Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 52

Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 52
<2 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Afhjúpun dómstóla dómara „Einn hæstaréttardómaranna, John Paul Stevens, sagði í áliti sínu að svo gœti farið að menn vissu aldrei með jullri vissu hver vœri í raun sigurvegari kosninganna. Hins vegar væri augljóst hverhefði tapað. Þjóðin hefðiglatað trausti sínu á dómurum sem hlut- lausum varðmönnum laga og reglu. “ S Eg treysti fólki. Ég treysti ekki rík; isstjórninni... Ég vil ekki að rík- isstjórnin taki ákvarðanir fyrir hönd allra.“ Einhvern veginn svona komst George W. Bush að orði í einum kappraeðunum sem hann háði við A1 Gore í for- VIÐHORF Eftir Hönnu Katrínu Friðriksson setaslagnum í Bandaríkj- unum fyrr í haust. Hann sagði þetta reyndar ekki bara einu sinni, heldur var þessi frasi orðinn nokkuð algengur í ræðum hans áður en yfir lauk. Hann var sem sagt maður fólksins, ekki yf- irvalda. Það má þó ganga út frá því að Bush kunni yfirvöldum þakkir fyrir góðan stuðning í sinn garð nú þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna, hvers meðlimir eru ekki háðir vilja kjósenda og hvers úrskurði verður ekki áfrýj- að, hefur ákveðið fyrir hönd allra að hann sé réttkjörinn forseti Bandaríkjanna. Þegar Hæstiréttur Flórída úr- skurðaði í síðustu viku að vafa- atkvæði úr þremur sýslum fylk- isins skyldu handtalin, vísaði hann úrskurði sínum til stuðn- ings til laga um framkvæmd kosninga, þar sem segir að þegar talin séu vafaatkvæði skuli leitast til fullnustu við að finna tilgang kjósenda áður en atkvæðin séu dæmd ógild. Með öðrum orðum, lögin segja að þó viðkomandi at- kvæðaseðill sé þannig að ekki sé krossað alveg rétt í hringinn eða gatað þannig að flipinn losni al- veg skuli atkvæðið talið svo lengi sem greina megi vilja viðkom- andi kjósanda. Lagaákvæði sem þetta er langt frá því að vera einstakt eða sér- staklega bundið við Flórída. George W. Bush, sá hinn sami og nú er orðinn forseti, skrifaði til dæmis undir svipuð lög í krafti embættis síns sem ríkisstjóri í Texas og eftir kosningamar í nóvember var þeim beitt þegar handtaldir voru atkvæðaseðlar sem kjörvélar höfðu afgreitt sem ógilda af því að þeir höfðu ekki verið gataðir rétt. Þar var reynd- ar bara í húfi sæti á fulltrúaþingi Texas. Rök Bush fyrir því að snúa bæri úrskurði Hæstaréttar Flór- ída við voru þau að þar með væri verið að meta atkvæði kjósenda í Flórída mismunandi eftir sýslum. Hann hafði þar vissulega rétt fyrir sér, en staðreyndin er þó sú að í Flórída eru engin lög sem kveða á um að atkvæðin skuli metin eins eftir sýslum. Það er að segja, ef koma upp vafaatriði einhvers staðar, segja lögin að þar skuli menn endurmeta málið eftir bestu getu, en þau segja hins vegar ekkert um áhrifin á talningu atkvæðanna annars staðar í fylkinu. En þarna vildi Bush að sjálfur Hæstiréttur Bandaríkjanna tæki af skarið og sæi um ákvarðanatökuna. Eðli- lega. Hann vildi verða forseti. Skítt með það smáatriði að hann þyrfti að eta ofan í sig einhverja kosningavæmni um vilja fólks umfram vilja alríkis. Nú þegar sér fyrir endann á þessum skrípalátum öllum er óhætt að fara að undirbúa næstu umferð. Þá munu fjölmiðlar væntanlega fara gaumgæfilega ofan í kjölinn á atburðarásinni og frammistöðu persóna og leik- enda, að sjálfum sér meðtöldum. Þegar er umræðan orðin nokkuð fjörleg um vissa þætti, ekki síst um það sviðsljós sem síðustu vik- urnar hefur umleikið æðstu dóm- stóla landsins. Og það verður að segjast eins og er að þeir virðast þola birtuna heldur illa. Glansmyndin er sú að dómstól- arnir séu óháðir. Oháðir stjórn- málum, stjórnmálamönnum og almenningi og þar með óháðir öllum þrýstingi. Dómstólarnir hafi það eitt að markmiði að komast að sanngjarnri nið- urstöðu í hverju máli, innan ramma laganna. Það væri að æra óstöðugan að ætla að telja upp öll þau dómsmál sem upp hafa kom- ið í kjölfar kosninganna í Flórída undanfarnar vikur. Öllu einfald- ara er að skoða niðurstöður í þeim málum sem þeir A1 Gore og George W. Bush áfrýjuðu til æðri dómstóla, Hæstaréttar Flórída og Hæstaréttar Bandaríkjanna. Niðurstaðan féll einfaldlega alltaf í sinn „rétta“ pólitíska farveg, eftir pólitískum lit dómaranna. Þegar hin endanlega nið- urstaða Hæstaréttar lá fyrir, sem tryggði Bush sigurinn, var heldur önuglegur tónninn í minnihluta réttarins. Einn hæstaréttardómaranna, John Paul Stevens, sagði í áliti sínu að svo gæti farið að menn vissu aldrei með fullri vissu hver væri í raun sigurvegari kosninganna. Hins vegar væri augljóst hver hefði tapað. Þjóðin hefði glatað trausti sínu á dómurum sem hlutlausum varðmönnum laga og reglu. Mörgum þykja þessi ummæli sláandi, enda ekki á hverjum degi sem hæstaréttardómari lýs- ir áhyggjum sínum af að grafið hafí verið undan dómstólum í augum almennings. Það er þó enn meira sláandi hvernig um- mæli hans sanna sig í raun, því margir yppa öxlum og segja ekki mark á þeim takandi. Þarna tali ekki háttvirtur hæstaréttardóm- ari heldur bara vonsvikinn demó- krati. + Jóna Sigurveig Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 9. febrúar 1920. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ 5. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Einar Tómasson, kolakaup- maður í Reykjavík, f. 18. febrúar 1893, d. 12. september 1966 og eiginkona hans, Ragnhildur Jónsdótt- ir, f. 26. júlí 1893, d. 1. maí 1961. Systkini Jónu eru: Elín, f. 1917, d. 1982; Ásta, f. 1922, d. 1991; Anna, f. 1923; Guðrún, f. 1925; Tómas, f. 1927; Sigríður, f. 1929; Inga, f. 1930; Ragnhildur, f. 1931, d. 1986; Soffía, f. 1932 og Kristján, f. 1935. Jóna giftist, 28. apríl 1940, Haf- liða Helgasyni, útibússtjóra TJt- vegsbanka Islands á Siglufirði. Hann var fæddur 31. ágúst 1907, d. 8. júlí 1980. Foreldrar hans voru Helgi Hafliðason, kaupmað- ur og útgerðarmaður á Siglufirði, og eiginkona hans, Sigríður Jóns- dóttir. Synir Jónu og Hafliða eru: 1) Helgi, arkitekt, f. 2. mars 1941, kvæntur Margréti Erlendsdóttur, kennara. Börn þeirra eru Hafliði, f. 1964, Erlendur f. 1967 og Ólöf Huld f. 1974. 2) Einar, verkfræð- ingur, forstöðumaður brúadeildar Vegagerðarinnar, f. 4. september 1943, kvæntur Sigrúnu M. Magn- úsdóttur, röntgentækni. Börn þeirra eru Jóna Sigríður, f. 1965, Magnús, f. 1968 og Benedikt Orri, f. 1978. 3) Sigurður, útibússtjóri íslandsbanka á Siglufirði, f. 12. Stundum er dauðinn lausn frá þraut og það var hann í þetta sinn þegar hann kom til Jónu, tengda- móður minnar. Samfylgd okkar er orðin löng í ár- um mæld en virðist sem örskots- stund þegar litið er yfir farinn veg. Við sáumst fyrst þegar ég var átján ára skólastelpa og hún fertug. Leik- félag Menntaskólans á Akureyri var að sýna Siglfirðingum Eftirlits- manninn eftir Gogol og í þeim hópi var ég. Mæður siglfirsku krakkanna í M.A. tóku á móti okkur og sáu um veitingar af mikilli rausn og þar var Jóna. Báðar mundum við vel þennan fyrsta fund og höfðum tekið hvor eftir annarri, ég eftir henni vegna þess hvað hún var einstaklega falleg kona og einnig vegna góðleikans sem frá henni stafaði. Nokkrum árum seinna var hún orðin tengdamóðir mín. Náin kynni við Jónu ollu ekki vonbrigðum. Hún var ekki bara falleg og góð, hún var líka vönduð og heilsteypt mann- eskja, sterkur og góður vinur og svo var hún líka svo glöð. Jóna kom úr stórri og glaðværri fjölskyldu, næstelst ellefu systkina og þurfti því snemma að axla ábyrgð og temja sér umburðarlyndi. Það var gaman að heyra hana lýsa lífinu á Bergstaðastræti 24b þegar hún var að alast upp. Hún sagði svo skemmtilega og lifandi frá fólki og atburðum. Ég sá fyrir mér litlar stúlkur sem trítluðu yfir í næsta hús til þess að fá vínarbrauð og rúsínur hjá afa og ömmu. Sá fyrir mér allar kojumar í herbergjunum, þar sem stundum sváfu tveir í sama rúmi, einn stór og annar lítill. Heyrði skvaldrið og hlátrasköllin. Sá Ragn- hildi, móður þeirra, fyrir mér þar sem hún sat og sneri handsnúnu saumavélinni og saumaði flíkur á hópinn sinn og söng lögin úr Æv- intýri á gönguför og fleiri leikritum sem voru sýnd í Reykjavík á þessum árum. Frá Ragnhildi kom glaðværð- in, frá Einari, föður þeirra, alvaran og traustið. Þannig sé ég þetta þeg- ar ég raða saman minningabrotum úr frásögnum Jónu. Jóna stundaði nám í Verslunar- skóla Islands og lauk þaðan versl- unarprófi 1938. Sumarið 1937 bauðst febrúar 1946, kvæntur Kristrúnu Halldórsdóttur, um- boðsmanni. Börn þeirra eru Berglind, f. 1964, Ásdís, f. 1970, Halldór Bogi, f. 1972 og Hafliði Jón, f. 1978.4) Ragn- ar, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, f. 4. nóvember 1947, kvæntur Hansínu Ólafsdóttur sjúkra- liða. Börn þeirra eru Eiríkur, f. 1964, Guðrún Dögg, f. 1966, Hulda Lind, f. 1966, Sigríð- ur Arndís, f. 1972 og Ragnar Trausti, f. 1985. 5) Hafliði, jarð- fræðingur, sérfræðingur á jarð- fræðideild Háskólans í Bergen, f. 23. september 1953, kvæntur Eddu J. Ólafsdóttur barnalækni. Börn þeirra eru Svanhildur, f. 1980, Hafliði Arnar, f. 1985 og Ólafur Einai-, f. 1992. Barna- barnabörn Jónu eru 12 talsins. Jóna var alin upp í Reykjavík og lauk prófi frá Verslunarskóla ís- lands 1938, vann við skrifstofu- störf á Siglufírði þar til hún giftist og stofnaði heimili. Hún var einn af stofnendum Kvenfélags Sjúkra- húss Siglufjarðar og gjaldkeri þess í mörg ár. Eftir lát Hafliða fluttist hún til Reykjavíkur og bjó 2rst á Háaleitisbraut 40, síðan í rskógum 6 en dvaldist siðustu mánuðina á hjúkiunarheimilinu Skógarbæ. Útfór Jónu fer fram frá Siglu- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Kveðjuathöfn fór fram í Seljakirkju 13. desemb- er. henni sumarvinna á Siglufirði. Siglu- fjörður var á þessum árum síldar- bær í miklum uppgangi og kannski ekki sá staður sem feður vildu helst senda sautján ára dætur sínar til. Það var því með hálfum huga að Jóna stundi því upp við föður sinn, hvort hún mætti þiggja þessa vinnu. Svarið mundi hún alla tíð. Það var á þá leið, að það færi eftir manni sjálf- um í hvaða félagsskap maður lenti. Henni var treyst svo ungri og það varð henni leiðarljós við uppeldi fimm sona. Þetta sumar var hún á Siglufirði og aftur sumarið eftir og þá voru ör- lög hennar ráðin. Þar kynntist hún Hafliða Helgasyni og þau urðu sam- ferða upp frá þvi uns Hafliði lést sumarið 1980. Hafliði var einstak- lega skemmtilegur og listfengur maður og samband þeirra farsælt og fallegt. Þau bjuggu í 40 ár að Lindargötu 16 á Siglufirði. Á heimilinu bjó einn- ig Sigríður Jónsdóttir, móðir Haf- liða, og tók þátt í uppeldi drengj- anna þeirra. Þegar ég kom í fjölskylduna var Sigríður fallin frá en Jóna sá um að láta mig kynnast henni með lifandi lýsingum á persónugerð hennar og sögum úr daglega lífinu. Eg dvaldi fyrst sumarlangt með Helga á heimili þeirra Jónu og Haf- liða og varð fljótt ein af fjölskyld- unni. Þar var líf og fjör og nóg að gera. Strákarnir allir í síldarvinnu yfir sumartímann, maturinn þurfti að vera til á réttum tíma, nestisboxin full á nótt sem degi og síldargall- arnir hreinir. Það var eldað, bakað og þvegið og Jóna taldi ekki eftir sér að bæta við einum munni og nokkr- um síldargöllum þegar ég bættist í hópinn. Ég dáðist oft að elju hennar og dugnaði og hversu rösk hún var til allra verka. Auk þessa var mjög gestkvæmt á heimilinu. Hafliði var mjög félagslyndur maður og hafði yndi af að spjalla við gesti og gang- andi og bjóða heim í mat og kaffi. Bæði voru þau gestrisin og nutu þess í ríkum mæli að vera með skemmtilegu fólki. Sjálfur var hann í krefjandi starfi á þessum árum en þó að þau hefðu bæði meir en nóg að gera var samt tími til að hafa það skemmtilegt. Þegar færi gafst sett- ist Jóna niður með kaffibollann sinn, réði danskar krossgátur eða leysti bridsþrautir og þegar Hafliði kom heim að loknum vinnudegi settist hann gjarnan við píanóið og spilaði af fingrum fram og oft tókum við lagið. Þær eru margar minningarn- ar sem verma og gleðja. Jóna var einstök tengdamóðir, um það erum við sammála tengdadætur hennar. Við elskuðum hana og virt- um og hún gerði ekki upp á milli okkar og lét okkur allar finna kær- leik sinn og umhyggju. Hún ræktaði vel garðinn sinn og oft heyrðum við hana segja að ekkert væri sér meira virði en að finna hvað börnin hennar öll væru góðir vinir og hefðu það skemmtilegt saman. Þar átti hún líka við barnabömin sín og barna- barnabörnin sem ekki síður nutu ylsins og umhyggjunnar frá ömmu Jónu. Sjálf missti ég móður mína skömmu eftir að ég kom í fjölskyld- una og börnin okkar Helga kynntust ekki annarri ömmu en henni. Ekki síður þess vegna var okkur svo óum- ræðanlega mikilvægt að eiga hana eins og hún var, sífellt að fylgjast með velferð okkar allra. Við söknum hennar mikið og munum oft minnast hennar, vitna í hana, hugsa til henn- ar og gleðjast og þakka fyrir að hafa átt hana. Það var sárt að horfa á þessa sterku konu berjast við erfiðan sjúk- dóm síðustu árin og fylgjast með því hve sjón hennar og heym fóm dvín- andi en jafnframt var lærdómsríkt og þroskandi að verða vitni að þol- gæði hennar og baráttuþreki. Skyn- semi sinni og skýrri hugsun fékk hún að halda til hinstu stundar. Kristin trú gefur okkur fyrirheit um náð guðs og eilíft líf. í þeirri trú kveð ég kæra tengdamóður mína í djúpri þökk. Guð blessi minningu hennar. Margrét Erlendsdúttir. Það var í október 1983 þegar haustið var hvað fallegast, veðrið stillt, bjart yfir öllu og laufin í sínum fegurstu litum svifu um götur og tún í léttum dansi eins og þau væra ekki viss hvar þau ættu að tylla sér, en að lokum svifu þau til jarðar og biðu þess sem koma skyldi. Þannig var mér einnig innanbrjósts er ég gekk niður Háaleitisbrautina við hliðina á Ragnari að hitta þig í fyrsta skipti. Þegar þú réttir mér höndina og bauðst mig innilega velkomna hvarf mér allur kvíði. Mér varð starsýnt á fallegt andlit- ið þitt, augun svo brún og falleg og þetta festulega fallega fas, sem ein- kenndi þig alla tíð. Þú ræddir við mig eins og við hefðum alltaf þekkst, enda kom á daginn að þú vissir nán- ast allt um uppruna minn og ætt, sem Ragnar hafði frætt þig um, enda ættfræði ykkar sameiginlega áhugamál. Allt frá okkar fyrstu kynnum varstu bömum mínum sem besta amma, vildir fylgjast með öllu sem snerti þau, fylgjast með hvernig gengi hjá hverju og einu, og era þau þér innilega þakklát fyiir allan þann hlýhug sem þú sýndir þeim. Mér varstu ekki bara tengdamóðir held- ur líka besta vinkona. Minningarnar streyma fram og það er svo margs að minnast. Það var yndislegt þegar við fórum upp að Skálholti þrjú saman, kúrðum okkur niður á milli þúfnanna, tókum upp rauðvínsflösku og glös, dreypt- um á eðalvíninu og töluðum saman lengi dags, ræddum málin fram og aftur. Þú varst alveg í essinu þínu, að segja frá uppvaxtaráranum við Bergstaðastræti og það leyndi sér ekki að þau hafa verið þér góð, svo ljúfar vora minningarnar frá þess- um árum. Það hefur verið samheldin fjölskylda sem þar bjó oft þröngt, en hamingjan og gleðin réðu ríkjum í þeirri höll enda allir fengið það besta veganesti út í lífið sem hægt var að fá. Og þegar Siglufjörður barst í tal kom viss glampi í augun þín. Þú elskaðir þennan stað frá því þú fyrst steigst þar fæti. Þetta var fjörðurinn þinn um alla ævi. Þar beið stóra ást- in þín eftir þér, sem þú unnir af heil- um hug. Þú sagðir einu sinni: Mikið JÓNA SIGURVEIG EINARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.