Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 39

Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 39 Saga um góðsemi og BÆKUR Dnglingabók ENGILBJÖRT OG ILLHUGA Eftir Lynne Reid Banks í íslenskri þýðingu Kristínar R. Thorlacius. títgef. Muninn 2000. HÖFUNDURINN L.R. Banks hefur vakið hvað mesta athygli fyrir bók sína Indjáninn í skápnum og hafa síðan komið út tvö framhöld á því, nú síðast Leyndarmál indján- ans, einnig í þýðingu Kristínar R. Thorlacius. Það er óhætt að fullyrða að með Engilbjörtu og Illhugu sé nokkuð annað hljóð komið í strokk- inn og eru reyndar ekki allir jafn ánægðir með þann hljóm. Sumum gagni’ýnendum þykir nóg um of- beldið og örvæntingarfullar kring- umstæðurnar, en aðrir telja ekkert minna þurfa til að segja bömum kröftuga og minnisstæða sögu um hvað sé rétt og hvað röng breytni nú á tímum. Foreldrar og kennarai’ í hinum vestræna heimi og víðar kvarta sáran undan því að börn fái ekki lengur stutt sig við skilmerki- lega aðgreiningu á réttri og rangri breytni. Hvað sem líði skoðanaskipt- um um afstæði siðferðis og menn- ingarbundinn mismun og breytileika sé Ijóst að börn séu þess ekki um- komin að haga lífi sínu eftir siðferði- legu afstæði. Mér virðist sem Banks sé hér að bregðast við þessum vanda með þeim hætti sem henni þykir ár- angursríkur. Hún tekur einfaldlega af skarið og setur fram skýran mun milli góðrar breytni og slæmrar á forsendum kristilegs siðferðis. Hér segir frá tvíburasystrunum sem frú Konkordia Friðhólm er í miðjum klíðum við að fæða í heiminn þegar sagan hefst. Fyrst fæðist henni eng- ilbjart barn með himinblá augu og kemur það skríkjandi af kátínu og eðlislægri góðsemi í heiminn. Kon- kordia finnur ekki til sársauka á meðan á þeirri fæðingu stendur, heldur hríslast um hana sælu- straumur. Þá hefst fæðing seinna barnsins og líður Konkordia skyndi- lega vítiskvalir. Barnið reynist í samræmi við það vera feikilega ófrítt, með grænar glýmur og svo meinfýsið að það bítur ljósmóðurina til blóðs þegar hún tekur það til umönnunar. Það er skemmst frá því að segja að farir tvíburanna og for- eldranna verða eftir þessu. Engla- barnið, Engilbjört, á ekkert illt til í sér, en litli skrattakollurinn, Illhuga, á einungis illt eitt til. Illhuga veigrar sér ekki við að koma samferðamönn- um sínum undir græna torfu, kvelur foreldra sína og stendur fullkomlega á sama um allt og alla. Allir þeir sem líta hana augum fá illan bifur á henni að sama skapi og allir þeir sem sjá Engilbjörtu láta hrífast upp úr skón- um. Engilbjört er þó einnig til vand- ræða, þar sem hún er einum of mikið af því góða. Það fer ekki á milli mála að frásögninni er ætlað að koma til skila afgerandi siðferðisboðskap með ýkjukenndum og allt að sláandi kringumstæðum. Frásagnarháttur- inn er iðulega í samræmi við fram- ganginn á sögusviðinu. Sögumaður er nokkuð léttúðarfullur og segir frá ódæðisverkum Illhugu af skeyting- arleysi og kátínu. Andrúmsloftið er, þótt undarlegt megi virðast, fjörlegt Skáldkvenna- kvöld ÁTTA skáldkonur lesa upp úr nýút- komnum verkum sínum á Næsta bar í Ingólfsstræti sunnudagskvöldið 17. desember. Þær sem lesa eru Guðrún Helgadóttir, Guðrún Eva Mínervu- dóttir, Vigdís Grímsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Kristín Ómarsdótt- ir, Iðunn Steinsdóttir, Vilborg Dav- íðsdóttir og Auður Jónsdóttir. Gítarleikarinn Einar Kristján Einarsson leikur á milli lestranna og kynnir verður Hjalti Rögnvaldsson leikari. Dagskráin hefst kl. 21. og undirstrika teikningarnar eftir Klaas Verplancke fjörlega afstöðu sögumanns. Mér þótti þetta allt ganga vel upp framan af og skila þeim tilætlaða árangri að mynda skýrar siðferðilega h'nur sem komast sem næst því að henta hvaða sam- félagshópum sem er. Er sögusviðið í samræmi við það tiltölulega laust við kennileiti og gæti miðast við flestar vestrænar samfélagsgerðir. Upp- ákomurnar ei-u oftar en ekki grót- eskar, þ.e. þær eru fjörlegar, jarð- bundnar og skelfilegar í bland. Hefur það í för með sér að viðtak- andi velkist sífellt í vafa um hvemig honum beri að taka þessu framferði frásagnarinnar, og verður fýrir vikið allvirkur lesandi. Honum er skemmt en gerir sér í sömu andrá fulla grein fyrir því að óhæfuverk Illhugu megi ekki viðgangast. Undir lok sögunnar finnur sögu- maður sig því miður knúinn til að koma siðferðilegri túlkun til skila með beinni hætti. Það er líkast því sem lesendum sé ekki lengur treyst fyrir túlkun boðskaparins, sem þó var eins ótvíræður og frekast getur orðið. Sögumaður tekur að útskýra að yfimáttúrulegir kraftar Illhugu til að skelfa fólk og koma þeim fyrir kattarnef séu í raun veikleiki og að systir hennar sé gædd hinum raun- illsku veralega styrk kristilegs kærleika. Ekki nóg með það, heldur gerir sögumaður út af við undangenginn frásagnarheim með því að gefa til kynna að þetta hafi nú einungis ver- ið dæmisaga. Hann útskýrir að slíkt ójafnvægi sé vissulega ekki fyrir hendi, að einhver sé alillur og annar algóður, enda viljum við hvoragt hafa. Það fari best á hæfilegri blöndu af hvoratveggja, þar sem hið góða hefur þó allajafna yfirhöndina. Sögumaður leiðir söguna til lykta með þessu móti, en eftir stendur að sagan er í heild sinni sniðugleg. Ragna Garðarsdóttir Bókarkynning* í Höfn, Klaustri og Vík SIGRÚN Jónsdóttir kirkjulistakona og Þórann Valdimarsdóttir sagn- fræðingur verða á ferð á Höfn í Homarfirði í dag, laugardag, til að selja og árita bókina Engin venjuleg kona, litríkt líf Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu. Þær verða í Pakkhúsinu kl. 13-15. Á morgun, sunnudag, verða þær á ferð um Skaftafellssýslu. Þær verða á Hótel Kirkjubæjar- klaustri kl. 10-12, og í Brydebúð í Vík milli 13 og 15. Ágóði af sölu þeirra bóka sem þær selja í ferðinni rennur til björgunar mb. Skaftfellings. Júiagjðf sem lætur gott at sér leiða Tvær góðar sem eiga eriadl tii aiira Áhritarihar Dsnur sem auðuelda lólHl að ná námarKsárangri í starfi ag öðiast tarssid i einKaiíti. erjferðalag MÓTAÐU LÍF ÞlTr nr /\ r, - ~ wt IvlrS Bók Thomas Möller er eina bók sinnar tegundar sem skrifuð hefur verið á íslensku og kemur nú út í annað sinn í endurbættri útgáfu. Bókin hefur hlotið einróma lof og er ein mest selda stjórn- unarbók á íslensku. í henni má meðal annars finna ráð sem í sívaxandi samkeppni geta hjálpað til að ná forskoti með betri tímastjórnun. ■ ■ Thomas Möller Bók Brians Tracy segir af ferðalagi höfundar og þriggja félaga, frá Kanada til suðurodda Afríku - ferðar sem tók um tvö ár. Höfundi tekst frábær- lega að flétta margvíslegum lærdómi inn í hraða og spennandi ferðasögu sem færir lesandanum heim sanninn um mikilvægi hugrekkis, þraut- seigju og þess að taka fulla ábyrgð á eigin lífi. Brlan Tracy er mörgum íslendingum að góðu kunnur af bók sinni Hámarksárangur sem kom út á íslensku fyrir nokkrum árum og seldist þá upp. Hann hefur haldið fjölda fyririestra víða um heim þar á meðal á islandi síðastliðið vor. Nánari upplýsingar á www.vegsauki.is Bækurnar fást á eftirtöldum stöðum en þær er elnnig hægt að panta með tölvupósti á vegsaukl@simnet.is - eða í síma 552 8800 Höfuöborgaravæöiö: Bókabúöin Hamraborg - Bókabúöin viö Hlemm • Bókabúöin Mjódd • Hagkaup Kringlunni, Skeifunni og Smáratorgi Bónus Holtagöröum, Kópavogi Laugavegi, Mjódd og Mosfellsbæ • Penninn Eymundsson Austurstræti og Kringlunni • Penninn, Hallannúla og Kringlunni • Mál og menning Laugavegi og Síöumúla • Bóksala stúdenta v/Hringbraut • Griffill Skeifunni • Akureyrl: Bónus og Hagkaup • Hafnarfjörður: Bókabúö Böövare og Penninn Eymundsson. BRIAN XRACY Eútn frerasti fvririí»« lrr •"••••••♦... Uroska manniegra h*fí,enfa Um ......... nsta!<lings4rangur ÞEKKIHGARKLUBBUR vitínu meirí!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.