Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 47
Rjúpur og íslenskt hreindýrakjöt virðast vera dýrasti jólamaturinn í ár
VERÐ á rjúpu hefur hækkað um
tæplega 8 til rúmlega 20% frá því í
fyrra en ástæðu þess má meðal
annars rekja til minna framboðs á
markaðnum. Ef reiknað er með
tveimur rjúpum á hvern fullorðinn
og einni rjúpu á barn getur jóla-
maturinn kostað fjögurra manna
fjölskyldu yfir 5.000 krónur. Rjúpa
er þar með orðin einn dýrasti jóla-
maturinn á markaðnum í ár.
„Rjúpan hefur hækkað þó nokk-
uð í verði frá því í fyrra eða í kring-
um 20%,“ segir Jón Kristinn Ás-
mundsson, verslunarstjóri Gallerý
Kjöts. „Astæðan er fyrst og fremst
minna framboð. Þetta er mjög
slæmt mál vegna þess að hátt verð
verður til þess að fólk kaupir síður
jólarjúpuna nema sterk hefð sé fyr-
ir því innan fjölskyldunnar. Það
verða því ekki margir sem neyta
rjúpunnar í fyrsta skipti í ár. Þá er
ljóst að rjúpan er dýrasti jólamat-
urinn í ár.“
Að sögn Jóns Kristins kostar
hamflett rjúpa 990 krónur stykkið
en kostaði í fyrra 800 krónur.
„Ég á ekki von á því að verðið
eigi eftir að breytast neitt fram að
jólum og mæli ég eindregið með því
að fólk flýti sér að kaupa jólarjúp-
una.“
Þegar Jón Kristinn er spurður að
því hvað hafi komið honum mest á
óvart í sölu jólamatarins í ár segir
hann að hann hefði aldrei trúað því
hve mikið hann er búinn að selja af
hreindýrakjöti. „Ég keypti helmingi
meira af hreindýrakjöti í ár en í
fyrra og lundir, fille og innralæri er
allt orðið uppselt. Aðrir vöðvar, sem
jafnframt eru aðeins ódýrari, eru
síðan að verða uppseldir.“
Hamborgarhryggur
og kalkúnn
Hamflett rjúpa kostar 849 krón-
ur í Nýkaupi en í desember í fyrra
kostaði hún 699 krónur. „Við erum
að tala um 150 króna hækkun milli
ára eða í kringum 20% hækkun.
Það sem skýrir þessa hækkun er
Spurt og svarað
Express-þjónusta tekur
gildi í landi viðtakanda
Hversu lengi eru express-bréf að
berast til Evrópu og hverju munar
í tíma á slíkum sendingum og
venjulegum?
„Express-þjónusta bréfapósts,
áður fyrr nefnd hraðboðasending,
hefur alltaf verið með þeim hætti
sem nú er,“ segir Grímur Pálsson,
deildarstjóri hjá mai-kaðs- og sölu-
sviði íslandspósts.
„Hún gengur út á að nýta það
flutningakerfi sem fyrir er og ex-
press-bréf nýtur alltaf forgangs
innan þess kerfis. Síðan þegar bréf-
ið er komið á ákvörðunarpósthús,
það er að segja pósthús eða dreif-
ingarstöð næst viðtakanda, er farið
með express-bréfið strax til viðtak-
anda. Með kaupum á express-þjón-
ustu kemst bréf allt að einum degi
fyrr til viðtakanda þar sem dreifing
er daglega. Hægt er að kaupa ex-
press-þjónustu á böggla og hún
virkar eins og fyrir bréfin, um leið
og böggullinn er kominn á ákvörð-
unarpósthús er farið með hann
strax til viðtakanda."
Ef sendandi vill fá skjótari þjón-
ustu, má benda á TNT-hraðflutn-
inga. Sú þjónusta byggist á öðru
flutningskerfi en hinn hefðbundni
bréfapóstur.
„Hægt er að kaupa TNT-hrað-
flutning á skjöl þar sem sendingin
kemst til skila innan eins virks dags
til stærstu borga í Evrópu. Mun-
urinn í hraða milli express-sendinga
bréfapósts og TNT- hraðflutninga
getur verið einn til tveii- virkir dag-
ar. Að auki er sérstök skráning á
öllum TNT-sendingum sem gerir
sendanda kleift að fylgjast með
sendingunni á Netinu."
Ef tekið er dæmi um 200 gr
sendingu til Svíþjóðar þá kostar ex-
press bréf um 745 krónur og svipuð
sending með TNT kostar 3.250
krónur.
Allt að um 20%
verðhækkun á rjúpu
fyrst og fremst hærra verð til
veiðimanna sem skapast af minni
veiði,“ segir Arni Ingvarsson, kaup-
maður í Nýkaupi, og bætir við að
hann viti af verslunum sem eru í
stökustu vandræðum vegna rjúpna-
skorts.
„Við teljum okkur vera í nokkuð
góðum málum í dag miðað við söl-
una á sama tíma í fyrra en ef aðrar
verslanir eru með lítinn sem engan
lager þá munum við klára okkar
lager mjög fljótt.“ Aðspurður segir
Árni að verðið muni ekki hækka
þegar nær dregur jólum. „Það er
yfrleitt þannig með kjötvörur að
þegar nær dregur jólum lækka þær
en ég á þó ekki von á því með
rjúpuna því framboðið er svo lítið.
Við finnum mikið fýrir því í ár að
fólk er að færa sig yfir í aðrar steik-
ur eins og hamborgarhrygg og
kalkúna. Verð á rjúpum er einfald-
lega of hátt.“
Að sögn Jóns Þorsteins Jónsson-
ar, markaðsstjóra hjá Nóatúni,
kostar hamflett rjúpa 859 krónur
en kostaði í fyrra 799 krónur. Rjúp-
an hefur því hækkað sem nemur
7,5% frá því í fyrra. „Ég á ekki von
á öðru en að verðið eigi eftir að
standa í stað. Þó framboðið sé tak-
markað er hér ekki um neitt hallæri
að ræða ennþá. Ég vil þó hvetja
fólk til að kaupa rjúpurnar með
fyrra fallinu í ár ef það vill vera
öruggt um að fá hana.“
Að sögn Jóns Þorsteins kaupir
fólk miklu frekar hamborgarhrygg
og fugla, eins og endur og kalkún, í
ár. Þá segir hann íslenskt hrein-
dýrakjöt vera að koma sér hægt og
rólega út af jólamarkaðnum vegna
verðlagsins. „Rjúpa og íslenskt
hreindýrakjöt er tvímælalaust dýr-
asti jólamaturinn í ár.“
fev^Jd
|ólatré i gámasölu
Netpakkaður Normannsþinur
Blómaval býður takmarkað magn af óflokkuðum, ósnyrtum,
netpökkuðum Normannsþin í gámasölu á bílastæði
Blómavals. Öll tré í gámnum eru á
sama verði 1.590 kr. _ ^ ^
Fríkortið gildir ekki
í gámasölunni.
Takmörkuð þjónusta.
Lágt verð!
I
Blómaval býður Fríkortshöfum að koma og kaupa jólatré fyrir frípunktana sina.
Málið er einfalt. Þeir sem eiga næga frípunkta, klára greiðsluna með Fríkortinu.
Ef punktainnistæðan nægir ekki fyrir allri upphæðinni greiðir fólk
einfaldlega mismuninn. 1.500 frípunktar jafngilda 1.000 kr.
Fríkortið gildir þegar verslað er í Jólaskógi Blómavals
en ekki þegar keypt eru Cámatré á bílastæðinu.
í Jólaskógi Blómavals eru öll jólatré sérvalin, flokkuð og snyrt.
Normannsþinur
60-100 sm
101-125 sm
126-150 sm
151-175 sm
176-200 sm
201-250 sm
Vero:
1.390 kr
2.190 kr
2.690 kr
3.590 kr
4.690 kr
5.390 kr