Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 ........ .......■■■■■ ■.............. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Kristfn Andrésdóttir, Valdimar Haraldsson, Árelía Þ. Andrésdóttir, Leifur Rósinbergsson, Lára Halla Andrésdóttir, Sæmundur I. Þórðarson, Viggó Andrésson, Sigríður Björk Þórisdóttir, Andrés Jón Andrésson, Finnur Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA RAGNHEIÐUR GISSURARDÓTTiR, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 18. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Hrefna Jónsdóttir, Ríkharður Árnason, Einar Jónsson, Valgerður M. Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KJARTAN GÍSLASON málarameistari, Jöklafold 12, lést föstudaginn 15. desember. Sigrfður Pálsdóttir, Stefanía Kjartansdóttir, Margrét L. Kjartansdóttir, Jóhannes Þ. Ingvarsson og barnaböm. + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GISSURAR GUÐMUNDSSONAR, Háaleitisbraut 155. Erla Sigurðardóttir, Sigríður Gissurardóttir, Guðmundur Ragnarsson, Sigrún Gissurardóttir, Steinar S. Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, ARNÞRÚÐAR HELGU MAGNÚSDÓTTUR ASPELUND, Hlíf, ísafirði. Karl, Magnús og Helga Aspelund. |_______________________________________________ + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, og langamma, JÚLÍANA VIGGÓSDÓTTIR, Þangbakka 8, Reykjavík, lést fimmtudaginn 14. desember. Útförin verður auglýst síðar. Faðir okkar, SVEINN BERGMANN BJARNASON, (Denni Bjarna) lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 12. desember. Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni mánu- daginn 18. desember kl. 13.30. Bjarni, Ingibjörg, Úndfna, Ásmundur, Árni, Rúnar, Sigrún, Jón Þór og Róslind Sveinsbörn og aðrir vandamenn. + Logi Einarsson fæddist í Reykja- vík 16. október 1917. Hann lést á heimili sfnu, Miðleiti 7 í Reykjavík, 29. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Einar Arnórsson, prófessor, ráðherra og hæstaréttardóm- ari, f. 24.2. 1880, d. 29.3. 1955 og Sigríð- ur Þorláksdóttir hús- freyja, f. 22.3. 1877, d. 11.8. 1960. Bróðir hans, sammæðra, var Ólafur Haukur Ólafsson, f. 7.2. 1900, d. 7.11. 1970. Systur hans voru: Ingibjörg Einarsdóttir, f. 3.5. 1908, d. 22.1. 1994, Guðrún Ein- arsdóttir, f. 25.12. 1909, d. 25.2. 1928, Áslaug Einarsdóttir, f. 7.12. 1911, d. 31.8. 1947, Ásgerður Ein- arsdóttir, f. 30.8.1913, d. 8.9. 1997 og Hrafnhildur Einarsdóttir, f. 11.9.1915, d. 1.1.1964. Logi Einarsson, frændi minn og fóstbróðir, er látinn á 84. aldursári, f. í Reykjavík 16. október 1917. Hann hafði verið heilsulítill um nokkurra ára skeið og bagaði hann mest versnandi sjón. Hann fór samt nokkuð ferða sinna, gekk úti við, stundaði reglulega sína gömlu íþróttagrein, sundið, og sótti Rot- aryfundi. Bálför hans fór fram í kyrrþey, að hans eigin ósk, 8. des- ember sl. Logi var yngstur barna Sigríðar Þorláksdóttur Johnson og Einars Arnórssonar, prófessors, ráðherra og seinast hæstaréttardómara, eins kunnasta lögfræðings Islendinga á sinni tíð. Hann er síðastur bama þeirra sem fellur frá. Logi var móð- urbróðir minn og atvikin höguðu því svo, að frá því ég sá fyrst dagsins ljós, átti ég athvarf meira og minna á heimili foreldra hans á Laufásvegi 25, hjá ömmu minni og afa, en Logi var þá á 14. ári. Við Logi urðum því, þrátt fyrir aldursmun, eins konar fóstbræður, enda vorum við sam- tímis á þessu góða heimili allt þar til hann kvæntist 1946 og stofnaði sitt eigið, sem var raunar fyrsta áratug- inn og lengur í húsi afa míns, svo að mikill samgangur var ætíð á milli. þegar Logi kom í heiminn haustið 1917 var hann sannarlega kærkom- inn sonur foreldra sinna, Sigríðar og Einars, en áður höfðu þeim fæðzt frá 1908 til 1915 fimm dætur, systur Loga, sem báru hann á höndum sér, eins og geta má nærri. Á heimilinu var ennfremur 17 árum eldri hálf- bróðir Loga, Ólafur Haukur, sonur Sigríðar af fyrra hjónabandi hennar með Ólafi Hauki Benediktssyni, sem hún missti ung af slysförum eftir stutt hjónaband. Milli systkinanna ríktu miklir kærleikar alla tíð. Þá má nefna, að á heimilinu bjó fram á 9. aldursár Loga föðurafi hans, Arn- ór Jónsson frá Minna-Mosfelli í Grímsnesi (f. 1839), svo að tengslin við fortíðina voru traustum böndum bundin að þeirrar tíðar hætti á heimilum stórfjölskyldu. Það var gróið menningarheimili, sem Logi ólst upp á. Það bar sterk merki borgarmenningar, sem ruddi sér til rúms með borgurum og emb- ættismönnum í vaxandi höfuðstað á síðari hluta 19. aldar. Húsmóðirin var Reykjavíkurstúlka, Sigríður, dóttir Þorláks Ó. Johnson, hins framfarasinnaða kaupmanns, og Ingibjargar konu hans, sem lengi rak verzlun í miðbænum, en Einar Arnórsson, faðir hans, - fátækur sveitapiltur úr Grímsnesinu, sem hafði hafizt af sjálfum sér með skörpum gáfum og námshæfileikum, - orðinn velmetinn embættismaður, prófessor við hinn nýstofnaða Há- skóla í Reykjavík, orðlagður lög- fræðingur, og um hríð alþingismað- ur og ráðherra íslands, hinn síðasti, er gegndi því embætti (1915—17). Þar á heimili voru sögu- og laga- vísindi, bókmenntir og ýmiss konar listir, bæði tónlist og málaralist, Logi kvæntist 1946 Helgu Tryggvadótt- ur, f. 19.7. 1920. Þau skildu. Logi kvæntist 14.11. 1953 eftirlif- andi eiginkonu sinni, Oddnýju Gísladóttur húsfreyju, f. 22.1. 1922. Foreldrar henn- ar voru Gísli Ámason sjómaður, f. 16.9. 1880, d. 8.8. 1959, og Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 16.8. 1886, d. 5.5.1965. Dætur Loga og Oddnýjar eru: 1) Ýr, læknir, f. 24.2. 1955. 2) Hrund, M.ed. sér- kennari, f. 19.2. 1957, gift Guð- mundi Páli Péturssyni, f. 1954. Börn þeirra eru: Logi, f. 1980, Oddur Pétur, f. 1984 og Dögg, f. 1988. 3) Sigríður, lögfræðingur, f. 15.9. 1962, gift Hilmari Vilhjálms- syni, f. 1964. Böm þeirra eru: Lára, f. 1990 og Hringur, f. 1993. hafðar í heiðri. Húsmóðirin var sér- lega listhneigð, stundaði listsaum og lék á píanó, og dóttirin, Áslaug, lagði stund á málaralist, en varð skammlíf, og sú elzta, Ingibjörg, móðir mín, varð heilluð af leiklist og stundaði þá grein um skeið. Hús- bóndinn þótti frábær kennari og var afkastamikUl vísindamaður og rit- höfundur á sviði lögfræði og sagn- fræði, og féll sjaldan verk úr hendi. Logi Einarsson virti foreldra sína mikils og var alla tíð hændur að þeim og boðinn og búinn til að reyn- ast þeim, svo og systkinum sínum góður og ræktarsamur sonur og bróðir, enda einkenndi skaphöfn hans glaðlyndi og geðprýði, en einn- ig viljafesta og heilbrigður metnað- ur. Logi var fæddur nokkru eftir að faðir hann hafði lokið fyrri ráð- herradómi sínum, með því að koma fram mikilvægri stjómarskrár- breytingu, og skammt var til þess, að hann tæki að sér setu í nefnd þeirri, sem samdi við Dani um full- veldi landsins 1. des. 1918, en þar var Einar Amórsson í fremstu víg- línu. Það mátti því segja, að þessi forystustörf Einars á sviði lands- mála beindu að honum skæm kast- Ijósi og þá sætu bæði vinir og óvinir á fleti fyrir, eins og gengur. Slíkt setti auðvitað mark sitt á líf Einars og fjölskyldu, og ekki hefur farið fram hjá Loga, er hann þroskaðist, að pólitíkin gat verið viðsjárverð, og kannski lítt til eftirsóknar, enda lét hann það ásannast með sjálfan sig og kom þar lítt nærri. En hinn ungi piltur hefur vafalaust fundið, að all- nokkrar kröfur hlytu að verða gerð- ar til þess, að hann, sonur þessa um- deilda manns, yrði ekki verrfeðr- ungur, nema síður væri, en föður sínum til sóma og þeim foreldrum hans báðum. Og undir þeim vænt- ingum stóð hann sannarlega á sinn sjálfstæða hátt. Kannski hefur Loga framan af þótt rétt að snúa sér að öðm lífs- starfi en lögfræðinni, þvi að hann settist í Verzlunarskóla íslands og lauk þar burtfararprófi vorið 1936. Hann reyndist hinn bezti námsmað- ur, svo að það var að vonum, að krókur beygðist til áframhaldandi náms. Hann las lærdómsdeild Menntaskólans í Reykjavík utan- skóla með einkatímum í nokkmm fögum, og naut föður síns í öðmm, eins og latínu og stærðfræði, sem Einar skemmti sér við í frístundum alla ævi. Logi lauk stúdentsprófi vorið 1939 með góðri einkunn. Þar með var brautin mdd til að feta í fótspor föður síns og hefja nám í lögfræði. Allt gekk þetta eftir, og hann lauk embættisprófi vorið 1944 með hárri 1. einkunn. Síðan gerðist hann embættismaður á sviði lög- fræðinnar, sakadómari, stjómar- ráðsfulltrúi, yfírsakadómari og loks hæstaréttardómari frá 1964 til árs- loka 1982, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Logi lauk prófi frá Verslunar- skóla íslands 1936, varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1939 og cand. juris frá Háskóla ís- lands 1944. Hann stundaði fram- haldsnám í Svíþjóð 1946-1947, hdl. 1949 og varð löggiltur til sóknar opinberra mála í héraði 1951. Hann var fulltrúi hjá saka- dómaranum í Reykjavík frá 1944 til 1951, fulltrúi í dóms- og kirkju- málaráðuneytinu frá 1951 til 1961 og fékkst jafnframt nokkuð við málflutning. Á árunum 1944 til 1964 kenndi hann verslunarrétt við Verslunarskóla fslands. Árið 1961 var hann skipaður yfirsaka- dómari í Reykjavík. Hann var skipaður hæstaréttardómari árið 1964 og gegndi því embætti þar til honum var veitt lausn fyrir aldurs sakir í janúar 1983. Hann gegndi jafnframt starfi vararikissátta- semjara í vinnudeilum árin 1962- 78. Logi var virkur í skátahreyf- ingunni á sínum yngri árum auk þess sem hann var mikill sund- maður og synti um árabil með Sundfélaginu Ægi. Hann var í keppnisliði íslendinga á Ólympíu- leikunum í Berlín árið 1936. Útförimhefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. í öllum þessum störfum var Logi virtur og farsæll embættismaður, og ég þykist viss um, að hann hefur ávallt dæmt af þekkingu og réttsýni þess manns, sem vildi halda uppi virðingu og reisn hins æðsta dóm- stóls þjóðarinnar, er ávallt nyti óskoraðs trausts fólksins í landinu. í starfi sínu við réttinn hygg ég, að hann hafi unað sér vel, og fengizt við það áhugasvið, sem bezt höfðaði til hans. Þar fékkst hann við að grand- skoða flest þau tilbrigði, sem geta komið upp í lífi þegnanna, en vera þó til hliðar við daglegan skarkala þjóðfélagsins sem ftjáls og óháður dómari. Ég þykist vita, að sam- starfsmenn hans í réttinum muni greina betur frá starfí hans þar en ég er fær um. Logi fékkst við kennslu í sínum gamla skóla, Verzlunarskólanum, kenndi þar verzlunarrétt frá því hann lauk lögfræðiprófi, þar til hann fór í Hæstarétt, og samdi kennslu- bók í þessari grein. Hann þótti góð- ur kennari, eins og faðir hans, skýrði hlutina af nákvæmni, var strangur um námskröfur og fram- komu, og gat verið hæðinn, ef nem- endur gáfu tilefni til, en ég hygg ávallt sanngjam og raungóður. Logi fór ekki varhluta af útgáfu- störfum, svo rækilega, sem hann komst í kynni við þau hjá föður sín- um. Logi aðstoðaði hann iðulega með prófarkalestri og öðmm und- irbúningi við útgáfu Alþingisbóka íslands og Landsyfirréttar- og hæstaréttardóma, sem Einar gaf út á vegum Sögufélags alla þá tíð, sem hann var forseti þess (1935-55). Ég kynntist þessu síðar, er ég var nógu gamall til að taka sæti Loga á hinum sama bekk og lesa prófarkir með afa mínum. Það var lærdómsríkur skóli fyrir frekari störf á þessum vett- vangi, en ekki alltaf að sami skapi skemmtilegur! í Hæstarétti kom slíkt sér vel fyrir Loga, er honum var falin umsjón með útgáfu dóma- safns réttarins. Logi gerðist frá unga aldri mikill útivistarmaður, enda gekk hann til liðs við skátahreyfinguna, þar sem hann tileinkaði sér það, sem hreyf- ingin lagði áherzlu á að kenna sínum ungu félögum til sjálfsbjargar í ferðalögum og félagsstörfum. Hann ferðaðist innan lands og utan með góðum félögum sínum í hópi skáta. þannig fór hann slíka ferð á heims- mót („Jamboree") skátahreyfingar- innar, sem haldið var í Búdapest sumarið 1933, er hann var 15 ára. Var þessi Ungverjalandsferð honum eftirminnileg, svo sem geta má nærri, þar sem slíkar ferðir voru þá algert nýnæmi fyrir unga sem aldna. Á árunum kringum 1940 var Logi orðinn einn af fremstu sundmönnum landsins á keppnissviði. Hann var félagi í Sundfélaginu Ægi og tók þátt í sundmótum á vegum þess félags. Hann þótti með afbrigðum góður sundmaður, m.a. bera af í LOGI EINARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.