Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 87
MORGUNBLAÐIÐ_____________
FÓLK í FRÉTTUM
Geisladiskurinn Stokkseyri kom út á dögunum
Morgunblaðið/Golli
ísak og Sverrir í leit að Ijóðum.
Fjara full ljóða
Það er margt hægt að
fínna í fjöruferðum.
Birgir Öm Steinarsson
uppgötvaði það þegar
hann lagði í eina slíka
_með Isaki Harðarsyni
_skáldi og Sverri Guð-
jónssyni kontratenór.
INNBLÁSTUR þræðir sig í gegnum
fólk líkt og þráður sem vill verða að
perlufesti. Ein hugmynd verður
kveikjan að annarri. Nýja hugmyndin
teygir svo anga sína örlítið lengra en
sú eldri. Líkt og brimið sem rennur
upp á land þegar flæðir að og fyr-
irfram veit enginn hvað verður eftír á
ströndinni.
Nýverið kom út geisladiskurinn
Stokkseyrí sem inniheldur tvö tón-
verk eftir Hróðmar Inga Sigur-
björnsson í flutningi Caput og Sverris
Guðjónssonar. Annað þeirra samdi
Hróðmar upp úr ljóðum ísaks Harð-
arsonar, án þess að hafa nokkru sinni
hitt hann. Hann fann eitthvað í Ijóð-
um hans sem færði honum innblástur.
bráðinn, sem síðar varð að ljóðabók-
uini, tónverkinu og plötunni Stokks-
eyrí, er því hægt að rekja til upplifana
eins manns. Byijum því á byijuninni.
»Ég fór þama á Stokkseyri í
nokkra daga í október 92 og byrjaði
uð skrifa þar voðalega merkilega bók í
ernrúmi," rifjar skáldið ísak Harðar-
son upp fyrir blaðamanni. „Ég leigði
þarna lítinn bústað sem stóð alveg
niður við sjóinn. Svo gekk mér ekkert
að semja þessa stóru merkilegu bók
sem ég ætlaði að skrifa. Svo var ég að
nölta þama í fjömnni einn daginn og
þá bara fannst mér fjaran vera full af
ijóðum. Ég vaknaði bara upp.Það
er fullt af ljóðum héma,“ sagði ég.
Það var bara stemmningin þama,
birtan, sjórinn, himinninn og fjaran
sem kveiktu fullt af ljóðum á skömm-
um tíma sem ég hripaði svo niður.
Síðan byggði ég ofan á þau. Ég skildi
skrifblokkina eftir í skúmum, var al-
Veg laus við hana og alveg fijáls eins
°g fuglinn í fjörunni. Ég skrifaði Ijóð-
mniður á tékkhefti, það var eini papp-
uinn sem ég var með. Þetta var á
Peim dögum fyrir kreditkortin þegar
menn gengu enn með tékkhefti á sér.“
Kannaðist við sig í ljóðunum
»Hróðmar Ingi las Ijóðabókina
nans Isaks sem kom út árið 94, valdi
nokkur Ijóð og samdi tónlist við þau
fyrir gítar og kontratenór rödd,“ bæt-
U' Sverrir Guðjónsson kontratenór við
°g rekur þráðinn áfram. „Þegar ég
fvo leitaði til hans til þess að athuga
nvort hann hefði einhveijar hug-
m.yndir að samstarfsverkefni stakk
nann upp á þessu.“
»Ég kynntist Hróðmari bara út af
Pessu,“ heldur ísak áfram. „Hann
nafði samband við mig eftir að hann
var byijaður að semja og spurði mig
hvort ég hefði eitthvað á móti þessu.
Ég hafði ekkert þekkt hann áður.
Hann sagði mér frá því að sem strák-
ur ólst hann upp í Hveragerði. Þá
skrapp hann oft suður til Stokkseyrar
og Eyrarbakka. Svo þegar hann las
ljóðin vaknaði sama tilfinning og hann
skynjaði þegar hann var yngri. Hon-
um fannst hann kannast við sig þama
í ljóðunum."
Lítill maður í stórri fjöru
Vinnuferlið var langt, enda vandað
til verks. Svo kom að því einn daginn
að ísak fékk að heyra ljóð sín klædd
tónum Hróðmars í flutningi Sverris
og Caput hópsins.
„ísak heyrði þetta í fyrsta skiptið í
Iðnó, þegar við vorum að æfa fyrir
frumflutninginn á Listahátíðinni,“
segir Sverrir.
„Ég man hvað ég var ánægður þeg-
ar ég heyrði þetta,“ segir ísak við
Sverri og Ijómar. „Mér fannst þetta
vera svo lifandi tónlist og mér fannst
þessi kontratenór rödd þín ná ljóðinu
svo vel. Það er viss einsemd í Ijóð-
unum og kontratenór röddin er ein-
sömul.“
„Já, ef þú hlustar vel eftir því þá er
einhver hljómur þama sem er mjög
einmana," viðurkennir Sverrir fús-
lega.
Skáldið var ekki lengi að vakna í
honum ísak við tilhugsunina um söng
Sverrirs.
„Lítill maður sem stendur í stórri
fjörunni og tjáir sig út frá hjartanu...,“
segir Isak hugsandi á svip. „...mér
finnst það eiga vel við röddina."
„Hún getur haft ýmsa liti,“ segir
Sverrir. „Hún getur líka haft dökkan
lit inn í þessari birtu. Litaskalinn get-
ur verið mjög fjölbreytilegur. Ég get
tekið undir það að bæði ljóðið og tón-
listin eru viðkvæm á ýmsa vegu, og
brothætt. Þannig að það má voðalega
lítið út af bera til þess að þetta verði á
skjön eða ósatt.“
Töfrar Stokkseyrar
Að lokum væri gaman að vita hvort
þeir hefðu heimsótt þennan töfrastað
nýlega sem ber nú nafn sköpunar-
verks þeirra.
„Ég fer öðm hverju til Stokkseyr-
ar,“ viðurkennir Sverrir. „Þessi stað-
ur hefur eitthvað mjög sérstakt. Það
er svo opið út á sjóndeildarhringinn
og fjaran er mjög breið.“ Hér dokar
Sverrir við, lítur upp til ísaks og seg-
ir:
„Þú hefur haft gott tækifæri til
þess að grípa ljóð þama.“
„Ég náði samt ekki nema örfáum af
þeim sem era þama,“ svarar ísak
svekktur.
„Ég fór þama stuttu eftir að platan
kom út,“ bætir Sverrir svo við. „Það
var yndislegt. Það er svo magnað að
sjá brimið þama fyrir utan. Mér
fannst ég endurnýjast þennan dag,
maður fyllist einhverri bjartsýni og
súrefni."
Ást ísaks á staðnum verður greini-
lega ævilöng.
„Húsin standa stök og það er langt
á milli þeirra," segir hann. „Það er
ekkert nema himinninn, hafið og mað-
ur sjálfur. Það er svo mikið rými
þarna og manni finnst eins og maður
verði að fylla upp í það, sem er nátt-
úrlega vonlaust. En það hvetur mann
til þess að reyna.“
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 87
mar
Gott verð - mikið úrval
Cappuccino bollasett á aðeins
Hámákvæm baðvog
Sígild og vinsæl loftvog
með hita- og rakamæli
Mikið úrval af seríum og aukaperum
Hitakönnur I öllum regnboganslitum
Úr þessum amerisku pottum er hægt
að hella án þess að taka bkið af
Snagar frá hinum virtu
hönnuðum Interdesign
Uþþ með kampavínið
og beint f fötuna!
Tvöfaldur hitabrúsi, ryðfritt stál
og engiri glerfiaska
byggtogbúið
Kringlunni
Troðfull búð af jólagjöfum
fyrir kylfinginn A
EiSTA
GO
Nytt kennslumyndband með Arnari Má
og Úlvari sem hentar öllum kylfingum,
hvort sem eru byrjendur eða lengra
komnir. Verð kr. 3.600,-
Vertu flottur á þvi, konan þín á skilið það besta. Kvennakylfurnar
frá Nancy Lopes hafa slegið í gegn. Járnasett með grafitsköftum,
verð frá kr. 49.400,- ______
Nýji Taylor hade driverinn á fáránlegu verði
meðan birgðir endast. Verð kr. 35.900,-
Stálkerrur. I
Verð kr. 2.900,-
Mudskipperinn frá Adidas, fxrð
ekki betri golfskó í vetrargolfið,
verð kr. 11.900,-
Frábærar kylfur fyrir born og
unglinga frá US Kids Golf,
verð á kylfum frá kr. 2.700,-
rutthola sem kastar
boltanum til baka.
Verð kr. 1.900,-
SðLrv
MAXFLl
/Xuxna
~ <^r RNB
Wiífetm
ÞINN LEIKUR
ÞIN VERSLUN
G/TL
Nethyl 2 • Sími 577 2525 • Póstkröfuþjónusta
Opiö alla daga fram að jólum frá kl. 10:00 til 22:00
www.nevadabob.is
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
mbl.is
-ALL7AH e/TTH\SA4D A/Ýlm