Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 42

Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sigurjón Jóhannsson Jólasýning í Borgar- skjalasafni JÓLASÝNING Borgarslqalasafns Reykjavíkur, 3. hæð Grófarhússins, Tryggvagötu 15, verður opin í dag, laugardag kl. 13-16. Sýningin er opin mánudaga-föstudaga kl. 10-16 og er aðgangur ókeypis. Sýningin stendur fram á þrettándann. Einnig er vakin athygli á því að í til- efni af lokum menningarborgarársins er bókin Evidence! Europe Reflected in Archives, seld á tilboðsverði, 2.000 krónur, hjá Borgarskjalasafninu. Bókin er gefin sameiginlega út af skjalasöfnum menningarborga Evr- ópu árið 2000. Hún er 272 síður með um 300 litmyndum. Benedikt S. Lafleur við verk sín á sýningunni í Selinu. Ljósadýrð og litagald- ur í Selinu MYNDLISTARMAÐURINN og rithöfundurinn Benedikt S. Lafl- eur opnar sýningu í Selinu, nýj- um sýningarsal við Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg 16, Óðinsgötumegin, á morgun, sunnudag, kl. 14. Benedikt hefur verið búsettur síðastliðin 6-7 ár í París og starf- að þar samhliða við ritstörf og myndlist. Að þessu sinni sýnir Benedikt myndir úr serfunni: Paradísartil- brigði, ásamt glerverkum. Hér er um að ræða litríkt og frumlegt samspil ljóss og loga. Verkin eru öll til sölu og verð- ur sýningin opin alla daga klukk- an 13-18 og á Þorláksmessu til klukkan 23. Sýningin stendur til jóla. ART GALLERY Rauðarárstíg 14 - 16, sími 551 0400 Kringlunni, sími 568 0400 fold@artgalleryfold.com, www.myndlist.is Drafnar á sýningunni. Dröfn í Gall- eríi Reykjavík STUTTSÝNING Drafnar Guðmundsdóttur myndhöggv- ara í Gallerí Reykjavík verð- ur opnuð í dag, laugardag, kl 15. Verkin á sýningunni eru veggverk úr gleri og málmi og einnig glerdiskar og smærri skálar og stjakar. Dröfn útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskólan- um 1930 og hefur haldið einkasýningar bæði í Reykja- vík og um landið. Einnig hef- ur hún tekið þátt í mörgum samsýningum. Ýmis fyrirtæki og stofnanir hafa keypt verk eftir hana. Hún rak, ásamt 14 öðrum listakonum, Gallerí Listakot en nú hefur hún stofnað fyrirtækið Islensk list sem um þessar mundir er að opna vef, icelandicart.is. Sýningin stendur fram að jólum. Opið á opnunartíma Gall- erís Reykjavíkur, eða aug- lýstum opnunartíma verslana við Laugaveg og Skólavörðu- stíg. Sýningum lýkur SÝNINGUNNI „Heimskautalöndin unaðslegu - arfleifð Vilhjálms Stef- ánssonar" lýkur í Listasafninu á Ak- ureyri á sunnudag. Sýningin er liður í samstarfsverk- efni Akureyrarbæjar og Reykjavík- ur menningarborgar Evrópu árið 2000. Snemma árs 2001 verður sýningin sett upp í Listasafni Reykjavíkur og síðan er stefnt að því að koma henni fyrir á nokkrum stöðum í Finnlandi, Kanada, Bandaríkjunum og ef til vill víðar. Þegar farandsýningunni lýkur er ætlunin að nota efni hennar sem grunn að sérstöku Vilhjálmssafni, sem áformað er að staðsett verði á Akureyri í tengslum við Stofnun Vil- hjálms Stefánssonar. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka Sýningu Lindu Ásdísardóttur „í landi ...“ í Sjóminjasafninu á Eyr- arbakka lýkur á sunnudag. Ljós- myndirnar á sýningunni eru af sjó- mönnum á Eyrarbakka sem stunda sjóinn á árinu 2000. GUK Opið verður í sýningarstaðnum GUK á sunnudaginn kl. 16-18 að staðartíma. Þar með lýkur sýningu danska listamannsins John Krogh. Ljósaklif Sýningu á steinskúlptúrum Sus- anne Christensen og Einars Más Guðvarðarsonar í Ljósaklifi, vett- vangi fyrir skúlptúr og umhverfislist í Hafnarfirði, lýkur nú um helgina. A sýningunni eru 45 verk í ýmsar stein- tegundir frá síðastliðnum sjö árum. Norræna húsið Sýningu finnska listamannsins Jyrki Paratainen í Norræna húsinu lýkur á sunnudaginn. Opið kl. 12-17. CORNWELL Fjöldamoröingi fer hamförum í Richmond og er sagan hefst hafa þrjár konur þegar látið lífiö, eftir aö hafa verið misþyrmt og loks kyrktar í sínu eigin svefnherbergi. Engar vísbendingar um morðingjann hafa fundist. Hann virðist láta til skarar skríða af handahófi -en jafnan aðfaranótt laugardags. Patricia CORNWELL er einn allra vinsælasti sakamálasagna- höfundur samtímans og hefur fengið öll helstu verðlaun sem veitt eru fyrir sakamálasögur. Þegar Réttarkrufning kom út voru viðtökur einstæðar. Höfundur hlaut fyrir hana öll fjögur helstu verðlaun sem veitt eru fyrir framúrskarandi sakamálasögur beggja vegna Atlantshafsins og þótti engin sakamálasaga taka Réttarkrufningu fram það árið. Muninn |<|)] bókaútgáfa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.