 7. 7 : Englar alheimsins Hóskólabíó Drama
10. 6. 4 1 The Skulls Sam myndbönd Spenna
11. 10. 2 1 Maybe Baby Góðar stundir Gaman
12. 9. 7 ; Deuce Bigalow: Male Gigolo Sam myndbönd Gaman
13. NÝ 1 i Ordinary Decent Criminal Skífan Spenna
14. 11. 5 i The Ninth Gate Sam myndbönd Spenna
15. 12. 4 i Superstar Sam myndbönd Gaman
16. 14. 2 i Love and Basketball Myndform Drama
17. 18. 6 : Mission To Mars Myndform Spenna
18. 20. 2 ! What Planet Are You From? Skífan Gaman
19. Al 6 ! Boys Don't Cry Skífan Drama
20. 13. 3 ! Where the Heart Is Myndform Gaman
Skylmingaþrællinn rifinn út á myndbandaleigum landsins
Að höggva þræl o g annan
Reutcrs
Skylmingaþrællinn Maximus var á dögunum valinn kynþokkafyllsta
bíómyndapersóna allra tíma af lesendum tímaritsins Empire.
SKYLMINGAÞRÆLLINN eða
Gladiator er sannarlega í hópi mynda
sem einkenna munu kvikmyndaárið
sem nú er senn á enda. Þessi sögulega
hetjusaga af rómverska stríðsforingj-
anum sem bolað er frá völdum og
hnepptur er í ánauð en vinnur á ný til
metorða með því að gera það sem
hann gerir best, að höggva mann og
annan. Það má svo gott sem fúllyrða
að enginn bjóst við því að myndin
myndi ganga svo vel upp, en hún hef-
ur hvarvetna hlotið prýðis viðtökur,
jafnt hjá gagnrýnendum sem almenn-
um bíógestum. Hún hefur skotið aðal-
leikaranum Russell Crowe hærra upp
á stjömuhimininn, þar sem hann situr
nú í hæstu hæðum, og, það sem
kannski er meira um vert, endurvakið
traust í garð leikstjórans Ridleys
Scotts, ótvíræðs hæfileikamanns, sem
fram að myndinni hafði ekki átt sjö
dagana sæla.
Vissulega er hér ekki á ferð nein
greinargóð söguskýring. Myndin er
miklu frekar ævintýri sem á sér stað á
sögulegum tímum rómverska heim-
sveldisins. Vegna hins ríka skemmt-
anagildis sem hún býr yfir hefur hún
hinsvegar vakið áhuga margra ung-
menna á þessu tímabili í sögunni og
jafnvel á mannkynssögunni almennt -
nokkuð sem hlýtur að teljastjákvætt.
í Qórða sætið kemur inn vísinda-
skáldsagan Frequency, eða Bylgju-
lengd, með Dennis Quaid í aðalhlut-
verki. Myndin, sem leikstýrt er af
Gregory Hoblit (Fallen og Primal
Fear), fjallar á nýstárlegan máta um
tímaflakk og þá möguleika sem fyrir
hendi era ef manninum er gert kleift
að skreppa um stund aftur í tímann.
Dennis Quaid leikur slökkviliðsmann
sem lætur lífið við störf árið 1969.
Þegar sonur hans nær sambandi við
fortíðina með aðstoð gamallar tal-j
stöðvar reynir hann hvað hann getur
til þess að koma í veg fyrir dauðsfall
föður síns og hið eilífa kapphlaup við
tímann hefst.
BflrNYJWLKHD
Keflavik - simi 421 1170 - samfilm.is