Morgunblaðið - 05.12.2000, Side 88
V
Leitid upplýsinga í sima 520 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNU, MREYIUAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2000
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK.
Skipt um
dekk í
Hafnarfirði
SLITIN dekk voru í gær fjarlægð af
bryggjukantinum í Hafnarfjarðar-
höfn og „ný“ dekk sett í staðinn, en
að sögn Ingva Einarssonar hafnar-
varðar í Hafnarfírði er skipt um
dekk í höfninni á um það bil þriggja
ára fresti. Dekkin á bryggjukantin-
um skipta hundruðum og eru þau
fengin á dekkjaverkstæðum og er
yfirleitt notast við notuð dekk af
vörubflum og dráttarvélum.
Stefnuyfirlýsing
grunnskólakennara
og sveitarfélaga
Ætla
að semja
fyrir jól
FORMENN samninganefnda Fé-
Jags grunnskólakennara, Skóla-
Jístjórafélags íslands og launanefndar
sveitarfélaga stefna ákveðið að því
að ljúka gerð kjarasamnings vegna
grunnskólans fyrir jól.
í gær kynntu samningsaðilar
stefnuyfirlýsingu sem samkomulag
hefur náðst um og á að leggja til
grundvallar í væntanlegum kjara-
samningi, þar sem sett eru fram
langtímamarkmið í grunnskóla-
starfi. Enn er þó ósamið um launa-
breytingar í væntanlegum samningi
og um fjölmörg önnur atriði sem
samningsaðilar leggja áherslu á, s.s.
um lengingu starfstíma í skólum og
um endurskilgreiningu á vinnutíma
og vinnuskyldu kennara. Forsvars-
menn samninganefndanna hafa end-
-^urskoðað viðræðuáætlun og stefna
að því að ná saman um meginmark-
mið væntanlegra samninga fyrir 15.
desember. í lokaáfanga viðræðn-
anna verður tekist á um launabreyt-
ingar o.fl. Er í áætluninni gert ráð
fyrir að textavinnu við nýjan samn-
ing verði lokið fyrir 23. desember.
Svigrúm til kjarabreytinga
I sameiginlegu stefnuyfirlýsing-
unni er m.a. lögð áhersla á að koma á
kerfisbreytingu í skólum, m.a. með
nýjum áherslum í störfum kennara
og skólastjómenda og að skapa
svigrúm til kjarabreytinga. Samn-
ingsaðilar hafa ákveðið að ráðast í að
bæta skólastarf með kerfisbreytingu
-,^em skapar ákveðið svigrúm til
lyarabreytinga og getur gert skól-
ann samkeppnisfæran og kennara-
starfið eftirsóknarvert.
■ Kerfisbreyting/42
Morgunblaðið/RAX
Ráðherrar sáttir við niðurstöðu landbúnaðarráðherra ESB
Banna ekki fískimjöl í
fóður svína og alifugla
ÁFRAM verður heimilt að nota fiski-
mjöl í fóður fyrir svín, alifugla og
fiska. Var það niðurstaða Evrópu-
sambandsins og kom fram í gær að
stefhubreytingin hefði ekki síst orðið
vegna breyttrar afstöðu Frakka sem
fyrstir þjóða höfðu bannað notkun
dýramjöls í skepnufóður. Áfram verð-
ur bannað að nota allt dýramjöl í fóð-
ur nautgripa, kinda og geita en það
hefur h'tíl áhrif á fiskimjölsiðnaðinn
hér á landi þar sem einungis um 4% af
framleiðslunni hafa farið í það.
Landbúnaðarráðherrar Evrópu-
sambandsins samþykktu á fundi í
Brussel í gær að undanskilja fiskimjöl
frá allsherjarbanni við dýramjöli í
skepnufóðri. Er það gert með þeim
rökum að fiskimjöl sé ekki hættulegt
og að einfalt sé að greina það, ólíkt
öðru dýramjöli.
Fram kom hjá Ritt Bjerregaard,
matvælaráðherra Dana, að ákvörðun-
in í gær væri ekki síst tfl komin vegna
stefnubreytingar Frakka en danskir
embættismenn segja að hún hafi beitt
sér mjög í málinu. íslenskir embætt-
ismenn og ráðherrar hafa einnig gert
það.
Fullur sigur
„Ég er nyög ánægður og sýnist að
hún þýði nánast fullan sigur fyrir okk-
ur,“ segir Davíð Oddsson forsætisráð-
herra um niðurstöðu Evrópusam-
bandsins. Halldór Ásgrímsson telur
að niðurstaðan sé viðunandi miðað við
aðstæður. Hann segir þó slæmt að
fiskimjöli skuli enn vera blandað inn í
umræðuna en komið hafi fram að það
sé eingöngu vegna ótta við að öðrum
mjöltegundum sé blandað saman við
það.
„Þessi niðurstaða er mjög jákvæð
fyrir fiskimjölsframleiðsluna hér á
Islandi, því mestur hluti þess fiski-
mjöls sem við erum að selja og fer í
skepnufóður, fer í svína- og kjúklinga-
fóður,“ segir Ami M. Mathiesen sjáv-
arútvegsráðherra.
Umrætt bann við notkun alls dýra-
mjöls í fóður jórturdýra og kjöt- og
beinamjöls í fóður svína og alifugla er
tfl komið vegna kúariðu og riðu. Það
tekur gildi 1. janúar næstkomandi og
gildir í sex mánuði. Samþykktin gerir
ráð fyrir að aðgerðir einstakra þjóða
tfl að banna dýramjöl eða kjöt verði
afnumdar. Til dæmis munu Frakkar
verða að aflétta banni við bresku
nautakjöti og dýramjöli.
Aðeins 4% af fiskimjöli sem íslensk
fyrirtæki flytja út fara í jórturdýra-
fóður, að sögn Jóns Reynis Magnús-
sonar, formanns Félags íslenskra
fiskmjölsframleiðenda, sem var
ánægður með niðurstöðuna í Brussel.
■ Landbúnaðarráðherrar/12
$>sr> 53Ö tSOO f&x 530 tftlt
Lyfja og Lyfjabúðir hf. sameinast
Til skoðunar hjá
Samkeppnisstofnun
LYFJA og Lyfjabúðir hf., dótturfé-
lag Baugs, sem rekur lyfjaverslanir
undir nafninu Apótekið, hafa gengið
frá samkomulagi um sameiningu og
að sögn Guðmundar Sigurðssonar
hjá Samkeppnisstofnun, hefur málið
verið tekið til skoðunar hjá stofnun-
inni. Guðmundur segir að Sam-
keppnisstofnun hafi skrifað viðeig-
andi aðilum bréf og óskað eftir
gögnum varðandi sameininguna.
I tilkynningu frá Lyfju og Lyfja-
búðum hf. segir að með sameining-
unni náist fram aukið hagræði sem
styrki stefnu um smásölu lyfja á lágu
verði og að sú mikla reynsla sem
fengist hafi af samkeppni á lyfja-
markaði hérlendis verði nýtt til
sóknar á erlenda markaði.
Baugur á 55%
Baugur mun eiga 55% hlutafjár í
sameinuðu félagi, en núverandi eig-
endur Lyfju um 45% og mun félagið
reka 16 lyfjabúðir um land allt, en
lyfjabúðir hérlendis eru 56 talsins.
Áætluð velta félagsins á þessu ári er
liðlega þrír milljarðar króna.
Rafmagnsleysi
á Skaganum
Allir út
að aka
RAFMAGNIÐ fór af Akranesi
rétt fyrir klukkan sjö í gær-
kvöld vegna bilunar í aðveitu-
stöð. Viðgerð tók um einn og
hálfan tíma.
Að sögn lögreglunnar var
mikil umferð um bæinn meðan
á rafmagnsleysinu stóð. Fólk
vildi greinilega frekar ganga
eða aka um bæinn til að sjá
hvað væri um að vera í stað
þess að hanga heima í raf-
magnsleysinu.