Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
Afhenti 50. íbúðina á Akureyri
TÍU ár eru um þessar mundir lið-
in frá því Húsnæðissamvinnu-
félagið Búseti afhenti fyrstu íbúð
sína á Akureyri, en hún er í fjöl-
býlishúsinu við Múlasíðu 9. Félag-
ið afhenti nú nýlega 8 íbúðir í
fjórbýlishúsum við Holtateig 1 og
3, en í þeim hópi var fimmtugasta
íbúð félagsins. Við þeirri íbúð
tóku þau Sigurlaug Anna Sig-
tryggsdóttir og Gunnar Hall-
dórsson. Að lokinni afhendingu
íbúðanna 8 á og rekur Búseti alls
52 íbúðir á Akureyri.
Til viðbótar á félagið í bygg-
ingu 7 íbúðir við Holtateig og hef-
ur einnig gert samninga um kaup
á 12 íbúðum við Skessugil en þær
verða afhentar síðla næsta árs og
í apríl 2002. Öllum þessum íbúð-
um hefur verið úthlutað til félags-
manna. Á næstu árum áformar
Búseti að byggja að meðaltali 12
íbúðir árlega á Akureyri.
lllli -■ -■ •
gpbi L'-íj'líUÍJlH
■ ln
iiiil ■; v.
'ÍÍÍÍÍUÍÍL lirtl
Morgimblaðið/Kristján
Gunnar Halldórsson og Sigurlaug Anna Sigtryggsdóttir taka við lyklum að fímmtugustu íbúðinni sem Búseti
afhendir á Akureyri, en það var Heimir Ingimarsson, framkvæmdastjóri félagsins, sem afhenti lyklana.
TALNINGA-
VOGIR
• Léttu þér vinnuna
í talningunni!
• Auðveld í notkun
• Vog á fínu verði
Haföu samband eða
skoðaðu www.eltak.is
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Stjórn Einingar-Iðju í Eyjafírði
Motmælir skatta-
hækkunum
stjornvalda
STJÓRN Einingar-Iðju samþykkti
ályktun á fundi sínum í vikunni þar
sem því er mótmælt að stjórnvöld
hafi ákveðið að hækka skatta á
launafólk. Hækkun útsvars án sam-
svarandi lækkunar tekjuskattshlut-
falls hafi í för með sér auknar skatta-
álögur á launafólk og þar með
kjaraskerðingu. Stjórnin telur að
þetta gangi þvert á markmið kjara-
samninganna frá sl. vori en þau voru
að treysta undirstöður kaupmáttar.
Ennfremur segir í ályktuninni að
hækkun skatthlutfalls hafi einnig í
för með sér raunlækkun skattleys-
ismarkanna en það gangi þvert á yf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar sem gef-
in var í tengslum við gerð
kjarasamninga. Þar var því lofað að
skattleysismörk myndu fylgja um-
saminni launaþróun og ætlast laun-
þegar til að stjórnvöld standi við þau
loforð.
Stjórn félagsins bendir stjórnvöld-
um á að allar aðgerðir sem hafa í för
með sér kjaraskerðingar fyrir launa-
fólk séu til þess fallnar að grafa und-
an forsendum gildandi kjarasamn-
inga. Stjórnin krefst þess að
stjórnvöld taki þátt í að verja lífskjör
launafólks og forsendur kjarasamn-
inga í stað þess að grafa undan hvoru
tveggja. Mikilvægast sé að stjórn-
völd grípi ekki til neinna aðgerða
sem auka verðbólgu eða skerða
kaupmátt með öðrum hætti. Allar
slíkar ákvarðanir verði settar á
vogarskálarnar þegar uppsögn
kjarasamninga kemur á dagskrá í
byrjun næsta árs.
www.raymond-weil.com
RAYMOND WEIL
GENEVE
Morgunblaðið/Kristján
Árekstur varð á gatnamótum Kaupvangsstrætis og Glerárgötu. Annar
bfilinn kastaðist á umferðarvita sem brotnaði af staurnum við höggið.
Harður árekstur
við umferðarljós
HARÐUR árekstur varð við umferð-
arljós á gatnamótum Kaupvangs-
strætis og Glerárgötu skömmu fyrir
hádegi í gær. Tveir bflar skullu sam-
an þar sem annar ökumaðurinn ók á
móti rauðu ljósi. Við áreksturinn
kastaðist annar bíllinn á staur fyrir
umferðarvita og olli á honum
skemmdum. Ökumaður annars bfls-
ins kenndi sér meins í baki en báðir
bílarnir skemmdust og varð að draga
annan þeirra af vettvangi með
kranabfl.
í Skipagotu var ekið á kyrrstæðan
bíl á bflastæði í gærmorgun en sá er
þar var<á ferð hvarf af vettvangi, að
sögn lögreglu. Þá varð árekstur
tveggja bfla á hringtorginu á gatna-
mótum Hlíðarbrautar og Borgar-
brautar í gærdag. Ekki urðu slys á
fólki en einhverjar skemmdir á bíl-
unum.
Umferðarþungi hefur aukist
nokkuð í bænum undanfai’ið og á eft-
ir að aukast eitthvað síðustu daga
fyrir jól. Því ástæða fyrir vegfarend-
ur að fara að öllu með gát og flýta sér
hægt í jólaundirbúningnum.
i jfi fW
H' - '’w
Jll £ !&*}, ppll fP- . ,
Morgunblaðið/BFH
Syngjandi börn í Reykjahlíðarkirkju.
Aðventu-
kvöld í Mý-
vatnssveit
Mývatnssveit - Haldnar hafa verið
jólaföstusamkomur í báðum
kirkjum sveitarinnar, fyrst á
Skútustöðum og nú í Reykjahlíð á
sunnudagskvöldið. Sóknarprest-
urinn, Ömólfur J. Ólafsson, hefur
stjórnað athöfnum og flutt hugleið-
ingu á föstunni.
Á Skútustöðum var almennur
söngur við undirleik Jóns Áma Sig-
fússonar, en í Reykjahlíð sáu skóla-
böm að mestu um tónlistarflutning
bæði með söng og hljóðfæraleik
undir stjórn Valmars Valjaots frá
Eistlandi, en hann er skólastjóri
tónlistarskólans hér.
Um jól og áramót verða fímm
kirkjulegar athafnir í sveitinni og
verður eflaust húsfyllir í kirkjunum
okkar við þau tækifæri.
Laufáskirkja
Kvöldstund
við kertaljós
AÐVENTUDAGSKRÁ verður í
Laufáskirkju næstkomandi
fimmtudagskvöld, 21. desember,
og hefst hún kl. 21.
Sameiginlegur kór Svalbarðs- og
Laufássókna syngur undir stjórn
Hjartar Steinbergssonar. Kveikt
verður á aðventukertunum og lesin
stutt jólasaga. Gestur kvöldsins er
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir,
prestur á Möðruvöllum, og flytur
hún hugleiðingu um jólin. Kenn-
arar úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar
verða með tónlistaratriði og börnin
syngja við undirleik sóknarprests-
ins. Dagskráin endar með ljósa-
helgileik sem fermingarbörn ann-
ast og að síðustu fá öll börn í
kirkjunni ljós í hendur og allir
syngja Heims um ból.