Morgunblaðið - 16.12.2000, Side 8
8 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Upplýst um skemmdarverk
í gamla kirkjugarðinum
UPPLÝST hefur verið hverjir
frömdu skemmdarverk í gamla
kirkjugarðinum við Suðurgötu í
Reykjavík seinni partinn í nóvem-
ber. Tveir drengir undir fimmtán
ára aldri og því ósakhæfir eru
grunaðir um athæfið. Málið telst
upplýst og fer til frekari meðferð-
ar hjá bamavemdaryfirvöldum.
Mikil spjöll vom unnin í kirkju-
garðinum við Suðurgötu aðfara-
nótt 22. nóvembers sL þar sem
skemmdarvargamir óðuðu máln-
ingu á legsteina og lágmyndir við
leiði. Legsteinn Jóns Sigurðsson-
ar forseta varð illa fyrir skemmd-
arfýsn drengjanna. I kjölfar þessa
mun garðurinn verða lokaður að
næturlagi og lýsing innan hans
bætt.
„ELSKAÐU
ÍSLENSKU KARTÖFLURNAR
í ALLRI SINNI ÓFRÝND,
EINS OG SJÁLFAN ÞIG“
Sannkölluð matarviskubók
„... umgjörð bókarinnar öll
er einstaklega vel heppnuð.
Þau eru mörg málin sem
Jóhanna tæpir á og yfirleitt
þannig að hreinasta unun er
að lesa textann. ...Yfirleitt
er skammt í brosið þegar
maður les athugasemdir
höfundar um ýmis málefni
og lífsgleði og matarástríða
skín í gegn á hverri síðu."
Steingrímur Sigurgeirsson,
Morgunblaðið 22.11.00.
Hratt oa mí
L, /
Morgunblaðið/RAX
Sturtaði
og valt
M AL ARFLUTNIN GABÍLLINN
sem sést á myndinni valt á hliðina
þegar ökumaðurinn var að „sturta“
farminum af. Ástæðan er líklega sú
að bíllinn var rangt hlaðinn. Atvik-
ið varð skammt ofan við Litlu kaffi-
stofuna á fimmtudag en þar er nú
unnið að vegabótum.
Ökumanninum var nokkuð
brugðið en hann slapp án meiðsla.
---------------------
Skilorðsbund-
ið fangelsi og
fésektir fyrir
lrkamsárás
TVEIR piltar um tvítugt voru á mið-
vikudag dæmdir í 12 og 20 mánaða
skilorðsbundið fangelsi, fyrir líkams-
árás, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Auk
þess þurfa þeir að greiða fómarlambi
sínu 300.000 krónur í miskabætur auk
þóknunar verjanda brotaþola, 45.000
krónur, og eigin verjenda, samtals
125.000 krónur.
Líkamsárásin átti sér stað á
Laugaveginum aðfaranótt sunnudags
í september 1998. Var mönnunum
gefið að sök að hafa slegið brotaþola,
sem er tvítugur, hnefahögg í andlitið
og sparkað í hann svo hann féll á
gangstétt, slegið hann mörg hnefa-
högg í andlitið og sparkað framan í
hann þar sem hann lá, með þeim af-
leiðingum að þrjár framtennur brotn-
uðu við rót auk þess sem hann hlaut
hruflsáríandliti.
í dómnum segir að árás ákærðu
hafi verið fólskuleg og hafi beinst að
piltinum þar sem hann lá vamarlítill á
gangstéttinni. Þó beri að líta til þess
að piltamir höfðu átt í heitingum fyrr
um daginn, svo og þess að líkamsárás-
in var unnin í áflogum milli piltanna.
Ragnheiður Bragadóttir, settur
héraðsdómari, tók tillit til ungs aldurs
ákærðu við ákvörðun refsingar. Þá
segir að með hliðsjón af því að óhóf-
legur dráttur hafi orðið á rannsókn
málsins og útgáfu ákæru þyki rétt að
fresta fullnustu refsingarinnar og
ákveða að hún falli niður að þremur
árum liðnum.
Ákærðu vom 17 og 19 ára þegar
árásin átti sér stað en þolandi hennar
var þá 18 ára. Hinir ákærðu höfðu áð-
ur hlotið refsidóm, annar þrívegis,
hinn tvívegis. Annar þeirra hefur m.a.
verði dæmdur til skilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir rán, auk dóma
fyrir þjófnað og ölvunarakstur. Saka-
ferill hins er einnig nokkuð langur,
hann hefur m.a. verið dæmdur fyrir
rán, þjófnað, fikniefnalagabrot og ölv-
unarakstur.
Sigmund í fríi
SIGMUND tekur sér frí um
helgina, en mætir aftur til leiks
í næstu viku.
Nýr aðstoðarmaður forsætisráðherra
Starfíð
mótast af þeim
sem sinnir því
NYLEGA var Illugi
Gunnarsson hag-
fræðingur ráðinn
aðstoðarmaður Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
herra. Hann kom í haust
frá MBA-námi í London.
Hann var spurður hvem-
ig hið nýja starf legðist í
hann?
„Það leggst mjög vel í
mig. Ég er þegar tekinn
til starfa, mætti á skrif-
stofuna á mánudaginn
var.“
- Hvert er verksvið
þitt?
„Starfinu fylgir engin
afmörkuð starfslýsing en
það felst í að aðstoða ráð-
herrann þannig að tími
hans nýtist sem best. Sem
dæmi get ég nefnt að ég
reyni að fylgjast vel með allri
pólitískri umræðu þannig að ég
geti veitt ráðherranum upplýs-
ingar um það efni ef hann óskar,
svo sem um efnahagsmál og
fleira. Ég þarf einnig að vera í
góðu sambandi við aðstoðar-
menn annarra ráðherra og fylgj-
ast með umræðum í nefndum og
fjölmargt fleira. Starf sem þetta
mótast óhjákvæmilega af þeim
einstaklingum sem sinna því
hverju sinni, þar sem ég er fyrir
svo skömmu kominn til starfa þá
er þetta enn tiltölulega opið allt.“
- Hefur þú komið nærri ráðu-
neytisstörfum áður?
„Nei, ekki með þessum hætti.
Ég var sumarpart starfsmaður
nefndar hjá menntamálaráðu-
neytinu, þar með er upptalin
reynsla mín af störfum innan
ráðuneytanna."
- Hvað heldur þú að nýtist þér
best af þinni fyrri reynslu íþessu
starfi?
„Ég tók mjög virkan þátt í
starfinu í Vöku, félagi^ lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, í HÍ. Eins var
ég formaður Heimdallar á árun-
um 1997 til 1998, ég hef því alltaf
haft mjög mikinn áhuga á stjórn-
málum. Svo vona ég að nám mitt
í hagfræði og MBA-námið komi
til með að nýtast ágætilega í
þessu starfi."
- Hver eru áhugamál þín fyrir
utan stjórnmálin?
„Ætli ég setji ekki tónlist í
fyrsta sæti. Ég spila á píanó þeg-
ar tækifæri gefst. Um jólin verð
ég t.d. organisti í kirkjunni vest-
ur á Flateyri, þannig að ég sit á
kvöldin núna og æfi jólasálma.
Ég hef líka alltaf verið mikill
áhugamaður um íþróttir. Ég
spilaði fótbolta með yngri flokk-
um á Siglufirði en læt núna duga
að fylgjast með íþróttaiðkunum
yngri bræðra minna.“
- Hvað áttu mörg systkinp.
„Þrjú, tvo yngri bræður og
yngri systur. Foreldrar mínir
eru Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
sem starfar hjá Hafnarfjarðarbæ
og ína Illugadóttir __________
sem vinnur hjá Hafn-
arfjarðarhöfn."
-Finnst þér margt
hafa breyst í efnhags-
legu umhverfi hér á
Islandi á þeim 2 árum
sem þú varst úti ínámi?
„Já, ég finn greinilegar breyt-
ingar og það til hins betra. Ann-
ars vegar hefur allur fjármála-
markaðurinn tekið stakkaskipt-
um hér. Hann hefur greinilega
þroskast mikið og er orðinn mjög
spennandi og hitt er það að mjög
sláandi er hvað íslendingar eru
framarlega í allri tækni í fjar-
lllugi Gunnarsson
► Illugi Gunnarsson fæddist á
Siglufirði 26. ágúst 1967 og ólst
þar upp til 15 ára aldurs. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavfk 1987.
Kenndi svo á Flateyri um tíma en
fór svo í Háskóla íslands og lauk
prófi sem hagfræðingur 1995. Þá
um sumarið fór hann til starfa
hjá Vesfirskum skelfiski og var
þar til 1997 er hann fór að starfa
við HÍ. Ilaustið 1998 fór hann í
MBA-nám við London Buisiness
Sehool þaðan sem hann lauk
prófi haustið 2000. Nú er hann
nýlega ráðinn sem aðstoð-
armaður forsætisráðherra Dav-
Iðs Oddssonar. Kona Illuga er
Brynhildur Einarsdóttir sem
stundar nám f London um þessar
mundir.
Reyni að fyigj-
ast vel með
allri pólitískri
umræðu
skiptum t.d., hversu fljót við er-
um að tileinka okkur nýjungar."
-Er mikil1 munur á íslenska
og breska fjármálaheiminum um
þessar mundir?
„Stærðarmunurinn er svo
gríðarlegur að erfitt er að bera
þessa hluti saman en þjónusta ís-
lenskra banka er miklu liprari og
betri hér við almenning en fólk á
að venjast í Bretlandi. Það getur
tekið allt upp í fimm daga að
skipta einni ávísun þar, svo dæmi
sé nefnt. Á hinn bóginn tel ég að
við eigum töluvert langt í land að
komast jafnfætis þeim á sviðum
eins og gjaldeyrisviðskiptum og
ýmiss konar flóknari þjónustu
t.d. við samruna fyrirtækja.“
-Hvað réð því að þú valdir
hagfræði?
„Að stórum hluta til áhuginn á
stjórnmálum. Hagfræðin er frá-
bært greiningartæki til þess að
skilja umhverfi sitt og geta mót-
að sér sjálfstæðar skoðanir á
málefnum líðandi stundar. Þegar
ég fór að vinna hjá Vestfirskum
skelfiski þá átti maður eftir að
læra hagnýta hluti eins og að
fylla út gíróseðla og víxla og
_______ færa bókhald, starfíð
þar var mjög holl og
góð viðbót við hag-
fræðinámið í HÍ og gaf
mjög góða innsýn í öll
________ þau vandamál sem
fylgja því að koma á
laggirnar nýju fyrirtæki. Ég
lagði um tíma stund á kennslu og
bæði í þeirri grein, sem og í póli-
tíkinni, er fólgin sú áskorun að
örva og hvetja fólk í umhverfinu
án þess þó að hafa í höndunum
tæki eins og aga og peningaumb-
un sem menn hafa í fyrirtækja-
rekstri. Þetta var lærdómsríkt
og skemmtilegt að fást við.“