Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 35
ERLENT
Hagne hefur mistekist að vinna fylgi óánægðra kjósenda
Enn minnkar fylgi
Ihaldsflokksins
The Daily Telegraph.
WILLLAM Hague, formaður
breska íhaldsflokksins, er í mikl-
um vanda staddur ef marka má
niðurstöður nýrrar skoðanakönn-
unar Gallups fyrir breska dagblað-
ið The Daily Telegraph. Niður-
stöður hennar sýna að íhalds-
flokknum hefur mistekist hrapal-
lega að vinna fylgi óánægðra
kjósenda, því þrátt fyrir að innan
við 40% aðspurðra séu sæmilega
ánægð með verk ríkisstjórnar
Blah’ myndu samt sem áður 47%
kjósa VerkamannaflokMnn yrði
eftit til kosninga nú, og eingöngu
32% íhaldsflokkinn.
Það þýðir að Ihaldsflokkurinn
hefur tapað niður því litla forskoti sem hann var
kominn með í kjölfar mótmæla breskra bænda
og vöruflutningabílstjóra gegn háu verði elds-
neytis sl. september. Fylgi Ihaldsflokksins er
jafnmikið nú og það var í byijun september, en
hefur minnkað um 2% síðan í könnun Gallups í
síðasta mánuði.
Hagne segir lögreglumenn
stimplaða kynþáttahatara
Nýjasta útspili Hague hefur og verið tekið fá-
lega. Þar er um að ræða harðorða gagnrýni hans
á Macpherson-skýrsluna svokölluðu um bresku
lögregluna, sem unnin var í kjölfar gagnrýni á
störf lögreglunnar í London vegna slælegrar
meðhöndlunar á morði svarts unglings fyrir
nokkrum árum. Rannsókn á meðhöndlun máls-
ins leiddi í ljós að lögreglan hafði ekki rannsakað
málið sem skyldi vegna „stofnanabundins kyn-
þáttahaturs".
Hague sagði í ræðu sem hann flutti í fyrra-
kvöld að hann teldi að skýrslan hefði verið notuð
til að stimpla alla lögreglumenn kynþáttahatara
og það hefði valdið því að starfsandinn innan
lögreglunnai’ hefði stórum versnað.
Ríkisstjómin hafnaði hins vegar þessari
gagnrýni og segir umræðuna eingöngu örvænt-
ingarfulla tih-aun Hague til að vekja á sér at-
hygli, eftir að hann hafi farið hall-
oka í umræðum um efnahagslífið
og Evrópumálin.
Ihaldsmenn vísa því hins vegar
algerlega á bug að um pólitískt
mál sé að ræða. Forysta Ihalds-
flokksins lagði áherslu á að um vel
úthugsaða gagnrýni á pólitíska
rétthugsun, sem væri að eyði-
leggja lögregluna, væri að ræða
og hét betri stjóm á málefnum
lögreglunnar.
Skoðanakönnunin bendir þó
ekki til þess að kjósendur treysti
íhaldsflokknum miklu betur en
Verkamannaflokknum í þeim
málum. 36% aðspurðra telja að
íhaldsflokkurinn myndi ráða betur við mála-
flokkinn, en 34% hafa meiri trú á Verkamanna-
flokknum. Þetta er ekkert sérstök niðurstaða sé
tekið mið af því að tveir þriðju hlutar aðspurðra
em óánægðir með það hvemig ríkisstjóm
Verkamannaflokksins hefur tekið á glæpum og
orsökum þeirra.
Skattalækkanir njóla ekki mikils fylgis
Ekki er útlitið betra er kemur að skattamál-
unum, málaflokki sem íhaldsmenn gera ráð fyrir
að leggja aðaláherslu á í næstu kosningum. En
þar bera kjósendur meira traust til Verka-
mannaflokksins, 38% treysta honum betur fyrir
þessum málaflokki en Ihaldsflokknum, en 35%
treysta Ihaldsflokknum betur.
Skoðanakönnunin sýnir einnig að skattalækk-
anir, sem Ihaldsflokkurinn hefur lengi haft á
stefnuskránni, njóta ekki mikils fylgis, fylgi
þeim að ríkisvaldið dragi úr þjónustu sinni. Ein-
göngu 14% myndu viija skattalækkun á kostnað
ríkisþjónustu en 57% segjast vera tilbúin að
taka á sig skattahækkun ef þjónusta ríkisins
eykst. íhaldsmenn telja vitaskuld að þetta þurfi
ekki að fara saman en svo ber við að eingöngu
22% aðspurðra, langflestir kjósendur Ihalds-
flokksins, hafa trú á því loforði að hægt sé að
lækka skatta án þess að draga úr þjónustu.
William Hague
Jacques
Chirac í
sjðnvarps-
viðtalinu á
fimmtudags-
kvöld þar scm
hann reyndi
að fullvissa
landa sína um
að hann hefði
ekkert að fela
og hreint mjöl
í pokahorninu.
Sannfærði ekki
gagnrýnendur
París. Reuters, AFP.
JACQUES Chirac Frakklandsforseta virtist í
gær ekki hafa tekizt í klukkustundarlöngu sjón-
varpsviðtali á fimmtudagskvöld að sannfæra
marga landsmenn sína um sakleysi sitt í
hneykslismáli sem tengist borgarstjóratíð hans í
París. Leiðarahöfundar franskra dagblaða og
talsmenn stjómarandstöðunnar hvöttu ákæru-
valdið til að halda ótrautt áfram að rannsaka
málið, sem snýst í aðalatriðum um meinta ólög-
lega fjánnögnunarstarfsemi Gaullistaflokksins
RPR í París upp úr 1990.
í sjónvarpsviðtalinu, sem yfir 11 miHjónir
manna fylgdust með, vísaði hann með tilþrifiun á
bug ásökunum um að hann hefði sem leiðtogi
RPR vitað um hinar meintu ólöglegu aðferðir við
fjársöfnun fyrir flokkinn. Sagðist hann vera „var-
anlegt fómarlamb“ slíkra ásakana, ófær embætt-
is síns vegna um að verjast þeim af fullum krafti.
Hin ömgga framkoma Chiracs í viðtalinu
virkaði vel á suma, en honum mistókst þó að
kveða niður efasemdir um sakleysi sitt.
„Píslarvætti heilags Chiracs" var yfirski-iftin á
frétt hins vinstrisinnaða blaðs Libération um
sjónvarpsyfirlýsingar forsetans. Hvatti blaðið
hann til þess að segja af sér og boða forsetakosn-
ingar strax. Hið áhrifamikla Le Monde skrifaði
að Chh'ac gæti ekki einfaldlega látið eins og
ásakanimar væra tilhæfulausar.
Talsmenn annarra stjómmálaflokka, sem
sumir era einnig sagðir hafa átt þátt í ólöglegri
fjármögnunarstarfsemi af svipuðu tagi og RPR,
hvöttu til þess að rannsóknin héldi óhikað
áfram. „Ég held að ýmislegt misjafnt hafi þrifizt
á meðan (Chirac) var borgarstjóri. ... Ákæra-
valdið ætti að komast til botns í þessum málum
öllum saman til að sannleikiuinn komi í ljós,“
sagði Francois Hollande, framkvæmdastjóri
sósíalistaflokksins, flokks Lionels Jospins for-
sætisráðherra og væntanlegs keppinautar Chir-
acs um forsetaembættið.
Rannsóknardómarar telja að fulltrúar RPR
hafi farið fram á að verktakar, sem fengu út-
hlutað samningum um byggingu skóla á Par-
ísarsvæðinu, borguðu mútur fyrir samningana
og þessu fé hafi síðan verið skipt á milli RPR,
Sósíalistaflokksins og eins borgaralegs flokks til
viðbótar. RPR hefur verið við völd í ráðhúsinu í
París óslitið í 23 ár. Chirac var borgarstjóri í 18
ár unz hann var kjörinn forseti 1995. Hneyksl-
ismálin nú munu reynast flokknum dýrkeypt í
sveitarstjómarkosningum sem fram fara í marz
nk.
Bama háskólabolir
Bamabuxur
Bama T-bolir
Bama stuttbuxur
Háskólapeysur
Hettupeysur
Rennd bein hettupeysa
Buxur
2.490
2.200
1.360
1.490
4.990
4.800
5.990
3.490
1.245
1.100
695
745
frá 990
frá 990
2.895
1.745
Rennd hettupeysa 4.990 2.495
Verslunin hættir sölu á fatnaði*
Risarýmingarsala
Opiðídag
-Mrákl.11-18
* Hreysti opnar nýja og breytta verslun árið 2001
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
Allt á að seljast! Skeifunni 19 - S. 568 1717
Mjúkir pakkar
áhálfvirði
eða meiri afslætti
dæmi:
Verð áður Verð.DÚ
Pussell Athletic - Columbia - Convert - jansoort - Gilda Marx - Avia - Tyr - Schwinn - Slendertone - Polar - Weider - tt|ptafr<(rr - ABB - tAS Musdetecti - Twiniab - Designer - Labrada - natures Best - Leppin - MLO