Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Æfíng tveggja ískrosskeppenda endaði á bdlakafí í Leirutjörninni Morgunblaðið/Kristján Félagamir koma hjóli Guðmundar upp á bakkann. Víðir Már Hermannsson lyftir undir afturendann á hjóli sínu í Leiru- tjörninni en kranabíl þurfti til að ná hjólinu upp úr tjörninni. Á hálum og ótraustum ís ÞAÐ fór heldur illa fyrir þeim félög- um Víði Má Hermannssyni og Guð- mundi Guðlaugssyni, sem höfðu við- komu á Akureyri í gœr á leið sinni til þátttöku í ískrosskeppni á Mývatni í dag, laugardag. Þeir félagar ákváðu að taka „létta æfíngu" á mót- orhjólum súium á ísnum á Leiru- SKÓGRÆKTARFÉLAG Eyfirð- inga hefur gefíð út bókina Asýnd Eyjafjarðar - Skógar að fornu og nýju. Vignir Sveinsson, formaður félagsins, afhenti Sigurði J. Sigurðs- syni fyrsta eintak bókarinnar við at- höfn í Kjarnaskógi í gærdag. Skógræktarfélag Eyjafjarðar er elsta skógræktarfélag landsins og er bókin gefin út í tilefni af 70 ára af- mæli þess fyrr á árinu. Vignir sagði að félagið hefði upphaflega heitið Skógræktarfélag Islands og því hefði verið ætlað að starfa á lands- vísu. Saga þess væri merkileg og bæri þess skýr merki að margir hefðu af fórnfýsi starfað fyrir félag- ið. Bókin fjallai' um skóga og skóg- tjörninni á Akureyri í gær, ásamt heimamanninum Ingólfi Jónssyni. ísinn var hins vegar ekki traustari en svo að bæði Víðir og Guðmundur misstu hjól sínum niður í gegnum ís- inn. Iflól Víðis fór alveg á bólakaf úti á tjörninni og kastaðist hann fram fyrir sig af hjólinu við óhappið. Víðir rækt í Eyjafirði frá landnámi fram til okkar daga. Greint er frá eyfirskum frumkvöðlum í skógrækt og skóg- ræktartilraunum þeiri-a. Stofnun og saga Skógræktarfélags Eyfirðinga er rakin ítarlega og skógarreitum í firðinum lýst og greint frá sögu þeirra. Einnig er greint frá flestum tegundum trjáa sem vaxa á svæðinu og getið um mælingu á hæstu og mestu einstaklingum hverrar teg- undar. Stórmerkileg saga Ritstjóri bókarinnar er Bjami E. Guðleifsson náttúrufræðingur en höfundar eru margir, bæði fagmenn og áhugamenn um skógrækt. Sagði Bjarni að lærdómsríkt hefði verið að var á frekar lítilli ferð og slapp því með skrekkinn en hlíf á hjálmi hans brotnaði er hann skall á ísnum. Hjól Guðmundar fór hins vegar niður í gegnum ísinn við bakkann og sökk aðeins til hálfs og gekk greiðlega að ná því á land án skemmda. Erfíðara reyndist að ná hjóli Víðis upp úr tjöminni og að lokum þurfti vörubíl með stóran krana til þess að ná hjólinu upp. Víðir sá því fram á erfíða nótt við að hreinsa mótorinn á hjóli sínu þar sem saltur sjór er í Leirutjörninni, en hann ætlaði að vera tilbúinn í slaginn á Mývatni í dag. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Jólafagnað- ur sunnudagaskólans kl. 11 á morg- un, sunnudag, í Safnaðarheimilinu. Guðsþjónusta kl. 17 með þátttöku frímúrara. Óskar Pétursson syngur einsöng. Barnakór Lundarskóla syngur undir stjórn Elínborgar Loftsdóttur. Ath. messutímann. Fundur Æskulýðsfélagsins kl. 17 í kapellu. Jólasöngvar kórs Akureyr- arkirkju kl. 20, Syngjum jólinn inn. Morgunsöngur í kirkjunni kl. 9 á þriðjudagskvöld. Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 12 næsta fimmtudag. Bænaefnum má koma til prestanna. Léttur hádegisverður í Safnaðar- heimilinu á eftir. GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta verður í kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnudag. Sara og Ósk ræða við bömin. Barnakór Brekku- skóla syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Jólatónleikar kórs Glerárkirkju verða kl. 17. Kyrrðar- og tilbeiðslustund verður í kirkjunni kl. 12 til 13 á þriðjudag. Hádegis- samvera með jólabragði kl. 12 til 13. Orgelleikur, fyrirbænir og sakra- menti, léttur hádegisverður í safn- aðarsal að helgistund lokinni á vægu verði. HJÁLPRÆÐISHERINN: Við syngj- um jólin inn á morgun, sunnudag. Börn og unglingar sýna helgileiki og syngja. Kveikt verður á jólatrénu. Allir velkomnir. Engin samkoma verður kl. 20 á sunnudagskvöld. HRÍSEYJARPRESTAKALL: Helgi- stund verður í Stærri-Árskógskirkju og kveikt á leiðalýsingunni á morg- un, sunnudag, kl. 18. Jólasveifla verður í kirkjunni kl. 20.30 um kvöld- ið. Einstaklingar og kórar syngja jólalög við undirleik hljómsveitar. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðs- brotning kl. 20 í kvöld, laugardags- kvöld. Ræðumaður verður Gunnai' Rúnar Guðnason. Aðventustund á morgun, sunnudag, kl. 16.30. Krakkakirkjan sýnú' leikrit, mikill söngur og stutt hugleiðing. Allir vel- komnir. Bænastund verður kl. 20.30 næsta þriðjudagskvöld. LAUFÁSPRESTAKALL: Kyrrðar- stund næsta þriðjudagskvöld í Sval- barðskirkju og hefst kl. 21, ath. breytta dagsetningu. Aðventukvöld verður í Grenivíkurkirkju á sunnu- dagskvöld kl. 20.30. Dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Sr. Guðmundur Guðmundsson flytur hugvekju. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Aðventu- kvöld verður í Möðruvallakirkju sunnudaginn 17. desember kl. 21:00. Nemendur og kennarar úr Tónlist- arskóla Eyjafjarðar sjá um tónlistar- atriði. Ræðumaður er Guðrún Hadda Bjarnadóttir. Tökum okkur smáhvfld frá amstrinu og njótum stundarinnar. MÖÐRUVALLAKLAUSTURS- PRESTAKALL: Aðventukvöld verð- ur fyrir Bakka- og Bægisársóknir í Bægisárkirkju sunnudaginn 17. des- ember kl. 20:30. Helgileikur femi- ingarbarna og kirlgukórs í samstarfi við Leikfélag Hörgdæla undir stjórn Aðalsteins Bergdals. Kórsöngur kirkjukórs Möðruvallaklausturs- prestakalls. Lúsíusöngur nemenda Þelamerkurskóla undir stjórn Guð- mundar Engilbertssonar og mikill almennur söngur. Ræðumaður verð- ur Halldór Gunnarsson frá Búðar- nesi. Mætum öll og njótum jóla- stemmningar í húsi Guðs. ---------------- Fyrsta bikar- mótið í norræn- um greinum FYRSTA bikarmót vetrarins í nor- rænum greinum verður haldið á Ak- ureyri í dag, laugardag, og á morg- un, sunnudag, við gönguhúsið í Hlíðarfjalli. Keppt verður í öllum aldursflokkum 13 ára og eldri, þ.e- konur, karlar, piltar, stelpur og strákar. í dag laugai'dag verður gengið með frjálsri aðferð og hefst keppnin kl. 13. A morgun sunnudag verður geng- ið með hefðbundinni aðferð og verða tveir keppendur ræstir samtímis og hefst keppnin kl. 11. Skógræktarfélag Eyfírðinga Bókin Asýnd Eyjafjarðar komin út Morgunblaðið/Kristján Vignir Sveinsson, formaður Skógræktarfélags Eyjafjarðar, afhendir Sigurði J. Sigurðssyni, forseta bæjarstjórnar, fyrsta eintakið af bókinni Ásýnd Eyjafjarðar þar sem fjallað er um skógrækt í Eyjafirði. vinna við útgáfu bókarinnar, en saga skógræktar í Eyjafirði væri stór- merkileg og á svæðinu væru margir af helstu frumkvöðlum á sviði skóg- ræktar í landinu. „Þau voru mörg, fyrstu skrefin í skógrækt hér á landi sem tekin voru í Eyjafirði,“ sagði Bjarni. Bókin er prentuð hjá Ásprent-Pob á Akureyri, hún er rúmlega 200 blað- síður að stærð, prýdd fjölda mynda og kennir þar margra grasa, en bæði er um að ræða nýjar myndir og gamlar. Bókin Ásýnd Eyjafjarðar fæst á sölustöðum jólatrjáa Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga, í Bókabúð Jónasar á Akureyri og Bókabúð Máls og menningar í Reykjavík. Kór Akureyrarkirkju. Jólasöngvar Kórs Akur eyr ar kir kj u JÓLASÖNGVAR Kórs Akureyr- arkirkju verða í Akureyrarkirkju annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20. Á efnisskránni er aðventu- og jólatónlist eftir Atla Heimi Sveins- son, Karl O. Runólfsson, Róbert A. Ottósson, Sigvalda S. Kaldalóns, Jo- hann Eccard, Anders Öhrwall og David Willcocks. Einnig er almenn- ur söngur. Lesarar: Heiðdís Norð- Qörð, Margrét Sigurðardóttir og sr. Svavar Alfreð Jónsson. Einsöngv- ari: Rósa Kristín Baldursdóttir sópran. Stjórnandi og orgelleikari: Björn Steinar Sólbergsson. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Leikfélag Akureyrar Æfíngar hafnar á Sniglaveislunni ÆFINGAR eru hafnar hjá Leik- félagi Akureyrar á Sniglaveislunni eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Þetta er ný leikgerð unnin eftir þessari vinsælu skáldsögu Ólafs Jóhanns, sem kom út árið 1994 og vakti mikla og verðskuldaða athygli. Þetta er fyrsta leikgerðin sem unnin er eftir skáldsögum Ólafs Jó- hanns, en áður hefur leikrit hans Fjögur hjörtu verið sýnt hérlendis við mikla aðsókn og nýverið keypti þekkt bandarískt kvikmyndafyrir- tæki réttinn á að kvikmynda nýj- ustu skáldsögu hans, Slóð fiðrild- anna. Verkið fjallar um örlagaríkt kvöld í lífi Gils Thordarsen stór- kaupmanns. Gils er þekktur at- hafnamaður og stórbokki. Hann er ekkjumaður og býr einn í glæsilegu húsi. Ársfjórðungslega heldur hann mikla átveislu fyrir sjálfan sig og sparar þá hvergi veisluföng. Þegar sagan hefst stendur slík veisla fyrir dyrum og ber þá óvæntan gest að garði. Gils býður honum inn, grun- laus um erindi gestsins. Fljótlega kemur í ljós að gesturinn er ekki allur þar sem hann er séður, spennan hleðst upp, átök vaxa og uppgjör er óumflýjanlegt. Gunnar Eyjólfsson leikur Gils Thordarsen, í öðrum hlutverkum eru Sigurþór Albert Heimisson, Sunna Borg og Hrefna Hallgríms- dóttir. Leikstjóri er Sigurður Sigur- jónsson, leikmynd og búninga gerir Elín Edda Árnadóttir, lýsingu hannar Halldór Örn Óskarsson og hljóðmynd Hilmar Örn Hilmars- son. Sýning er samvinnuverkefni við Leikfélag íslands. Frumsýning verður í Samkomuhúsinu á Akur- eyri 26. janúar næstkomandi. Tak- markaður sýningarfjöldi verður á Akureyri. Frá og með miðjum marzmánuði flyst sýningin til Reykjavíkur og verður sýnd í Iðnó. 1 I I P
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.