Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Congress Reykjavík hefur starfsemi
400 milljóna
kr. tap hjá
SR-mjöli
Heildar-
þjónusta
fyrir ráð-
stefnur
CONGRESS Reykjavík hélt upp á
stofnun fyrirtækisins í gær. Fyr-
irtækið er til húsa að Engjateigi 5
í Reykjavík.
Starfsmenn og eigendur Con-
gress Reykjavík eru Lára B. Pét-
ursdóttir, Asa Hreggviðsdóttir og
Birna B. Berndsen en allar hafa
þær niikla reynslu af skipulagn-
ingu ráðstefna.
Að sögn Birnu B. Berndsen er
það markmið Congress Reykjavík
að veita viðskiptavinum og birgj-
um sérhæfða, persónulega og fag-
mannlega þjónustu. Þjónustan
spannar alla þætti skipulagningar
og framkvæmdar ráðstefnu. Con-
gress Reykjavík er með ferða-
skipuleggjandaleyfi frá Sam-
gönguráðuneytinu, er aðili að
Samtökum ferðaþjónustunnar og
Ráðstefnuskrifstofu íslands.
Birna segir að fyrirtækið hafi
gert einkaleyfissamning við al-
þjóðlegt fyrirtæki, Congrex Hold-
ing.
Congrex Holding á og rekur
skrifstofur um allan heim sem eru
sérhæfðar í að skipuleggja ráð-
.itefnur.
Congrex Holding gerir samn-
inga við fyrirtæki eins og Con-
gress Reykjavík í ýmsum löndum
og saman kallast þessi fyrirtæki
Congrex Partners.
„Einkaleyfissamningurinn við
Congrex nær til hugbúnaðar og
vinnuaðferða sem Congrex hefur
þróað. Um er að ræða skráning-
arkerfi ásamt einkaleyfi á út-
dráttarkerfi sem gerir okkur
kleift að flokka, raða og skipu-
leggja fyrirlestra."
Vaxandi markaður
á íslandi
„Congrex-skrifstofurnar starfa
einvörðungu við skipulagningu
ráðstefna og eru ekki hluti af
starfsemi neinnar ferðaskrif-
stofu.“ Aðspurð segir Birna að
töluverð samkeppni sé á þessum
markaði hér á Islandi en mark-
aðurinn sé jafnframt vaxandi og
hún sé því bjartsýn á framtíð
Congress Reykjavík. „Við sjáum í
raun um alla þætti í kringum ráð-
stefnur, s.s. bókun á hótelum,
fundarstöðum, alla afþreyingu í
kringum ráðstefnuna, mat og
skemmtidagskrá. Þá sjáum við
einnig um öll tæknimál, prentun á
ráðstefnugögnum, fjárhagshliðina
og uppgjör.
Það er því óhætt að segja að
við séum að veita heildar þjón-
ustu á þessu sviði.“
SAMKVÆMT óendurskoðuðu
bráðabirgðauppgjöri fyrir fyrstu 9
mánuði ársins nemur tap SR-mjöls,
að meðtöldum afskriftum og tjár-
magnskostnaði, en fyrir óregluleg
gjöld, um 400 milljónum króna.
Heildai'velta tímabilsins nam 3.349
milljónum króna. Rekstargjöld fyrir
afskriftir og fjármagnskostnað
námu 3.056 milljónum króna. Af-
skriftir nema um 513 milljónum
króna og fjármagnskostnaður um
248 milljónum króna, þar af er geng-
istap um 144 milljónir króna og
reiknaðar tekjur vegna verðlags-
breytinga um 48 milljónir króna. Tap
fyrir eigna- og tekjuskatt nam 468
milljónum króna en að teknu tilliti til
reiknaðra breytinga á tekjuskatt-
skuldbindingu og afkomu hlutdeild-
arfélaga verður tap félagsins um 400
milljónir króna.
í tilkynningu frá SR-mjöli til
Verðbréfaþings Islands kemur fram
að fyrir skömmu hnekkti Hæstirétt-
ur Islands dómi undirréttar á Sauð-
árkróki í máli Fiskiðjunnar Skag-
fii'ðings hf á Sauðárkróki og SR-
mjöls hf vegna samnings um kaup á
úreldingarrétti en undirréttur hafði
dæmt SR-mjöl hf. til að greiða
samningsfjárhæðina að fullu. Dómur
Hæstaréttar kvað á um að sú fjár-
hæð sem SR-mjöl hf var búið að
greiða Fiskiðjunni Skagfirðingi, eða
um 65 milljónir króna, verði ekki
endurgreidd. Félagið mun því þurfa
að færa fjárhæðina sem óregluleg
gjöld og fyrrgreint tap hækkar því
sem henni nemur.
Betri tíð spáð á næsta ári
„A því tímabili sem liðið er frá lok-
um septembermánaðar hefur verið
áframhaldandi taprekstur hjá félag-
inu. Lítið sem ekkert af hráefni hef-
ur borist á þessu tímabili. Olíuverð
hefur verið í hámarki og afurðaverð
með því lægsta um árabil. Gengis-
lækkun krónunnai- á seinni hluta
þessa árs kemur fram í auknum
gengismun en hækkar verðmæti
þeirra birgða félagsins sem enn eru
ógreiddar eða óseldar.
Flest bendir til þess að ytri að-
stæður félagsins muni fara batnandi
á næsta ári. Reiknað er með að ol-
íuverð lækki þegar líða tekur á árið
og þegar eni merki um að afurða-
verð kunni að rétta við á næstu mán-
uðum,“ að því er fram kemur í til-
kynningu félagsins.
Landsnet semur við KPNQwest
Sama gjald fyrir
öll símtöl erlendis
LANDSNET hefur gert samning við
símafyrirtækið KPNQwestí Hollandi
um millilandasímtöl. KPNQwest er í
eigu KPN í Hollandi og Qwest í
Bandaríkjunum. KPN er stærsta
símafélag Hollands og Qwest er fjórði
stærsti netrekstraraðili Bandaríkj-
anna. Landsnet gerði fyrír nokkru
samning við Tæknival um kaup á nýj-
um Cisco Systems-hátæknibúnaði
sem notaður er til flutnings símtala.
Landsnet hefur jafnframt gert
samning við Landssímann og bíður
viðskiptavinum sínum nú fast forval
til útlanda. Viðskiptavinir Landsneta
geta því hringt beint til útlanda með
því að velja 00 á undan símanúmerinu
í stað þess að slá inn 1080 eins og var
áður. Þeir viðskiptavinir sem kjósa að
velja 00 þurfa að hafa samband við
Landsnet áður en þjónustan verður
virk. Landsnetið býður símtöl til
helstu viðskiptalanda Islands á kr.
16,50 á mínútu. Það skiptir ekki máli
hvenær sólarhrings er hringt, hvort
hríngt er í erlendan GSM-síma eða
venjulegan heimilissíma. í mörgum
tilfellum er því ódýrara að hringja í
erlendan farsíma en í farsíma innan-
lands, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Viðskiptavinir þurfa því ekki að
bæta innanlandsgjöldum við gjald-
skrána ef hringt er úr hefðbundnum
síma. Til ríðbótar þessu eru engin
upphafsgjöld á millilandasímtölum og
eingöngu greitt fyrir þann tíma sem
símtal varir.
Útsölustaðir Majorica
Gull og silfursmiðjan, Mjódd, Reykjavík.
MEBA, Kringlunni, Reykjavík.
Tímadjásn, Grímsbæ, Reykjavík.
Gullkúnst, Laugavegi 45, Reykjavík.
Úr og djásn, Garðatorgi, Garðabæ.
Gullsmiðjan, Lækjargötu 34, Hafnarfirði.
Georg Hannah, Hafnargötu 49, Keflavík.
Gullaugað, Hafnarstræti, ísafirði.
Minný, Túngötu 5, Siglufirði.
Skart, Glerártorgi, Akureyri.
Steingrímur Benediktsson, Vestmannaeyjum.
Karl R. Guðmundsson, Austurvegi, Selfossi.
Umboð: Fjallið Hvíta, Miðhrauni 22b, Garðabæ.
Meint inn-
herjavið-
skipti í OM
Ósió, Morgunblaðið.
SÆNSKA fjái-málaeftirlitið og nú
síðast efnahagsbrotayfirvöld rann-
saka nú meint innherjaviðskipti
sænska ríkisins í OM Gruppen áður
en fyrirtækið gerði kauptilboð í
Kauphöllina í London (LSE) síðsum-
ars. Rannsóknin beinist að því hvort
fulltrúar sænska ínkisins í stjórn OM
hafi nýtt sér trúnaðarupplýsingar til
að kaupa stæni hlut í OM rétt áður en
fyrirtækið setti fram óvinveitt yfir-
tökutilboð í LSE. í norska viðskipta-
blaðinu Dagens Næringsliv kemur
fram að sænska fjámálaeftirlitið hafi
nú vísað rannsókninni til efnahags-
brotayfii’valda og að það sé í fyrsta
skipti sem Fjármálaeftirlitið vísar
þangað máli þar sem ríkið er aðili að
meintum lagabrotum.
Sænska ríkið keypti í sumar hluta-
bréf í OM fyrir sem samsvarar 5,8
milljörðum íslenskra kr. og jókst
eignarhlutur ríkisins í OM úr 7,6% í
9,4%. Síðustu viðskiptin áttu sér stað
16. ágúst eða daginn áður en ljóst var
að OM myndi leggja fram yfirtöku-
tilboð í LSE. Thomas Franzén situr í
stjóm OM fyrir hönd sænska ríkisins
og fjármálaráðuneytisins. Hann hefur
viðurkennt að hafa vitað um áfom
OM í byrjun ágúst. Rannsókninni er
ætlað að fá fram hvort þessi vitneskja
haíi verið nýtt til hlutabréfakaupa.