Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Væntingar
Jóni Sigurðssyni veitt Viðskiptaverðlaun
DV, Stöðvar 2 og Víðskiptablaðsins
hjá Kauphöll-
inni í Ósló
Jákup Jacobsen
frumkvöðull ársins
Stærsti markaður fyrir bréf
sj ávarútvegsfyrirtækj a
Ósló. Morgunblaðið.
FORSVARSMENN Kauphallarinn-
ar í Ósló vonast til að þar verði stærsti
markaður heims fyrir hlutabréf sjáv-
arútvegsfyrirtækja, að því er fram
kemur í tímaritinu Norsk Fiskeopp-
drett(NF).
Þrátt fyrir aldalanga hefð fyrir
fiskveiðum við Noreg eru aðeins þrjú
ár síðan hlutabréf fyrsta sjávarút-
vegsfyrirtækisins, Pan Fish ASA, var
skráð í Kauphöllinni í Ósló. Um þess-
ar mundir er verið að búa 10-15 sjáv-
arútvegsfyrirtæki undir skráningu í
Kauphöllinni.
Oddleif Hatlum, deildarstjóri hjá
Kauphöllinni í Ósló, segir í samtali við
NF að til að auka áhuga alþjóðlegra
sjávarútvegsfyrirtækja og íjárfesta,
þurfi að fá fjögur til fimm fyrirtæki af
sömu stærðargráðu og Pan Fish og
Fjord Seafood til að skrá bréf sín hjá
Kauphöllinni. Um er að ræða tvö af
stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum
Noregs. Hatleif segir að Norðmenn
séu í forystuhlutverki hvað varðar
þróun á tækjabúnaði fyrir sjávarút-
veg og fiskeldi. Fjármálasérfræðing-
ar landsins hafi uppgötvað þetta for-
skot og verðbréfamiðlarar og aðrir í
viðskiptalífinu hafi stöðugt aukið
þekkingu sína á sjávarútvegi. Hatleif
segir enda nauðsynlegt að verðbréfa-
miðlarar og aðrir fjármálasérfræð-
ingar hafi góða þekkingu á sjávarút-
veginum ef markmiðið eigi að nást um
að í Ósló verði stærsti markaður fyrir
hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja.
Hatleif leggur áherslu á að skrán-
ing á hlutabréfamarkað sé ekki mark-
mið í sjálfu sér, eins og margir virðast
halda. Hann segir að forsvarsmenn
fyrirtækja sem íhuga skráningu verði
að gera sér Ijóst hvert markmiðið
með skráningunni eigi að vera og
bendir jafnframt á að hún kosti sitt.
Skráningin verði að vera leið að
markmiði, s.s. að gera hlutabréf fyr-
irtækis seljanlegri eða að nálgast auk-
ið fjármagn. Skráningunni fylgi einn-
ig ýmsar skyldur og vegi upplýsinga-
skyldan þar þyngst.
Kauphöllin í Ösló er lítil í alþjóða-
samhengi. Á síðasta ári námu við-
skipti með hlutabréf þar um 4.000
mifijörðum íslenskra króna en veltan
verður mun meiri á þessu ári þar sem
talan var komin í 4.500 milljarða
króna í lok október sl. Kauphöllin
verður gerð að hlutafélagi á næsta ári
samkvæmt nýjum lögum um kaup-
hallir sem Stórþingið samþykkti ný-
lega.
Því hefur verið haldið fram að er-
lendir ijárfestar forðist Kauphöllina í
Ósló vegna lítils markaðar og meiri
hættu á innherjaviðskiptum en á
stærri mörkuðum. Innan Kauphallar-
innar hefur verið unnið að því að auka
traust fjárfesta á norska markaðin-
um. Smæð norska markaðarins er
einmitt ein ástæðan fyrir aðild Kaup-
hallarinnar að Norex-samstarfinu,
samstarfi norrænna kauphalla, þ.m.t.
Verðbréfaþings íslands.
Kinetic Chronograph
imþ|oppun
sérstakrar
tækni og
hönnunar
Úr sem er engu líkt
Enn ein byltingarkennda ný\ungin frá
Seiko.
KRINGLUNNI FRIHAFNARVERSLUN
REYKJAVÍK FLUGSTÖÐ KEFLAVÍK
SÍMI: 588 7230 SÍMI: 425 0800
FAX: 588 7232 FAX: 588 7232
WWW.LEONARD.IS
Morgunblaóið/Ásdís
Jakub Jacobsen, eigandi Rúmfatalagersins, var valinn frumkvöðull ársins
2000 og Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, hlaut Viðskiptaverðlaunin 2000.
JÓN Sigurðsson, forstjóri Össurar
hf., hlaut í gær Viðskiptaverðlaunin
2000 sem Viðskiptablaðið, Stöð 2 og
DV standa að. Frumkvöðull ársins
var valinn Jákup Jacobsen, stofn-
andi Rúmfataiagersins.
í erindi Valgerðar Sverrisddttur,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, við
afhendingu verðlaunanna kom
fram að Jákup Jacobsen og meðeig-
andi hans Jákup Purkhus opnuðu
sína fyrstu verslun í Færeyjum árið
1987 undir nafninu Rúmfatalager-
inn. Skömmu siðar opnuðu þeir
tvær slíkar verslanir hér á landi, í
Reykjavík og á Akureyri. Á þeim
þrettán árum sem liðin eru frá
stofnun Rúmfatalagersins hefur
verslunum fjölgað ört og eru þær
núna nfu talsins: fímm á ísiandi, ein
í Færeyjum og fjdrar í Kanada.
„Nú síðast vakti Jákup eftirtekt í
íslensku viðskiptalífí með þátttöku
sinni í uppbyggingu Smáratorgs í
Kdpavogi þar sem enn eru metn-
aðarfullar fyrirætlanir um frekari
uppbyggingu. Með svipuðum stór-
hug var ráðist í byggingu Gler-
ártorgs á Akureyri, glæsilegrar
verlsunarmiðstöðvar sem opnuð
var nú i' haust.
Það er því óhætt að segja að hvar
sem Jákup Jacobsen kemur að at-
vinnurekstri megi sjá merki um
stdrhug, frumkvæði og dbilandi
drifkraft til uppbyggingar og fram-
fara. Jákup Jacobsen er því sann-
kallaður frumkvöðull,“ að því er
fram kom (máli Valgerðar er hún
veitti Jákup verðlaunin í gær.
Sexföld veltuaukning á
þremur árum
Að sögn Valgerðar hafa sfðustu
tvö ár verið viðburðarík hjá Össuri
hf. Árið 1999 var Össur hf. opnað
almennum Qárfestum og hlutabréf
félagsins voru skráð á aðallista
Verðbréfaþings íslands í oktdber
1999. í mars sl. keypti Össur hf.
bandari'ska stoðtækjafyrirtækið
Flex-Foot fyrir 5,3 milljarða krdna.
I oktdber keypti félagið tvö sænsk
fyrirtæki, Pi Medical AB og Karls-
son & Bergström AB og f lok ndv-
ember keypti Össur bandari'ska
stoðtækjafyrirtækið Century XXII
Innovations.
Valgerður sagði að með kaupum
á þessum fjdrum fyrirtækjum hefði
félagið vaxið ört. Á siðasta ári hefði
velta þess verið um 1,3 milljarðar
sem væri 22% aukning frá árinu á
undan. í ár er áætlað að velta
félagsins verði 3,6 milljarðar krdna
og á því næsta 6,5 milljarðar krdna.
Gangi sú áætlun eftir hefur velta
Össurar meira en sexfaldast á
þremur árum.
„Jdn Sigurðsson tdk við starfí
forstjdra Ossurar hf. vorið 1996 og
hefur leitt fyrirtækið í gegnum það
mikla breytingar- og uppbygging-
arskeið sem hér hefur verið lýst.
Undir hans forystu er Össur hf.
orðið að leiðandi fyrirtæki á sínu
sviði á heimsmarkaði og er komið í
hdp stærstu og öflugustu fyrir-
tækja landsins. Jdn Sigurðsson er
því vel að þvf kominn að hljóta Við-
skiptaverðlaunin árið 2000,“ sagði
Valgerður Sverrisddttir við veit-
ingu verðlaunanna í gær.
Seðlabanki íslands
Peningastefnan óbreytt
,A- MEÐAN ekki eru ótvfræð merki
komin fram um að þenslunni sé farið
að linna, þá munum við halda þessari
aðhaldssömu peningastefhu sem við
höfum haft,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson, bankastjóri Seðlabank-
ans, þegar hann var spurður álits á
sjónarmiðum sem fram hafa komið að
undanfömu, meðal annars frá
Hreiðari Má Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra Kaupþings hf. í New
York, þess efnis að ástæða sé til fyrir
Seðlabankann að fara að lækka vexti
sína.
Beöiö eftir nýjum tölum
um útlán banka
Birgir íslefur bætti því við að þótt
ýmislegt gæti bent til þess að farið sé
að draga úr þenslu, séu hinar tölulegu
upplýsingar þó ekki nægilega
ákveðnar í þá átt, þannig að engin
ákvörðun hafi verið tekin um breyt-
ingu á peningastefnunni. Vextir séu
þó í stöðugu endurmati í bankanum,
bæði til hækkunar og lækkunar, eftir
því sem nauðsynlegt sé til að uppfylla
markmið peningastefnunnar, sem sé
fyrst og fremst stöðugt verðlag.
Varðandi hinar tölulegu upplýsing-
ar nefndi Birgir ísleifur sem dæmi að
grannt sé fylgst með útlánaþenslunni
í bankakerfinu sem hafi verið býsna
mikil til þessa. Nú sé beðið talna fyrir
nóvember og þær komi líklega í þess-
ari viku.
Hagnaður Hluta-
bréfasjóðs Búnaðar-
bankans 127 milljónir
Kaupir 20%
í Hlutabréfa-
sjóðnum hf.
ÍSLANDSBANKI-FBA hf. hefur
keypt bréf í Hlutabréfasjóðnum hf.
fyrir 1,2 milljarða króna. Eftir við-
skiptin á bankinn 20,6% hlut og er
stærsti hluthafinn. í tilkynningu segir
að kaupin hafi verið gerð í samráði við
stjóm sjóðsins og tilgangurinn sé að
taka þátt í nýjum fjárfestingartæki-
færum. „Hlutabréfasjóðurinn hf. hef-
ur aðallega fjárfest í skráðum hluta-
félögum. Hann hyggst nú leggja
meiri áherslu á þátttöku í umbreyt-
ingarverkefnum, t.d. endurskipulagn-
ingu fyrirtækja, sem gætu fært sjóðn-
um hærri arðsemi. Eigið fé sjóðsins
er nú um 5,4 milljarðar og heildar-
eignir ríflega 8,5 milljarðar króna.“
HAGNAÐUR Hlutabréfasjóðs Bún-
aðarbankans á tímabilinu maí til
október nam fyrir skatta 176,9 millj-
ónum króna og 126,9 milljónum
króna eftir skatta. Óinnleystur geng-
ishagnaður í lok tímabilsins nam 13,5
milljónum króna en óinnleystur
gengishagnaður lækkaði á tíma-
bilinu um 580,4 milljónir króna.
Heildareignir sjóðsins í lok tímabils-
ins námu 3.605,1 milljón króna.
Hlutafé sjóðsins nam 2.048,8 millj-
ónum króna og eigið fé nam 3.108,5
milljónum króna í lok tímabilsins.
í tilkynningu frá sjóðnum kemur
fram að verðbréfaeign sjóðsins í lok
október nam 3.329 milljónum króna.
Verðmæti innlendra hlutabréfa og
sjóða sem fjárfesta í innlendum
hlutabréfum í eigu félagsins nam
1.492 milljónum króna í lok október,
eða 41,4% af heildareignum. Verð-
mæti erlendra hlutabréfa og hlut-
deildarskírteina sjóða sem fjárfesta í
erlendum hlutabréfum nam 1.140
milljónum króna í lok tímabilsins,
eða 31,6% af heildareignum. Verð-
mæti skuldabréfa og hlutdeildar-
skírteina skuldabréfasjóða í eigu
félagsins nam 698 milljónum króna,
eða 19,4% af heildareignum.
Stærstu einstakir eignarhlutir
sjóðsins eru í íslenska Hugbúnaðar-
sjóðnum hf. og Fjárfestingarsjóði
Búnaðarbankans hf., ÍS-15. Hluthaf-
ar í októberlok voru 9.969 talsins, en
þeir voru 9.937 í byrjun tímabilsins,
og fjölgaði því um 32 á tímabilinu. A
tímabilinu greiddi sjóðurinn 7% arð
til hluthafa.