Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 63
I
UMRÆDAN
N orðurlandamethaf-
!| inn í sykuráti hefur
• heldur betur tekið við
sér síðustu vikurnar.
É Varla hefur liðið sá
dagur að ekki hafi verið
fjallað um sykur,
neyslu hans og eigin-
leika í einhverjum fjöl-
miðlanna, svo ekki sé
minnst á alla um-
ræðuna í heitu pottun-
um og á kaffistofunum.
|| Umræðan er þörf, svo
( mikið er víst, en ber
|1 þess jafnframt merki
ll að öllum er ekki fylli-
lega ljóst hvaða fyrir-
brigði sykurinn eigin-
lega er og þvi síður hvaða áhrif hann
hefur á líkamann.
Því sykur er ekki bara hvíta duftið
í sykurkarinu. Hann leynist í matn-
um okkar í ýmsum myndum og gerð-
um, ýmist sem náttúrulegur hluti
ávaxta, grænmetis og mjólkur eða
1 sem viðbót til að gefa matnum sætt
É bragð. Efnabygging sykursins er
|j líka misjöíh: Þrúgusykur og ávaxta-
sykur eru einsykrur en mjólkursyk-
ur og súkrósi eru tvísykrur þar sem
tvær sykursameindir eru tengdar
saman. Þrúgusykurinn skipar heið-
urssess meðal allra sykurgerða, því
þar er kominn sjálfur blóðsykurinn,
glúkósinn, sem er nauðsynlegur
orkugjafi fyrir líkamann, þó sér í lagi
heila og taugakerfi. Ef blóðsykur
fellur um of af einhverjum ástæðum,
í t.d. of stórum skammti af insúlíni
fjTÍr sykm-sjúka, er því
voðinn vís og afleiðing-
arnar geta verið með-
vitundarleysi, jafnvel
dauði.
En það getur orðið
of mikið af því góða, því
of hár blóðsykur er
einnig hættulegur
heiisunni. Hjá heil-
brigðu fólki, sem borð-
ar fjölbreytta og
heilsusamlega fæðu,
sveiflast blóðsykurinn
daglega á eðlilegan
hátt og þar ráða ferð-
inni hormónin insúlín
og glúkagon, ásamt
fæðunni sem við látum
í okkur. Fyrir morgunverð er blóð-
sykurinn stöðugur en tiltölulega lág-
ur, hann hækkar samstundis og eitt-
hvað er borðað en lækkar síðan
aftur, jafnvel niður íyrir fastandi
gildi eftir máltíðina. Þannig sveiflast
sykurinn frá einni máltíð til þeirrar
næstu, mismikið eftir því hvað er
borðað ogí hvaða magni.
Það er hins vegar ekki nauðynlegt
að borða sykur til að blóðsykurinn
hækki eftir máltíð. Svo að segja öll
fæða úr jurtaríkinu inniheldur fjöl-
sykruna sterkju sem brotnar niður í
þrúgusykur við meltingu og berst út
í blóðið sem blóðsykur. Sterkjan er
kolvetni, rétt eins og sykurinn, mun-
urinn á þessu tvennu er fyrst og
fremst fólginn í fjölda sykursam-
eindanna. I sterkjunni skiptir fjöld-
inn hundruðum en í sykrinum eru
sameindimar aðeins ein eða tvær.
Dæmi um sterkjurík matvæli eru
kartöflur, hrísgrjón og pasta, brauð,
morgunkorn og aðrar kornvörur.
Sykur úr sterkjuríkum matvælum
berst hins vegar mishratt. út í blóðið
og sykurtoppurinn í blóðinu verður
mishár eftir að þessara matvæla er
neytt. í því sambandi er stundum
talað um sykurstuðul matvæla eða
glykemíst index en stuðullinn er
mælikvarði á hversu hratt sykurinn
Næring
Um helmingur alls
viðbætts sykurs í fæði
barna og unglinga, segir
Laufey Steingríms-
dóttir, kemur úr
gosdrykkjum.
berst út í blóðið eftir neyslu fæðunn-
ar. Mjög snöggar og miklar sveiflur í
blóðsykri eru yfirleitt ekki taldar af
hinu góða því rannsóknir benda til
þess að slíkt geti aukið líkur á of-
þyngd og langvinnum sjúkdómum,
hjartasjúkdómum og fullorðinssyk-
ursýki. Þar skiptir mestu máli
hversu fínunnin matvælin eru,
þ.e.a.s. hvort brauðið er gróft eða
fínt, hrísgrjónin hvít eða brún, morg-
unkomið heilt eða malað. Grófí mat-
urinn inniheldur m.a. trefjar sem
hægja á ferð næringarinnar út í
blóðið. Einnig skiptir máli hvernig
máltíðin er samansett, t.d. hækkar
blóðsykurinn minna ef grænmeti er
borðað með matnum og máltíðin er
fjölbreytt en ekki eintóm hrísgrjón,
kartöflur eða þurrt brauð.
Ef við borðum sykur, hvort heldur
er viðbættan sykur eða fæðu sem er
sæt frá náttúrunnar hendi, fer hann
líka mishratt í blóðið. Blóðsykurinn
hækkar minna ef sykurinn er nátt-
úrulegur hluti ávaxta og grænmetis
og eins ef hann er borðaður sem hluti
af blandaðri máltíð heldur en ef um
er að ræða sykurdrykk eða sætindi
ein og sér. Gos og sælgæti á fastandi
maga hafa þannig allt önnur og verri
áhrif en sykur sem er hluti af annars
vel samsettri og hollri máltíð. Þetta
vita flestir sem hafa sykursýki og
þurfa að gæta vel að sykursveiflum í
blóði.
Viðbættur sykur er
tómar hitaeiningar
Hver er þá munurinn á hollustu
sterkjuríkra matvæla, sætra ávaxta
og matvara með viðbættum sykri?
Grundvallarmunurinn er sá að við-
bætti sykurinn bætir kaloríum við
matinn án nokkmra annarra nær-
ingarefna. Hann er tómar hitaein-
ingar í orðsins fyllstu merkingu.
Könnun á mataræði bama sem
Manneldisráð vann fyrir nokkrum
árum sýndi t.d. að þau böm sem
borðuðu mestan viðbættan sykur
fengu minna af kalki, járni, prótein-
um og vítamínum en önnur böm:
sykurinn kemur einfaldlega í staðinn
fyi-ir hollan mat. Því meira sem við
fáum af viðbættum sykri, því minna
er af grænmeti, ávöxtum, trefjarík-
um kornmat, mjólkurvömm, fiski og
kjöti, matvöram sem gefa holla nær-
ingu. Sykur og sterkja sem era í
matnum frá náttúrannar hendi era
ekki undir þessa sömu sök seld, því
með þeim fáum við nauðsynleg holl-
ustuefni. Fínunnin kolvetnarík mat-
væli, t.d. hvítt hveiti og hvít hrís-
grjón, hafa þó glatað miklu af
uppranalegum og nauðsynlegum
næringarefnum. Þar er lítið um~'
trefjar, vítamín og steinefni. Gróf
brauð era því tvímælalaust betri og
hollari kostur en hvítt brauð, rétt
eins og ávöxtum og brjóstsykri verð-
ur seint jafnað saman að hollustu,
jafnvel þótt sykurmagn þessara
tveggja vara geti verið hnífjafnt.
Þau met sem Islendingar setja í
sykuráti era nefnilega síður en svo
fólgin í mikilli ávaxtaneyslu eða öðr-
um matvöram sem era sætar frá
náttúrunnar hendi. Hér er minna
borðað af ávöxtum en víðast hvar, og
mun minna en æskilegt getur talist.
Það er eingöngu viðbætti sykurinn,
sá sem kemur með gosdrykkjum,
sælgæti, kökum, kexi, sykruðum
mjólkurvöram og sætu morgun-
komi, sem hér er um að ræða. Þar
skipta gosdrykkirnir mestu máli, því
um helmingur alls viðbætts sykurs í
fæði barna og unglinga kemur úr
þessari einu vöra. Hinn helmingur-
inn skiptist nokkuð jafnt milli sæl-
gætis, sykraðra mjólkurvara, kex og
sætabrauðs og sykraðs morgun-
koms. Sumar tegundir af morgun-
korni era það sykraðar að þær era
meira í ætt við sælgæti en hollan
morgunverð og sama verður sagt um
margar mjólkurvörur. Viðbættur
sykur er því miður ekki merktur á
umbúðir alla jafna, og því getur verið
þrautin þyngri fyrir neytendur að
átta sig á hversu miklum sykri hefur
verið bætt í vörana. Á heimasíðu
Manneldisráðs verður að nokkram
vikum liðnum hægt að sjá magn við-
bætts sykurs ásamt öllum helstu
næringarefnum í algengum matvör-
um á markaði. Slóð heimasíðunnar
er www.manneldi.is
Höfundur er forstöðumaður
Manneldisráðs.
Sykur og brauð
- sitt af hvoru tagi
Laufey
Steingrímsdóttir
Drengjaskór
J995-
Láttu okkur aöstoöa þig viö val á réttum innleggjum
^ MjíiEjMnn #
■^Háaleitisbraut 58 • Simi 553 2300
Mesta úrval landsins
af aringrindum og arináhöldum
Arinkubbar,
kassi með 6 stk.
Stór: 1.560
Lítill: 1.056
Arinkubbar
arinviður: 1.050
Næg bílastæði
Opiö alla virka daga frá kl. 8:00- 18:00
og laugardagurinn 16.des frá kl. 10:00-22:00
Grandagarði 2 i Reykjavík | sími 580 8500
Arinskúffa 50x30
«»«»«»a»«a«»a»^
2.990 }
Aringrínd
5.990
4
ORÐSENDING
FRÁ LÍFEYRISSJÓÐI VERKFRÆÐINGA
TIL SJÓÐFÉLAGA
Lífeyrissjóður verkfræðinga hefur sent sjóðfélögum sínum yfirlit yfir móttekin
iðgjöld til samtryggingardeildar á tímabilinu 1. janúar - 31 .júlf 2000.
Lífeyrissjóður verkfræðinga hefur einnig sent sjóðfélögum sínum yfirlit yfir
móttekin iðgjöld til séreignardeildar á tímabilinu frá 1. janúar- 31. ágúst 2000.
Hafi einhver ekki fengið yfirlit en dregið hafi verið af launum hans f Lífeyrissjóð
verkfræðinga, eða ef yfirlitið er ekki ( samræmi við frádrátt á launaseðlum, þá
vinsamlegast hafið samband við skrifstofu sjóðsins nú þegar og eigi síðar en 29.
desember 2000.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins geta dýrmæt réttindi glatast.
GÆTTU RETTAR ÞINS
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa
vegna gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu
yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi
lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu
tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil
sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er
viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á
grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd,
enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um
iðgjaldakröfuna.
iifi
Sflg
Lífeyrissjóður verkfræðinga
Engjateigi 9, 105 Reykjavík,
sími 568 8504, fax 568 8834