Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 15

Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ KR-ingar hygg;jast ræða við borgaryfirvöld um framtíðarstefnu knattspyrnudeildarinnar Vilja byggja 8.000 manna leikvang' við Frostaskjól Vesturbær NY skýrsla, þar sem fjallað eru um stefnumótun knatt- spymudeildar KR til ársins 2020, var lögð fram á aðal- fundi deildarinnar fyrir skömmu. Guðjón Guðmunds- son, formaður deildarinnar, sagði að í skýrslunni kæmi fram að KR hygðist gera 8.000 manna keppnisvöll, leggja gervigras þar sem malarvöllurinn væri og þá væri einnig viðruð sú hug- mynd að byggja knatt- spyrnuhús á uppfyllingu við Órflrisey. „Aðstaðan fyrir knatt- spymuiðkun í vesturbænum hefur verið fyrir neðan allar hellur," sagði Guðjón. „Við eram að halda úti mjög öfl- ugu starfi, sennilega með því öflugasta sem þekkist, án þess að hafa í raun til þess aðstöðu og það er hreinlega að kæfa okkur. Lífsnauðsynlegt fyrir félagið og hverfið Guðjón sagði að skýrslan markaði ákveðin tímamót því þetta væri líklega í fyrsta skipti sem félag mótaði markvissa stefnu til 20 ára um uppbyggingu á æfinga- og keppnisaðstöðu. „Þetta em ekki bara raun- hæf markmið sem sett em fram í skýrslunni heldur lífs- nauðsynleg fyrir félagið og hverfið." Guðjón sagði að á aðal- fundinum hefði verið og sam- þykkt ályktun þar sem stjórninni hefði verið falið að vinna áfram að málinu, en nefndin ætti eftir að fullklára sína vinnu, t.d. lægi ekki fyr- ir kostnaðaráætlun og þá væm teikningar ekki klárar. Hann sagðist búast við því að vinnu við stefnumótunina yrði lokið í janúar og þá myndi aðalstjórn KR fá mál- ið inn á sitt borð. Næsta skref væri síðan að ræða við borgaryfirvöld um málið og með hliðsjón af skýrslu nefndarinnar móta með þeim framtíðarstefnu fyiir knatt- spyrnudeildina. „Þetta veltur allt mikið á því hvernig borgaryfirvöld munu líta á málið. Það er út- af fyrir sig ekkert raunhæft að sjálfboðaliðar í KR standi undir 20% af þeim fram- kvæmdum sem þarna þarf að vinna á þessu tímabili.“ Að sögn Guðjóns verður því reynt að fá borgina til að taka þátt í uppbyggingunni að verulegu leyti. Hann sagð- ist samt gera sér grein fyrir því að borgaryfirvöld myndu ekki taka þátt í kostnaði við uppbyggingu 8.000 manna vallar, það þyrfti að fjár- magna það öðmvísi. íþróttasvæðið hefur lítið stækkað Guðjón sagði að ávinning- ur borgarinnar og samfélags- ins af uppbyggingunni væri mikill, þar sem íþróttastarf væri t.d. mikilvægur þáttur í uppeldi barna og unglinga og einnig væri íþróttastarf mik- ilvægt fyrir mannlífið í borg- inni. Guðjón sagði að það starf sem unnið væri innan íþróttafélagsins væri að mestu leyti sjálfboðaliðastarf. „Það má segja að það starf sem við eram að vinna sé framlag okkar til borgarinn- ar og þjóðfélagsins." Guðjón sagði að íþrótta- svæði félagsins hefði lítið stækkað síðustu áratugi þrátt fyrir að fjöldi iðkenda hefði aukist mikið. „Þegar svæðið var hannað á sínum tíma var enginn kvennabolti. Þá var 5. flokk- ur karla yngsti flokkurinn og náttúrlega enginn eldri flokkur og leikir meistara- flokks vom leiknir á Mela- vellinum og síðar Laugar- dalsvellinum. Núna em sex kvennaflokk- ar starfandi hjá knattspyrnu- deildinni og karlaflokkunum hefur fjölgað um þrjá. Þann- ig að við stöndum frammi fyrir því í dag að við emm með um 500 iðkendur og yngri flokkarnir hafa verið að fá u.þ.b. eina æfingu á viku á grasi í 12 vikur á ári. Þessi flokkar hafa því verið að fá 10 til 12 æfingar á grasi á ári.“ Guðjón sagði að um metn- aðarfulla stefnumörkun væri að ræða og að með henni væri reynt að hverfa frá þeirri skammtímastefnu að mæta þörfinni alltaf eftir á. Hann sagði að ákveðin verk- efni hefðu forgang og að lagning gervigrasvallar á svæðið, þar sem malavöllur- inn væri, væri eitt þeirra. Ekki ný bflastæði Aðspurður hvort fjölgað yrði bílastæðum við Frosta- skjól í kjölfar stækkunar á keppnisvellinum sagði Guð- jón, að það yrði ekki gert. Hann sagði að það væri ekki talið ráðlegt að leggja út í miklar framkvæmdir við bíla- stæðagerð þar sem KR léki kannski ekki nema um 10 heimaleiki á ári. Hann sagði að hugmyndir væm uppi um að leysa bílastæðavandann með því að nota nálæg bíla- stæði, t.d. stæðin við Háskóla íslands og Háskólabíó og bjóða síðan upp á ferðir það- an vestur að Frostaskjóli með strætó eða hópferðabif- reið. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2001 Gert ráð fynr að skatttekjur bæjarsjóðs aukist um 13% Mosfellsbær BÆJARSTJÓRN Mosfells- bæjar hefur afgreitt fjárhags- áætlun bæjarins fyrir árið 2001. Gerir hún ráð fyrir að skatttekjur bæjarsjóðs verði 1.243 milljónir króna og aukist um 13% milli ára. Utsvars- prósenta ársins 2001 er 12,65%, sem þýðir að Mosfells- bær er ekki er með útsvars- prósentu í hámarki. Álagning- arprósenta fasteignagjalda er óbreytt milli ára. Útgjöld til rekstrar mála- flokka, án áfallinna lífeyris- skuldbindinga, em áætluð 962 milljónir eða tæp 77% af skatt- tekjum og hækka um 10% milli ára. Hækkun rekstrarútgjalda er að mestu vegna fræðslu- mála og gerir áætlunin m.a. ráð fyrir rekstri nýs gnmn- skóla á vestursvæði bæjarins og rekstri tveggja nýrra leik- skóladeilda til að mæta aukn- um fjölda bama á leik- og gmnnskólaaldri og ákvæðum laga um einsetningu grunn- skóla. Fjárfrekasti málaflokk- urinn er fræðslumál en til hans er áætlað að veija 48% af skatttekjum bæjarsjóðs. Aldrei meiri afgangnr Launakostnaður er stærsti kostnaðarliðurinn en áætlað er að hann verði 835 m.kr. á árinu. Rekstrarafgangur bæj- arsjóðs fyrir fjármagnsliði, án lífeyrisskuldbindinga, er áætl- aður 280 m.kr., eða rúm 23% af skatttekjum, og hefur rekstr- arafgangur aldrei verið meiri. Framkvæmdaáætlun 2001 gerir ráð fyrir að heildarfjár- festingar bæjarsjóðs verði 603 m.kr. og em útgjöld vegna byggingar leik- og gmnnskóla um 450 milljónir af þeirri fjár- hæð. Til að mæta þessum fjár- festingum hefur fyrirhuguðum framkvæmdum við fráveitu- kerfi bæjarins verið frestað um eitt ár. Rekstrar- og fram- kvæmdayfirlit bæjarsjóðs og stofnana hans gerir því ráð fyrir að framkvæmdir umfram framlag rekstrar verði 323 milljónir á árinu 2001. Greiðslubyrði lána á árinu er tæp 8% af skatttekjum. Fjárhagsáætlun Mosfells- bæjar fyrir árið 2001 var unnin á gmndvelli rammafjárhags- áætlunar eins og árið 2000. Samhliða hafa verið unnar starfsáætlanir þar sem sett hafa verið fram markmið og mælikvarðar fyrir starfsemina til að stuðla að markvissari nýtingu fjármuna og starfs- fólks. í starfsáætlanagerðinni var byggt á stjómunarmódelinu „Balanced scorecard" og er gert ráð fyrir áframhaldandi vinnu við útfærslu þess á árinu 2001. Standa vonir til þess að þessar nýju starfsaðferðir skili sér í markvissari þjónustu við bæjarbúa og áframhaidandi aðhaldi í rekstri. Umhverfís- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur Harma áform um byg'g'ð við Elliðavatn Vatnsendi NOKKUR umræða varð á fundi umhverfis- og heilbrigð- isnefndar Reykjavíkur í fyrradag um samkomulag Reykjavíkur og Kópavogs um umhverfismál á Vatnsenda- svæðinu sem gert var 1. des- ember. Meirihluti nefndar- innar harmar að stefnt skuli enn að byggð nærri Elliða- vatni. Hrannar B. Amarsson, Kolbeinn Proppé og Sólveig Jónasdóttir, fulltrúar Reykja- víkurlistans, fagna í bókun fyrir hönd meirihlutans fyrir- huguðu samstarfi borgarinn- ar og Kópavogs um rannsókn- ir og umhverfisvöktun við Elliðavatn og áformum um sameiginlegt skipulag útivist- arsvæðis umhverfis vatnið. „Um leið og nefndin harmar að Kópavogsbær stefni enn að byggð nærri vatninu, treystir hún því að með samkomulag- inu sé tryggt að ekki verði ráðist í neinar framkvæmdir sem ógnað gætu lífríki vatns- inSj“ segir í bókuninni. Ólafur F. Magnússon, ann- ar borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í nefndinni, segir að þótt mikill árangur hafi náðst telji hann samkomulagið ófullnægjandi. í bókun hans er því mótmælt að gengið sé frá samkomulagi án þess að það hafi verið kynnt í um- hverfis- og heilbrigðisnefnd og segir að nefndin hafi haft uppi málefnalega gagnrýni á vinnubrögð Kópavogsbæjar varðandi breytingu á deili- skipulagi og fyrirætlanir um fjölbýlishús milli Vatnsenda- vegar og Elliðavatns. „Ég tel það Ijóst að slík byggð muni valda mikilli sjónmengun og rýra gildi útivistarsvæðis fyr- ir almenning við Elliðavatn. Enda þótt náðst hafi að knýja fram samstarf og samráð Reykjavíkur og Kópavogs um marga þætti umhverfismála við Elliðavatn tel ég að sam- komulagið sé ófullnægjandi þar sem ekki er tekið á því hvort fjölbýlishús rísi á áður- nefndu svæði,“ segir í bókun Ólafs og lýsir hann andstöðu við samkomulagið. Guðlaugur Þór Þórðarson, hinn nefndarmaður sjálfstæð- ismanna, lét bóka að eðlilegra hefði verið að kynna sam- komulagið fyrir nefndinni en hann fagnar samstarfinu og kveðst vilja sjá sem minnsta byggð við Elliðavatn. Morgunblaffið/Ásdfs Knattspyrnudeild KR leggur, samkvæmt nýrri skýrslu, ríka áherslu á markvissa uppbyggingu og eflingu íþróttastarfs í Vesturbænum á næstu 20 árum. Knattspyrnuhús á uppfyllingu við Orfírisey Vesturbær HÖFUÐSTÖÐVAR knatt- spymudeildar KR verða áfram við Frostaskjól sam- kvæmt nýrri skýrslu sem fjallar um stefhumótun deildarinnar til ársins 2020. Þar er áfram gert ráð fyrir leikvangi félagsins, sem og gervigrasvelli, tveimur styrktum grasvöllum til æf- inga og sparkvelli með gervigrasi. Þá leggja KR- ingar ríka áherslu á að byggt verði knattspymuhús á uppfyllingu við Örflrisey. „I dag tekur svæðið aðeins við broti af því álagi sem lág- marksiðkun innan deild- arinnar skapar," segir í skýrslunni. „Þess vegna leggjum við áherslu á að svæðið verði þróað og styrkt þannig að það taki við eins miklu álagi og unnt er miðað við nútímatækni. Markmiðið er að nýta þetta dýrmæta land sem allra best.“ í skýrslunni er verkefnum forgangsraðað á eftirfarandi hátt: Gervigras og malar- völlur sumarið 2001 Gervigras á malarvöllinn er algjört forgangsverkefni samkvæmt skýrslunni og vilja KR-ingar að fá það haustið 2001. Gert er ráð fyrir löglegri stærð af keppnisvelli ásamt nauðsyn- legu öryggissvæði, hitalögn- um og flóðlýsingu. Vegna þess að völlurinn verður lagður á núverandi mal- arvöll er gert ráð fyrir að u.þ.b. 20 milljónir króna sparist og kostnaður verði 70 til 80 milljónir. Til að KR geti sinnt starfi sínu í náinni framtíð þurfa grasvellir félagsins að verða a.m.k. 12, samkvæmt skýrsl- unni. Valið stendur því á milli þess að nýta núverandi svæði betur og hins vegar að fá nýtt landsvæði fyrir 9 nýja grasvelli í fullri stærð (eimi er að verða til við Starhaga). Að þvf gefnu að álagsþol grasvallanna a.m.k. þrefald- ist mcð því að styrkja grasið með gervigrasi og að raun- hæfur æfingatúni sé um 6 tímar að meðaltali á dag má gera ráð fyrir að nýting á hverjum velli eftir styrkingu verði sem svarar tveimur til þremur völlum með venju- legu grasi. Þrír styrktir grasvellir samsvara því sex til níu völlum. Tvær aðferðir eru þekkt- ar, önnur að þræða gervi- þiæði í gras sem er fyrir með sérstakri vél en hin að- ferðin er að leggja gervi- grasmottu sem er þakin jarðvegi og sáð í. Mottan cr sfðan lögð þegar sáningin hefur skilað sér. Hvor að- ferð um sig hefur sína kosti og galla en kostnaður gæti legið á bilinu 20 til 40 millj- ónir króna fyrir einn völl. Stækkun á leikvanginum Gert er ráð fyrir að end- urbættum leikvangi við Frostaskjól með áhorf- endasvæðum á þrjái’ hliðar. Ekki eru sett tímamörk á þetta verkefni en gert er ráð fyrir að völlurinn muni rúma 8.000 manns. Fljótlega þarf að teikna leikvanginn eins og KR vill hafa hann í fram- tfðinni og kynna þá teikn- ingu íbúunum. Áætlaður kostnaður mun ekki liggja fyrir fyrr en leikvangurinn hefúr verið teiknaður. Verið er að leggja gras á svæði við Starhaga, sem af- markast af Suðurgötu, væntanlegri Ægissíðu og núverandi göngustíg með ströndinni. í skýrslunni kemur fram að með því að færa göngustíginn alveg í fjörukambinn fram hjó þessu svæði megi fá samfellt grasæfingasvæði á stærð við tvo fullstóra velli. Þar segir að þetta ætti ekki að þurfa að vera dýr framkvæmd, sérstaklega ekki ef hún yrði unnin samhliða gerð Ægis- sfðunnar. Knattspyrnuhús í skýrslunni segir að nauðsynlegt. sé að borgaryf- irvöld í samstarfi við Sel- tjamamesbæ byggi knatt- spymuhús í fullri stærð á uppfyllingu við Örfirisey og æfingavelli við Ánanaust og Eiðisgranda. Talið er að kostnaður við slfkt knatt- spymuhús, sem einnig mætti nota til sýning- arhalds, sé á bilinu 400 til 800 milljónir króna. Með betri nýtingu á gras- völlum við Frostaskjól og tveimur grasvöllum við Starhaga er gert ráð fyrir því að tveir til fjórir gras- vellir til viðbótar dugi fram til 2020. Ef ekki verða æf- ingavellir tengdir knatt- spymuhúsi á uppfyllingu er nauðsynlegt að gera ráð fyr- ir fjórum æfingavöllum í Skeijafirði, en tveimur til þremur völlum ef stefnt verður að því að æfingavell- ir verði við hlið knattspymu- húss, að því er fram kcmur í skýrslunni. Lögð er mikil áhersla á uppbyggingu æf- ingasvæðis í Skeijafirði, sem og uppbyggingu sparkvalla með gervigrasi og eflingu almenningssamgangna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.