Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 49
GUÐRÚN
BJARNADÓTTIR
+ Guðrún Bjarna-
dóttir fæddist f
Hafnarfirði 16. aprfl
1930. Hún lést á St.
Jósepsspítala í
Hafnarfirði hinn 14.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Ása Þuríður
Bjarnadóttir hús-
móðir og Bjarni
Árnason sjómaður.
Guðrún ólst upp í
Hafnarfirði á
Reykjavíkurvegi 24,
í hópi átta systkina.
Tvö þeirra eru á lífi:
Árni Bjarnason, búsettur í Hafn-
arfirði og Reynir Bjarnason sem
býr í Kópavogi. Guðrún lauk
gagnfræðaprófi.
Arið 1951 giftist hún Skarp-
héðni Helga Kristjánssyni skip-
stjóra en hann lést 18. ágúst
1998. Þau bjuggu
allan sinn búskap í
Hafnarfirði, lengst
af á Háabarði 8.
Foreldrar Skarp-
héðins voru Jó-
hanna Elínborg Sig-
urðardóttir hús-
móðir og Kristján
Björgvin Sigurðs-
son sjómaður. Guð-
rún og Skarphéðinn
eignuðust einn son,
Ásgrím, f. 1958.
Maki er Guðlaug
Dröfn Hreiðars-
dóttir. Þau eiga
fjögur börn: Hafstein Hrannar,
f. 1981, Unni Ösp, f. 1986, Davíð
Steinar, f. 1992 og Klöru Hödd,
f. 1994.
títför Guðrúnar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Föðursystir okkar Guðrún eða
Gunna frænka eins og við kölluðum
hana er látin eftir illvígan sjúkdóm,
þjáningunum er lokið, eftir stönd-
um við hljóð og lítum yfir farinn
veg. Við viljum þakka fyrir áratuga
vináttu, góðvild og kærleika í okkar
garð. Gunna var róleg hæglát og
föst fyrir skemmtileg og glaðvær í
góðra vina hópi, tryggur vinur og
hægt að treysta henni.
Ása átti því láni að fagna að búa
sem unglingur hjá þeim hjónum og
syni þeirra Ásgrími um tíma, þetta
var tími sem hún hefði ekki viljað
vera án, þá myndaðist sú vinátta
sem aldrei slitnaði. Ogleymanlegar
eru ferðir með þeim bæði innan-
lands og utan.
Guðný minnist þess að þau 24 ár
sem hún bjó fyrir vestan komu
Gunna og Skarpi á hverju ári í
heimsókn. Þegar við lítum yfir far-
inn veg söknum við stundanna með
henni í sólbaði við litla notalega
húsið þeirra og góðu pönnukakn-
anna sem Skarpi bakaði. Gunna átti
sérstaklega góðan lífsförunaut þar
sem Skarphéðinn var. Þau hjón
voru mjög samrýnd og var það
henni mikið áfall þegar Skarpi lést
fyrir rúmum tveimur árum eftir
mjög löng og erfið veikindi, hún
hélt ótrauð áfram, flutti í litla fal-
lega íbúð, fékk sér nýjan bfl og
byrjaði að keyra aftur eftir ára-
langt hlé.
Hún bar hag Ásgríms, Drafnar
og barnabarnanna mjög fyrir
brjósti, og vottum við þeim okkar
dýpstu samúð.
Gunna mín, við þökkum þér fyrir
samfylgdina.
Því að hvað er það að deyja annað en
standa nakinn í blænum og hverfa inn
í sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga andann
annað en að frelsa hann frá friðlausum
öldum lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti sínum
og ófjötraður
leitað á fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni
þagnarinnar,
mun þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá
fyrst
munt þú hefja fjallgönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa
í fyrsta sinn.
(Úr Spámanninum.)
Ruth, Ása og Guðný.
Blómabúðir
m
öaúðskom
v/ Fossvogslot'UjHCjar'ð
Sími: 554 0500
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Bblómaverkstæði
INNA^
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sínii 551 9090.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, sonur og tengdasonur,
EIRÍKUR KRISTINN NIELSSON,
Kambsvegi 7,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 17. desmber.
Jarðsungið verður frá Áskirkju fimmtudaginn
28. desember kl. 13.30.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks á deild 11 E Landspítalanum við
Hringbraut fyrir einstaka umönnun.
Jónína Eggertsdóttir,
Eggert Jóhann Eiríksson,
Bergþóra Eiríksdóttir,
Sigríður Th. Eiríksdóttir, Atli Örvar,
Jónína Valgerður Örvar,
Bergþóra Eiríksdóttir
Sigríður Th. Árnadóttir
t
Okkar ástkæra móðir, systir og vinur,
PIA ÁSMUNDSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum mánudaginn 18. des-
ember.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 28. desember kl. 13.30.
Ari Rafn Sigurðsson, Steinunn Garðarsdóttir,
Kjartan Ásmundsson, Elín Geira Óladóttir,
Egill Ásmundsson,
Ólafur Óskar Einarsson
og aðrir aðstandendur.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
í f Svcrrir wMBaldur
Einarsson ■ '«vrrr,r Frcderiksett
útfararstjóri, Wt'wÆS Q^cn Wfé Æm útfararsijóri,
W á M sími 896 8242 WÍ.ÁÆKf útfararstjóri. WIK .ÆW sml* $95 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS BLÖNDAHL KJARTANSSON,
er látinn og hefur jarðarför hans farið fram í
kyrrþey.
C
Sighvatur Blöndahl, Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir,
Guðrún Blöndahl,
Kjartan Blöndahl, Erla Þorsteinsdóttir,
Arngrímur Blöndahl, Bryndís Guðjónsdóttir,
Ása Blöndahl, Halldór Guðnason,
Friðbjörg Blöndahl, Guðmundur Guðbjörnsson,
Einar Einarsson, Alda Ingólfsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR ÞORBJÖRNSSON,
Árskógum 8,
lést mánudaginn 18. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Halldóra Kr. Sigurðardóttir,Guðmundur Heiðar Guðjónsson,
Jón Þór Hjaltason, Ragnhildur Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Kær frændi minn,
BJARNI SIGURÐSSON
frá Hausthúsum,
Garði,
lést á dvalarheimilinu Garðvangi laugardaginn
16. desember.
Jarðsett verður frá Útskálakirkju föstudaginn
22. desember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarni Sigurðsson.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR BERGSSON,
Krókatúni 17,
Hvolsvelli,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
17. desember.
Guðríður Árnadóttir,
Jónína Sigurðardóttir,
Árný Jóna Sigurðardóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
EMILÍA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Auðbrekku,
Húsavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga, Húsavík,
föstudaginn 15. desember, verður jarðsungin
frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 21. desem-
ber kl. 14:00.
Gunnþórunn Guðrún Þorsteinsdóttir,
María Halldóra Þorsteinsdóttir, Stefán Jakob Hjaltason
og aðrir aðstandendur.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN SIGURRÓS KRISTJÁNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Ási,
Hveragerði,
verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju á morgun, fimmtudaginn
21. desember kl. 13.00. Jarðsett verður í Hruna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rúnar Andrésson,
Sólberg Viðarsson.